Morgunblaðið - 09.03.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2021
Hristum
þetta af
okkur
L augarnar í Rey k javí k
w w w. i t r. i s
2m
Höldumbilinu og sýnum
hvert öðru tillitssemi
50 ára Tinna er Reyk-
víkingur en býr á Akur-
eyri. Hún er hjúkrunar-
fræðingur og ljósmóðir
frá HÍ. Tinna er ljós-
móðir á fæðingardeild
Sjúkrahússins á Akur-
eyri og sjálfstætt starf-
andi í heimaþjónustu.
Maki: Kári Ellertsson, f. 1969, íþrótta-
kennari í Brekkuskóla.
Börn: Arnór, 1997, Elísa Ýrr, f. 1998, og
Egill Uni, f. 2009. Barnabörnin eru Elvar
Kató, f. 2019, sonur Elísu, og Bría Sif, f.
2019, dóttir Arnórs. Stjúpdóttir er Helga
Líf, f. 1994.
Foreldrar: Jón H. Karlsson, f. 1949, við-
skiptafræðingur, og Erla Valsdóttir, f. 1951,
húsmóðir. Þau eru búsett í Reykjavík.
Tinna
Jónsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Fólk er óvenju eirðarlaust, ergilegt
og jafnvel þrjóskt í dag. Vonandi byggist
eðlisávísun þín ekki bara á þægindum því
allt það góða yrði þá utan seilingar.
20. apríl - 20. maí
Naut Stundum er besta aðferðin til þess
að létta af sér þrýstingi að ofhlaða. Gefðu
þér góðan tíma til þess að meta aðstæður.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Persóna þín er rólegri eftir sam-
ræður við fjölskylduna. Skyndilega er mik-
ilvægt að bara gera eitthvað rosasvalt..
21. júní - 22. júlí
Krabbi Nú reynir aldeilis á þig í starfi og
eins gott að þú sért með þitt á hreinu.
Búðu þig undir snarpa glímu en þér er sig-
urinn vís.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Atlaga frá vini setur þig úr jafnvægi í
dag. Láttu hendur standa fram úr ermum
og komdu þeim málum í framkvæmd sem
hafa setið á hakanum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er eitt og annað að gerast í
kringum þig. Notfærðu þér það og haltu
þannig stöðu þinn sem sá svalasti á svæð-
inu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að kynna þér söguna betur,
því það má margt af henni læra um nútíð-
ina og hún geymir líka lykla að framtíð-
inni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Margir möguleikar eru enn í
stöðunni varðandi samband þar sem erf-
iðleikar eru til staðar. Að vita hvenær
maður á að halda spilunum og hvenær
maður á að pakka er galdurinn.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Notaðu daginn til þess að
gera langtímaáætlanir tengdar útgáfu eða
menntun. Með því að segja já, gefur þú
hæfileikunum tækifæri til að koma í ljós.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Í dag lítur þú framtíðina björt-
um augum. Skrifaðu hugmyndir niður
þannig að þú getir íhugað þær betur síðar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér vegnar vel ef þú vinnur
undirbúningsvinnuna. Vertu því þol-
inmóður og leggðu vandasöm mál til hlið-
ar þar til niðurstaða liggur fyrir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Aðstæður þínar hafa breyst og þú
sérð að þú þarft að breyta klæðaburði
þínum. Kannski finnur þér eldri manneskja
sig knúna til þess að gefa þér ráð.
starfaði með fiðluleikaranum Hlíf
Sigurjónsdóttur um tíma, auk þess
að spila fjölda einleikstónleika. Sím-
og síðar geisladisk með gítar og
klavikord. Einnig gáfu þeir út
myndband með leik sínum. Símon
S
ímon Helgi Ívarsson
fæddist 9. mars 1951 í
Reykjavík og ólst upp til
fimm ára aldurs á Mel-
haga 7 og síðar í Hamra-
hlíð 9. „Ég var á sumrin í sveit hjá
móðurafa mínum í Vatnskoti í Þing-
vallasveit, en einnig á gróðrarstöð-
inni Laufskálum í Borgarfirði hjá
móðurbróður mínum.“ Á unglings-
árunum stundaði Símon knatt-
spyrnu með Val.
Símon hóf skólagöngu í Eskihlíð-
arskóla og fór síðan í Hlíðaskóla og
í framhaldi í Ármúlaskóla og Iðn-
skólann í Reykjavík. Hann stundaði
gítarnám við Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar hjá Gunnari H.
Jónssyni og lauk þaðan fullnaðar-
prófi vorið 1975 og kenndi jafn-
framt við skólann í tengslum við
kennaradeild skólans. Þá um haust-
ið hóf hann nám við Hochschule für
Musik und darstellende Kunst í
Vínarborg hjá prófessor Karl
Scheit. Þaðan lauk hann einleik-
araprófi vorið 1980.
Símon starfaði um skeið sem gít-
arkennari við Tónlistarskólann í
Luzern í Sviss, en eftir að hann
flutti aftur til Íslands hóf hann gít-
arkennslu við Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar og síðar við Lista-
skóla Mosfellsbæjar. Hann kenndi
auk þess kammertónlist við skólana.
