Morgunblaðið - 16.03.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.03.2021, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2021 ✝ Gunnar Árni Ólason fæddist í Reykjavík 28. mars árið 1941. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 8. mars 2021. For- eldrar hans voru hjónin Óli Jón Óla- son stór- kaupmaður, f. 1901, d. 1974, og Arnlín Petrea Árnadóttir hús- móðir, f. 1905, d. 1985. Systk- ini hans eru Elínborg, f. 1928, d. 1996, Elín, f. 1932, og Óli Jón, f. 1933, d. 2015. Árið 1966 kvæntist Gunnar Signýju Guðmundsdóttur, f. 1942. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Stefán, f. 1967, maki Eyrún Björnsdóttir f. 1969. Börn Jónas, f. 1988, maki Arna Benný Harðardóttir, f. 1988. Barn Benóný Þór, f. 2016. Signý, f. 1993, sambýlismaður miklum tengslum við frænd- fólk sitt á Snæfellsnesi og átti frá því upp úr 1970 sumarhús í landi Mávahlíðar og síðar í landi Fögruhlíðar. Hann stundaði handbolta á yngri ár- um og varð Reykjavíkurmeist- ari með ÍR. Gunnar stundaði skotveiði og stangveiði af áhuga og var fyrirmynd sona sinna í þeim efnum. Hann lauk verslunarprófi frá Verzl- unarskóla Íslands árið 1961 og eftir útskrift þaðan dvaldi hann sumarlangt í Hamborg við þýskunám. Þá hóf hann störf í Útvegsbankanum en starfaði síðar lengst af sem deildarstjóri bifreiðatrygginga hjá Tryggingu hf. en síðar hjá TM eftir sameiningu Trygg- ingar og Tryggingamiðstöðv- arinnar til starfsloka. Auk sumarhúss á Snæfellsnesi eign- uðust þau hjón í kringum alda- mótin hús á Spáni sem þau dvöldu gjarnan í stóran hluta ársins. Gunnar verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 16. mars 2021, klukkan 13. Í ljósi aðstæðna eru gestir beðnir að hafa með sér á blaði nafn, kennitölu og símanúmer. Skapti Jónsson, f. 1989. 2) Árni, f. 1969, maki Sigríð- ur Bjarnadóttir, f. 1969. Börn Ingvar, f. 1999, Gunnar, f. 2002, kærasta Sara Lind Freys- dóttir, f. 2003, og Arnar, f. 2007. 3) Guðmundur Óli, f. 1975, maki Magn- ea Magnúsdóttir, f. 1977. Börn Linda Mjöll, f. 2009, og Snævar, f. 2015. Eft- irlifandi eiginkona Gunnars er Ásta Árnadóttir, f. 1956, sonur hennar og stjúpsonur Gunnars er Árni Þór Jónsson, f. 1974. Börn Andri Már, f. 1993, og Aron, f. 2005. Gunnar ólst upp í Laugar- ásnum en var frá unga aldri fram á unglingsárin öll sumur í sveit hjá frændfólki sínu í Mávahlíð í Fróðárhreppi á Snæfellsnesi. Hann hélt ávallt Elskulegur tengdafaðir okkar hefur nú kvatt og viljum við tengdadætur hans minnast þessa ljúfa og hlýja manns, sem Gunnar Árni Ólason var, í nokkrum orðum. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Frá því við komum inn í líf hans ein af annarri fundum við ávallt fyrir einstakri virðingu hans og hlýju gagnvart okkur. Eftir að hafa verið með Gunna, hvort sem það var heima hjá þeim Ástu í jólamat, í Sælukoti á Snæfellsnesi, í veislum, heim- sóknum eða annað, fannst okkur við alltaf vera giftar rétta mak- anum í lífinu, þ.e. einum af son- um hans. Gunni hafði nefnilega einstakt lag á að fullvissa okkur um að við værum þær einu réttu fyrir strákana hans og sagði oft við þá: „Hvernig í ósköpunum tókst þér að finna einu konuna sem mögulega gæti búið með þér?