Morgunblaðið - 26.03.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 26.03.2021, Qupperneq 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021 Aðalfundur Ákveðið hefur verið að fresta aðalfundi Hampiðjunnar, sem til stóð að yrði haldinn föstudaginn 26. mars, um óákveðinn tíma þar til aðstæður til fundarhalda batna og smithætta minnkar. Stjórn Hampiðjunnar hf. Þegar ákvörðun um nýjan fundartíma liggur fyrir verður fundurinn auglýstur með tilskildum 14 daga fyrirvara. Hluthöfum og öðrum áhugasömum er bent á að ársreikningur samstæðu Hampiðjunnar 2020 er aðgengilegur á heimasíðu félagsins og í fréttakerfi Nasdaq Iceland. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Atvinnulausir erlendir ríkisborg- arar, sem hafa farið utan í atvinnu- leit en eiga bótarétt á Íslandi, eru svo lítið hlutfall þeirra sem koma til landsins um Keflavíkurflugvöll að þeir geta alls ekki átt stóran hlut í þeim smitum sem greinast á landamærunum, að mati Unnar Sverrisdóttur, forstjóra Vinnu- málastofnunar (VMST). Kári Stefánsson, forstjóri Ís- lenskrar erfðagreiningar, lýsti áhyggjum af því í Kastljósi í fyrra- kvöld að stór hundraðshluti þeirra sem koma hingað sýktir komi frá Austur-Evrópu. Býsna stór hundr- aðshluti þeirra hafi búsetu á Ís- landi, en séu nú atvinnulausir og komi hingað til þess að fá atvinnu- leysisbætur með reglulegu millibili og fari síðan heim til sín. Meginreglan er sú að þeir sem fá greiddar atvinnuleysisbætur þurfa að vera í atvinnuleit hér á landi. Þessi regla gildir í öllum löndum á evrópska efnahagssvæð- inu. Eina undanþágan frá þessari reglu er sú að atvinnulausum er heimilt að fara til annarra EES- landa í atvinnuleit í allt að þrjá mánuði og halda bótunum í þann tíma. Fá þeir þá svonefnd U2- vottorð hjá VMST. „Það er gefið út að hámarki til þriggja mánaða og þetta eru þá einu einstakling- arnir sem þarna getur verið um að ræða og sem er verið að vísa til,“ segir Unnur. Fjöldi þeirra sem fá U2-vottorð er mismunandi milli mánaða en að jafnaði hafa þetta verið frá 70 og yfir 100 manns í hverjum mánuði að undanförnu. Í febrúar voru gef- in út 124 slík vottorð til ein- staklinga sem fóru í atvinnuleit til Evrópu. Þegar mest var í fyrra voru gefin út 230 vottorð í ágúst og 250 í desember skv. tölum sem fengust hjá VMST í gær. Ekki sökudólgurinn Unnur bendir á að setja megi þessar tölur í samhengi við fjölda þeirra farþega sem koma til lands- ins. Sóttvarnalæknir hafi sagt að um 180 manns fari um flugvöllinn að meðaltali á degi hverjum eða um 5.600 í mánuði. Hlutfall at- vinnuleitenda af fjölda þeirra sem fara um flugvöllinn sé því svo lítið að ekki gangi upp að smitin finnist í miklum mæli meðal þeirra. „Ég er því ekki alveg að sjá að þarna liggi sökudólgurinn. Það dæmi gengur ekki upp,“ segir hún. Atvinnulausir einstaklingar frá EES-löndum geta því ekki verið á flakki milli landa og haldið rétti til atvinnuleysisbóta. Ef þeir koma aftur til Íslands eftir atvinnuleit í öðrum EES-löndum þurfa þeir að gefa sig fram við VMST, staðfesta atvinnuleitina og halda henni áfram hér á landi. Ekki er heimilt að endurnýja U2-vottorðið aftur fyrr en að liðn- um sex mánuðum og þar að auki þurfa þeir að hafa verið við störf á íslenskum