Morgunblaðið - 09.03.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2021
Hópurinn Áhugafólk um sam-göngur fyrir alla hefur lýst
skoðunum sínum á samgöngu-
málum á höfuðborgarsvæðinu eins
og lesa má um á síðunni
samgongur-
fyriralla.com.
Þórarinn
Hjaltason er
talsmaður hóps-
ins og sagði í
samtali við
Morgunblaðið í
gær að hóp-
urinn legði til
að áform um borgarlínu yrðu end-
urskoðuð. Hópurinn væri með til-
lögu um ódýrara hraðvagnakerfi:
„Við höfum lagt fram tillögu um
svokallað BRT-light (e. Bus Rapid
Transit) og það er allt að fimm
sinnum ódýrara en borgarlínan í
þeirri mynd sem hún er núna. Okk-
ar tillaga gerir nánast sama gagn
og er laus við ýmsa ókosti.“
Fimmfaldur munur verður aðteljast talsverður munur á
kostnaði, ekki síst þegar um er að
ræða milljarðatuga framkvæmdir,
eða jafnvel meira.
Og þegar tillaga Áhugafólks umsamgöngur fyrir alla er skoð-
uð nánar þá gerir hún ráð fyrir
mjög svipaðri tíðni vagna og borg-
arlínuhugmyndin, eða að vagn-
arnir gangi á 10 mínútna fresti á
álagstímum, þegar borgarlínu-
vagnar eiga að ganga á 7,5 mín-
útna fresti.
Verði borgarlínan að veruleikaer sennilega óhætt að fullyrða
að þetta verði dýrustu mínútur
mannkynssögunnar.
En það er svo sem vissulega all-nokkur árangur og ef til vill
óhætt fyrir forgöngumenn borgar-
línu að hafa strax samband við
Heimsmetabók Guinnes.
Dýrustu mínútur
í sögu mannkyns
STAKSTEINAR
TIL HAMINGJU!
Við óskum Kristínu Svövu Tómasdóttur
til hamingju með Fjöruverðlaunin 2021.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Níu konur hafa lagt fram kærur til
Mannréttindadómstóls Evrópu
(MDE) á hendur íslenska ríkinu.
Konurnar höfðu allar áður kært kyn-
ferðisofbeldi, heimilisofbeldi eða
kynbundna áreitni til lögreglu en
mál þeirra voru felld niður eftir
rannsókn lögreglu og var sú ákvörð-
un staðfest af ríkissaksóknara. 70 til
85% mála af þessum toga eru felld
niður áður en þau komast inn í dóm-
sal.
Um er að ræða níu stakar kærur,
ekki hópmálsókn, enda tekur MDE
ekki við slíkum málsóknum.
„En það er ástæða fyrir því að við
erum að senda níu mál: Við erum að
sýna fram á kerfisbundið misrétti
þannig að við sendum eitt mál og svo
sendum við næsta og þá vísum við í
fyrra málið. Þannig að við erum allt-
af að vísa í sömu greinar Mannrétt-
indasáttmála Evrópu, við erum að
reyna að gera dómstólnum grein fyr-
ir því að þetta sé ekki bara eitthvert
eitt mál sem klúðrast heldur er þetta
gegnumgangandi mynstur,“ segir
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,
talskona Stígamóta, við mbl.is.
Nánari umfjöllun er á mbl.is og
þar rætt við nokkrar af þeim konum
sem kæra. ragnhildur@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Kærur Konurnar efndu til fjölmiðlafundar í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í
gær þar sem kærur til Mannréttindadómstóls Evrópu voru kynntar.
Níu konur kæra
vegna ofbeldismála
Kærur til MDE á hendur ríkinu
Nú er orðið ljóst að tveir frambjóð-
endur munu sækjast eftir embætti
formanns BHM á aðalfundi banda-
lagsins, sem haldinn verður 27. maí
næstkomandi.
Frestur til að skila inn framboð-
um til formennsku í BHM rann út
25. febrúar og gefa tvö kost á sér í
embætti formanns BHM, þau Frið-
rik Jónsson, formaður Félags há-
skólamenntaðra starfsmanna
Stjórnarráðsins (FHSS), og Marí-
anna H. Helgadóttir, formaður Fé-
lags íslenskra náttúrufræðinga
(FÍN).
Eins og fram hefur komið gefur
Þórunn Sveinbjarnardóttir sem ver-
ið hefur formaður BHM undanfarin
sex ár ekki kost á sér til áframhald-
andi formennsku.
Hefst 2 vikum fyrir aðalfund
BHM er bandalag 27 fag- og
stéttarfélaga háskólamenntaðs fólks
á íslenskum vinnumarkaði og voru
félagsmenn aðildarfélaga banda-
lagsins tæplega 16.000 í upphafi
þessa árs. Félagsmenn sem vilja
gefa kost á sér til formennsku í
BHM þurfa að hafa skrifleg með-
mæli frá sínu félagi og er það í raun
félagið sem tilkynnir um framboðið
til framboðsnefndar bandalagsins.
Fulltrúar á aðalfundi BHM kjósa
síðan næsta formann bandalagsins í
rafrænni kosningu sem hefst tveim-
ur vikum fyrir aðalfund og lýkur
tveimur dögum fyrir fundinn í maí-
mánuði. omfr@mbl.is
Tvö takast á um formennskuna
Maríanna H.
Helgadóttir
Friðrik
Jónsson
Kjósa á formann
BHM í rafrænni
kosningu í maí