“ Þó að hann væri kannski maður fárra orða þá streymdi frá honum hlýja og kraftur sem fannst svo vel í faðmlagi hans og þegar hann tók í höndina á okk- ur, já það er með traustustu og sterkustu handaböndum sem við höfum fengið. Hann minnti okk- ur og syni sína alltaf á að aka varlega, með þeim orðum að við værum með dýrmætan farm í bílnum því þannig vorum við dýrmæt í hans huga. Afabörnin fundu einnig vel hlýjuna og væntumþykjuna sem streymdi frá Gunna þegar þau hittu hann. Öll fundum við í hans þétta faðmlagi hvað honum þótti vænt um okkur og okkur um hann. Það er við hæfi að kveðja elsku Gunna með þeim orðum sem hann kvaddi okkur ávallt með þegar hann faðmaði okkur og sagði beint í eyra okkar: „Viltu lofa mér einu elskan: Hafðu það sem allra best.“ Já elsku Gunni, við „dætur“ þínar þrjár lofum því að hafa það ávallt sem best og aka varlega með dýrmæta farminn sem fjöl- skyldan þín er. Hvíl í friði! Eyrún Björnsdóttir, Sigríður Bjarnadóttir, Magnea Magnúsdóttir. Gunnar Árni, litli bróðir móð- ur minnar, er farinn í sína síð- ustu ferð að sinni. Gunni frændi var alltaf léttur í lundu, skemmtilegur og hlýr í samskiptum sínum við mig og mína þótt vafalaust hafi hann átt sína góðu og slæmu daga eins og við hin. Ég á yndislegar æsku- minningar frá því er ég, sveita- pilturinn, fékk að dvelja hjá Gunna og fjölskyldu í Goðatúni í Garðabæ. Gunni og Signý og strákarnir þeirra voru líka au- fúsugestir austur í Ölfusi hjá okkur því oftar en ekki færðu þau okkur bræðrum eitthvert gotterí sem ekki var daglegt brauð í sveitinni í þá daga. Síðar þegar maður var að stíga sín fyrstu skref sem ungur maður var alltaf gott að vita af ráðlegg- ingum Gunna á skrifstofu Tryggingar hf. efst á Laugavegi þar sem hann vann lengst af ásamt mági sínum, Birni Jens- syni, en báðir voru gegnheilir og traustir ráðgjafar. Eftir að leiðir Gunna og Signýjar skildi fann Gunni sína öruggu höfn hjá Ástu sinni sem var honum stoð og stytta. Þegar við Gunni hittumst hin síðari ár taldi hann jafnan viðeig- andi að minna mig á að hann hafði verið hinn formlegi skírn- arvottur þegar ég var skírður og því hafi það verið fullkomlega eðlilegt að fyrsti/elsti drengur- inn minn, Ólafur Örn, skyldi fæðast á 50 ára afmælisdag Gunna hinn 28.3. 1991. Við Björk sendum Ástu, son- um Gunna og fjölskyldum þeirra kærleikskveðjur. Blessuð sé minning Gunnars Árna. Helgi Magnús Hermannsson. Elskulegur vinur okkar og fé- lagi er nú horfinn á annað til- verustig til hinna félaganna sem farnir voru á undan. Gunnar Ólafsson eða Gunni Óla eins og hann var gjarnan kallaður varð sjálfkrafa einn af hópnum þegar nokkrir af gömlu bílstjórunum sem störfuðu hjá Hópferðamið- stöð Guðmundar Jónassonar fjallabílstjóra um miðja síðustu öld voru hættir störfum og héldu hópinn sem þeir nefndu Gullald- arlið GJ. Þar var margt spjallað og farnar margar ævintýraferðir á gömlu „rútunum“ sem þeir fengu að láni hjá Gunnari og seinna Stefáni þar sem rifjaðar voru upp gamlar og góðar sögur úr ferðalögum þeirra um hring- veginn og hálendið í heild sinni. Og margs var að minnast og mikið hlegið, skeggrætt og sung- ið. Ógleymanleg er þá ferðin okkar til Þýskalands þegar fé- lagarnir fóru á kostum með gleði og kæti hvar sem komið var við og „Fram í heiðanna ró“ og „Bíla-Gunna“ sungin út í eitt með okkar mann fremstan í flokki. Nú fækkar í hópnum og þeir sem eftir eru þakka góðum dreng samfylgdina. Elsku Ásta og fjölskylda, okk- ar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar. Megi Guð og allir hans góðu englar umvefja ykkur í sorginni. Fyrir