vinnumarkaði í a.m.k. þrjá mánuði áður en þeir geta end- urnýjað þessa heimild til að fara á nýjan leik í atvinnuleit í öðru Evr- ópulandi. Aðspurð hvort mögulegt sé að einhverjir fari framhjá reglunum og tilkynni ekki um ferðir til ann- arra landa segist hún ekkert geta fullyrt um það, en það hafi ekki komið fram í eftirliti VMST í nein- um þeim mæli að stór hluti smita sem finnast á landamærunum verði rakinn til þessara ein- staklinga. Of fáir til að eiga stóran hlut í landamærasmitum - 124 fengu heimild til að fara utan í atvinnuleit í febrúar Jóhann Ólafsson Freyr Bjarnason Alls eru fimmtán nemendur í grunn- skólum Reykjavíkur með staðfest kórónuveirusmit. Tólf þeirra eru nemendur í 6. bekk í Laugarnes- skóla en enginn nemandi þar greindist smitaður í fyrradag. Þetta sagði Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, í samtali við mbl.is í gær. Hann kvaðst ekki viss um hversu margir nemendur grunn- skóla í Reykjavík væru í sóttkví en þeir skiptu hundruðum. Á þriðjudag var gripið til úr- vinnslusóttkvíar hjá nemendum í Laugarnesskóla og Laugalækjar- skóla. Í fyrradag fóru nemendur og starfsfólk Laugarnesskóla í skimun í þeim tilgangi að kanna hvort frek- ari útbreiðsla á Covid-19 væri í skól- anum. Helgi segir að vegna tíðinda gær- dagsins sé verið að létta á úr- vinnslusóttkví í Laugarnesskóla en nemendur sem eru taldir útsettir vegna áðurnefndra smita eru áfram í hefðbundinni sóttkví. Allir nemendur í 8., 9. og 10. bekk Hlíðaskóla eru nú í sóttkví eftir að nemandi á unglingadeild skólans greindist með Covid-19 í fyrradag. Þá greindist nemandi í 8. bekk í Laugalækjarskóla smitaður af kór- ónuveirunni í fyrradag. Allir nem- endur skólans eru komnir í sóttkví fram á mánudag og þeir kennarar sem kenndu umræddum bekk auk annars starfsfólks skólans. Auk þess er nemandi í áttunda bekk í Norðlingaskóla smitaður og eru félagar nemandans í árgangn- um, auk tólf starfsmanna, í sóttkví þar til síðar í dag. Leikskólabörn og starfsfólk leik- skólanna Laugasólar og Hofs í Laugardal eru komin í úrvinnslu- sóttkví. Smit hafa ekki greinst þar en um varúðarráðstöfun er að ræða vegna smita í skólum í nágrenninu. Annað gildir um leikskóla Þrátt fyrir smit innan grunnskóla Reykjavíkur og lokun þeirra í kjöl- farið segir Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir engin rök fyrir því að loka leikskólum. Þórólfur sagði á upplýsingafundi almannavarna í gær að upplýsingar frá Norðurlönd- um væru á þá leið að smithætta væri ekki aukin hjá börnum á leik- skólaaldri. Breska afbrigðið væri meira smitandi og ylli meiri veik- indum hjá öllum aldurshópum, nema hjá yngstu börnunum. „Við höfum ekki lokað leikskólum í faraldrinum,“ sagði Þórólfur og bætti við að börn þar væru mun minna smitandi. „Lokun leikskóla gæti valdið mik- illi röskun á öðrum stöðum, eins og til að mynda heilbrigðisstofnunum.