Morgunblaðið - 26.03.2021, Side 10

Morgunblaðið - 26.03.2021, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Gerð er grein fyrir uppgötvun á lyfi sem notað er til að meðhöndla arf- genga íslenska heilablæðingu í grein íslenskra og bandarískra vísinda- manna í tímaritinu Nature Comm- unications. Unnið er að klínískri rannsókn sem lofar góðu, að sögn Hákonar Hákonarsonar, barnalækn- is í Bandaríkjunum, og sagt verður frá í vísindagrein síðar á árinu. Þar kemur meðal annars fram að lyfið geti haft jákvæð áhrif á arfgengt minnisleysi. Í framhaldinu er ætl- unin að rannsaka virkni þess gegn alzheimersjúkdómnum. Engin meðferð er til við arfgengri íslenskri heilablæðingu (HCCAA). „Rannsókn okkar leiddi í ljós að af- oxunarlyfið N-acetyl cystein (NAC) getur komið í veg fyrir að mýlildi (amyloid) fléttist saman í stærri ein- ingar og falli út í æðar, heilavef og önnur líffæri og valdið miklu líkams- tjóni. Skaðinn er oft fólginn í því að þessar próteinútfellingar loka æðum í heilanum sem getur orsakað heila- drep en þær geta líka veikt æðavegg- inn í heilaæðum og leitt til heilablæð- ingar. Þá er ljóst að þessar út- fellingar geta einnig orsakað minnisleysi hliðstætt og sést í alz- heimersjúkdómnum, en hjá mun yngra fólki sem oft hefur ekki sögu um klínískar heilablæðingar,“ segir Hákon sem er forstjóri erfðarann- sóknamiðstöðvar barnaháskóla- sjúkrahússins í Fíladelfíu. Rann- sóknin er samvinnuverkefni stofnunar hans, vísindamanna við Landspítala og fyrirtækisins Arctic Therapeutics á Akureyri. Hákon stofnaði fyrirtækið á Akureyri með félögum sínum í þeim tilgangi að framkvæma rannsóknirnar. Kom okkur á sporið Lyfið fannst eftir mikla leit. Fyrsta vísbendingin var að Cystatin C sem er mikilvægt gen í ákveðnum sníkjudýrum og er meðhöndlað með lyfi sem hefur áhrif á afoxunarferla veldur aftur á móti eituráhrifum, svo það var ekki nothæfur valkostur. Einnig sáu vísindamennirnir annað efni, DSMO, sem mikið er notað á rannsóknarstofum við að leysa upp ýmiss konar efni og leysir upp um- ræddar mýlildisfléttur. Það er heldur ekki hægt að gefa fólki vegna eitur- áhrifa. „Þetta kom okkur á sporið við að skoða lífrænan efnahvata, gluta- thion, sem sér um afoxunarferla í lík- amanum og sáum við að það leysir upp þessar mýlildisfléttur. Það er hins vegar eingöngu nothæft sem stungulyf. Forveri þess er acetyl cy- stein sem hægt er að gefa sem NAC í töfluformi og notað er í lækningum til að losa upp slímtappa í lungum og öndunarvegi og við eituráhrifum frá ofskammti af verkjalyfinu paraceta- mol. Við höfum meðhöndlað sautján HCCAA-sjúklinga með NAC og sýnt fram á öfluga virkni við að koma í veg fyrir að mýlildi falli út í líkams- vefi og eins sjáum við að það mýlildi sem búið er að falla út leysist upp með tímanum,“ segir Hákon. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að lyfið getur komið í veg fyrir framvindu HCCAA-sjúkdómsins hjá þeim sem eru arfberar að stökk- breytingu í tilteknu geni. Hér á landi er vitað um 25 arfbera en Hákon segir að samkvæmt upplýsingum úr ættfræðigrunni Íslendinga séu mun fleiri líklegir til að bera genið en hafi ekki verið prófaðir. Vonast Hákon til að hægt verði að kanna þetta betur með skimun hjá þeim íslensku fjöl- skyldum sem vitað er að hafa sjúk- dóminn. Tilgangurinn er vitaskuld að geta boðið fólkinu upp á meðferð. „Það er ljóst að ef byrjað er að taka lyfið á unga aldri er hægt að koma í veg fyrir að mýlildi eða aðrar próteinútfellingar verði og því hægt að koma í veg fyrir að sjúkdómurinn komi fram,“ segir Hákon. Áhrifameira lyf þróað Unnið er að þróun lyfsins. „Við er- um að vinna að því að búa til nýrra og betra lyf sem fer greiðar um blóð- rásina og inn í heila og hafa rann- sóknir okkar sýnt að það er mun áhrifameira og virkara lyf. Við ætl- um að þróa það og koma á markað,“ segir Hákon. Til viðbótar gagnsemi lyfsins við meðferð fólks með arfgenga íslenska heilablæðingu kann það að nýtast í meðferð við arfgengu minnisleysi eða jafnvel