Símon hefur sótt mörg gítarnám-
skeið, m.a. til Spánar, Ítalíu, Sviss
og Austurríkis, þar sem kennarar
hans hafa m.a. verið J. Tomas, M.
Gangi, A. Batista, M. Barrueco, T.
Korhonen, O. Ghighlia og D. Russ-
el. „Ég hef einnig sérhæft mig í
flamenco-tónlist og farið sérstakar
námsferðir til Spánar í þeim til-
gangi.“
Símon hefur farið í margar tón-
leikaferðir bæði hér heima og er-
lendis. Hann fór meðal annars í
nokkrar tónleikaferðir ásamt
austurríska gítarleikaranum Sieg-
fried Kobilza, og síðar með sænska
gítarleikaranum Torvald Nilsson og
þýska gítarleikaranum Jörgen Brill-
ing. Einnig starfaði hann nokkur ár
með austurríska orgelleikaranum
Orthulf Prunner en þeir gáfu út
plötu með samleik gítars og orgels
on hefur komið margsinnis fram í
útvarpi og sjónvarpi og hefur
stjórnað útvarpsþáttum um gítar
og gítartónlist og hlotið námsstyrk
frá ítalska ríkinu.
Hann var kosinn til formennsku
fyrir hagsmunasamtök tónlistar-
manna „Tónlistarbandalag Ís-
lands“ 1990 sem stóð m.a. fyrir
„Ári söngsins“ og gefið var út í
tengslum við það söngbækurnar
„Hvað er svo glatt“ og geisladisk-
urinn „Góðra vina fundur“. Einnig
var hann um tíma í stjórn Félags
íslenskra tónlistarmanna og Zen á
Íslandi Nátthaga. Símon gaf út
kennslubók fyrir byrjendur í gítar-
leik sem heitir Gítartónar árið
2001. Símon stofnaði Kammerkór
Mosfellsbæjar árið 2002 og hefur
verið stjórnandi hans síðan. „Kór-
inn er farinn að hittast aftur, við
höldum æfingar í Mosfellskirkju
og verðum með tónleika 29. apríl í
Guðríðarkirkju.“
Símon gaf út geisladiskinn Glím-
an við Glám með tónlist eftir
Gunnar Reyni Sveinsson og var
tilnefndur til Íslensku tónlistar-
verðlaunanna fyrir þann disk. Sím-
on var valinn bæjarlistamaður
Mosfellsbæjar árið 2005. Símon
hefur leikið á gítar á veitinga-
staðnum Caruso í Austurstræti og
víðar við ýmis tækifæri. Hann er
stofnliðsmaður hljómsveitarinnar
Fantasía Flamenca sem sérhæfir
sig í flutningi flamenco-tónlistar,
en með honum í hljómsveitinni eru
m.a. sonur hans og tengdadóttir.
„Við vorum með tónleika í Hörpu
7. febrúar, í Norðurljósum, og
fylltum salinn eins og mátti. Það
er því orðið nóg að gera í tónleika-
haldi.“
Útivist og ferðalög hafa ætíð
verið í miklu uppáhaldi bæði inn-
an- og utanlands hjá Símoni.
„Spánn hefur átt þar stóran sess
þar sem tenging við flamenco-
tónlistina hefur átt hug minn, enda
hefur tónlistin verið samofin bæði
við áhugamál og atvinnu. Þá nýt
ég þess að eiga góðar stundir með
fjölskyldunni og njóta góðra veit-
inga, enda er María eiginkona mín
algjör meistarakokkur.“
Símon H. Ívarsson tónlistarmaður – 70 ára
Fjölskyldan Við útskrift Hinriks, elsta afabarnsins, árið 2020, frá Borgar-
holtsskóla, en á myndina vantar næstelsta afabarnið, Símon Bjarka.
Nóg að gera í tónleikahaldi
Gítarleikarinn Símon við brúðkaup
Ívars og Ástrúnar í Vatnsdal.
Með afadrengjum Símon ásamt
Símoni Bjarka og Friðbirni Leó.
40 ára Jóna er frá
Efri-Hóli undir Eyja-
fjöllum en býr í
Reykjavík. Hún er við-
skiptafræðingur frá
Háskólanum í Reykja-
vík og er sérfræðingur
í reikningshaldi hjá Al-
menna lífeyrissjóðnum.
Maki: Guðmundur Vigfússon, f. 1975,
húsasmiður að mennt en er verkefna-
stjóri hjá Félagsbústöðum.
Börn: Silja, f. 2003, Harpa, f. 2007, og
Aron, f. 2010.
Foreldrar: Ingibjörg Hrefna Guðmunds-
dóttir, f. 1962, vinnur í móttöku hjá
Sjúkraþjálfun Íslands, búsett í Hafnar-
firði, og Sigurður Ragnarsson, f. 1958,
rútubílstjóri hjá Teiti, búsettur á Selfossi.
Jóna Bergþóra
Sigurðardóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is