Morgunblaðið - 16.03.2021, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2021
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
10 gíra skipting, auto track milli-
kassi, multipro opnun á afturhlera,
flottasta myndavélakerfið á markað-
num ásamt mörgu fleirra. Samlitaðir
brettakantar, heithúðaður pallur með
gúmmímottu, sóllúga.
VERÐ
13.380.000 m.vsk
2021 GMC Denali Ultimate 2500
10 gíra skipting, auto track milli-
kassi, multipro opnun á afturhlera,
flottasta myndavélakerfið á markað-
num ásamt mörgu fleirra. Samlitaðir
brettakantar, heithúðaður pallur með
gúmmímottu, sóllúga.
VERÐ
13.480.000 m.vsk
2021 GMC Denali Ultimate 2500
Bjóðum upp á glæsilega
37” breytingu.
Innifalið í TREMOR-pakkanum
er læst framdrif, 2” upphækkun
að framan, 35” dekk, Drive mode
stillingar, TREMOR demparar, minni
svunta undir framstuðara, hærra
loftinntak.
Sem sagt original stórkostlegur
OFF ROAD bíll! 475 hö, 1050 pund
tog og 10 gíra sjálfskipting.
VERÐ FRÁ
12.990.000 m.vsk
2021 Ford F-350 TREMOR
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Landrof vegna ágangs sjávar er far-
ið að ógna byggðalínu Landsnets á
Breiðamerkursandi eins og sést á
meðfylgjandi myndum. Þær voru
teknar við ströndina um einn kíló-
metra austan við Jökulsárlón.
Frá staurastæðunni sem heldur
byggðalínunni uppi og stendur nú
næst hafinu eru einungis um níu
metrar að brún rofbakkans. Bakkinn
er 5-6 metra hár og þar fyrir framan
er fjaran. Ferðamaður sem sem tók
myndirnar og sendi Morgunblaðinu
telur að ekki þurfi nema einn al-
mennilegan sunnanstorm til þess að
sjórinn grafi undan staurunum og þá
er byggðalínan úti. Þótt ekki geri
storm þá er byggðalínan í hættu
vegna sjávarrofsins. Eins er hring-
vegurinn, þjóðvegur 1, í hættu vegna
sjávarrofsins ef svo fer fram sem
horfir. Aðeins 20-30 metrar eru frá
landrofinu í þjóðveginn þar sem
styst er og því hætt við að sjórinn
geti einnig grafið undan honum.
Vel fylgst með mikilvægri línu
„Þetta er orðið ískyggilegt að sjá
en við erum með vikulegt eftirlit með
þessu,“ sagði Nils Gústavsson, fram-
kvæmdastjóri framkvæmda- og
rekstrarsviðs Landsnets. Hann
sagði að raflínan, Suðurlína, hafi ver-
ið byggð 1984. Hún er hluti af
byggðalínunni sem er meginæð raf-
orkuflutnings í kringum landið.
Fjögur möstur voru færð nær veg-
inum og fjær sjónum árið 2014.
Landsnet fær oft ábendingar um að
sjávarrofið ógni raflínunni.
„Nú er svo komið, sérstaklega
eftir veturinn í fyrra, að landrof er
orðið hraðara en við áttum von á. Við
ætlum að fara í aðgerðir í sumar eða
haust og flytja 10-12 möstur norðar,“
sagði Nils. Hluti mastranna mun
lenda norðan við hringveginn.
Landsnet hefur rætt við alla hags-
munaaðila vegna þessarar fram-
kvæmdar. Þeir eru ríkið, sem er
landeigandi, sveitarfélagið og Skipu-
lagsstofnun. Öll tilskilin leyfi hafa
fengist en umhverfismat þarf ekki að
fara fram vegna þess hvað þetta er
lítil breyting.
Suðurlína hefur á farið í sundur
t.d. í Skaftárhlaupi og þá var brugð-
ist fljótt við og gert við. „Við erum
reiðubúin með efni og annað ef eitt-
hvað gerist,“ sagði Nils. Hann sagði
að eitt mastur standi tæpast og það
sé ekkert stórmál að færa það fjær
sjónum.
Vegagerðin hefur áhyggjur
„Við höfum verulegar áhyggjur af
þessu,“ sagði G. Pétur Matthíasson,
upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar,
vegna hringvegarins austan Jökuls-
árlóns á Breiðamerkursandi og land-
rofsins þar. Hann sagði að sjávarrof
hafi aukist og orðið hraðara að aust-
anverðu á sandinum undanfarið.
Grannt er fylgst með þróun mála.
Auk sjávarrofsins hefur Jökulsár-
lón stækkað og í kjölfar þess hefur
straumhraðinn og vatnsmagnið í
Jökulsá aukist. Það veldur auknu
álagi á brúarstæðið. Brúin er ein-
breið og annar vart umferðinni þeg-
ar ferðamannastraumurinn er hvað
mestur. Ljóst þykir að ný tvíbreið
brú á þessum stað verði mikið mann-
virki.
Til skoðunar er að færa bæði
Hringveginn og brúna yfir Jökulsá
fjær sjónum, að sögn G. Péturs.
Hann sagði að brúarsmíðin sé ekki á
samgönguáætlun en engu að síður
þurfi að huga að henni. Nú er unnið
að gerð skýrslu um stöðu mála á
Breiðamerkursandi. Reiknað er með
að hún komi út í þessum mánuði.
Ljósmyndir/SGS
Suðurlína Sjórinn hefur nagað úr landinu og er landrofið komið mjög nálægt einni staurastæðu Suðurlínu.
Landrof ógnar
raflínu og hringvegi
- Hafið nagar hratt úr ströndinni við Breiðamerkursand
Ljósmyndir/SGS
Breiðamerkursandur Kanturinn ofan við fjöruna er 5-6 metra hár.
Orkuveita Reykjavíkur segir að
leitað hafi verið álits fuglafræð-
ings áður en Árbæjarlón í Elliðaár-
dal var tæmt í haust. Hafi fugla-
fræðingurinn talið, að áhrif á
fuglalíf á svæðinu yrðu óveruleg
eftir tæmingu og að álftaparið sem
orpið hefur í hólmanum muni
halda því áfram.
Þetta kemur fram í athugasemd
sem OR sendi frá sér vegna um-
mæla Björns Gíslasonar, borgar-
fulltrúa, í Morgunblaðinu í gær,
um að raunveruleg hætta sé á að
fuglalífið við Árbæjarstíflu deyi út
vegna tæmingar lónsins.
Þá segir Orkuveitan að ákvörð-
un hafi verið tekin um að hætta
rekstri Elliðaárstöðvar í desember
2019. „Þar með féllu allar heim-
ildir um að reka lón úr gildi og OR
bar því skylda til þess að tæma
lónið. Ákvörðunin um að tæma lón-
ið er rekstrarlegs eðlis og var því
ekki borin undir stjórn. Stjórn OR
var hins vegar vel upplýst á öllum
stigum málsins.
Þá er því haldið fram að ákvörð-
unin hafi ekki verið tekin í sam-
ráði við Náttúrufræðistofnun,
borgaryfirvöld og skipulags-
yfirvöld. Líkt og margítrekað hef-
ur komið fram voru allir þessir að-
ilar upplýstir áður en lónið var
tæmt,“ segir í athugasemd Orku-
veitu Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Eggert
Fuglar Álftir við Árbæjarstíflu þegar lónið var tæmt í október á síðasta ári.
Segja tæmingu
hafa óveruleg áhrif