hönd Gullaldarliðsins, Þórhallur og Hjördís (Dísa). Gunnar Árni Ólason Elsku yndislega amma mín. Það er með trega í hjarta sem við fjölskyldan kveðjum þig. Það er svo erfitt að átta sig á því að þú sért farin. Þetta er allt svo óraunverulegt og ósanngjarnt. Þú varst alltaf jafn andlega sterk og dugleg með allt sem þú tókst þér fyrir hendur, sama við hvað þú varst að glíma, alltaf varstu með bros á vör. Ég hef alltaf verið svo stolt og montin af því að vera nafna þín og þakklát fyrir að þú værir amma mín. Nú sit ég og hugsa til þín og rifja upp yndislegu minningarnar okkar sem eru mjög margar og eru mér afar dýrmætar. Ég á mjög erfitt með að sætta mig við það að þú sért farin, að ég fái aldr- ei aftur að hitta þig. Það var svo gaman að gista hjá ykkur afa Rafni, spjalla við þig um allt og ekkert og spila veiðimann og rússa langt fram á kvöld. Ég mas- aði við þig og við skoðuðum saman gamlar fjölskyldumyndir eða myndir frá ferðum ykkar afa Rafns. Mér þótti þetta svo gaman og góðar stundir og geri þetta sjálf í dag með litlu dóttur minni henni Magdalenu og mun gera þetta með börnunum mínum í framtíðinni. Ég man svo vel hlýju og skemmtilegu símtölin okkar, heimsóknir mínar til þín, við tvær að baka saman, sitja og spjalla. Þú varst sífellt að kenna mér eitt- hvað. Ég masaði oft svo mikið og lengi við þig í símann og þú, heimsins besta og ljúfasta amma, reyndir eins vel og þú gast að kveðja mig. Ég gat ekki stoppað því mér fannst þú svo yndisleg og skemmtileg. Þú varst alltaf svo hugljúf og hjálpsöm, með bestu ráð til okkar enda leituðu allir í fjölskyldunni alltaf til þín. Uppáhaldsminningin mín er frá því þegar ég var 20 ára gömul. Einn daginn hringdir þú í mig, ég var að bíða eftir að mamma mín kæmi með poka fullan af tandur- hreinum fötum sem hún hafði þvegið fyrir mig. Það þótti þér nú ekki vera í lagi og hneykslaðist á Ragnhildur Guðlaug Pálsdóttir ✝ Ragnhildur Guðlaug Páls- dóttir fæddist 11. mars 1942. Hún lést 10. febrúar 2021. Útförin fór fram 22. febrúar 2021 í kyrrþey að ósk hinnar látnu. því að ég væri ekki sjálfstæðari en það. Daginn eftir komuð þið afi Rafn með glænýja þvottavél handa mér og ég nota hana enn þann dag í dag. Elsku amma, þú varst með svo hlýja og fallega rödd, gull- falleg jafnt að innan sem utan. Þú varst alltaf svo brosmild og kærleiksrík, gast látið mann sjá það jákvæða í öllu, jákvæðni þín smitaði út frá sér. Ég mun ætíð vera þakklát fyrir hjálp þína og andlega stuðn- inginn sem þú ávallt veittir mér. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur sýnt mér, kennt mér og gef- ið mér. Þú hefur alltaf verið og munt alltaf vera fyrirmyndin mín elsku yndislega nafna, amma mín. Við söknum þín svo mikið og munum alltaf elska þig, elsku amma Ragnhildur. Nú hvílist þú með foreldrum þínum og litlu systur minni henni Kristjönu. Ég hugsa til ykkar allra. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Eins láttu ljósið þitt lýsa í hjarta mitt, skína í sál og sinni, sjálfur vaktu þar inni. Lát húmið milt og hljótt hlúa að mér í nótt og mig að nýju minna á mildi arma þinna. Ég fel minn allan hag einum þér nótt og dag, ljósið af ljósi þínu lifi í hjarta mínu. (Sigurbjörn Einarsson) Hvíl þú í friði elsku yndislega amma, við elskum þig. Ég og dætur mínar munum ávallt minnast þín. Þín Ragnhildur, Magdalena og Áróra Draumey. Mig langar að minnast ömmu minnar með nokkrum orðum. Ragnhildur amma var yndisleg og gullfalleg kona. Það sem ein- kenndi hana var að hún var alltaf svo brosmild og hjartahlý. Það var gott að tala við ömmu því hún var opin og hreinskilin með sínar skoðanir en um leið til- litssöm. Þannig var hún við alla. Þegar við ræddum um lífið og til- veruna var hún einhvern veginn svo hvetjandi og þegar hún talaði þá var gott að hlusta vel. Það var notalegt að koma í heimsókn til ömmu og Rafns á Eiðistorginu. Alltaf góðgæti á borðum og kaffi á könnunni. Ömmu þótti mikilvægt að hafa snyrtilegt og fínt á heimilinu, hvergi var rykkorn að sjá, alltaf var allt fínt og strokið en líka hlý- legt. Amma hafði gaman af því að ferðast og skoða heiminn og voru þau orðin ansi mörg löndin sem hún og Rafn höfðu ferðast til. Skemmtilegt og fræðandi var að spjalla við ömmu um þessar ferðir sem voru oft til framandi staða. Henni þótti greinilega gaman að kynnast annarri menningu. Amma sagði samt stundum að þó að það væri gaman og áhugavert að skoða önnur lönd og hún ætti sér nokkur uppáhalds þá væri Ís- land samt alltaf best, þar væri best að búa. Það er gott að hugsa til þess að amma var dugleg að lifa lífinu og gera það sem henni þótti skemmtilegt. Það hvatti hún líka aðra til að gera og það finnst mér góð lífsspeki að lifa eftir. Ef þig langar að syngja þinn söng, er söngvastundin að renna upp núna. Enginn syngur þann söng í þinn stað. Á morgun er orðið til söngs of seint, við syrgjum þau ljóð sem í þögninni dóu. Svo settu nú ekki þinn söng á frest, heldur syngdu hann nú! Það er best. Ef þú, vinur, átt örlitla ást er ástarstundin að renna upp núna og enginn mun elska í þinn stað. Að elska á morgun er allt of seint og ónýt hver löngun sem fékk ekki að rætast. Svo sláðu því ást þinni ekki á frest heldur elskaðu nú! Það er best. Ef þig langar að njóta þíns lífs eru lífsins stundir að renna upp núna. Enginn lifir því lífi í þinn stað. Að lifa á morgun er löngu of seint, menn láta sér fátt þótt þú ætlir og viljir. Svo láttu ekki slá þínu lífi á frest heldur lifðu því nú! Það er best. (þýð. Heimir Pálsson) Amma gaf mikið af sér og henn- ar verður sárt saknað. Ég mun minnast hennar með hlýju og í huga mér verður hún alltaf bros- andi því þannig var amma Ragn- hildur. Takk fyrir allt, elsku amma mín. Þú munt lifa í hjarta mínu að eilífu. Þín Karen. Afi minn og nafni er dáinn. Það er sárt til þess að hugsa að það verða ekki fleiri ferðir í Laugarás, ekki fleiri skíðaferð- ir, ekki fleiri veiðitúrar og ekki fleiri laxar. Þó eitthvað hafi hún rjátlast af mér með árunum var ég lengst af með mikla veiðidellu. Hana fékk ég beint frá afa. Ég var á leikskólaaldri þegar ég fór að fara með honum að veiða og frá því að ég veiddi fyrsta fiskinn þá átti veiðiskapurinn hug minn allan. Og afi ýtti svo sannarlega undir það, hvort sem var með því ausa úr sínum Jósef Friðrik Ólafsson ✝ Jósef Friðrik Ólafsson fædd- ist 24. ágúst 1929. Hann lést 15. febr- úar 2021. Útför Jósefs Ólafssonar fór fram 5. mars 2021. viskubrunni um áhugamálið eða gefa mér lesefni. Þónokkur sumur fórum við Kári bróðir í vikulöng úthöld með afa í sumarbústaðinn í Laugarási. Planið var einfalt: Við ætluðum að veiða okkur til matar en amma sendi með einn pylsupakka ef í harðbakk- ann slægi. Það fór sjaldan svo að við þyrftum að leggjast í pylsurnar, enda afi einstakur