alzheimersjúkdómnum. Það verður rannsakað frekar. „Við vitum að 5% af íbúum heims- ins sem þjást af minnisleysi, hafa arfgengt minnisleysi sem kemur fram líkt og alzheimersjúkdómur og er á grundvelli próteinútfellinga. Lyfið okkar virkar á það. Við stefnum að því að rannsaka þann þátt í klínískum prófunum. Þá er ekki ólíklegt að alzheimersjúkdóm- urinn sjálfur sé á þessum sama grundvelli, það er að segja að mýlildi falli ekki út nema það fléttist saman. Alzheimersjúklingar eru með mý- lildis-útfellingar í heilanum sem or- saka það að ónæmiskerfið virkjast og reynir að eyða þeim en drepur taugafrumur í leiðinni. Það leiðir til heilarýrnunar og minnisleysis. Hver veit nema við höfum lausn á því í framtíðinni og ætlum við að rann- saka málið frekar,“ segir Hákon Há- konarson. Virkni lyfsins gegn alz- heimer verður rannsökuð - Íslenskir og bandarískir vísindamenn birta grein um lyf til að meðhöndla arfgenga íslenska heilablæðingu - Klínísk rannsókn sem stendur yfir lofar góðu Ljósmynd/aðsend Barnalæknir Hákon Hákonarson er stjórnandi rannsóknarinnar og aðalhöf- undur greinarinnar sem birtist í Nature Communications fyrr í vikunni. „Hákon færði mér sverð og skjöld og þá kom lífs- neistinn og baráttuviljinn aftur. Það er svo erfitt að berjast við eitthvað sem er vonlaust og ég fann að á tímabili var ég alveg að missa móðinn. Áður en ég fékk lyfið beið ég bara eftir næsta áfalli og var viss um að það myndi drepa mig. Við það að fá lyfið náði ég vopnum mínum aftur,“ segir Katrín Björk Guðjóns- dóttir á Flateyri. Hún fékk þrisvar sinnum alvarlegt heilablóðfall og bloggar um lífið í bataferli. Hún er tengd Hákoni Hákonarsyni fjölskylduböndum og áföll hennar urðu til þess að Hákon hóf að skoða úrræði. „Það var erfitt að fá þær óvæntu niðurstöður úr genarannsókninni að ég væri með arfgenga heilablæðingu. Það leið þó ekki á löngu þar til Há- kon sagði mér að hann ætlaði að gera allt sem í hans valdi stæði til að finna lausn á þessum genagalla. Þá fylltist ég von. Nú þegar þróun lyfs- ins er komin vel á veg finn ég að tilhugsunin um það, hvað það á eftir að hjálpa mörgum veitir mér styrk og gleður mig meira en ég get lýst. Lyfið á jafnvel eftir að bjarga mannslífum. Það er svo gott að finna að það sem ég hef gengið í gegnum hafi, þegar allt kemur til alls, haft einhvern til- gang. Vegna lyfsins munu vonandi færri þurfa að lenda í sömu aðstæðum og ég stend frammi fyrir í dag,“ segir Katrín við Morgunblaðið. Færði mér sverð og skjöld KATRÍN BJÖRK GUÐJÓNSDÓTTIR Katrín Björk Guðjónsdóttir Hæstiréttur Íslands staðfesti í gær dóm yfir Júlíusi Vífli Ingvarssyni, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins, fyrir peningaþvætti með því að hafa geymt sem nemur á bilinu 131-146 milljónir króna á er- lendum bankareikningum. Pen- inganna aflaði hann sér á árunum 1982 til 1993 er hann starfaði hjá Ingvari Helgasyni. Júlíus Vífill hafði áður verið sak- felldur í héraði í desember 2018 þar sem refsing var ákveðin 10 mánuðir skilorðsbundnir. Í Landsrétti var refsing hans staðfest en Hæstiréttur ákvarðaði refsingu Júlíusar Vífils sex mánuði skilorðsbundna í dag. Fimm dómarar dæmdu í málinu og skilaði einn hæstaréttardómari, Ólafur Börkur Þorvaldsson, sér- atkvæði og taldi brot Júlíusar fyrnt. Tekist var sérstaklega á um fyrn- ingu brota, gildistöku og gildissvið laga er sett voru á meðan ástands- brot Júlíusar voru framin, við mál- flutning í Hæstarétti. Nánar á mbl.is. Morgunblaðið/Hari Dómur Júlíus Vífill Ingvarsson í réttarsal í málflutningi í héraði. Staðfestur dómur í Hæstarétti 26. mars 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 126.96 Sterlingspund 174.04 Kanadadalur 100.86 Dönsk króna 20.186 Norsk króna 14.784 Sænsk króna 14.77 Svissn. franki 135.61 Japanskt jen 1.167 SDR 180.65 Evra 150.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 184.325 Hrávöruverð Gull 1734.05 ($/únsa) Ál 2205.0 ($/tonn) LME Hráolía 60.5 ($/fatið) Brent

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.