Morgunblaðið - 16.03.2021, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.03.2021, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2021 Biðstaða Daginn er tekið að lengja og fyrr en varir geta landsmenn notið þess að ferðast um landið í sól og sumaryl. Nýir bílar bíða á athafnasvæði Samskipa ef einhver hyggur á endurnýjun. Árni Sæberg Framkvæmdastjóri Betri samgangna ohf., Davíð Þorláksson, skrifaði grein í Morg- unblaðið á laugardag- inn undir fyrirsögninni Sátt um samgöngur. Honum mæltist vel um fyrirtæki sitt og sam- göngusáttmálann sem margir vænta góðs af. Sama dag sat hann fund sjálfstæðismanna í Valhöll og hefur vonandi sannfærst um að þeir sem standa að heimasíð- unni samgongurfyriralla.com séu ekki í skotgröfum og hafi aldrei ver- ið. Á fundinum var kynnt tillaga þeirra að hagkvæmari Borgarlínu. Boðun Borgarlínu hefur ein- kennst af því sem á auglýsingamáli nefnist „branding“, það er að hanna merki eða nafn sem síðan er auglýst upp með skrúðmælgi og skrumi, jafnvel á stundum svo yfirdrifið að erfitt hefur verið að finna þær fá- tæklegu upplýsingar sem þó fljóta með. Gallinn við að nota „branding“ er að ef varan stendur síðan ekki undir öllu lofinu hrynur allt eins og spilaborg. Sú útkoma virðist æ lík- legri hvað Borgarlínu varðar. Nið- urstöður hins nýja um- ferðarlíkans sem greint er frá í fyrstu áfanga- skýrslu Borgarlín- unnar segja að fjöldi farþega 2034 hafi ekki aukist nema um 44%, en á sama tíma tvöfald- ast til þrefaldast um- ferðartafir, sem strax í dag eru óásættanlegar. Samtök iðnaðarins (SI) áætluðu að árið 2015 hafi kostnaður vegna umferðartafa verið orðinn 15 milljarðar króna á ári. Þar af féllu 9 milljarðar beint á atvinnufyrirtækin en 6 milljarðar á einstaklinga. Kostnaðurinn sem fell- ur á einstaklingana lendir líka fyrr eða síðar á atvinnuvegunum, t.d. gegnum heilbrigðiskerfið og trygg- ingakerfin eða með öðrum hætti. Þessi kostnaður er nú orðinn vel yfir 20 milljarðar þrátt fyrir Covid og er töluvert þjóðhagslegt vandamál. SI taldi tafir í umferðinni 2015 vera um 19.000 klukkustundir á dag en til samanburðar samkvæmt áfanga- skýrslunni þá gefur umferðarlíkanið 11.400 stundir á dag, sem er of lítið. Við athugun á skýrslu sem SSH birtir á vef sínum kemur líka í ljós að stærðfræðileg meðferð gagna í um- ferðarlíkaninu er með þeim hætti að umferðartafir reiknast töluvert minni en þær eru í raun. Niður- stöður líkansins geta aðeins sagt til um hvaða fjárfestingarkostur skilar hlutfallslega mestum úrbótum en það segir ekki hver hinn þjóðhags- legi kostnaður er. Með nokkurri við- bótar vinnu ætti samt að vera hægt að ráða á því bót. Davíð afvegaleiðir þó lesendur sína þegar hann segir: „Samgöngur mynda heildstætt kerfi þar sem fjár- festing fyrir einn ferðamáta léttir álagi af öðrum.“ Þetta er ekki rétt, það er nýting fólks á fjárfestingunni sem léttir álagi af öðrum, ekki sjálf fjárfestingin. Það er ekki fjárfest- ingin sem fær fólk til að nota Borg- arlínu heldur vaxandi umferðartafir og vaxandi kostnaður af að aka eigin bíl. Umferðartafir virðast þurfa að tvöfaldast eða meir frá þeim yfir 20 milljörðum á ári sem þær eru í nú og ná vel yfir 40 milljarða árlega til að umtalsverð aukning náist á notkun strætó, þótt hlutdeild í ferðum verði áfram lítil. Við skulum líka muna að við hinn beina tafakostnað þarf að bæta auknum bensínkostnaði, rúm- um 10% ásamt