Morgunblaðið - 16.03.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.03.2021, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2021 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30, nóg pláss -Tálgað í tré kl.13:00 - Postulínsmálun kl.13:00, með leiðbeinanda - Prjónakaffi Önnu kl.13:30 - Kaffi kl.14:30-15:20 - Það er grímuskylda í Samfélagshúsinu, gestir bera ábyrgð á að koma með eigin grímu og passa uppá sóttvarnir - Nánari upplýsingar eru í síma 4112702 - Allir velkomnir - Góðar stundir. Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12. Boccia með Guðmundi kl. 10. Leshringur kl. 11. Handavinnuhópur kl. 12-16. Dansleikfimi Hreyfiþjálfun kl. 13:45. Hádegismatur kl. 11.40- 12.50. Kaffisala kl. 14:30-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa: 411-2600. Áskirkja Við spilum í kvöld í Dal, neðra safnaðarheimili kirkjunnar kl 20 Allir velkomnir GRÍMUSKYLDA! Safnaðarfélag Áskirkju Boðinn Ganga/stafganga með leiðsögn kl. 10:00 frá anddyri Boðans. Fuglatálgun kl. 13:00-16:00.Munið grímuskyldu og tveggja metra regluna. Sundlaugin er opin frá kl. 13:30-16:00. Opið í miðdagskaffi kl. 14:30. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Saumastofan, saum- að með Björgu (og Bryndísi aðstoðarmanni ) kl. 10:30. Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10-10:30. Leikfimi með Silju kl. 13-13:40. Qi-gong kl. 17:00. Opið kaffihús kl. 14:30. Vegna sóttvarnaregla biðjum við ykkur að skrá ykkur fyrirfram í alla viðburði hjá okkur í síma: 535-2760. Minnum á páskabingó hjá okkur á föstudaginn næsta. Dómkirkjan Bæna-og kyrrðarstund í hádeginu alla þriðjudaga í Dómkirkjunni. Fella og Hólakirkja Kyrrðar og fyrirbænastund kl. 12 í umsjá Kristín Kristjánsdóttur djákna og Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Súpa og brauð eftir stundina. Félagsstarf eldriborgar kl. 13. Verið velkomin í gott og gefandi samfélag. Söngur, spjall og góð samvera. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Opið frá kl. 8:10-16. Kaffisopinn er góður kl. 8:10-11.Thai Chi kl. 9-10. Prjónum til góðs kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Myndlistarhópurinn Kríur kl. 13-15:30. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Hjá okkur er grímuskylda og vegna fjöldatakmarkanna þarf að skrá sig fyrirfram. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Garðabæ Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Qi-Gong í Sjálandssk kl. 8:30. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Stólajóga kl. 11:00 í sal í kjallara Vídalínskirkju. Karlaleikfimi í Ásgarði kl. 12:00. Boccia Ásgarði kl: 12:55. Smíði Smiðja Kirkjuh. kl. 09:00 og 13:00. Vatnsleikfimi Sjál kl. 15:15. Litlakot opið kl. 13:00- 16:00. Áfram skal gæta að handþvotti og smitvörnum Gerðuberg Opin vinnustofa frá kl. 8:30 - 16:00, heitt á könnunni, blöðin liggja frammi. Gönguhópur frá kl. 10:00 (leikfimi og ganga á eftir). Núvitund frá kl. 11-11:20. Myndlist/listaspírur kl. 13 -16:00. Sími félagsstarfsins; 664 4011. Gullsmára Myndlist kl. 9.00Tréútskurður kl. 13.00 Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9:00-12:00. Hádegismatur kl. 11:30. Jóga kl. 14:30-15:30 Hvassaleiti 56-58 Postulínsdúkkusýning Huldu Jónsdóttur frá kl. 8:30-15:30. Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Helgistund kl. 14:00, prestur frá Grensáskirkju þjónar. Korpúlfar Listmálun nýtt námskeið að hefjast með Pétri kl. 9 í Borg- um. Boccia kl. 10 í Borgum. Helgistund í Borgum kl. 10:30 og leikfim- ishópur Korpúlfa í Egilshöll kl. 11:00 Margrét leiðbeinir. Spjallahópur í listasmiðjunni í Borgum kl. 13 og sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 14:00. Minnum á páskabingó á morgun hámark 50 manns þátt- tökuskráning fyrstir koma fyrstir fá. Grímuskylda og fjarlægðarmörk. Neskirkja Krossgötur kl. 13. Sr. Skúli S. Ólafsson fjallar um Matthías Jochumsson, skáld og prest. Kaffiveitingar. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-369 www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bílar Nissan Qashqai Tekna. 2/2016 ekinn aðeins 52 þ. km. Tveir eigendur. Leður og rússkinn. Glerþak. 360° myndavélar. Topp þjónusta. Geysilega flottur bíll. Lágt verð miðað við búnað og akstur : 3.350.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Færir þér fréttirnar mbl.is Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi skipi verður háð á skrifstofu sýslumanns, Vatnsnesvegi 33, Keflavík, sem hér segir: BENSI, GK, Gullbringusýsla, (FISKISKIP), fnr. 1957 , þingl. eig. Ingi Þorgrímur Guðmundsson, gerðarbeiðandi Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf., þriðjudaginn 23. mars nk. kl. 09:00. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Vatnsnesvegur 34, Keflavík, 50% ehl. gþ., fnr. 209-1156 , þingl. eig. Baldvin Rafn Steinsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves, þriðjudaginn 23. mars nk. kl. 09:30. Faxabraut 12, Keflavík, fnr. 208-7403 , þingl. eig. Monika Katarzyna Malkowska, gerðarbeiðendur Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Faxabraut 12, húsfélag og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 23. mars nk. kl. 09:45. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 15. mars 2021 Nauðungarsala á- og raðauglýsingar ✝ Gerðar Óli Þórðarson fæddist í Súðavík 20. apríl 1940. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 4. mars 2021. Foreldrar Gerð- ars voru Salóme Halldórsdóttir, f. 4. júní 1915 í Bol- ungarvík, d. 10. nóvember 1991, og Þórður Sigurðsson, f. 25. ágúst 1906 á Markeyri í Skutulsfirði, d. 5. desember 2001. Systkini Gerð- ars eru Hjördís Olga, f. 11. júní 1936, Sigurður Borgar, f. 6. júlí 1937, Gunnar Trausti Þórðarson, f. 9. september 1941, d. 9. desember 2010, Sæ- þór Mildinberg, f. 16. nóv- ember 1942, Halldór Gutt- ormur, f. 5. desember 1943, d. 18. febrúar 2017, Jón Hafþór, f. 5. apríl 1945, d. 1. mars 1967, Sesselja Guðrún, f. 1. þór Kristinsson, f. 20.06. 1978, Svanhildur Kristinsdóttir, f. 26. maí 1982, Styrmir Krist- insson, f. 9. apríl 1993. Erla og Gerðar slitu samvistir árið 1973. Gerðar kvæntist svo Gyðríði Elínu Óladóttur, f. 17. nóvember 1941, d. 3. desember 2018, þann 31. desember 1974 og eru börn þeirra tvö, Jónína Ingibjörg Gerðarsdóttir, f. 5. október 1974, og Magnús Gerðarsson, f. 12. júlí 1977. Jónína á dótturina Gunnhildi Snorradóttur, f. 12. desember 2001. Gerðar kynntist Þórunni Guðnadóttur, f. 2. febrúar 1943, og nutu þau samvista síðasta ár. Gerðar fæddist í Súðavík en fluttist á öðru aldursári