Morgunblaðið - 19.03.2021, Page 16

Morgunblaðið - 19.03.2021, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Umræður umóþarflegaflókið regluverk voru áberandi á Iðn- þingi sem haldið var á dögunum og sömuleiðis í blaði sem Morgun- blaðið gaf út í gær í tengslum við þingið. Í blaðinu er til að mynda rætt við Orra Hauks- son, forstjóra Símans, sem seg- ir ýmislegt hafa verið vel gert að undanförnu en jafnframt að af nógu sé að taka þegar komi að óþarfa flækjum og flösku- hálsum. Orri tekur dæmi af óveðrinu sem skall á hér á landi fyrir rúmu ári „með þeim afleið- ingum að rafmagns- og fjar- skiptakerfið skemmdist. Strax kviknaði sú hugmynd að leyfa fyrirtækjum í samkeppnis- rekstri að taka höndum saman um að laga þá innviði sem þurftu endurbætur á svæðum þar sem markaðurinn fyrir þjónustu þeirra er með minnsta móti. Í landi með að- eins 370.000 íbúa væri stundum best að skapa grunninnviði utan suðvesturhornsins með öðrum leiðum en hefðbundnum samkeppnismarkaði.“ Hann sagði fyrstu viðbrögð hafa ver- ið mjög jákvæð og fulltrúar stjórnvalda og fyrirtækja hafi verið samstíga. En þá „birtist upp úr þurru bréf frá Sam- keppniseftirlitinu, sem hafði tekið þátt í öllu ferlinu, þar sem varað var við því að samstarf á milli samkeppnisaðila gæti leitt til refsingar fyrir þá sem tækju þátt. Við það var verkefnið far- ið út í veður og vind.“ Orri segir eðlilegt að skoða hvort umgjörð samkeppnis- mála hér á landi sé úr hófi „dogmatísk“. Er- lendis sýni dæmin að veittar séu und- anþágur þegar mikið liggi við og bendir hann á svig- rúm sem gefið hafi verið til þróunar og framleiðslu bóluefnis við kórónuveirunni. Þá bendir hann á að í Sviss hitt- ist markaðsaðilar í fjarskiptum reglulega og leiti skyn- samlegra lausna til að leysa fjarskiptamál á svæðum þar sem ekki væri hagkvæmt að veita þjónustuna nema með samstarfi. „Við þurfum ekki að vera kaþólskari en páfinn þeg- ar kemur að mögulegri sam- vinnu keppinauta um til dæmis byggingu vissra innviða,“ segir Orri. Samkeppniseftirlitið flækist oft fyrir af ástæðum sem ekki er gott að skilja og þær flækjur eru fjarri því að vera til þess fallnar að auka samkeppni eða bæta hag neytenda. Og Sam- keppniseftirlitið er ekki heldur eina stofnunin sem getur valdið erfiðleikum í atvinnulífinu eða aukið kostnað þar að óþörfu. Í Morgunblaðinu í gær voru nefnd ýmis önnur dæmi, ekki síst úr byggingageiranum, þar sem lýsingar byggingaverk- taka og verkfræðistofa benda til þess að hægt sé að einfalda regluverk og framkvæmd þess og spara þannig töluverðan kostnað án þess að það komi niður á gæðum. En til þess þarf áhuga, vilja og getu kjörinna fulltrúa. Reynslan er því miður sú að þeir hlusti frekar á opin- berar eftirlitsstofnanir, sem vilja verja stöðu sína, en á full- trúa atvinnulífs og almennings sem þurfa að glíma við reglu- verkið. Íslendingar hljóta að geta búið við ein- faldara regluverk en nú er boðið upp á} Flækjur og flöskuhálsar Enn eina ferð-ina hefur fengist sú nið- urstaða af rann- sókn á bóluefni Ox- ford/AstraZeneca við kórónuveirunni að það sé öruggt og virki vel. Yfirmaður Lyfjastofnunar Evrópu greindi frá þessu í gær og jafn- framt því að bóluefnið tengdist ekki aukinni hættu á blóðtöpp- um. Forsætisráðherra Ítalíu, sem er eitt þeirra landa sem af lítt skýrðum ástæðum hætti notkun bóluefnisins, tilkynnti í gær að bólusetning með því hæfist á ný í dag. Önnur ríki munu væntanlega fylgja í kjöl- farið. Forsætisráðherra Breta náði ágætlega utan um málið þegar hann benti á það í gær, um leið og hann hvatti landa sína til að láta bólusetja sig, að það sem væri ekki hættu- laust væri að fá kórónuveiruna. Til að undir- strika ágæti bóluefnisins ætlar hann að láta bólusetja sig í dag. Umræðan um Oxford/ AstraZeneca-bóluefnið að und- anförnu og það upphlaup sem varð að ástæðulausu í nokkrum ríkjum, þar með talið hér á landi, hefur því miður aukið líkurnar á því að fólk þori ekki að þiggja þetta bóluefni og jafnvel ekki heldur önnur bólu- efni. Þeir sem