kostnaði vegna erf- iðleika fyrirtækja við gerð áætlana sem gæti verið 65% og væri þá kom- inn alls yfir 70 milljarða árlega. Það munar um minna í okkar efnahags- kerfi. Umferðartafir á höfuðborgar- svæðinu eru orðnar þjóðhagslegt vandamál sem taka þarf á. Enn hef- ur ekki sést hvaða tökum á að taka á því vandamáli annað en fjárfesting- aráætlun með samgöngusáttmál- anum. Áhugafólk um samgöngur fyrir alla (ÁS) hefur nú lagt fram til- lögur á áður nefndri heimasíðu. Til- lögum ÁS fylgir einnig mat á ábata hverrar framkvæmdar, nokkuð sem hingað til hefur vantað. Þarna er nýr umræðugrundvöllur. Það liggur fyrir að Betri Sam- göngur ohf. þarf að gefa Alþingi álit sitt til rökstuðnings á árlegum fjár- veitingum við fjárlagagerð hvers árs. Þetta álit þarf fyrirtækið að móta með hliðsjón af kostnaði vegna umferðartafa og þeim áhrifum sem fjárfestingar hafa þar á. Beita þarf aðferð minnsta kostnaðar við grein- ingu tafakostnaðar ásamt fjárfest- ingarkostnaði og rekstrarkostnaði, líka áætluðum rekstrarkostnaði Borgarlínu, sem enn hefur ekki komið fram. Þetta er sú aðferð sem Landsvirkjun notaði þegar hún bar ein ábyrgð á bæði raforkuvinnslu og flutningi en sjá má vissar hliðstæður á stöðu þess fyrirtækis þá og stöðu Betri samgangna ohf. nú. Fjárfest- ingarnar sem Betri samgöngur ohf. ber ábyrgð á nú jafngilda líka svo sem einni virkjun. Það er rétt sem fyrirsögn greinar Davíðs segir, það þarf að ræða og ná sátt um þetta mál og ÁS hefur þegar lagt fram tillögur um létta Borgar- línu og umferðarmannvirki til þeirr- ar umræðu, en þjóðarhagur hlýtur að ráða miklu. Höfuðborgarsvæðið hefur enn mikil tækifæri til að bæta úr almennri umferð, nokkuð sem samanburðarborgir Evrópu hafa margar ekki. Þau tækifæri ber að nýta og svo kann að fara að það verði nóg næstu 40 ár, en þá verður þjóð- inni nánast hætt að fjölga sam- kvæmt spám. Hér dugar ekkert minna en að taka upp heildstæða áætlunargerð með bestu aðferðum sem tiltækar eru og Betri sam- göngur ohf. á að beita sér fyrir ná- kvæmlega því. Eftir Elías Elíasson »Höfuðborgarsvæðið hefur enn mikil tækifæri til að bæta úr almennri umferð. Elías Elíasson Höfundur er verkfræðingur. eliasbe@simnet.is Létt eða þung Borgarlína? Um þessar mundir er langt komin stutt og snörp loðnuvertíð sem er kærkomin himnasending til handa hagsmunaaðilum eftir tveggja ára loðnuþurrð. Heyra og lesa má í fjöl- miðlum jákvæð viðbrögð úr öllum átt- um innan greinarinnar bæði til sjós og lands þar sem menn gleðjast yfir stemningunni með tilheyrandi loðnu- lykt og væntingum um uppgrip á skömmum tíma. Miklar væntingar um hátt verð voru og eru meðal loðnusjómanna ekki síst þegar horft var til mikillar eftirspurnar þar sem ekki hefur borist uggi af loðnu frá Ís- landi til Japans í tvö ár. Vænting- arnar fengu síðan byr undir báða vængi þegar fréttir fóru að berast af því verði sem íslensku sjávarútvegs- fyrirtækin greiddi til norskra skipa fyrir loðnu sem þau lönduðu á Ís- landi. Norskt/íslenskt verð fyrir loðnu Fyrstu tölur sem fregnir bárust af í viðskiptum þessara vinaþjóða voru 140 kr./kg Norðmönnum til handa. Síðan fóru prísarnir ört hækkandi og náðu hámarki í lok veiðitímabils þeirra. Hæsta verð að mér er tjáð fyrir norskan farm sem íslenskt sjávar- útvegsfyrirtæki greiddi var 252 kr./kg. Í Fiskeribladet frá 24. febrúar var með- alverðið á vertíðinni til Norðmanna sagt 224 kr. Hæsta