til Ísa- fjarðar þar sem faðir hans var ýmist skipstjóri á eigin bát eða fyrir aðra. Gerðar stundaði nám í Stýrimannaskólanum og var til sjós mestalla sína ævi, oftast sem skipstjóri en síðustu árin sem vélstjóri. Útför hans fer fram frá Guðríðarkirkju í Grafarholti í dag, 16. mars 2021, klukkan 13. Vegna sóttvarnareglna er fjöldi gesta takmarkaður við 200 manns. Grímuskylda er í gildi. október 1946, d. 14. júní 2011, óskírð stúlka, f. desember 1947, d. janúar 1948, Sig- urborg Elva, f. 7. desember 1950, d. 26. júlí 2020, og Kristín Silla, f. 13. ágúst 1956. Gerðar kvæntist Erlu Ragnars- dóttur þann 17. mars 1962. Erla var fædd 24. október 1937, d. 11. febrúar 2015. Börn þeirra eru Gyða Hrönn Gerðarsdóttir, f. 26. september 1962, og er sam- býlismaður hennar Hallur Helgason, synir Halls eru Hersir Hallsson, f. 26. apríl 1999, og Hilmir Hallsson, f. 10. febrúar, 2001. Erla átti fyrir dóttur, Lilju Báru Steinþórs- dóttur, f. 7. október 1957, og gekk Gerðar henni í föðurstað. Lilja er gift Kristni Gunn- arssyni. Börn þeirra eru Stein- Elsku pabbi, ég get vart trúað því að þú sért búinn að kveðja okkur. Þú sem varst hjá mér í vinnunni mánudaginn 22. febrúar sl., glaður og hress með Þórunni þinni að hefja nýjan kafla í lífinu og á leiðinni að flytja í nýtt bæj- arfélag. Ég er þakklát fyrir að þú áttir þennan tíma með Þórunni, það er undanfarna 10-12 mánuði, svona ástfanginn og hamingju- samur eins og fór ekki fram hjá neinum sem hitti ykkur turtildúf- urnar. Minningarnar eru svo margar. Ísbíltúrar með þér þar sem ég fimm ára hélt að allt sner- ist um að ég fengi ís en þú vildir bara komast á rúnt niður á bryggju, skoða bátana og hitta einhverja kalla. Mér tókst nú samt alltaf að fá ísinn, sat í bílnum og suðaði kurteislega: Ég vil fá ís, ég vil fá ís. Alltaf í sömu tónteg- und og ekki frekjulega. Man eftir einu skipti á Volkswagen-bjöll- unni þinni að þú varst búinn að fá nóg af suðinu í mér og settir mig aftur í skott (sem var opið við aft- ursætið, engin öryggisbelti á þessum tíma). Ég hugsaði minn gang í smá tíma, sennilega um fimm ára gömul, ákvað svo að skjóta hausnum upp og segja einu sinni enn: Ég vil fá ís. Og ísinn fékk ég eins og alltaf. Ég held ég viti hvaðan ég hef alla þessa þrjósku. Ég man eftir öllum góðu stund- unum hjá okkur systrum, mér og Lilju í Hafnarfirði. Í minninguna koma fram stundirnar þegar þú varst að koma í land. Þú og mamma samhent að búa til fiski- bollur, tókuð húsið á Selvogsgöt- unni í gegn, þú múraðir kjallarann og mamma saumaði gardínur. Oft var glatt á hjalla, spilað á gítar og harmonikku og sungið. Svo er það sagan sem má ekki gleymast; hvernig þú baðst mömmu. Þú varðst þér úti um hvítan hest, fórst á honum inn á Hlíð í Álfta- firði, reiðst hestinum inn í gang- inn á Hlíðarbænum og barst upp bónorðið. Ég held að það séu fáir sem leika þetta eftir en mér skilst að Jonni frændi, bróðir mömmu, hafi verið þér til halds og trausts í þessum erindagjörðum. Síðar kynntist þú Gyðu og eign- aðist með henni systkini mín, Jón- ínu og Magnús. Ég var áfram í samvistum við þig með því að koma um helgar til ykkar og alla tíð hélst þú áfram að vera pabbi minn þrátt fyrir að þú og mamma hafið skilið. Enda var alltaf mikill samgangur við