Morgunblaðið - 19.03.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2021
Er aftur kominn í framleiðslu
Klúbbstóllinn var framleiddur af
Stálhúsgögnum frá árinu 1959 til
ársins 2005.
Nú hefur Sólóhúsgögn, með leyfi
Stálhúsgagna, tekið við framleiðslunni
og er þessi klassíski stóll því aftur
fáanlegur.
Klúbbstóllinn
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is
Það hefur munað miklu hvernignýfullvalda Bretland hefur
höndlað bólusetningarmál sín eða
ESB, þar sem axarsköft eru ein-
kennismerkin. En kauðshátturinn
dugar ekki búrókrötum þar.
- - -
Þeir leggjast í leyfisleysi á ann-arra bóluefni. Jafnvel í Þýska-
landi, þar sem kjósendur í stórum
fylkjum fordæmdu athæfið með at-
kvæðaseðli sínum.
- - -
En lakast er að heilbrigðisráðu-neyti hér hengir sig jafnan aft-
an í kauðana þjóðinni til bölvunnar.
Macron litli sjálfskipaður veirukeis-
ari bannaði bóluefni sem millj-
ónatugir á öllum aldri höfðu þegar
notað og miðaði við 65 ára aldur.
Gaf hann engar skiljanlegar skýr-
ingar á því. Íslenska ráðuneytið
beið ekki boðanna lengi og kastaði
sér í síkið! Vitnaði svo til Noregs í
vandræðum sínum. Það var þá.
- - -
Næst var fleytt sögum um aðörfáir einstaklingar af tugum
milljóna hefðu orðið fyrir blóðfalli
um svipað leyti og þeir voru bólu-
settir. Og þá var ESB-byggðin
stöðvuð í snatri, þar sem þetta var
árans bóluefnið sem Bretar skák-
uðu henni með! Og álfarnir hér
fylgdu!
- - -
Ámyndum, sem birtar voru í álf-unni, skartaði Íslandskort því
til staðfestingar hversu hættulegt
bóluefnið væri.
- - -
Sleppt var að enginn dó hérvegna slíkra „tilvika“. Úrtakið
var eins og í heimslottói. Einn á
móti 10 milljónum. Dellunni verður
að linna.
Ófullvalda heil-
brigðisverðir
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
handtók fjóra og gerði húsleit á sex
stöðum í umdæminu og utan þess í
gærmorgun. Segir lögreglan, að að-
gerðirnar tengist rannsókn á mann-
drápi í Rauðagerði í síðasta mánuði.
Armando Bequiri var skotinn til
bana fyrir utan heimili sitt í Rauða-
gerði laugardagskvöldið 13. febrúar.
Fram kemur í úrskurði Héraðs-
dóms Reykjavíkur, sem birtur var í
gær, að Bequiri hlaut níu skot-
áverka samkvæmt bráðabirgða-
skýrslu réttarmeinafræðings. Á
vettvangi fundust níu skothylki.
Skotvopnið er ófundið.
Með úrskurðinum var felld úr
gildi skipun Steinbergs Finnboga-
sonar, verjanda eina Íslendingsins
sem er sakborningur í málinu. Segir
í úrskurðinum, sem Landsréttur
hefur staðfest, að við rannsókn og
úrvinnslu fjarskiptagagna hafi kom-
ið í ljós að Steinbergur hafi verið í
samskiptum við aðra sakborninga
málsins bæði fyrir og eftir að hann
var skipaður verjandi í málinu. Þá
hafi vitni borið um að hafa hitt og
rætt við Steinberg eftir að brotið
var framið og eftir að hann var skip-
aður verjandi. Þess vegna telji lög-
reglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
nauðsynlegt að taka skýrslu af
Steinbergi með réttarstöðu vitnis.
Steinbergur ítrekaði í samtali við
mbl.is í gær, að aðkoma hans að
málinu hefði verið í fullu samræmi
við starfsskyldur verjenda.
Fjórir handteknir vegna morðmáls
- Níu skotáverkar - Byssan ófundin
Morgunblaðið/Íris
Morðmál Fjöldi manns hefur verið
handtekinn vegna rannsóknarinnar.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Íslenska kalkþörungafélagið hefur
fengið leyfi til að vinna kalkþörunga-
set í Ísafjarðardjúpi fyrir verk-
smiðju sem fyrirtækið undirbýr í
Súðavík. Djúpkalk mun taka til
starfa síðla árs 2025, samkvæmt
nýrri tímaáætlun, en það er fimm ár-
um síðar en áformað var. Leyfisveit-
ingaferlið reyndist tafsamara en
reiknað var með.
Leyfi Orkustofnunar er til þrjátíu
ára og veitir heimild til að taka 3,6
milljónir rúmmetra af dauðum kalk-
þörungum á tilteknum svæðum.
„Okkur líst ágætlega á leyfið. Sett
eru skilyrði um ýmiss konar rann-
sóknir, bæði áður en efnistaka hefst,
á meðan hún stendur og að henni
lokinni. Það fellur ágætlega að
stefnu okkar. Við viljum rannsaka
áhrif efnistökunnar jafnóðum og
skilja þannig við að útbreiðsla lifandi
kalkþörunga aukist þegar við skilj-
um við efnisstökusvæðið, miðað við
það sem var þegar við byrjuðum,“
segir Halldór Halldórsson, forstjóri
Íslenska kalkþörungafélagsins.
Verksmiðjan í Súðavík á að vera
álíka stór og kalkþörungaverk-
smiðjan á Bíldudal, með um 120 þús-
und tonna framleiðslugetu.
Samið við sveitarfélagið
Halldór segir að efnistökuleyfið sé
lykilatriði í uppbyggingunni. Næsta
skrefið sé að ganga frá samningum
við Súðavíkurhrepp um landfyllingu
og bryggjusmíði og hvernig fyrir-
tækið endurgreiði sveitarfélaginu
þann kostnað. Svo verði farið í að
byggja verksmiðju.
Upphaflegar áætlanir Íslenska
kalkþörungafélagsins miðuðu við að
hægt yrði að gangsetja nýja kalk-
þörungaverksmiðju í Súðavík 10.10.
2020. Vegna tafa í leyfisveitingaferli
stóðst það ekki og ný tímalína gerir
ráð fyrir gangsetningu fimm árum
síðar, 10.10. 2025.
Leyfi fyrir kalkþör-
ungaverksmiðju
- Verksmiðja tekur
til starfa í Súðavík
eftir fjögur ár
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bíldudalur Verksmiðjan í Súðavík
verður með sömu framleiðslugetu.