Morgunblaðið - 09.03.2021, Síða 25

Morgunblaðið - 09.03.2021, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2021 Fallegar vörur fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Luna stólar Á snúning, í 3 litum Verð 39.000 kr. „SAGÐISTU VERA TUTTUGU EÐA VERA FÆDD TUTTUGU ÞEGAR ÉG HRINGDI Í ÞIG?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að eiga einhvern að sem gerir mánudagana bærilega. GAH GA GA GA!! ÉG HELD AÐ HANN HAFI EKKI HUGSAÐ ÞETTA TIL ENDA VÁ! ÉG KEYPTI TVO DRYKKI HANDA ÞESSARI GULLFALLEGU KONU OG NÚ SEGIST HÚN VERA AÐ VERÐA ÁSTFANGIN… …AF BARÞJÓNINUM Æ „ÞÚ ERT LJÓNHEPPIN EF ÞÉR TEKST AÐ UPPRÆTA ÞESSA FÍFLABREIÐU.” Fjölskylda Eiginkona Símonar er María Jó- hanna Ívarsdóttir, f. 5.6. 1952 í Húnavatnssýslu. María hefur starfað sem framkvæmdastjóri hjá Mirella ehf. frá árinu 1999. Þau búa í Mosfellsbæ. Foreldrar Maríu voru hjónin Guðrún Sigfúsdóttir, f. 18.5. 1924, d. 29.8. 2016, húsmóðir og Sveinn Ívar Níelsson, f. 29.12. 1912, d. 23.4. 1999, bóndi. Þau voru lengst af búsett á Flögu í Vatnsdal og síðar á Hvammstanga. Barn Símonar með fv. eigin- konu, Ólínu Ingibjörgu Kristjáns- dóttur, f. 3.7. 1950, er 1) Katrín Sylvía, f. 31.3. 1973, snyrtifræð- ingur í Kópavogi. Barn hennar er Hinrik Snær Katrínarson, f. 3.12. 1999. Börn Símonar og Maríu eru; 2) Ívar, f. 10.6. 1983, tónlistarkenn- ari og starfar við Listaskóla Mos- fellsbæjar, kona hans er Ástrún Friðbjörnsdóttir, f. 12.10. 1981, söngkona og framhaldsskólakenn- ari. Þau eru búsett í Mosfellsbæ. Synir þeirra eru Símon Bjarki, f. 18.4. 2011, og Friðbjörn Leó, f. 4.10. 2016; 3) Svandís Ósk, f. 11.7. 1990, meistaranemi við Háskólann í Stokkhólmi, sambýlismaður hennar er Stefán Örn Gíslason, f. 30.11. 1989, verkefnastjóri hjá UNICEF á Íslandi. Bræður Símonar voru Gunnar Páll Ívarsson, f. 7.8. 1949, d. 10.11. 2007, starfaði lengst af hjá Fisk- veiðisjóði Íslands og Íslandsbanka, og hálfbróðir sammæðra, Viggó Alfreð Oddsson, f. 2.12. 1932, d. 10.3. 1983, starfaði í Jóhannesar- borg í Suður-Afríku við landmæl- ingar, fyrst á vegum Sameinuðu þjóðanna og síðar hjá einkafyrir- tæki. Foreldrar Símonar voru hjónin Katrín Sylvía Símonardóttir, f. 27.9. 1912, d. 27.5. 2001, húsmóðir og Ívar Björnsson, f. 28.7 1919, d. 14.9. 2006, cand. mag, íslensku- kennari og kenndi lengst af við Verzlunarskóla Íslands. Þau bjuggu alla tíð í Reykjavík. Símon Helgi Ívarsson Katrín Jónsdóttir húsfreyja á Torfastöðum í Grafningi Sveinn Arnfinnsson bóndi á Torfastöðum Jónína Guðrún Sveinsdóttir húsfreyja í Vatnskoti í Þingvallasveit Símon Daníel Pétursson bóndi, smiður og uppfinningamaður í Vatnskoti Katrín Sylvía Símonardóttir húsfreyja í Reykjavík Helga Guðmundsdóttir húsfreyja á Brúsastöðum Pétur Jónsson bóndi á Brúsastöðum í Þingvallasveit Oddrún Pálsdóttir húsfreyja á Lundi í Þverárhlíð og í Lækjarkoti,Mýr. Sveinn Gíslason bóndi á Lundi og í Lækjarkoti Pálína Sigríður Sveinsdóttir húsfreyja á Steðja Björn Ívarsson bóndi á Steðja í Flókadal,Borg. Rósa Sigurðardóttir húsfreyja áSnældubeinsstöðum Ívar Rósant Sigurðsson bóndi á Snældubeinsstöðum í Reykholtsdal Úr frændgarði Símonar H. Ívarssonar Ívar Björnsson cand.mag., íslenskukennari í Reykjavík Í maí nk. verður gefið út úrvalljóða og lausavísna eftir Mý- vetninginn Hjálmar heitinn Frey- steinsson, sem lengi var heim- ilislæknir á Akureyri. Hann var landsþekktur fyrir snjallar vísur, enda allra manna fundvísastur á hið skoplega í tilverunni og var aldrei rætinn eða klúr, bara skemmtilegur. Það fór örlítið í taugarnar á Hjálmari þegar Morgunblaðið aug- lýsti starf bréfbera „á Mývatni“ og sá hann að aðeins einn kæmi til greina í það: Mývatn löngum mesti merkisstaður var Jesú bróðir besti ber út Moggann þar! Jafnaðarmaður er Jónas hét jarða sig heima í kyrrþey lét að viðstöddum fáum fátækum smáum. Það hlakkaði í ekkjunni en hundurinn grét. Margrét frá Mannskaðahóli er mögnuð á torfæruhjóli. Af ótuktarskap sinn eiginmann drap á toppnum á Tindastóli. Hjálmar hefur sagt, að ráðlagður skammtur gegn ólund sé ein limra tvisvar á dag: Andleysi, athyglisbrest, uppþembu, hjartslátt og pest ættlæga galla, ilsig og skalla limrurnar lækna best. Hér yrkir Hjálmar um stöðu jafn- réttismála: Þótt jafnréttismálunum vegni eftir vonum veit ég að ennþá má á Íslandi þekkja karla frá konum á kaupinu sem þeir fá. Menn geta gerst áskrifendur að Ljóðasafni Hjálmars í netfanginu holar@holabok.is og um leið skráð nafn sitt á Tabula Memoralis sem verður aftast í henni. Mývetningurinn Friðrik Steingrímsson sat úti á palli á laug- ardaginn í dásamlegu veðri og þá varð þessi til, – með sólarkveðju: Veðurblíðan söm við sig sjaldan fylgir línum; blessuð sólin baðar mig björtum geislum sínum. Enn yrkir Friðrik og segist vera í stuði: Syðra skjálfa fen og fjöll svo finnst á skemmtigöngu, hundageðlyf eru öll uppseld fyrir löngu. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ljóðasafn Hjálmars er kærkomið ljóðaunnendum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.