grafið hafa und- an bólusetningunni skulda nú skýringar, en fyrst og fremst þurfa þeir að gera það sem þeir geta til að bæta fyrir skaðann. Niðurstaðan um bóluefnið varð eins og við mátti búast} Nú þarf að bæta skaðann M atvælaframleiðsla þjóðarinnar er ein af grunnstoðum þess að við byggjum sjálfbært og sjálfstætt samfélag til fram- tíðar. Víða liggja vannýtt tækifæri í landbúnaði á Íslandi en forgangs- röðun stjórnvalda þarf að breyta. Þar sem sóknarfærin eru víða þarf að huga að allri virðiskeðju matvælaframleiðslunnar, allt frá frumframleiðslu bænda að úrvinnslu matvæla á öllum stigum. Skapa þarf jákvætt starfsum- hverfi frumkvöðla sem leita leiða til að full- nýta afurðir og búa til verðmæti úr áður ónýttum afurðum. Ódýr hrein orka, hreint vatn og loft leika lykilhlutverk í framtíð- armatvælaframleiðslu á Íslandi. Mikilvægi innlendrar matvælaframleiðslu hefur verið flestum ljóst og enn frekar eftir að kórónuveirufaraldurinn skall á þjóðinni. Mið- flokkurinn lagði fram þingsályktun í október sl. sem kvað á um að fela forsætisráðherra að hrinda í fram- kvæmd 24 aðgerðum um stóreflingu innlendrar mat- vælaframleiðslu og öruggt og fyrirsjáanlegt rekstrar- umhverfi landbúnaðar í samstarfi við bændur. Meðal markmiða tillögunnar er að stórefla innlenda matvælaframleiðslu, tryggja matvæla- og fæðuöryggi, veita neytendum umhverfisvæna, holla og næringarríka fæðu, treysta afkomu bænda, auka sjálfbærni og um- hverfisvernd, varðveita þekkingu, efla rannsóknir og menntun í landbúnaði, auka skilning á mikilvægi land- búnaðarframleiðslu og vernda landgæði. Ís- lendingar vilja öfluga og innlenda mat- vælaframleiðslu sem þeir þekkja og geta treyst. Eftirspurn eftir matvælum úr nær- umhverfinu hefur sjaldan verið meiri og eykst með aukinni vitneskju neytandans um kosti innlendrar framleiðslu. Hefðbundnar greinar í landbúnaði hafa verið og eru í vörn. Staða innlendra framleið- enda gagnvart innfluttri vöru er erfið og snýr t.d. að tollamálum og samkeppnismálum, en líkt og aðrir innlendir framleiðendur á land- búnaðurinn mikið undir samstarfi og vilja verslunarinnar. Þetta á við um allar stærstu greinar landbúnaðarins: sauðfjárrækt, mjólk- urframleiðslu, nauta- og svínakjötsfram- leiðslu og garðyrkju. Þrátt fyrir áskoranir eru sóknarfærin til staðar ef landbúnaðinum eru sköpuð skilyrði til að starfa og þróast. Til að nýsköpun og þróun fái þrifist innan greinarinnar þarf stöðugleika og framtíðarsýn. Eigi landbúnaðurinn að vera í stakk búinn til að laga sig að breytingum í tímans rás og geta nýtt tækifæri sem víða liggja er nauðsynlegt að stórefla rannsóknir, nýsköpun og frumkvöðlastarf. Þetta markmið er enn brýnna nú en fyrr þar sem hætta er á að frjósöm landbúnaðarsvæði í öðrum heimshlutum spillist að hluta vegna hlýnunar og aukins vatnsskorts. Anna Kolbrún Árnadóttir Pistill Íslensk matvælaframleiðsla í fremstu röð Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. annakolbrun@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ómar Friðriksson omfr@mbl.is U msóknir halda áfram að streyma inn til Skatts- ins um styrki og endur- greiðslur vegna afleið- inga faraldurs kórónuveirunnar. Opnað var fyrir móttöku umsókna um viðspyrnustyrki í byrjun mars- mánaðar og 10. mars höfðu borist 559 umsóknir, ein umsókn fyrir hvern mánuð, og er búið að greiða 154 skv. upplýsingum Skattsins. Á sama tíma hafði borist 1.751 um- sókn um lokunarstyrki frá því að afgreiðsla þeirra hófst og er búið að greiða út 1.604 þeirra. 