þig, Gyðu og systkini mín. Svo var líka yndis- legt að sjá þig loksins blómstra í afahlutverkinu þegar elsku Gunný kom í heiminn. Ég man öll skiptin sem eitthvað þurfti að lagfæra á heimili mínu eða annarra, þú gast gert við svo til allt. Múrað, smíðað og saumað. Þú gast alltaf reddað öllu elsku pabbi eða í það minnsta sagt mér hvernig ég gæti lagað hlutina. Ég man eftir öllum góðu gildunum sem þú og mamma kenndu mér. Standa mig í vinnu, vera heiðar- leg, dugleg og koma vel fram við aðra. Ég man líka eftir erfiðum tímabilum á ævi minni þegar þú sagðir: „Gyða mín, þú getur þetta og mundu að gefast ekki upp, aldrei að gefast upp.“ Þetta kenndi mér að það er og verður alltaf undir sjálfri mér komið hvernig ég vil hafa lífið og hvernig ég vil lifa lífinu meðan það gefst. Fyrst og síðast verðurðu alltaf pabbi, pabbi minn. Minning þín mun lifa. Gyða Hrönn Gerðarsdóttir. Ég var mikil pabbastelpa. Ég minnist föður míns sem sterks manns frá upphafi til enda. Hann var kletturinn í lífi mínu og hann stóð að baki mér eins og foreldra er siður. Pabbi minn kenndi mér að vinna. Fyrsta vinnan mín, sem ég fékk þegar ég var 12 ára, var í humri í HF í Keflavík. Þegar ég var 15 eða 16 ára gömul hjálpaði ég honum að draga upp körin á höfninni í Keflavík þegar hann var á trillunni Elíasi Má. Ég fékk að fara með honum á sjóinn í nokkur skipti og sigldum við framhjá Vestmannaeyjum. Hann var í senn mjúkur maður og harður nagli. Góðu stundirnar voru þegar við fórum á fjölskyldurúnta og fengum okkur annaðhvort ís í brauðformi eða malt og prins póló. Ekki má gleyma öllum bryggju- ferðum sem farnar voru. Þegar ég eignaðist mína fyrstu íbúð um tvítugt færði pabbi mér að gjöf þvottavél í innflutnings- gjöf og verð ég að viðurkenna að það var eitt af fáu sem ég hafði aldrei gert, að þvo þvott í vél. Og ég sagði við hann: „En ég kann ekki á þvottavél!“ Þá sagði hann: „Þetta er ekkert mál, ég kenni þér það bara,“ og það voru mín fyrstu skref í að læra að þvo þvott. Pabbi minn hefur gegnum tíð- ina verið afskaplega duglegur að hjálpa mér með þær íbúðir sem ég hef eignast, m.a. að mála, park- etleggja, sjá um rafmagn og lag- færa fyrir mig og jafnvel búa eitt- hvað til eftir mínu höfði. Það er dásamlegt að hafa haft pabba minn þúsundþjalasmiðinn og átt hann að. Þetta eru kostir sem ég ætla að taka mér til fyrirmyndar. Pabbi minn gjörsamlega dýrk- aði dóttur mína og dáði. Hann vildi allt fyrir hana gera og þau voru hinir mestu mátar. Segja má að hann hafi verið að miklu leyti föðurímynd hennar þar sem hún ólst að mestu leyti upp hjá mér. Pabbi kenndi mér ýmislegt þar sem hann var mjög fjölhæfur maður. Hann sagði að fólk yrði að læra að bjarga sér sjálft. Faðir minn var vinur vina sinna og var duglegur að rækta frændgarð sinn, sem segja má að sé nokkuð sem ég ætla að hafa að leiðarljósi inn í framtíðina. Þegar mamma lést árið 2018 má segja að hafi farið að halla undan fæti hjá föður mínum og hann varð frekar þungur og leið- ur. Við pabbi fórum saman út að skemmta okkur svona á gamals aldri. Svo vildi svo blessunarlega til að hann kynntist mjög góðri konu, Þórunni E. Guðnadóttur, á heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði og áttu þau einstaklega góðan tíma saman. Minning um Gerðar