Morgunblaðið - 19.03.2021, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2021
Ten Points Maria
27.990 kr.
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Búið er að fara yfir valmöguleika
yfir húsnæði sem hægt er að færa
starf Fossvogsskóla í og ágætis
mynd komin á þá stöðu að sögn
Skúla Helgasonar, formanns skóla
og frístundaráðs Reykjavíkur-
borgar og borgarfulltrúa Samfylk-
ingarinnar. Hann gerir ráð fyrir að
geta kynnt niðurstöðu á nýrri stað-
setningu í dag og litið sé til þess að
nýta skólahúsnæði í eigu borg-
arinnar. Kennsla í skólanum fór
fram utandyra í gær og í dag verð-
ur starfsdagur.
Á fundi skólayfirvalda með for-
eldrum á miðvikudagskvöld var
lögð fram áskorun rúmlega 250 for-
eldra í skólanum sem kröfðust að-
gerða þegar í stað vegna myglu
sem greinst hafði í skólanum fyrir
nokkrum árum. Skólastjórinn, Ingi-
björg Ýr Pálmadóttir, sagði eftir
fundinn að kennsla hæfist á nýjum
stað á mánudaginn.
Brugðist við kröfu foreldra um aðgerðir vegna myglu í Fossvogsskóla og nú er leitað að öðru skólahúsnæði
Útikennsla
við Foss-
vogsskóla
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ragnhildur Þrastardóttir
Þór Steinarsson
Rúmlega 100 einstaklingar, þar af
ríflega 50 starfsmenn Landspítal-
ans, þurfa að fara í skimun og
sóttkví eftir að eitt smit greindist
utan sóttkvíar hér á landi á mið-
vikudaginn. Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir greindi frá því á
upplýsingafundi Almannavarna í
gær að ekki hefði tekist að rekja
smitið. Hann sagði ástæðu til þess
að hafa áhyggjur af smitinu og að
það væri vísbending um að kór-
ónuveiran væri ekki horfin alveg úr
samfélaginu. Þórólfur sagðist þó
telja að sú smithrina sem kom upp
fyrir tveimur vikum væri nokkurn
veginn yfirstaðin. Niðurstaða rað-
greiningar lá ekki fyrir þegar blað-
ið fór í prentun og því ekki ljóst
hvort að um svokallað breskt af-
brigði var að ræða. Flestir sem
greinast smitaðir á landamærum
hafa reynst vera með það afbrigði.
Konan sem greindist smituð á
miðvikudaginn er starfsmaður ION
Hótel á Nesjavöllum. Hún hafði
ekki mætt til vinnu frá því í byrjun
mánaðar og því ekki verið í sam-
skiptum við hótelgesti frá 7. mars
sl. Hún var viðstödd starfsmanna-
teiti sem fór fram á hótelinu sl.
sunnudag. Hátt í fjörutíu starfs-
menn hótelsins og veitingastað-
anna Súmac og Silfru, sem eru í
eigu sama fyrirtækis, voru þar og
þurftu að fara í sóttkví. Í gær hafði
enginn þeirra fundið fyrir einkenn-
um.
Sótt námskeið hjá Mími
Í vikunni fékk konan svo væg
einkenni og fór að eigin frumkvæði
í sýnatöku áður en hún átti að
mæta til vinnu í dag, föstudag. Þar
kom í ljós að hún var með Covid-19.
Hún taldi sig ekki hafa hugmynd
um hvernig hún smitaðist.
Í millitíðinni hafði konan sótt
námskeið í skólanum Mími sí-
menntun og þurftu því sautján
samnemendur og einn kennari
skólans að fara í sóttkví.
Ríflega 50 starfsmenn Landspít-
alans, sem tilheyra 28 starfseining-
um innan spítalans, höfðu sótt
reglubundna fræðslu í tengslum við
starfsþjálfun í húsakynnum Mímis
við Öldugötu á sama tíma og þurftu
þeir því líka að fara í sóttkví.
Þeir starfsmenn sem eru full-
bólusettir eða hafa fengið Covid-19
voru sendir í skimun og mótefna-
mælingu og svo í úrvinnslusóttkví
þangað til neikvæðar niðurstöður
hafa borist úr báðum prófum.
Hálfbólusettir eða óbólusettir
starfsmenn voru sendir í sóttkví og
boðaðir í skimun hjá Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins í dag, föstu-
daginn 19. mars. Þeir verða boðaðir
í seinni sýnatöku þegar sjö dagar
eru liðnir frá útsetningu fyrir smiti.
Á annað hundrað í skimun og sóttkví
Morgunblaðið/Eggert
Skimun Sýnatökur heilsugæslunnar fara fram við Suðurlandsbraut 34.
- Sú smitaða var viðstödd starfsmannateiti á sunnudaginn - Fann fyrir vægum einkennum í vikunni
- Sóttvarnalæknir hefur áhyggjur af smitinu - Bendir til þess að veiran sé ekki horfin úr samfélaginu
Sóttkví og skimun
» Milli 30 og 40 starfsmenn
ION Hótel á Nesjavöllum og á
veitingastöðunum Súmac og
Silfra
» Ríflega 50 starfsmenn
Landspítalans
» Sautján nemendur og einn
kennari hjá Mími símenntun
„Vonandi er þetta innlegg forstjór-
ans liður í því að í framtíðinni geti
verið tekin þjóðhagslega mikilvæg
skref í það að samnýta sums staðar
dýrar fjárfestingar í stóru og fá-
mennu landi,“ segir Orri Hauksson,
forstjóri Símans.
Tilefni þessara ummæla eru við-
brögð Páls Gunnars Pálssonar, for-
stjóra Samkeppniseftirlitsins, sem
sagði Orra hafa farið með rangt mál í
viðtali sem birtist við hann í sérblaði
sem kom út með Morgunblaðinu í
gær í tilefni Iðnþings 2021.
Páll sagði það þá hafa verið skýrt
að viðræður fjarskiptafyrirtækja um
mögulegt samstarf við samnýtingu
og uppbyggingu fjarskiptainnviða
hafi ekki verið bundnar við afleiðing-
ar óveðurs eða landsvæði utan suð-
vesturhornsins, „eins og Orri lætur í
veðri vaka.“ Auk þess sagði Páll að
Samkeppniseftirlitið hefði ekki gert
athugasemdir við viðræður um af-
markaðra samstarf fjarskiptafyrir-
tækjanna.
„Mér finnst það jákvæða sem fram
kemur í máli forstjóra Samkeppnis-
eftirlitsins vera að það má lesa það
þannig að það sé óumdeilt mikilvægi
þess að menn geti í afmörkuðum til-
fellum náð saman um dýra innviði í
stóru landi,“ sagði Orri og bætti við:
„Hins vegar breytir það ekki hinu
að það voru mjög eindregin varnað-
arorð frá Samkeppniseftirlitinu um
að ef aðilar máls færu óvart út fyrir
afar þröngan ramma í viðræðum
gæti það leitt til refsinga þannig að
þetta verkefni hefur varla komist
neitt af stað þótt reynt hafi verið.“
gunnhildursif@mbl.is
Mikilvægt að hægt sé að
ná saman um dýra innviði
- Vonast til að þetta sé liður í að samnýta dýrar fjárfestingar
Orri
Hauksson
Páll Gunnar
Pálsson