Morgunblaðið - 16.03.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.03.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2021 40 ára Hans er Sauð- krækingur, ættaður frá Sauðárkróki, ólst þar upp frá fimm ára aldri og býr þar. Hann er sjó- maður á frystitogaran- um Arnari og strand- veiðisjómaður á sumrin og á bátinn Kristínu SK-77. Hans er í góð- gerða- og körfuboltaklúbbnum Molduxum. Maki: Katrín M. Jónsdóttir, f. 1989, sér- kennari í Árskóla. Börn: Hilmir Bjarmi, f. 2016, og María Bjartey, f. 2021. Foreldrar: Guðríður Hansdóttir, f. 1958, matráður, búsett í Njarðvík, og Björn Sig- mundsson, f. 1957, vélstjóri, búsettur á Sauðárkróki. Hans Björnsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú þarft að taka upp nýtt og betra vinnulag og forðast að vera með allt á síð- ustu stundu. Vertu óhrædd(ur) við að hrinda hugmynum í framkvæmd. 20. apríl - 20. maí + Naut Einhverjar deilur koma upp í sambandi við framlag hvers og eins til ákveðins verk- efnis. Sýndu mönnum tillitssemi og leyfðu þeim að segja sitt. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þér finnst að þér sótt úr mörgum áttum og allir vilji ná athygli þinni í einu. Mundu að setja allar athugasemdir fram á sanngjarnan máta. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þótt þér þyki gott að vera einn með sjálfum þér er líka nauðsynlegt að þú ræktir þau sambönd sem þú vilt halda í. Lyftu þér upp og gerðu þér glaðan dag. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Brjóttu ísinn í samskiptum við kalda og fjarlæga manneskju með því að gera eitt- hvað uppskátt um sjálfan þig. Láttu skyldur þínar ganga fyrir öllu öðru. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þér hættir til þess að fyllast leið- indum yfir rútínu dagsins. Hlustaðu á við- vörunarbjöllurnar innra með þér og gerðu breytingar sem stuðla að vellíðan. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú hefur verið svo jákvæður undanfarið að þú verður hissa þegar þröngsýni fer í taugarnar á þér. Næstu vikurnar er tilvalið að sækja um lán eða styrki. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Það er sjálfsagt að þú deilir starfsorku þinni með öðrum ef þú á annað borð vilt rétta þeim hjálparhönd. Láttu samt þínar eigin þarfir hafa forgang ef þú getur. störfum. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Tilraunir þínar til að afla og eyða peningum ættu að fara að bera meiri árang- ur en þær hafa gert að undanförnu. Sýndu þolinmæði og þá lagast allt af sjálfu sér. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú gætir fundið til einangrunar og einmanakenndar í dag. Láttu það eftir þér að gera eitthvað nýtt og spennandi. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú finnur frábæra og einalda lausn á vandamáli sem hefur vafist fyrir þér nokkuð lengi. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Nú verður ekki lengur hjá því komist að horfast í augu við staðreyndir ef verkefni hafa setið á hakanum. K ristjana Arngríms- dóttir er fædd 16. mars 1961 í Ásbyrgi á Dalvík og ólst þar upp í faðmi stórrar fjölskyldu, en hún er yngst af átta systkinum. „Tónlist spilaði mikinn sess í lífi mínu þegar ég var að alast upp. Faðir minn spilaði á orgel heim- ilisins við ýmis tækifæri og hafði fallega bassarödd og söng í karla- og kirkjukór Dalvíkur um árabil. Tónlist og leiklist hefur fylgt fjöl- skyldunni, en ein systir mín er leikkonan Anna Kristín Arngríms- dóttir og önnur er Kolbrún Arn- grímsdóttir sem er klassísk alt- söngkona. Það má því segja að tónlist og leiklist hafi fylgt mér frá blautu barnsbeini. Á Dalvík var gott og áhyggjulaust að alast upp við leiki og ýmis störf. Ég byrjaði ung að syngja í kirkju- kórnum, og einnig starfaði ég með Leikfélagi Dalvíkur og þar kynnist ég manninum mínum.