Óla Þórð- arson föður minn verður ávallt borin í hjarta mínu. Hvíl í friði elsku pabbi. Þín dóttir, Jónína Ingibjörg Gerðarsdóttir. Gerðar Óli Þórðarson Elsku hjartans vinur. Að deyja eru örlög okkar allra, en bara ekki alveg strax. Við erum búin að þekkja þig í rúm tuttugu ár eða frá því Alda systir kynnti þig fyrir okk- ur. Ég lýsti þér svo þegar fólk spurði: Er Alda systir þín komin með kærasta? Já, hann heitir Ey- þór, hár grannur hlaupagikkur frá Borgarfirði eystri. Hann spil- Eyþór Hannesson ✝ Eyþór Hann- esson fæddist 28. júní 1955. Hann lést 20. febrúar 2021. Eyþór var jarð- sunginn 6. mars 2021. ar í hljómsveit og já og spilar á harmón- ikku eins og engill. Þú varst reyndar mjög vandvirkur á alla hluti sem þú gerðir. Eitt sumarið komuð þið hjóna- kornin í heimsókn. Þú þurftir auðvitað að sjá að eitthvað hafði nú verið trass- að að bera viðarvörn á sumarhúsgögnin. Bara taka það fram að þetta var eitt borð, já pínulítið borð og tveir stólar. Þú fórst í búðina, keyptir það sem til þurfti og gekkst í verkið. Þegar þú varst enn þá að pússa og mála á fjórða degi þá varð ég að stríða þér aðeins. Eyþór minn, á ég ekki að taka við, viltu ekki fara að gera eitthvað annað? Þá leggur þú handlegginn yfir axlirnar á mér, brosir og segir: Nei, nei, Linda mín, hér þarf að vanda til verks. Þú komst oft með nikkuna með þér þegar þið Alda komuð í heimsókn. Okkur fannst það al- veg dásamlegt og oft var setið á kvöldin við kertaljós og harmon- ikkuspil. Þetta var okkar bað- stofulestur. Já, það er ég alveg viss um að þú þarft ekki að bíða lengi við Gullna hliðið því Lykla-Pétur mun draga þig inn fyrir í einum grænum hvelli. Það er ekki ama- legt að hafa engil sem spilar svona dásamlega á hljóðfæri. Við komum til ykkar hjóna í janúar sl. Þú komst okkur svo á óvart, þú varst alveg ótrúlegur. Þú spjallaðir við okkur um daginn og veginn, fórst í þinn daglega göngutúr og fékkst þér smá lúr á milli. En auðvitað sáum við hvað þetta var þér erfitt. Svo erfitt að geta ekki tekið þátt í daglegu amstri, farið út að hlaupa og plokka og bara vera með fólkinu þínu. Þú saknaðir barnanna þinna og litlu fallegu krílanna þinna. Í hjarta mínu er ég viss um að þú tekur á móti okkur öll- um með bros á vör og þéttu faðm- lagi eins og þú gerðir alltaf. Inni- legar samúðarkveðjur til elsku Öldu, barnanna ykkar og fjöl- skyldna. Nú kveð ég allt og alla við ævi liðinn dag, horfi hátt til fjalla um hinsta sólarlag. Sofna og sef í friði en sólin aftur rís, með nýjum náðardegi í nýrri paradís. (Eðvald Halldórsson) Linda og Pétur. Kæri vinur, hinsta kveðja til þín. Þökk fyrir öll góðu samtölin sem við áttum símleiðis. Ég kveð þig með sálmi sr. Valdimars Briem: Hallgrímur Sveinn Sævarsson ✝ Hallgrímur Sveinn Sæv- arsson fæddist 21. apríl 1975. Hann lést 14. janúar 2021. Hallgrímur var jarðsettur 1. febrúar og fór útförin fram í kyrrþey. Sofðu vært hinn síðsta blund, uns hinn dýri dagur ljómar, Drottins lúður þegar hljómar hina miklu morgunstund. Verði, Drottinn, vilji þinn, vér oss fyrir honum hneigjum, hvort vér lifum eða deyjum, veri hann oss velkominn. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Jón Kr. Ólafsson, söngvari frá Bíldudal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.