Morgunblaðið - 26.03.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 26.03.2021, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Jakob Guðmundsson, björgunar- sveitarmaður hjá Brák í Borgar- byggð, sagði við mbl.is í gærkvöldi að nokkrir hefðu orðið örmagna á leið sinni að gossvæðinu í Geldinga- dölum í gær. Þá hefðu einhver minni háttar slys orðið á fólki á göngu. Í gær var stikuð ný gönguleið upp að gossvæðinu vegna gasmengunar á þeirri leið sem áður hafði verið stik- uð. Engin alvarleg slys „Það er hávaðarok og gönguleiðin er orðin flughál. Það er fólk enn á gönguleið A og við erum hægt og ró- lega að vísa því frá þegar það klárar að taka myndir,“ sagði Jakob, en hann var staddur við gosstöðvarnar þegar mbl.is ræddi við hann. Nokkrir hópar björgunarsveitar- fólks voru þá í aðgerðum við að að- stoða fólk á leið sinni til baka og enn bætti í vindinn. Ekki hafa orðið al- varleg slys á fólki við gosstöðvarnar eða á gönguleiðum svo vitað sé til. Lokuðu í gærkvöldi Lögreglustjórinn á Suðurnesjum lokaði gossvæðinu um klukkan níu í gærkvöldi vegna veðurs. Um kvöld- matarleytið í gær var blaðamaður mbl.is staddur á svæðinu og greindi frá því að margir bílar væru enn á svæðinu. Margir þeirra sem lögðu af stað upp að gosstöðvunum um það leyti voru illa búnir og veðrið var farið að versna. Þá var löng röð kyrrstæðra bíla á Suðurstrandarvegi. Aðstæður á svæðinu verða endurmetnar ár- degis í dag. Engin alvarleg slys þrátt fyrir erfiðar aðstæður Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Eldgos Björgunarsveitir við störf. - Lokuðu svæð- inu í gærkvöldi Guðni Einarsson gudni@mbl.is Eldgosið í Geldingadölum losar 1.600-3.300 tonn af brennisteinsdíox- íði (SO2) á sólarhring, að mati Þor- valdar Þórðarsonar, prófessors í eld- fjallafræði við Háskóla Íslands. Um þrefalt meira losnar af koldíox- íði (CO2) frá eld- gosinu eða 4.800- 9.900 tonn á sól- arhring. Losun gastegundanna er í hlutfalli við kvikuflæðið. Þorvaldur sagði að koldíoxíð og kolmónoxíð, sem einnig kemur úr kvikunni, væru þyngri gös en and- rúmsloftið og settust í lægðir ef ekki væri vindur. Brennisteinsdíoxíð er álíka þungt og andrúmsloft og getur farið hvort heldur upp eða niður. Myndar brennisteinssýru „Brennisteinsdíoxíð hvarfast til- tölulega hratt við vatnseindir, sér- staklega í röku lofti eins og hjá okk- ur, og myndar brennisteinsagnir. Í þeim er brennisteinssýra og vatn. Sú móða getur verið þyngri en and- rúmsloftið,“ sagði Þorvaldur. Móðan sést þegar komið er aðeins frá gos- stöðvunum og Móðuharðindin eru einmitt kennd við það fyrirbæri. Þorvaldur sagði að í Holuhrauns- gosinu 2014-2015 hefðu vísindamenn komist að því að þetta efnahvarf varð þrefalt hraðar en áður hafði verið talið. Brennisteinsdíoxíð breytist því hratt í brennisteinssýru. Brenni- steinssýra er ekki heilsusamleg og getur haft slæm áhrif á öndunarfæri. Mun minna en Holuhraun Losun umræddra gastegunda er ívið lægri hlutfallslega í gosinu í Geldingadölum en hún var í Holuhraunsgosinu. Þorvaldur sagði að kvikuframleiðslan í Holuhrauni á hverja tímaeiningu hefði verið til að byrja með hundraðfalt meiri og farið niður í að vera tífalt meiri undir lokin en hún er í Geldingadölum. Þá er gaslosun í Geldingadölum 10-15% minni á hvern rúmmetra af kviku en hún var í Holuhrauni. Rúmlega 70% af þeim brennisteini sem kvikan ber til yfirborðs fer út í andrúmsloftið. „Kvikan í Geldingadölum er með um 1.100 ppm af brennisteini. Kvik- an í Holuhrauni var með rétt rúm- lega 1.400 ppm. Kvikan sem kemur upp nú er frumstæðari og með lægra járninnihald en sú sem myndaði Holuhraun. Leysni brennisteins í kviku fylgir járninnihaldinu. Eftir því sem kvikan er járnríkari því meiri brennisteinn er í henni,“ sagði Þorvaldur. Hvað er brennisteinsdíoxíð? Brennisteinsdíoxíð (SO2) myndast m.a. við bruna jarðefnaeldsneytis og við ál- og járnblendiframleiðslu. Það losnar einnig í eldgosum og frá hverasvæðum. Efnið veldur meðal annars súrri úrkomu, samkvæmt skýrslu Umhverfisstofnunar um loftgæði á Íslandi (2019). Brennisteinsdíoxíð var eitt helsta loftmengunarefnið sem losnaði úr eldgosinu