“ Eigin- maður Kristjönu er Kristján Eld- járn Hjartarson og hafa þau hald- ið ótal tónleika saman, en þau voru í Tjarnarkvartettinum sem einkenndist af fallegum rödduðum söng. Sólóferill Kristjönu hófst árið 2000 þegar hún gaf út sinn fyrsta hljómdisk, Þvílík er ástin, sem átti því 20 ára útgáfuafmæli á síðasta ári. Kristjana fluttist til Danmerk- ur með fjölskyldu sinni árið 2000 og bjó þar í fimm ár. Hún nam við Social og Sundhedsskolen í Árós- um og kenndi og leiðbeindi við Ældrehojskolen í Kolt. En tónlist- in var aldrei langt undan og hélt Kristjana ásamt manni sínum marga tónleika og ferðuðust þau um Danmörku og Þýskaland. Kristjana hefur gefið út fjóra hljómdiska og er sá fimmti vænt- anlegur á þessu ári. Samstarfs- menn hennar í gegnum tíðina hafa verið Jón Rafnsson kontrabassa- leikari, Daníel Þorsteinsson píanó- leikari og Örn Eldjárn gítarleik- ari, sonur Kristjönu. „Hann hefur verið mín hægri hönd í gegnum tíðina. Hann útsetur og tekur upp nýjustu plötu mína sem kemur út á þessu ári.“ Kristjana stendur fyrir tónleika- röðinni Gestaboð Kristjönu þar sem hún fær til sín gesti héðan og þaðan af landinu. „Ég hef sungið með hinum og þessum listamönn- um landsins á þessum Gestaboð- um mínum sem byrjuðu á Rósen- berg og fyrstu gestir mínir voru Egill Ólafs, Diddú, Andrea Gylfa og fleiri.“ Hinn 20. mars verða tónleikar á Dalvík í tilefni af 60 ára afmæl- inu. Gestir þetta kvöld auk Daní- els Þorsteinssonar er hljóm- sveitin Blood Harmony en hana skipa Björk, Ösp og Örn Eldjárn Kristjánsbörn, börn þeirra hjóna. „Það er orðinn húsfyllir á tón- leikana!“ Áhugamál Kristjönu eru garð- rækt, fjallaferðir og ferðalög með fjölskyldu og vinum og hvers kon- ar útivera og nýjasta æðið er sjó- sund. „En ungbarnaprjón á hug minn allan núna, því von er á öðru barnabarni okkar hjóna, en fyrir eigum við hana Amelíu Eldjárn sem er á 12. ári og mikill gleði- gjafi fjölskyldunnar.“ Í tilefni afmælisins mun Krist- Kristjana Arngrímsdóttir, alþýðusöngkona og tónlistarkennari – 60 ára Fjölskyldan í Ásbyrgi Kristjana er sú í miðjunni í neðri röð. Uppselt á afmælistónleikana Börnin Örn, Ösp og Björk Eldjárn sem skipa hljómsveitina Blood Harmony. Söngkonan Kristjana Arngríms.Hjónin Kristján og Kristjana eftir tónleika á Gljúfrasteini. 30 ára Ásmundur er frá Stykkishólmi en býr í Mosfellsbæ. Hann er með BS- gráðu í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc.-gráðu í bygg- ingaverkræði frá HÍ. Ásmundur er burð- arþolsverkfræðingur hjá Ferli verk- fræðistofu. Maki: Sesselja Gróa Pálsdóttir, f. 1992, lyfjafræðingur hjá Lyfjaveri. Dóttir: Agla Marín, f. 2019. Foreldrar: Þröstur Gunnlaugsson, f. 1961, smiður, og Helga Guðmundsdóttir, f. 1964, fiskvinnslukona. Þau eru búsett í Stykkishólmi. Ásmundur Þrastarson Það geta allir fundið eitthvað girnilegt við sitt hæfi Freistaðu bragðlaukanna ... stærsti uppskriftarvefur landsins! Til hamingju með daginn Sauðárkrókur María Bjartey Hans- dóttir fæddist 2. febrúar 1921 kl. 7.15. Hún vó 3.410 g og var 49 cm löng. For- eldrar hennar eru Hans Björnsson og Katrín M. Jónsdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.