veiðimaður og við bræðurnir höfðum það eftir honum. Á kvöldin sagði afi okkur veiði- sögur. Þó mögulega væri stundum fært í stílinn um stærð laxa sem sluppu þá var áherslan á nákvæma lýsingu á staðháttum, náttúru og veðri. En við ána var oft ekki mikið sagt. Ég held að það hafi hent- að okkur báðum afar vel. Þegar áin er svo kristaltær að Vörðu- fellið speglast í vatnsfletinum og ekkert heyrist nema hnegg hrossagauksins og vell spóans þá eru orð óþörf. Og það skild- um við báðir, nafnarnir. Afi var líka mikill skíðamað- ur. Það var eins og með veiðina að hjá mér beygðist krókurinn snemma og þar lék afi lykilhlut- verk. Við bræðurnir stóðum varla upp úr skíðaskónum þegar við vorum farnir að fara í fjöllin með ömmu og afa. Ég á margar góðar minningar frá skíðahelg- um í Bláfjöllum og páskaferðum norður þar sem stórfjölskyldan skemmti sér saman á skíðum. Þó að ég hafi alltaf litið til afa sem útivistar- og veiðigarps þá þekktu hann flestir sem af- burðalækni. Þannig minnist ég hans líka. Í minningunni var afi einhvern veginn alltaf tilbúinn með hlustunarpípuna um háls- inn, hvort sem var til að taka stöðuna á okkur systkinunum eða bændunum í Biskupstung- um. Það þótti aldrei neitt til- tökumál. En ég held að einmitt vegna þess hversu nákvæmur og athugull hann var en á sama tíma hæverskur hafi hann notið slíkrar virðingar sem læknir sem raun bar vitni. Þó að ferðirnar með afa verði ekki fleiri þá sitja eftir ótalmargar minningar sem ég mun aldrei gleyma. Jósef Sigurðsson. Í dag er til moldar borinn ágætur vinur og fyrrverandi vinnufélagi Jósef Ólafsson læknir. Samstarf okkar Jósefs á St. Jósefsspítala varði í 20 ár, en hann var yfirlæknir lyf- lækningadeildar spítalans þeg- ar ég hóf þar störf. Jósef hafði mikinn metnað fyrir þeirri þjónustu sem spítalinn veitti og sérstaklega fyrir nærumhverf- ið en lyflækningadeildin var þungamiðja þeirrar þjónustu. Til þess að tryggja íbúum Hafnarfjarðar og nágrennis þessa nærþjónustu sem best stóð Jósef vörð um góð sam- skipti á milli heilbrigðisstofn- ana í Hafnarfirði, bæði heilsu- gæslu og öldrunarþjónustu. Jósef var allan tímann sem hann starfaði á St. Jósefsspít- ala mjög vel liðinn af sínu sam- starfsfólki og bar hann hag þess fyrir brjósti. Framan af átti Jósef sæti í starfsmanna- ráði og í stjórn spítalans sem fulltrúi starfsmanna en árið 1993 tók Jósef við stöðu yfir- læknis spítalans og skipti þá um hlutverk í stjórninni. Jósef var yfirlæknir til ársins 1996. Á þessum árum voru oft erfiðir tímar þegar niðurskurður í heilbrigðiskerfinu sótti að. Fundir í stjórn, fundir með starfsmönnum og fundir í ráðuneytinu. Þarna reyndi mjög á lækninn sem vildi að sjálfsögðu alltaf standa vörð um sjúklingana og varðveita þjónustustigið. Samtöl leiddu okkur alltaf að endingu til ásættanlegrar niðurstöðu og var Jósef þar betri en enginn með sýna rökfestu, réttsýni og þolinmæði. Á gleðistundum eins og árshátíðum og ára- mótafagnaði spítalans komu vinsældir Jósefs á meðal starfsmanna vel í ljós. Virðing og væntumþykja endurspegl- aði öll samskipti hans við sam- starfsfólkið. Minning um góðan dreng og farsælt samstarf mun lifa um ókomna tíð á meðal okkar sem unnum með honum á spítalan- um og vorum honum samferða í leik og starfi. Ég votta að- standendum innilega samúð. Árni Sverrisson f.v. forstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.