Morgunblaðið - 19.03.2021, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.03.2021, Blaðsíða 25
treyst því að við höfum engu gleymt þegar við hittumst aft- ur! Innilegar samúðarkveðjur til Kristínar, strákanna og barna- barnanna. Hugur okkar er hjá ykkur. Ólafur Haukur, Pétur Örn, Arna Margrét og fjölskyldur. Mjög kær vinur er fallinn frá allt of snemma. Pétur Björn lést á Landspítalanum þann 7. mars sl. Margs er að minnast eftir áratuga kynni. Hann var einu ári eldri en ég. Hann varð stúdent frá MR 1966 og ég ári seinna. Við þekktumst lítið þá en vissum hvor af öðrum gegn- um fótboltann og handboltann í MR. Þá lék hann fótbolta með Fram í yngri flokkunum og ég með Val. Það var síðan nokkr- um árum eftir stúdentspróf að við hittumst í Klúbbnum og svo síðar um kvöldið hittum við Björn Vigni Sigurpálsson og Júlíus Magnússon. Við fjór- menningar brölluðum margt saman þá. Það var nokkuð fast- ur liður að fara saman í Glaumbæ á sunnudagskvöldum og hlusta á okkar bestu hljóm- sveitir á þeim tíma eins og Trú- brot og Náttúru. Síðan brann Glaumbær í desember 1971 og samskipti okkar fjórmenninga urðu minni. Þó héldum við Pét- ur Björn sambandi áfram og þá sérstaklega eftir að við vorum komnir með eiginkonur. Minnis- stæðar eru skemmtilegar ferðir í sumarbústað fjölskyldu Péturs við Þingvallavatn. Ógleymanleg er ferð sem við fórum með eiginkonunum til Hawaii árið 1973. Þegar við vor- um búin að koma okkur fyrir á hótelinu og gengum upp í bæ og ræddum um hvað það væri gott að vera komin svona langt frá Íslandi og væntanlega engan Ís- lending að finna. En viti menn, á leiðinni til baka á hótelið þá stönsum við fyrir framan búð- arglugga þar sem karlmaður og kona standa og hún segir stund- arhátt „Ó guð hvað þetta er fal- legt.“ Við tókum á sprett og hugsuðum að þessir Íslendingar væru alls staðar. Svo kom í ljós þau voru á sama hóteli og við! Síðar fórum við Pétur Björn með eiginkonum okkar og son- um í nokkur skipti í mjög skemmtilegar ferðir til Florida. Í þessum ferðum styrktust vinaböndin enn frekar og þá ekki síst á milli sona okkar sem enn eru í góðu sambandi. Þá skal þess getið að Pétur Björn reyndist Óla mínum alltaf vel, m.a. í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti þaðan sem Óli varð stúdent. Loks átti Pétur þátt í því að Óli minn ákvað að fara í Háskóla Íslands eftir nokkur ár á vinnumarkaðnum og fyrir það er hann ævinlega þakklátur. Við Pétur Björn höfðum gaman að lestri bóka og á tíma- bili voru það enskir reyfarar sem mest voru lesnir og var höfundurinn Robert Ludlum efstur á vinsældarlista okkar. Þá vorum við saman í bridds- klúbbi í 30 ár með góðum fé- lögum, þeim Benedikt Stein- grímssyni, Bolla Þór Bollasyni og Marteini Sverrissyni. Við spiluðum innanhússfótbolta ár- um saman þar sem Pétur Björn sýndi snilli sína, boltinn var sem límdur við fæturna á hon- um. Þá verður að minnast á að lið okkar Péturs í enska fótbolt- anum, ásamt þeim Benna og Matta, er Manchester United. Síðari árin hittumst við sjaldnar en höfðum símasam- band í hverri viku þar sem við m.a. krufðum leiki helgarinnar í enska boltanum. Nú er þessi höfðingi allur, hans verður sárt saknað. Megi guð varðveita hann. Við Lauga, Óli sonur okk- ar og Drífa tengdadóttir send- um Kristínu, börnunum, systr- um hans og öðrum aðstandendum innilegar samúð- arkveðjur. Megi guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Hilmar Þórisson. Í dag kveðjum við kæran æskuvin, Pétur Björn Péturs- son, ætíð kallaðan PB, frábær- an skólabróður og félaga, en hann mun sannarlega lifa áfram í hugum okkar félaganna. Þegar við lítum yfir 65 ára vináttu okkar og samveru við PB er margs að