Morgunblaðið - 09.03.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2021
Fundarboð Kviku banka hf.
Ádagskrá fundarins verða eftirfarandimál.
1. Tillaga stjórnar um samruna Kviku banka
hf.,TM hf. og Lykils fjármögnunar hf.
2. Tillaga stjórnar um breytingar á
samþykktum félagsins vegna samrunans,
þ.e. um hækkun hlutafjár.
3. Umræður og önnur mál löglega borin fram.
Tillaga stjórnar um samruna og
breytingar á samþykktum
Þann 28. september 2020 hófust formlegar
samrunaviðræður Kviku banka hf. og TM hf.
um samruna félaganna. Áformað var að Lykill
fjármögnun hf. myndi sameinast félögunum
á síðari stigum en eftir nánari skoðun var
ákveðið að framkvæma þríhliða samruna
félaganna þriggja. Stjórnir Kviku banka hf.,
TM hf. og Lykils fjármögnunar hf. undirrituðu
samrunasamning 25. nóvember 2020 þar sem
samkomulag var um að samrunaáætlun og önnur
samrunagögn yrðu undirrituð að uppfylltum
tilteknum skilyrðum.
Samrunaáætlun var undirrituð af stjórnum
félaganna 23. febrúar 2021. Þann sama dag voru
undirritaðar greinargerðir stjórna félaganna,
skýrslur sérfróðra matsmanna og samruna-
efnahagsreikningur félaganna. Samkvæmt
samrunaáætlun verða félögin sameinuð m.v.
1. janúar 2021 og munu hluthafar TM hf. fá
2.509.934.076 nýútgefna hluti í Kviku banka hf.
sem endurgjald fyrir hluti sína í TM hf. Hinir
nýútgefnu hlutir njóta sömu réttinda og aðrir
hlutir í Kviku banka hf. frá afhendingardegi.
Leggur stjórn því fram tillögu um að hlutafé verði
hækkað um 2.509.934.076 kr. að nafnvirði og
verða hinir nýútgefnu hlutir afhentir hluthöfum
TM hf. í skiptum fyrir eignarhlut þeirra í TM hf.
og Lykli fjármögnun hf.
Fyrirhugaður samruni var tilkynntur til
Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands og
Samkeppniseftirlitsins í desember 2020. Samþykki
Samkeppniseftirlitsins liggur fyrir með ákvörðun
dags. 26. febrúar 2021. Þann sama dag veitti
Fjármálaeftirlitið Kviku banka hf. heimild til að
fara með virkan eignarhlut í TM tryggingum hf.,
TM líftryggingum hf. og Íslenskri endurtryggingu
hf. Beðið er eftir samþykki Fjármálaeftirlitsins
fyrir samrunanum en gert er ráð fyrir að samþykki,
með fyrirvara um að samrunaferlinu verði lokið í
samræmi við ákvæði hlutafélagalaga,muni liggja
fyrir fyrir hluthafafundinn.
Aðrar upplýsingar
Fundarstörf fara fram á íslensku. Fundargögn
eru aðgengileg á heimasíðu félagsins á íslensku
og ensku utan þess að ársreikningar félagsins eru
eingöngu aðgengilegir á ensku. Fundargögn eru
aðgengileg á vefslóðinni https://www.kvika.is/
fjarfestaupplysingar/hluthafafundir/ og skrifstofu
félagsins að Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.
Boðið verður upp á fullgilda rafræna þátttöku á
fundinum, án þess að hluthafar séu viðstaddir á
fundarstað, í gegnum Lumi AGM.Hægt verður
að fylgjast með fundinum í gegnum vefstreymi
auk þess sem hluthafar geta kosið rafrænt og
borið upp skriflegar spurningar í gegnum Lumi
snjallforritið eða vefslóð Lumi AGM.Rafræn
þátttaka jafngildir mætingu á fundinn og veitir
rétt til þátttöku í honum að öðru leyti.
Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara
fram í gegnum Lumi AGM.Allir hluthafar, hvort
sem þeir mæta til fundarins á Hilton Reykjavík
Nordica eða taka þátt með rafrænum hætti, eru
hvattir til að hlaða niður snjallforriti Lumi AGM
í eigin snjalltæki, en jafnframt geta þeir greitt
atkvæði í gegnum vefslóð Lumi AGM.
Samrunaáætlun og önnur samrunagögn, þ.m.t.
greinargerðir stjórna, skýrslur sérfróðra matsmanna
og samrunaefnahagsreikningur, voru birt á heima-
síðu félagsins 24. febrúar sl. Þá hafa ársreikningar
félaganna þriggja sl. þrjú rekstrarár verið aðgengi-
legir á heimasíðum félaganna frá 18. febrúar sl.
