Morgunblaðið - 16.03.2021, Side 4

Morgunblaðið - 16.03.2021, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2021 Í baráttu við COVID-19 býður Donnamaska, grímur og andlitshlífar sem eru gæða vara frá DACH og notuð um allan heim. Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Covid gríma,þægilegri ogþéttir vel Sími 555 3100 www.donna.is dreifingHeildsölu C-gríma Pandemic Respirator andlitsgríma Andrés Magnússon andres@mbl.is Bólusetningar hafa gengið mjög mis- vel á Vesturlöndum, sem kunnugt er, en þar skara Bretar og Bandaríkja- menn fram úr, en Evrópusamstarf um öflun og dreifingu bóluefna hefur mjög gengið á afturfótunum. Það kann að skipta miklu máli fyr- ir efnahagslega endurreisn Íslands fyrr en varir, því stjórnvöld reiða sig mjög á að ferðaþjónustan geti tekið skjótt við sér. Þar kunna hinar engil- saxnesku þjóðir að ríða baggamun, en þær hafa verið fyrirferðarmestar í ferðum til landsins að undanförnu, eins og sjá má á skýringarmyndinni að ofan. Bretar og Bandaríkjamenn voru liðlega þriðjungur erlendra ferðamanna árið 2019, en þeir voru einnig örari á fé en aðrar þjóðir, því þaðan komu um 45% tekna af erlend- um ferðamönnum. Af gangi bólu- setninga þar mætti því ætla að þær yrðu fyrr í stakk búnar til utanlands- ferða en Evrópuþjóðirnar, sem á sinn hátt kæmi sér vel. Íslensk stjórnvöld hafa hins vegar farið að tilmælum ráðherraráðs Evr- ópusambandsins og því er fólki utan Schengen-svæðisins meinuð land- ganga á Íslandi, hvort sem það er bólusett eða ekki. Hins vegar kann þess að vera langt að bíða að Evr- ópuþjóðir leggist í langferðir. Enn syrti í álinn hjá þjóðum Evr- ópusambandsins í gær hvað bólu- setningu varðar. Þá bættust Þjóð- verjar, Frakkar og Ítalir í hóp þeirra, sem hafa frestað notkun bóluefnis AstraZeneca vegna rann- sókna á hvort það gæti valdið blóð- tappa, þó að Lyfjastofnun Evrópu telji það óhætt. Það mun enn tefja bólusetningar á meginlandi álfunn- ar, líkt og raunar einnig hér á landi. Ísland er aðili að Evrópusamstarfi um öflun bóluefna og sóttvarnalækn- ir ákvað að fresta bólusetningu með bóluefni AstraZeneca. Það kann að riðla fyrirætlunum um að þorri þjóðarinnar verði bólu- settur fyrir júnílok, líkt og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sagt og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tekið undir. Landið lokað þeim bólusettu - Um þriðjungur Breta og Bandaríkjamanna bólusettur - Þriðjungur ferðamanna 2019 kom þaðan - Þaðan komu 45% tekna af ferðamönnum - Þeim og öðrum utan Schengen er meinuð koma til Íslands Helstu ferðamannaþjóðir sem sóttu Ísland heim 2019 og bólusetning þeirra nú Hlutfallsleg skipting eftir þjóðerni og bóluefnisskammtar á hverja 100 íbúa Heimild; Ferðamálastofa, Hagstofa, Seðlabanki, Oxford-háskóli 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% 35% 40% Aðrir Frakkland Kína Þýskaland Bretland Bandaríkin 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% 35% 40% Aðrir Frakkland Kína Þýskaland Bretland Bandaríkin ERLENDIR FERÐAMENN TEKJUR AF FERÐAMÖNNUM 47% 5% 5% 7% 8% 13% 23% 5% 3% 15% 30% 39% 32,0 38,0 10,6 3,7 10,8 4,6 32,0 38,0 10,6 3,7 10,8 4,6 Grænu súlurnar sýna hversu margir boluefnisskammtar hafa verið gefnir á hverja 100 íbúa. Snorri Másson snorrim@mbl.is Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að staðan í kórónuveiru- faraldrinum sé áfram mjög góð á Ís- landi. Hann sagði í viðtali við mbl.is í gær að sér þætti undarlegt að ferðamenn frá löndum utan Scheng- en-svæðisins kæmust ekki inn í landið með bólusetningarvottorð eða vottorð um mótefni við veir- unni. „Ég get tekið undir það að það hljómar undar- lega að vottorð frá löndum utan EES-svæðisins, eins og frá Bret- landi eða