minnast. Fyrst eru það öll árin okkar saman sem æskufélagar, en við ólumst upp saman í Kleppsholtinu og áttum saman yndislegar stundir sem bestu vinir í hverfi með holótta vegi og ónaglhreinsaðar spýtur, þar sem fótbolta- og blakvöllurinn okkar var í þýfðu gömlu túni og hliðarlínur voru skurðir. Eins og í mörgu öðru stóð Pétur okkur framar í knattspyrnunni og bjó yfir undraverðri knatttækni á þeim tíma. Við sáum hann jafnvel fyrir okkur í fremstu röð hér- lendis með félögum sínum í Fram, en hann lét ógert að láta þær vonir okkar rætast með því að snúa sér að öðru. Samleið áttum við í mennta- skóla, en eftir það skildi leiðir um stund, eins og stundum vill verða, en ræturnar voru sterkar og þar kom að við leituðum hver annars og ákváðum að hittast reglulega og iðulega með fjölskyldum okkar. Pétur stundaði háskólanám í viðskipta- og hagfræði og lengst af starfsævi sinni vann hann við kennslu á því sviði. Það leyndi sér aldrei í samskiptum við hann, að kennslan átti hug hans allan og vinsældir hans meðal nemenda voru rómaðar. Ýmsir möguleikar voru þó fyrir hendi, PB var afburðapenni og vakti snemma athygli sem slíkur og virtist sem hugur hans stefndi í þá átt. Tungumál lágu líka ein- staklega vel fyrir honum og bar hann af í þeim efnum í okkar bekk. Samskipti við innfædda komu því gjarnan í hans hlut í ferð okkar um Evrópu eftir stúd- entsprófið. Ekki er þó hægt að minnast PB án þess að tala um hæfileika hans á sviði eldamennsku, en þar var hann sannur snillingur og rjúpnasúpan að hætti PB mun lengi verða í minnum höfð. Þekking hans á léttvíni var líka einstök og hélt hann um tíma námskeið á því sviði. Sum- ir okkar höfðu gjarnan þann sið að hringja í Pétur fyrir utan- landsferðir og fá nöfn á kunnum veitingastöðum; aldrei var kom- ið að tómum kofunum og nokkr- ir frábærir staðir upptaldir á hraðbergi. Við félagar fórum saman í nokkrar ferðir, bæði innan lands og utan og voru þær yfir- leitt skipulagðar af Pétri. Það kom því ekki á óvart, að loknum starfsferli, að hann tók að sér leiðsögn erlendra ferðahópa um landið; það var þeirra lán. Að leiðarlokum er okkur efst í huga söknuður og þakklæti fyrir áratugalanga vináttu, drengskap og samskipti sem aldrei bar skugga á. Það var okkur mikill heiður að fá að eiga Pétur Björn að vini. Öll voru þau samskipti á einn veg, hann var traustur félagi, hreinn og beinn og frá honum stafaði mikil innri hlýja. Það voru for- réttindi að kynnast honum og minningin um góðan dreng lifir. Kristín, synir og fjölskyldur, aðrir ættingjar og vinir kveðja nú mikilhæfan mann með sökn- uði og þakklæti fyrir að hafa fengið að njóta samvistanna við hann. Við vottum þeim okkar dýpstu samúð. Oddur, Reynir, Stefán, Sveinn og eiginkonur. - Fleiri minningargreinar um Pétur Björn Pétursson bíða birtingar og munu birt- ast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2021 ✝ Bergljót Her- mundsdóttir fæddist í Reykjavík þann 17. desember 1943. Hún lést 11. mars 2021. For- eldrar hennar voru hjónin Gyða Thorlacius, f. í Reykjavík 25. sept- ember 1916, d. 21. júlí 1993, og Her- mundur Tómasson, f. á Ísafirði 7. júní 1911, d. 6. jan- úar 1983. Systkini Bergljótar eru: 1) Sigmundur Hermunds- son, f. 1. ágúst 1940, eiginkona hans er Stella Pálsdóttir, f. 15. október 1942 2) Auður Her- mundsdóttir, f. 22. nóvember 1946, eiginmaður hennar er Guðjón Elí Jóhannsson, f. 1. mars 1944. Bergljót giftist Krist- manni Grétari Óskarsyni, f. 24. apríl 1944, þann 14. desember 1963. Dætur þeirra eru þær 1) Gyða Kristmannsdóttir, f. 7. mars 1964. Sambýlismaður hennar er Jón Ríkharð Krist- janúar 2004, Benedikt Ari Norð- fjörð Björnsson, f. 13. janúar 2006. Helga Hrönn Norðfjörð Þórðardóttir, f. 6. nóvember 1983, sonur hennar er Atli Hrafn Helguson Melberg, f. 10. júlí 2017. Pálmi Þórðarson, f. 2. jan- úar 1989. 