Morgunblaðið - 19.03.2021, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2021
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Embætti ríkislögmanns hefur gert
samkomulag við fjóra fyrrverandi
starfsmenn Hafrannsóknastofnunar
um greiðslu bóta vegna starfsloka
þeirra hjá Hafrannsóknastofnun.
Starfsmennirnir voru í hópi þeirra
sem sagt var upp störfum hjá Haf-
rannsóknastofnun í nóvember árið
2019. Fá starfsmennirnir fyrrver-
andi alls 11.985.407 krónur í bætur
vegna starfsloka hjá stofnuninni auk
lögmannsþóknunar að fjárhæð
3.848.375 kr. eða samtals 15.833.782
kr. að því er fram kemur í svari
ríkislögmanns við fyrirspurn
Morgunblaðsins.
Samkomulagið er gert í kjölfar
dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í
desember síðastliðnum þar sem ís-
lenska ríkið var dæmt til að greiða
fyrrverandi fiskifræðingi hjá Haf-
rannsóknastofnun 3,5 milljónir
króna í skaða- og miskabætur vegna
ólögmætrar uppsagnar hjá stofnun-
inni í nóvember 2019 og 1,8 milljónir
króna í málskostnað.
Í dómi héraðsdóms var uppsögn
hans sögð vera haldin verulegum
annmarka og hafi valdið starfs-
manninum ekki einvörðungu skaða-
bótaskyldu tjóni heldur jafnframt
vegið að æru hans og persónu.
Alls var tíu öðrum starfsmönnum
sagt upp störfum hjá Hafrannsókna-
stofnun á sama degi í nóvember 2019
og fjórir til viðbótar létu af störfum
hjá stofnuninni. Fram kom í dómi
héraðsdóms að við uppsagnirnar
hafi eitt verið látið ganga yfir alla
starfsmennina þannig að formið á
öllum uppsögnunum hefði verið eins.
12 milljónir í bætur
vegna uppsagna
- Ríkislögmaður sem-
ur við fjóra fyrrver-
andi starfsmenn Hafró
Morgunblaðið/Eggert
Hafró Margir starfsmenn voru
ósáttir við sín starfslok.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Samkeppniseftirlitið hefur óskað
eftir frekari gögnum frá Orku nátt-
úrunnar (ON) vegna hleðslustöðva
sem fyrirtækið hefur víða um land.
Tilefnið er að eftirlitinu barst í júlí
síðastliðnum kvörtun frá Ísorku,
sem selur hleðslustöðvar, vegna
meintra samkeppnisbrota ON.
Eftirlitið óskaði eftir athugasemd-
um frá ON í ágúst sl. og ákvað svo að
fengnum gögnum frá aðilum að hefja
rannsókn á meintri háttsemi ON
varðandi hleðslur og hleðslustöðvar.
Fyrirspurnin til ON er í sjö liðum
en þar er forsagan rifjuð upp og at-
riði nefnd sem óskað er skýringa á.
Útboð borgarinnar rannsakað
Það síðastnefnda varðar útboð
umhverfis- og skipulagssviðs
Reykjavíkurborgar á uppsetningu
og rekstri hleðslustöðva fyrir rafbíla
í Reykjavík. Varð Orka náttúrunnar
hlutskörpust í útboðinu.
„Tilboð ON vegna þriggja hluta
útboðsins hljóðaði upp á neikvæðar
tilboðsfjárhæðir eða með öðrum orð-
um meðgreiðslur á bilinu 11.000 til
51.000 kr. á meðan kostnaðaráætlun
útboðsaðila hljóðaði upp á 3,45 til
3,75 m.kr. fyrirhugaðan kostnað.
Kvartandi, Ísorka, upplýsti eftirlitið
m.a. um að félagið hefði lagt fram
kæru til kærunefndar útboðsmála
vegna niðurstöðunnar, en með
ákvörðun 22. október sl. hefði kröfu
Ísorku um stöðvun útboðsins verið
hafnað. Samkeppniseftirlitið óskar
eftir nánari upplýsingum og skýr-
ingum á tilboði ON vegna útboðsins,
svo sem sjónarmiðum og útreikn-
ingum vegna tilboðsins þar sem sjá
má hvernig ON hyggst endurheimta
kostnað vegna þessa búnaðar og
þeirrar starfsemi sem útboðið sner-
ist um,“ segir þar m.a. Þá er óskað
eftir sjónarmiðum ON fyrir kæru-
nefnd útboðsmála.