Banda- ríkjunum, séu ekki tekin gild,“ segir Þórólfur. Þessir hópar geti þó útvegað sér alþjóðlegt vottorð frá WHO, sem virki á landamærunum. Þórólfur víkur að nánari útfærslum í þessum málum í minnisblaðinu sem hann sendi ráðherra í gær. Ætla má að heilbrigðisráðherra kynni efni tillagnanna, og um leið sína afstöðu, í dag. Tilslakanir ekki tímabærar Eina smitið sem greindist í gær var hjá einstaklingi í sóttkví, sem tengdist öðru landamærasmiti, en ekki þeirri hópsýkingu sem fjallað var um í síðustu viku. „Við sjáum því ekki neina frekari útbreiðslu á landinu,“ sagði Þórólfur. Þórólfur skilaði inn minnisblaði í gær, þar sem útlistaðar eru tillögur hans fyrir sóttvarnatakmarkanir eftir morgundaginn, 17. mars. „Ég tel ekki ráðlegt að fara í tilslakanir núna. Við erum bara með nokkuð góða stöðu og takmarkanir eru ekki það miklar að knýjandi þörf sé á þessari stundu á að slaka mikið á. Við búum við töluvert meira frjáls- ræði en flestar Evrópuþjóðir og við sáum það síðustu helgi hvað þetta getur gerst hratt ef smit koma inn frá landamærunum. Þetta er því mjög viðkvæmt,“ sagði Þórólfur. Hyggst ekki „opna landið“ Núgildandi reglugerð á landa- mærunum þykir hafa gefið góða raun og fá smit hafa brotið sér leið inn í samfélagið. Þórólfur segir það stefnu stjórnvalda að 1. maí verði farið að taka tillit til litakóðunar- kerfis ESB um fjölda smita í hverju landi. „En út frá mínum sjónarhóli held ég að það sé bara rétt að bíða þar til nær dregur og sjá hvernig ástandið verður,“ segir Þórólfur. Gefið hefur verið í skyn að með breytingunum 1. maí sé beinlínis fyrirhugað að „opna landið 1. maí“ en þau áform kannast sóttvarna- læknir ekki við. „Ég hef aldrei nokkurn tímann sagt að nokkur stefni á að opna landið þá,“ segir Þórólfur. Sannarlega sé verið að reyna að ná upp góðu ónæmi í sam- félaginu með bólusetningu. „Og þeg- ar við erum búin að ná því, og bólu- setja viðkvæma hópa, held ég að allir stefni að því að slaka á landa- mærunum, en svo eru mismunandi skoðanir á því hvernig það er gert.“ Í málefnum AstraZeneca segir Þórólfur lítið hafa breyst. Hér á landi sé einnig verið að fara yfir þýðið sem hefur fengið bóluefnið og kanna hvort þar megi finna eitthvað athugavert. Telur undarlegt að ekki sé tekið við vottorðum - Þórólfur ræðir landamærin í minnisblaði til ráðherra Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Leifsstöð Bandarísk eða bresk bólusetningarvottorð eru ekki tekin gild. Þórólfur Guðnason Alls segjast 77% landsmanna bera mikið traust til heilbrigðiskerfisins samkvæmt nýjum niðurstöðum úr könnun Gallup og hefur það ekki mælst meira í þau 20 ár sem mæl- ingarnar taka til. Í frétt heilbrigð- isráðuneytisins í gær þar sem greint er frá niðurstöðunum segir að traust fólks til heilbrigðiskerf- isins sé nánast jafnmikið, hvort sem það býr á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni. Þá segjast um 92% landsmanna vera ánægð með sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda. Þar af segjast 29% vera fullkomlega ánægð með aðgerðirnar en veruleg- ur munur er á afstöðu kynjanna. 37% kvenna segjast fullkomlega ánægð með sóttvarnaaðgerðirnar en 20% karla. Fram kemur að 79% bera mikið traust til Landspítalans og 87% til landlæknis. Heldur færri konur en karlar segjast bera mikið traust til heil- brigðiskerfisins eða 75% kvenna en 80% karla. Þegar spurt var um afstöðu fólks til sóttvarnaaðgerða stjórnvalda vegna veirunnar kom í ljós að konur (96%) eru ánægðari með sóttvarna- aðgerðirnar en karlar (87%). Lítill munur er hins vegar á afstöðu til sóttvarnaráðstafana eftir búsetu. 92% ánægð með sóttvarnaaðgerðir - Nokkur munur á afstöðu kynjanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.