3) Kristín Margrét Kristmannsdóttir, f. 20. ágúst 1979, eiginmaður hennar er Jó- hann Ölvir Guðmundsson, f. 24. desember 1976. Börn þeirra eru Salka Hlín Jóhannsdóttir, f. 27. september 2001, Eiður Darri Jó- hannsson, f. 13. apríl 2004, Hlyn- ur Kári Jóhannsson, f. 20. janúar 2006, og Dagur Orri Jóhanns- son, f. 19. janúar 2012. Bergljót ólst upp í Vestur- bænum til níu ára aldurs og flutti þá á Bústaðaveginn. Berg- ljót gekk í Fóstruskóla Íslands og starfaði sem leikskólakennari og leikskólastjóri lengst af á Leikskólanum Sólbakka og helg- aði sannarlega ævistarf sitt kennslu barna á yngsta skóla- stigi. Hún fór í framhaldsnám í stjórnun árið 1988. Útför Bergljótar fer fram í Guðríðarkirkju í dag, 19. mars 2021, klukkan 15. Slóð á streymi: https://fb.me/e/3nu4AuRhT Hlekk á streymi má finna á https://www.mbl.is/andlat/ jánsson, f. 4. júní 1967. Sonur Gyðu og stjúpsonur Jóns er Kristmann Freyr Dagsson, f. 22. jan- úar 1986, eiginkona hans er Auður Guð- björg Pálsdóttir, f. 27. febrúar 1988. Dætur þeirra eru Dagbjört Dóra, f. 17. nóvember 2010, Gyða Dröfn Krist- mannsdóttir, f. 20. september 2015, og Andrea Rán Krist- mannsdóttir, f. 5. ágúst 2020. Hrafnhildur Irma Jónsdóttir, f. 25. maí 2000, og Ríkharður Darri Jónsson, f. 31. maí 2002. 2) Auður Kristmannsdóttir, f. 11. september 1973, eiginmaður hennar er Þórður Pálmason, f. 11. nóvember 1957. Stjúpbörn Auðar og börn Þórðar eru Her- dís Björk Þórðardóttir, f. 18. apríl 1976, eiginmaður hennar er Björn Gíslason, f. 8. ágúst 1975, synir þeirra eru Arnar Breki Norðfjörð Björnsson, f. 20. Kær mágkona mín, Bergljót Hermundsdóttir, sem alltaf gekk undir nafninu „Begga mágkona“, hefur nú kvatt jarð- vistina og haldið til annarra heima. Okkar kynni hófust þegar bróðir minn kom stoltur heim í Þingholtsstrætið með þessa flottu stelpu sem hann hafði kynnst í handboltanum á Há- logalandi, íþróttahöll þess tíma. Hún var 18 ára, spilaði hand- bolta með Val og vann í búð. Okkur systrunum í Strætinu þótti bróðir okkar heldur betur heppinn og við einnig að fá svona fína mágkonu. Á þessum árum var oft þröngt setinn bekkurinn og hús- næðið lítið í fermetrum talið en hjartalagið var af því taginu að alltaf mátti finna pláss og oft gisti Begga, og þá var nú gaman hjá okkur litlu systrunum, 9 og 10 ára gömlum. Begga var mikil íþróttakona, stór og sterk í flottum fötum og fylgdu henni mikil ærsl og gleði. Hún t.d. skellti alltaf útidyra- hurðinni þegar hún fór um og þótti okkur það hin mesta skemmtun því okkur hafði verið kennt að ganga hljóðlega um. Þingholtsstrætið varð fyrsta heimili þeirra Beggu og Kibba, bróður míns, og þar bjuggu þau fyrstu hjúskaparárin og þar fæddist Gyða, þeirra fyrsta barn. Á þessum árum vorum við systur á barnapíualdrinum. Við vorum stundum fengnar til að passa og þá var nú tekið til hendinni og þegar ungu hjónin komu heim á þessum kvöldum var oft búið að umsnúa öllu og raða í skúffur svo ekkert var á sínum stað. Begga mín brosti sínu blíð- asta, þakkaði okkur vel fyrir til- tektina og við kvöddum sælar eftir vel unnið verk. Begga útskrifaðist sem fóstra á sínum tíma, síðar leikskóla- kennari og vann við það fag alla sína starfsævi. Fyrst sem almennur kennari og svo sem stjórnandi og var afar farsæl í starfi enda frábær manneskja og mikill mannvinur. Hjónin fluttu í Fljótshlíðina og stunduðu þar hrossarækt og hestamennsku í nokkur ár. Begga vann við leikskólann á Hvolsvelli og sinnti störfum í þágu barna þennan tíma í sveit- inni. Alltaf var gott að