í Holuhrauni 2014-2015 og kemur nú upp með kvikunni í Geld- ingadölum. Heildarlosun Íslendinga á SO2 árið 2015 var sögð rúmlega 56.000 tonn (56,37 kt). Af því var los- un H2S vegna nýtingar jarðvarma 72% af heildarlosuninni og var hún reiknuð í SO2-ígildi. Heilsuverndar- mörk SO2 eru 350 míkrógrömm/m3 að klukkustundarmeðaltali en 125 míkrógrömm/m3 að sólarhrings- meðaltali. Um hádegi í gær mældist styrkur SO2 í andrúmslofti í Grinda- vík 2,7 míkrógrömm/m3 samkvæmt vefnum loftgaedi.is eða langt undir heilsuverndarmörkum. Töluverð gas- mengun kem- ur frá gosinu - Þúsundir tonna af brennisteinsdíoxíði og koldíoxíði losna á hverjum sólarhring Morgunblaðið/Árni Sæberg Geldingadalir Með kvikunni koma gös sem fara út í andrúmsloftið. SVIÐSLJÓS Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Klukkan hálftíu í gærmorgun hafði Norðurflug samband við blaðamann og tjáði honum að óhætt væri að fara í þyruferð yfir gossvæðið í Geldingadölum. „Ég hélt að það væri spáð vonskuveðri,“ sagði ég. Birgir Ómar Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Norðurflugs, var á hinum enda línunnar: „Það er frá- bært veður. Þegar það er svona gott veður þá fljúgum við,“ og bætti við að vindáttin væri með því móti að hægt væri að sjá vel í gosstrókinn. Var þá ekki annað í stöðunni en að rífa fram flíspeysuna og gönguskóna, fara um borð í næstu þyrlu og sjá gosið, Litla ræfilinn, Litla-Hraun, Fagrahraun eða hvaða nafn sem því verður gefið. Þá þegar hafði þyrla Norðurflugs farið heilar fimm ferðir þennan dag- inn – ýmist með Íslendinga eða ferðamenn. Daglega eru farnar um tuttugu ferðir að gosinu, á tveimur þyrlum, og eru á þriðja hundrað manns skráðir á biðlista. Ekki er ástæða til að kvarta undan álaginu – gosið er ein besta gjöf sem Íslend- ingar hefðu getað fengið eftir farald- urinn að sögn Birgis: „Gosið hefði ekki getað verið betur tímasett,“ segir hann. „Eftir faraldurinn fer af stað mikil samkeppni á milli áfanga- staða og allir hafa upp á eitthvað að bjóða. En það er enginn sem getur kallað fram gos.“ Þyrlan sem tók á móti okkur var ekki af verri gerðinni. Segir Birgir að hún sé sú eina hér á landi með glugga nánast allan hringinn og henti því einstaklega vel til útsýn- isferða. Þyrlur henta raunar best þegar litið er á eldgos: „Þetta er eini ferðamátinn sem reynir á öll skiln- ingarvitin,“ sagði hann, „nema auð- vitað bragðlaukana.“ Og það var satt. Þegar við nálguð- umst Geldingadali fundum við að okkur hlýnaði og var þar ekki sólinni um að kenna, heldur hitanum sem lagði frá vellheitri kvikunni. Snjóað hafði um nóttina svo allt svæðið var snævi þakið, fyrir utan hraunið og kolsvartan gíginn, sem bætir í hraunið með hverri kvikuskvettunni á fætur annarri. Það var mögnuð sjón að sjá vella upp úr gígnum kvikuna sem hafði kannski kraumað í möttlinum í allnokkurn tíma. Þyrluflugmaðurinn var í stöðugu sambandi við flugturn eins og búast mátti við, enda töluverð umferð á svæðinu þessa dagana. Ein flugvélin átti leið hjá gosinu og þurfti að gæta fyllsta öryggis. Við lentum norð- vestan við gíginn, ef mér skjátlast ekki, inni í Geldingadölum, þar sem sjá mátti fjölda manns leggja leið sína að fjallinu – við sáum glitta í gönguleiðina að gígnum úr suðri. Gas frá eldgosinu var farið að berast til suðurs og suðvesturs svo göngu- leiðinni var breytt lítillega, enda geta eiturgufurnar reynst banvænar. Loks var haldið heim á leið og gosið kvatt í bili en það er öllu held- ur óljóst hvenær gosið kveður okkur á móti – sé um dyngjugos að ræða gæti það haldið áfram að gleðja okk- ur og ferðamenn næstu mánuðina eða svo. Morgunblaðið/Árni Sæberg Mikilfenglegt Útsýnið sem blasti við farþegum var engu líkt – dalurinn snævi þakinn og vel mátti sjá í hraunið. Gosinu tekið fagnandi - Gosið fullkomlega tímasett - Flytja 40 til 50 manns dag- lega - Þyrlur besti ferðamátinn þegar litið er á eldgos Allir í bátana Eftir að hafa barið gosið augum var haldið aftur um borð. Að vonum getum við haldið áfram að fylgjast með gosinu næstu mánuði. Þorvaldur Þórðarson ELDGOS Í FAGRADALSFJALLI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.