verð til norskra skipa sam- kvæmt blaðinu var 283 kr. sem er vel yfir lágmarksverði á þorski í Noregi og á Íslandi. Vert er að geta þess að samkvæmt samningi milli þjóðanna fá Norðmenn ekki tækifæri til fylgja loðnunni lengra suður en til 64°30‘ norðlægrar breidd- ar og missa því að verulegu leyti lang- verðmætasta hluta ver- tíðarinnar sem varir í kringum það tímabil sem hámarks- hrognafyllingu er náð, sem að öllu jöfnu gerist ekki fyrr en loðna er komin sunnar, síðan vestur með suður- ströndinni og endar loks í Faxaflóa og á Breiða- firði. Íslenskt verð Það verð sem ákveðið var af íslensku útgerðunum í upphafi vertíðar hefur að sögn sjómanna ver- ið í kringum 100 krónur pr. kg sem í sögulegu samhengi er það hæsta sem um getur, en á sama tíma má vekja athygli á að afurðaverð á Japans- markaði er í hæstu hæðum sem í raun var staðfest þann 9. mars í við- tali á mbl.is við Gunnþór Ingvason, ánægðan framkvæmdastjóra Síld- arvinnslunnar í Neskaupstað, þar sem hann upplýsti að heildarútflutn- ingsverðmæti loðnuafurða að með- töldum 10 þúsund tonna afla (reyndar 12.526 tonn samkvæmt norskum löndunartölum) sem Norðmenn lönd- uðu hérlendis myndi nema á bilinu 22-25 milljörðum og fullt tilefni til að óska öllum hagsmunaaðilum til ham- ingju með vel heppnaða vertíð. Uppgjörið Þegar horft er til fyrri vertíða þá hefur það átt sér stað hjá ákveðnum útgerðum, þó alls ekki öllum, að þær greiði áhöfnum sinna skipa leiðrétt- ingu á aflahlut, reynist endanlegt af- urðaverð hærra en áætlað hafði verið á vertíðinni. Í gegnum tíðina meðan kvótinn hljóðaði upp á mörg hundruð þúsund tonn var eðlilega mun meiri óvissa með skilaverð á afurðum sem leiddi til þess að sjómenn vildu frem- ur fá lokauppgjör byggt á áætluðu verði frá útgerðinni fremur en að geta átt von á bakreikningi ef í ljós kæmi lækkun afurðaverðs frá áætl- unum útgerðar. Á þeirri fordæma- lausu vertíð sem nú sér fyrir endann á blasir við að eftirspurn er mun meiri en framboðið, sáralítið af heild- araflanum fór í bræðslu, bróðurpart- urinn er frystar afurðir auk þess sem vel tókst til með hrognafrystingu og meðalverð á kílóið hjá Norðmönnum var 224 kr. án mikillar aðkomu þeirra að hrognaloðnu, sem er sem áður seg- ir verðmætasta afurðin. Það er því næsta víst að það skiptaverð sem lagt er til grundvallar fyrir aflahlut sjó- manna hlýtur að vera mjög varlega áætlað, svo ekki sé dýpra í árinni tek- ið. Vert er að nefna að, að þessu sinni tekur í það minnsta ein útgerð fram í sínum verðsamningi að tekið verði til- lit til endanlegs afurðaverðs við launauppgjör hennar sjómanna, sem er þeirri útgerð til sóma og ætti að verða öðrum útgerðum til eft- irbreytni. Ljóst er að góðar tekjur sjómanna á vertíðinni eru byggðar á hlutaskiptakerfi sem tryggja skal þeim ákveðið hlutfall af aflaverðmæti hvort sem verð á afurðum er lélegt eða frábært og þar af leiðir að end- anlegt launauppgjör sem byggt er á bráðabirgðaverðákvörðunum af hálfu útgerða ætti ekki að eiga sér stað að þessu sinni í það minnsta, þar sem all- ar forsendur hníga til þess að endan- legt afurðaverð liggi nú þegar eða mjög fljótlega ljós fyrir. Eftir Árna Bjarnason » Fullt tilefni er til að óska öllum hagsmunaaðilum til hamingju með vel heppnaða vertíð. Árni Bjarnason Höfundur er formaður Félags skipstjórnarmanna. Vel heppnuð loðnuvertíð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.