Morgunblaðið - 26.03.2021, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021
Páll Vilhjálmsson bendir rétti-lega á að EES gerir Ísland
ósjálfbjarga:
- - -
Evrópusambandiðhikar ekki við að
brjóta EES-samning-
inn þegar Brussel-
valdinu býður svo við
að horfa.
- - -
Núna er Ísland sett á bannlistavegna þess að ESB er í hall-
æri með bóluefni.
- - -
Fyrir ári braut sambandið á okk-ur og EES-samningnum með
því að banna útflutning til Íslands á
búnaði í upphafi Kínaveirunnar s.s.
hlífðarfatnaði.
- - -
Verst af öllu er þó að EES-samningurinn gerir íslensku
stjórnsýsluna ósjálfbjarga.
- - -
Í ráðuneytunum starfa meira ogminna gallharðir ESB-sinnar
sem sjá Evrópulausn á sérhverju
vandamáli sem upp kemur.
- - -
Vitanlega átti Ísland að sækja sérbóluefni beint til framleiðenda
en ekki stökkva á ESB-vagninn.
- - -
Það voru skelfileg mistök sem márekja til ósjálfbjarga stjórn-
sýslu.
- - -
Í Brussel er ekki vinum að mæta.
- - -
Það vita allir nema íslenskir emb-ættismenn sem þegar eru
gengnir ESB á hönd.“
- - -
Brýnt er að koma stjórnmála-mönnum úr taumi undirsáta
Páll
Vilhjálmsson
Hross með
knapa í taumi
STAKSTEINAR
Bæjaryfirvöld í Árborg hafa auglýst
eftir athugasemdum við tillögu í
deiliskipulagi um að kaþólsku kirkj-
unni á Íslandi verði heimilt að reisa
kirkjubyggingu, safnaðarheimili og
prestsbústað við Móaveg á Selfossi.
Lóðin þar sem fyrirhugaðar bygg-
ingar verða er í suðvesturhluta bæj-
arins og var úthlutað kirkjunni í
fyrra. Málið hefur þó verið talsvert
lengur í gerjun og undirbúningi.
Nú liggja fyrir teikningar að fyrir-
huguðum mannvirkjum, sem verða á
reit sem ætlaður er þjónustubygg-
ingum í íbúðahverfi. Alls verður
grunnflötur bygginganna um 1.500
fermetrar.
„Ekki er reiknað með að bregðast
þurfi við aukinni umferð með því að
koma fyrir hljóðveggjum meðfram
Móavegi eða minnka umferðar-
hraða. Búast má við að kirkjuklukk-
um verði hringt á helgum dögum,“
segir í deiliskipulagstillögunni. Hjá
Sveitarfélaginu Árborg er búist við
að skipulagsmálin og annað sem til-
heyrir verði frágengið í haust.
Fjármögnun framkvæmda á Sel-
fossi er tryggð og hafist verður
handa um leið og allar samþykktir
og leyfi eru í höfn, segir Jakob Rol-
land, kanslari kaþólsku kirkjunnar á
Íslandi, í samtali við Morgunblaðið.
Á annað þúsund manns á Suðurlandi
eru kaþólskir og þeim þjónar sr.
Denis O‘Leary, prestur við Maríu-
kirkjuna í Breiðholti í Reykjavík. Í
fyllingu tímans er gert ráð fyrir að
sérstakur kaþólskur söfnuður á Suð-
urlandi verði stofnaður, sem helst í
hendur við að reisa á hina veglegu
byggingu. Í dag hefur kaþólska
kirkjan á Suðurlandi aðsetur í
tveimur herbergjum í gömlu íbúðar-
húsi á Selfossi.
Kaþólsk Selfosskirkja
sett í deiliskipulag
- 1.500 fermetra
hús - Klukknaköll á
helgum dögum
Kaþólskt Svona mun kirkjan nýja
líta út skv. teikningu arkitekta.
„Heimili landsins juku verulega við húsnæðisskuld-
ir sínar á árinu 2020. Áhrif vaxtahækkana á
greiðslubyrði og fjárhagslega stöðu heimila í kjölfar
„kófsins“ gætu orðið töluverð. Framlenging á ráð-
stöfun séreignarsparnaðar til 2023 er mikilvæg
áhætturáðstöfun fyrir heimili á tímum skerts af-
komuöryggis og aukinnar efnahagsóvissu,“ segir í
nýrri greiningu BHM.
Bandalagið hvetur stjórnvöld til að framlengja
heimild húsnæðiseigenda til að greiða séreignar-
sparnað skattfrjálst inn á húsnæðislán til ársins
2023 hið minnsta. Heimildin mun að óbreyttu falla
úr gildi 30. júní næstkomandi. Í greiningu BHM
kemur fram að ný útlán til heimila með veði í íbúð
nær þrefölduðust á síðasta ári frá árinu á undan.
Bent er á að skattfrjáls ráðstöfun séreignarinnar
inn á húsnæðislán hafi létt verulega með heimilum
landsins. Frá 2014 hafi raunhækkun húsnæðisverðs
þ.e. umfram verðbólgu, mælst 53% samanborið við
23% hækkun að meðaltali í löndum OECD.
Kaupmáttur til íbúðarkaupa minnkaði um 46%
Frá árinu 2001 til 2019 minnkaði kaupmáttur
fólks á aldrinum 20-29 ára gagnvart húsnæðiskaup-
um um 46% skv. útreikningum BHM. Í yfirlýsingu
frá BHM er m.a. bent á að stjórnvöld geti á þennan
hátt líka komið áfram til móts við ungt fólk sem fest
hefur kaup á húsnæði á undanförnum áratug en
getur ekki nýtt sér nýlega tilkominn stuðning
stjórnvalda vegna fyrstu kaupa.
„Jafnframt hvetur BHM háskólamenntað fólk til
að nýta úrræðið í ríkari mæli en til þessa, en sam-
kvæmt tölum frá því í lok árs 2018 hafði minna en
þriðjungur vinnumarkaðar nýtt sér skattfrjálsa
ráðstöfun séreignarsparnaðar til að greiða niður
húsnæðislán,“ segir í yfirlýsingu BHM.
Íbúðalán þrefölduðust milli ára
- BHM vill framlengja heimild til að greiða séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Bolholti 4 • 105 Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
Úrval aukahluta:
Hulstur, Hleðslutæki, Snúrur,
Minniskort, USB lyklar og fleira
VIÐ GERUM VIÐ
allar tegundir síma,
spjaldtölva, tölva og dróna
Körfur
frá 25.000 kr.
Startpakkar
frá 5.500 kr.
og margt
fleira
Bolholt 4, Reykjavík | www.frisbigolfbudin.is
Allt fyrir frisbígolf
Töskur
frá 3.990 kr.
Diskar
frá 2.500 kr.
Fjarlægðarmælir
24.990 kr.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/