koma til þeirra í sveitina og sjá það sem verið var að gera hverju sinni. Begga og Kibbi höfðu lag á að gera allt vel og heimili þeirra, hvar sem þau bjuggu, bar vott um smekkvísi og gott hand- bragð. Dætur Beggu og Kibba, þær Gyða, Auður og Kristín Margrét, eru miklar uppáhalds- frænkur mínar og bera þær nöfn ættmæðra og frænkna sinna með miklum sóma. Það er gott að eiga fallegar minningar um fólkið sitt og geta litið til baka með hlýju í hjarta og bjarta von til framtíðar. Blessuð sé minning elsku mágkonu minnar. Fólkinu hennar sendi ég inni- legar samúðarkveðjur. Sigríður Guðjónsdóttir. Það var glaður hópur ungra stúlkna sem hittist haustið 1968 á Fríkirkjuvegi 11 til að hefja nám við Fóstruskóla Sumar- gjafar. Við komum víðsvegar að af landinu, en fljótlega kynnt- umst við hver annarri og sterk vináttubönd mynduðust. Berg- ljót, sem við kveðjum nú, eða Begga eins og hún var jafnan kölluð, var ein úr okkar góða hópi. Hún var Reykjavíkurmær, gift kona og átti eina dóttur, Gyðu. Begga var afar lífsglöð stúlka, hress og kát og til í ýmis- legt skemmtilegt. Hún var vin- sæl í hópnum og þegar hún bauð okkur heim til sín sat hún gjarn- an með gítarinn og spilaði og söng af hjartans ánægju. Hún var góð með gítarinn, kunni ósköpin öll af textum og leiddi gjarnan sönginn, bæði í skólan- um og þegar hópurinn hittist utan skóla. Begga starfaði alla tíð við sitt fag, bæði sem leikskólakennari og leikskólastjóri. Ég var svo heppin að vinna undir hennar stjórn í nokkra mánuði, hún var skemmtilegur og góður stjórn- andi og lærði ég þó nokkuð af henni. Hún var skapandi kona og naut þess að starfa með börnum í skapandi starfi. Begga stund- aði framhaldsnám í stjórnun við Fósturskóla Íslands og starfaði í mörg ár eftir það sem leik- skólastjóri, meðal annars í Hvolhreppi, og sáum við hana þá sjaldnar. Í gegnum árin höf- um við bekkjarsysturnar alltaf hist öðru hvoru, haldið upp á út- skriftarafmæli og einnig hist þar á milli. Begga var dugleg að mæta með sína glaðværð og smitandi hlátur sem hafði svo góð áhrif í hópnum. Við bekkjarsysturnar kveðjum Beggu með söknuði og sendum eiginmanni hennar, börnum og öðrum ástvinum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. F.h. bekkjarsystra úr út- skriftarárgangi 1970, Unnur Jónsdóttir. „Elsku Nína mín, Guð veri með þér.“ Þannig kvaddi Berg- ljót mig daginn áður en hún lést. Með þessum orðum kvaddi hún mig nánast alltaf og mér hlýnaði í hjartanu. Beið reyndar alltaf eftir þessari – setningu Guð veri með þér Nína mín. Bergljót æskuvinkona mín hefur nú kvatt okkur og er hennar sárt saknað. Hægt væri að segja frá mörgu sem á okkar daga hefur drifið og hvern mann hún hafði að geyma, en ég læt ljóð Ómars Ragnars- sonar Íslenska konan hjálpa mér, því það lýsir Bergljótu vel. Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf þér. Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan, sem ól þig og þér helgaði sitt líf. Með landnemum sigldi’hún um svarrandi haf. Hún sefaði harma. Hún vakti’er hún svaf. Hún þerraði tárin. Hún þerraði blóð. Hún var íslenska konan, sem allt á að þakka vor þjóð. Ó! Hún var ambáttin hljóð. Hún var ástkonan rjóð. Hún var amma, svo fróð. Ó! Athvarf umrenningsins, inntak hjálpræðisins, líkn frá kyni til kyns. Hún þraukaði hallæri, hungur og fár. Hún hjúkraði’og stritaði gleðisnauð ár. Hún enn í dag fórna sér endalaust má. Hún er íslenska konan, sem gefur þér allt sem hún á. Ó, hún er brúður sem skín! Hún er barnsmóðir þín eins og björt sólarsýn! Ó! Hún er ást, hrein og tær! Hún er alvaldi kær eins og Guðsmóðir skær! Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla’á fold. Þú veist, hver var skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. En sólin, hún sígur, og sólin, hún rís, og sjá: Þér við hlið er þín hamingjudís, sem ávallt er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf: Það er íslenska konan, tákn trúar og vonar, sem ann þér og þér helgar sitt líf. (Ómar Ragnarsson) Elsku Kristmann og fjöl- skylda, ég votta ykkur innilega samúð mína. Það var gott að verða samferða elsku Bergljótu minni í gegn um lífið og kveð ég nú vinkonu mína með mikilli þökk og söknuði. Guð veri með þér elsku Berg- ljót mín. Þín vinkona, Jónína Herborg Jónsdóttir (Nína), Heiðdalshúsi Eyrarbakka. Það var erfitt og nokkuð óvænt símtal sem ég fékk þegar Kristín Margrét hringdi og til- kynnti mér um lát Beggu. Alltof fljótt og snöggt var Begga tekin frá okkur og eftir situr mikill söknuður og missir. Það eru orð að sönnu sem Kristín Margrét sendi mér í skilaboðum daginn eftir andlát Beggu. „Hér eru mörg hjörtu í þúsund molum og grátið í svefn og vöku í herbergjum heimilisins, enda mamma hjarta fjölskyldunnar og límið sem öllu hélt saman.“ Begga starfaði sín síðustu starfsár sem leikskólakennari í leikskólanum Maríuborg og var lengst af deildarstjóri í Maríu- stofu. Hún hafði mikinn metnað fyrir starfi sínu, spilaði á gítar og söng og sagði börnunum sög- ur og þulur. Það var alltaf líf og fjör í Maríustofu og fór Begga mín eins og stormsveipur um deildina sína og stjórnaði af festu og fagmennsku. Maríu- stofa var sko ekki neinn skúr á skólalóðinni og passaði hún upp á að það nafn væri ekki notað um hennar deild. Það var sjaldnast lognmolla í kringum Beggu. Þegar hún hentist inn í Maríuborg tók hún salinn í stórum skrefum og birt- ist síðan í kaffistofunni með stóra, bleikrósótta kaffibollann sinn. Ekki leið á löngu þar til kaffistofan ómaði af gleði og hlátri en hlátur hennar var svo sterkur og smitandi. Það var alveg sama hvar Begga var með okkur starfs- mannahópnum í Maríuborg. Hún fyllti og lýsti alltaf upp svo fallega allt í kringum sig. Náms- ferðirnar, söngstundirnar, jóla- gleðin, fundir og aðrir viðburðir. Gleðin, krafturinn og glæsileik- inn var einstakur og engin eins og Begga okkar. Alltaf svo fín í fallegum litum sem klæddu hana svo vel og smart. Ég minn- ist alltaf þegar hún kom í heim- sókn til okkar hvað hún umvafði alla, hrósaði og gat endalaust minnt okkur á hvað lífið væri dásamlegt. Við erum svo heppin að Krist- ín Margrét starfar hjá okkur í Maríuborg sem jóga- og lífs- leiknikennari. Hún er alveg lif- andi eftirmynd móður sinnar í starfinu þegar hún kemur svíf- andi með gulu ferðatöskuna sína með öllum námsgögnunum eftir salnum og á þá deild sem hún á að vera þann daginn. Minni ég hana oft á hve lík hún er móður sinni og finn ég þá vel hvað Kristín verður stolt og glöð yfir þeirri skoðun minni. Þær mæðg- ur voru mjög tengdar og reynd- ist Kristín Margrét foreldrum sínum mjög vel og var mikill samgangur þar á milli. Í dag er gott að getað yljað sér við góðar minningar og hugsað um allt sem þær gerðu hvor fyrir aðra. Ég get ekki sleppt því að minnast á vináttu og samstarf Beggu og Jónu í Maríuborg, þær voru svona eins og ein manneskja og alveg dásamlegar saman. Núna þegar ég horfi á mynd af þeim saman finnst mér eins og vanti annan helminginn á Jónu mína. Begga okkar er nú á leið til Sumarlandsins þar sem hún mun umvefja alla sína með sínu stóra og hlýja faðmlagi. Ég vil fyrir hönd starfsfólks Maríu- borgar senda fjölskyldu og vin- um bestu samúðarkveðjur og styrk á erfiðum tímum. Blessuð sé minning þín, elsku dásamlega Begga. Guðný Hjálmarsdóttir, leikskólastjóri Maríuborg. Bergljót Hermundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.