Samkeppniseftirlitið spyr
um niðurgreiðslur ON
- Tilboð í útboði borgarinnar hafi falið í sér „meðgreiðslur“
Morgunblaðið/Baldur
Við Hlíðaskóla ON hefur sett upp hleðslustöðvar víða um borgina.
Guðni Einarsson
Skúli Halldórsson
Vegagerðin lokaði í gær Suður-
strandarvegi vegna sigs í veginum.
Lokunin er við Festarfjall, frá
Hrauni að Krýsuvíkurafleggjara, og
tók gildi klukkan 18.00 í gær. Aftur
átti að meta stöðuna klukkan 8.00 í
morgun.
Dregið hefur úr kvikuflæði
Vísindaráð Almannavarna hittist á
fjarfundi í gær og ræddi atburða-
rásina á Reykjanesskaga. Helstu nið-
urstöður fundarins voru að jarð-
skjálftavirkni þar hafi verið með
minna móti undanfarna tvo sólar-
hringa. Það var orðið lengsta tímabil
sem ekki höfðu mælst skjálftar yfir 4
að stærð frá því að hrinan hófst 24.
febrúar.
Um 1.400 jarðskjálftar mældust á
Reykjanesskaga í fyrradag, 17. mars.
Þrír voru yfir 3 að stærð. Skjálfta-
virknin var áfram að mestu tengd
þeim hluta kvikugangsins sem liggur
næst Fagradalsfjalli.
GPS-mælingar benda til þess að
kvika flæði áfram inn í ganginn, en að
dregið hafi úr flæðinu. Von er á nýj-
um gervihnattarmyndum í dag og
munu þær gefa upplýsingar um þró-
un kvikuflæðis á umbrotasvæðinu.
Rætt var um yfirborðssprungur
sem myndast hafa í hrinunni og verið
kortlagðar. Sú vinna mun halda
áfram næstu daga ef veður leyfir.
Notaður er dróni við kortlagninguna
og hún nýtist til að leggja mat á um-
fang umbrotanna. Einnig var farið
yfir nýjustu gasmælingar á svæðinu.
Þær sýndu engar breytingar.
Ólíklegt að þarna verði eldgos
Halldór Geirsson, jarðeðlisfræð-
ingur og dósent við Jarðvísindastofn-
un Háskóla Íslands, sagði engar vís-
bendingar um að atburðarásinni á
Reykjanesskaga sé lokið.
„Við þekkjum það úr Kröflueldum
að þeir stóðu yfir í langan tíma og að
dregið gat úr virkninni áður en hún
fór síðan af stað aftur,“ sagði Halldór.
Hann taldi eðlilegt að það hægi á
þenslu jarðskorpunnar eftir því sem
atburðarásinni vindi fram. „Það verð-
ur erfiðara fyrir kvikuna að komast
upp þar sem mótþrýstingur eykst
með tímanum. Þá dregur einnig úr
rennslinu.“
Sigmundur Einarsson jarðfræð-
ingur telur ekki miklar líkur á að það
verði eldgos við Fagradalsfjall. „Ég á
satt að segja ekki von á neinni kviku
upp á yfirborðið á þessu svæði. Eld-
virkni þarna hefur verið mjög lítil,
mjög lengi. Það er ekkert sérstaklega
líklegt að þarna verði gos,“ sagði Sig-
mundur. Hann vann að kortlagningu
jarðfræði Reykjanesskagans á 8. ára-
tug síðustu aldar og má því kallast
sérfróður um eldvirkni á skaganum.
„Ég myndi frekar ímynda mér að
þessi skjálftahrina fjari bara út. Síð-
an gæti komið goshrina hvenær sem
er, og kannski frekar austur í Brenni-
steinsfjöllum. Svo gætum við séð
skjálftahrinur á svæðinu frá Krýsu-
vík og austur undir Hellisheiði og að
Hveragerði,“ sagði Sigmundur. „Það
er sem sagt svæði sem hefur ekki
hreyfst – eftir að Suðurlandsskjálft-
arnir hófust árið 2000, þá er enn þá
dauður blettur þarna. Stór skjálfti á
því svæði myndi hrista okkur sæmi-
lega hér í Reykjavík.“ Viðtal við Sig-
mund er á mbl.is.
Heldur hefur dregið úr kvikuflæði
- Suðurstrandarvegur var lokaður í nótt - Jarðskjálftavirkni minnkar - Atburðarásinni ekki lokið
- Jarðfræðingur telur litlar líkur á eldgosi við Fagradalsfjall - Líkur á goshrinum og skjálftahrinum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Suðurstrandarvegur lokaður Sprungur hafa myndast og vegurinn sigið.