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til
meðferðar á fundinum ef hann sendir um það skrif-
lega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar á heimilis-
fang félagsins eða á netfangið hluthafar@kvika.is.
Þeir hluthafar sem óska eftir því að fá tiltekið mál
tekið til meðferðar á hluthafafundinum skulu senda
beiðni um slíkt eigi síðar en tíu sólarhringum fyrir
boðaðan hluthafafund, eða í síðasta lagi kl. 16:00
laugardaginn 20.mars 2021.Kröfu skal fylgja rök-
stuðningur eða drög að ályktun til félagsstjórnar.
Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar
fyrir hluthafafund með því að senda erindi
á framangreint netfang eða bera þær upp á
fundinum sjálfum.
Aðilar sem eru skráðir hluthafar í hlutaskrá félagsins
þegar hluthafafundur fer fram geta beitt réttindum
sínum á hluthafafundinum.Hluthafar geta látið
umboðsmann sækja fundinn fyrir sína hönd.
Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett
umboð, en form að umboði er aðgengilegt á vefsíðu
félagsins.Umboð má leggja fram á fundinum eða
senda á framangreint netfang fyrir fundinn.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa
hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt
eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig á
vefsíðunni www.smartagm.com eigi síðar en kl.
16.00 þann 29. mars, eða degi fyrir fundardag.
Með innskráningu þarf að fylgja mynd af gildum
skilríkjum og umboð, ef við á.
Hluthafafundur er lögmætur ef löglega er til hans
boðað, óháð fundarsókn. Ákvörðun um samruna
fer eftir 93. gr. laga nr. 2/1995.
Fundarboð þetta, upplýsingar um heildarfjölda
hluta og atkvæða á fundarboðsdegi, dagskrá, til-
lögur stjórnar til hluthafafundar, ásamt umboðs-
formum eru nú aðgengileg á vefsíðu félagsins.
Önnur gögn vegna hluthafafundarins verða gerð
aðgengileg eigi síðar en þriðjudaginn 23. mars
n.k. á vefsíðu félagsins. Sé misræmi milli fundar
gagna á íslensku og ensku, gildir íslenska útgáfan.
Hluthafafundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930, verður haldinn þriðjudaginn 30. mars 2021 kl. 16:00, á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.
Stjórn Kviku banka hf.
til hluthafafundar 30. mars 2021
Minni snjór er nú á hálendinu en
marga undanfarna vetur. Fara þarf
í 500 til 600 metra hæð til sjá sam-
felldar fannbreiður. Næsta lítill
snjór er á sunnanverðum Biskups-
tungnaafrétti ofan við Gullfoss – og
fyrst fyrir innan Bláfellsháls og
Hvítárvatn eða þegar komið er á
hinn eiginlega Kjöl er snjór sem
liggur yfir víðfeðmum svæðum.
Ágætt veður var á hálendinu í gær
og klukkan 16 var hægur vindur og
eins stigs hiti á Hveravöllum.
Önnur svæði á sunnanverðu
landinu eru yfirleitt snjólétt um
þessar mundir, jafnvel þótt komið
sé langt inn á hálendisbrúnina.
Þessu ræður að lítið hefur snjóað í
vetur, aukinheldur sem í hlýindum
að undanförnu tók talsvert mikinn
snjó upp sem skilaði sér sem leys-
ing í fallvötnum. Verulegt snjó-
magn er hins vegar á Landmanna-
afrétti eftir ofankomu í austlægum
áttum í haust, að sögn Einars
Sveinbjörnssonar veðurfræðings.
Hekla, hið volduga fjall Suður-
landssléttunnar, er hvít frá rót upp
á tind, eins og sést á þessari mynd
sem blaðmaður Morgunblaðsins
tók í flugi þar yfir um helgina.
Fjallið er 1.491 metri á hæð og
hvergi er dökkan díl á því að sjá, en
slíkar leysingar hafa samkvæmt
mati manna stundum bent til hita
og að komið sé að eldgosi.
sbs@mbl.is
Hekla er hvít en hálendið snjólétt
Eldfjall án dökkra
díla Fannbreiður
eru langt innan við
hálendisbrúnina
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hekla Í flugi yfir fjallið mikla sást vel til gíganna, bæði þess sem er í sunnanverðu fjallinu og nær á þessari mynd og svo toppgígsins sem er á hæsta hjalla.