9.000 vildu endurgreiðslu Þá hafa Skattinum borist 1.548 umsóknir um stuðning vegna hluta launakostnaðar fyrir hvern mánuð á uppsagnarfresti starfsfólks og hafa þær allar verið afgreiddar. Þann tíunda þessa mánaðar höfðu borist 1.810 umsóknir um tekju- fallsstyrki og búið var að afgreiða 1.654. Frá áramótum til 26. febrúar bárust Skattinum einnig tæplega níu þúsund beiðnir um endur- greiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu við endurbætur, viðhald og viðgerðir. Frá því endurgreiðslu- hlutfallið var hækkað í 100% og heimildin víkkuð út í mars í fyrra vegna faraldursins voru af- greiddar rúmlega 40 þúsund um- sóknir vegna tímabilsins frá mars til seinustu áramóta en yfir allt síðasta ár bárust Skattinum um 45 þúsund endurgreiðslubeiðnir vegna virðisaukaskatts. Samtals voru endurgreiddir 12,2 milljarðar vegna virðisaukaskatts af vinnu sem unnin var frá mars til loka desember. Almennt gengið vel þrátt fyrir einhverjar tafir á afgreiðslu Skattinum var falið að hafa um- sjón með og afgreiða umsóknir vegna fjölda stuðningsaðgerða sem stjórnvöld hrundu af stað til að milda efnahagsleg áhrif farald- ursins. Spurð um álagið á emb- ættið segir Kristín Gunnarsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu ríkis- skattstjóra, að vissulega hafi verið mikið álag á mörgum einingum innan Skattsins vegna þeirra fjöl- mörgu úrræða sem Skattinum var falið að framkvæma. „Afgreiðsla á umsóknum af ýmsu tagi hefur í það heila gengið vel. Einhver bið hefur getað verið á afgreiðslu á umsóknum um endurgreiðslur á virðisaukaskatti en að jafnaði hef- ur hún þó gengið vel. Sama er að segja um bæði stuðning vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti og ýmsa styrki. Þegar umsóknarkerfin hafa verið komin í fulla virkni hefur af- greiðsla gengið vel,“ segir hún í skriflegu svari til blaðsins. Kristín segir starfsmenn hafa lagst á eitt við að sinna bæði þess- um sérstöku tímabundnu verk- efnum sem og öðrum lögbundnum verkefnum embættisins. Starfs- mönnum var fjölgað um tvo á Siglufirði þar sem höfð er yfirum- sjón með endurgreiðslum á virðis- auksaskatti. Eins hafa tollgæslu- menn tekið þátt í afgreiðslu þessara umsókna. Þá hafa starfs- menn verið færðir til á milli verk- efna og yfirtíð verið aukin en ekki hefur verið ráðið sérstaklega í úr- ræðaverkefni að sögn hennar. Fara yfir og sannreyna Umsóknirnar eru rafrænar og þarf að gera alls konar samanburð við fyrirliggjandi gögn hjá Skatt- inum í því skyni að sannreyna hvort skilyrði séu uppfyllt og und- irbyggja réttan útreikning styrkja o.fl. Kristín segir að allt að einu þurfi mannshöndin að fara yfir margar umsóknanna, eða einstök atriði í þeim. Alls konar álitaefni hafa komið upp og einhver þeirra ratað til yfirskattanefndar sem hún segir að sé þó hlutfallslega ekki mikið. Skatturinn með tug- þúsundir umsókna Fjöldi umsókna Afgreitt með greiðslu Umsóknir um lokunarstyrki 1.751 1.604 Umsóknir um stuðn- ing vegna uppsagna 1.548 1.548 Umsóknir um tekjufallsstyrki 1.810 1.654 Umsóknir um viðspyrnustyrki 559 154 Fjöldi umsókna um styrki og endurgreiðslur Hluti aðgerða stjórnvalda vegna kórónuveiru Heimild: Skatturinn 9.000 beiðnirum endurgreiðslu á virðis- aukaskatti bárust 1. jan. til 26. febrúar 45.000 beiðnir bárust á síðasta ári og 12.000 á árinu 2019 Ofangreindar tölur eru miðaðar við stöðuna 10.mars Fjármálaráðuneytið hefur upp- lýst um upphæðir að baki þeim umsóknum um styrki sem hafa verið afgreiddar. Á síðustu mánuðum hafa tugir milljarða verið greiddir í fjölbreyttan stuðning. Á fjórða þúsund rekstraraðilar og tugþúsundir einstaklinga hafa nýtt sér stuðninginn, segir í tilkynningu ráðuneytisins frá í vikunni. Frá áramótum hafa verið greiddir um 9 milljarðar króna í tekjufallsstyrki og í viðspyrnustyrki hafa verið greiddar 734 milljónir króna. Viðspyrnustyrki geta allir rekstraraðilar fengið sem verða fyrir minnst 60% tekju- falli vegna heimsfaraldursins, frá nóvember 2020 til og með maí 2021. Sótt er um styrkina fyrir einn mánuð í senn á vef Skattsins. Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins hafa 2,2 millj- arðar króna verið greiddir í lokunarstyrki og rúmir 6 millj- arðar í endurgreiðslu á virð- isaukaskatti vegna nýbygginga eða endurbóta á húsnæði. Einnig er boðið upp á endur- greiðslu vegna bílaviðgerða. Þar hafa ríflega 16 þúsund um- sóknir borist og endurgreiðslur nema 283 milljónum króna. Níu milljarðar frá áramótum HÁAR FJÁRHÆÐIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.