“ Leikskólabörn verði heima Stjórn Félags stjórnenda leik- skóla hvetur foreldra leikskólabarna til að halda börnum sínum heima fram yfir páska til að hefta út- breiðslu kórónuveirunnar. Þetta kemur fram í ályktun fé- lagsins. Stjórnin harmar ákvörðun heil- brigðisráðherra frá því í gær um að setja ekki takmarkanir á starfsemi leikskóla líkt og gert er með önnur skólastig. „Mikilvægi leikskólastigsins fyr- ir framlínustarfsfólk er óumdeilt en hægt hefði verið að halda leik- skólum opnum með lágmarksstarf- semi fyrir vel skilgreinda forgangs- hópa,“ segir í tilkynningu félagsins. Stjórn Kennarasambands Ís- lands beinir þeim tilmælum til ís- lenskra vinnuveitenda á almennum og opinberum markaði að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að foreldrum barna sé gert kleift að vera heima með börnum sínum fram yfir páska. Þannig geti at- vinnurekendur lagst á árarnar í hinum samfélagslega slag við kór- ónuveiruna. „Boðuð hefur verið snörp tilraun til að hefta útbreiðslu veirunnar í samfélaginu. Mikið er undir í því að það takist. Til þess þarf að draga úr umsvifum. Starfsfólk fyrirtækja hefur ítrekað þurft að sýna sveigj- anleika og ábyrgðarkennd til að tryggja hag stofnana, fyrirtækja og samfélagsins alls allt síðasta ár og enn á ný þurfa vinnuveitendur að standa með starfsfólki sínu. Sveigjanleiki, alls staðar þar sem honum verður við komið, er sið- ferðileg skylda íslensks atvinnulífs á þessari stundu,“ segir í tilkynn- ingu frá Kennarasambandi Íslands. Kórónuveiran herjar á skólana - Átta smit greindust í fyrradag og voru allir í sóttkví - Samtök kennara vilja að börn verði heima og vinnuveitendur sýni foreldrum skilning - Engin rök fyrir lokun leikskóla að sögn sóttvarnalæknis 8 ný innanlandssmitgreindust sl. sólarhring 695 einstaklingareru í sóttkví 1.134 einstaklingareru í skimunarsóttkví 89 eru meðvirkt smit og í einangrun Fjöldi smita Heimild: covid.is Fjöldi smita innanlands Fjöldi smita á landamærum júlí ágúst september október nóvember desember janúar febrúar mars Fullbólusettir: 20.325 einstak-lingar Morgunblaðið/Eggert Skimun Börn í skólum borgarinnar hafa fjölmennt í skimun undanfarið. Bólusetning með bóluefni Astra- Zeneca gegn Covid-19 hefst í dag en nú er unnið að því að boða 4.000 manns í bólusetningu með efninu. Hafni fólk bólusetningu með bóluefni AstraZeneca fer það líklega aftast í röðina og þarf þá að bíða lengur eftir bólusetningu. Yngra fólk sem þegar hefur fengið einn skammt af bóluefninu mun líklega fá annan skammt þegar tíminn kemur. Fólk sem er fætt á árunum 1946, 1947 og 1948 verð- ur væntanlega boðað í bólusetn- ingu með bóluefni AstraZeneca. „AstraZeneca hefur átt svolítið undir högg að sækja í umræðunni en við vonum að þátttakan verði góð. Sóttvarnalæknir mælir með bóluefninu fyrir þennan aldurshóp og við treystum því að það verði allt eins og best verður á kosið,“ sagði Ragnheiður Ósk Erlends- dóttir, framkvæmdastjóri hjúkr- unar hjá Heilsugæslu höfuðborg- arsvæðisins, í samtali við mbl.is í gær. Bólusetning með efni Astra- Zeneca var stöðvuð fyrir um tveimur vikum vegna ótta um að það gæti valdið blóðtöppum. Síð- an þá hafa Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunin, AstraZeneca og Lyfjastofnun Evrópu sagt að bólu- efnið sé öruggt og engin tengsl séu á milli þess og blóðtappa. Heilbrigðisráðherra tilkynnti í fyrradag að notkun Astra- Zeneca-efnisins yrði fram haldið hér á landi. 4.000 manns fá AstraZeneca BÓLUSETNINGAR Morgunblaðið/Eggert Sprauta Bólusetning í Laugardalshöll.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.