Morgunblaðið - 26.03.2021, Page 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021
Ilmur er ný litalína Slippfélagsins
hönnuð í samstarfi við Sæju
innanhúshönnuð. Línan er innblásin
af jarðlitum, dempaðir tónar með
gulum og rauðum undirtónum.
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
slippfelagid.is
slippfelagid.is/ilmur
Hör Leir Truffla Börkur
Myrra Krydd Lyng
Kandís
Lakkrís
Innblástur
og nýir litir á
slippfelagid.is
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Andrea Þóra Ásgeirsdóttir, eig-
andi veisluþjónustunnar Veislunn-
ar á Seltjarnarnesi, segir að af-
pantanir á veislum hafi streymt inn
eftir að stjórnvöld tilkynntu
þriggja vikna hertar aðgerðir
vegna kórónuveirunnar á miðviku-
daginn. „Það er allt farið núna sem
búið var að skipuleggja. Ferming-
ar, erfidrykkjur, afmæli og annað.
Við vorum á vakt til klukkan átta á
miðvikudagskvöldið til að róa fólk
niður sem hringdi,“ segir Andrea.
Aðrar veisluþjónustur sem
Morgunblaðið hafði samband við
höfðu sömu sögu að segja. Öllu hef-
ur verið aflýst.
„Við vorum mjög bjartsýn áður
en þessi tilkynning kom og farin að
huga að því að ráða starfsfólk, en
svo brást það,“ bætir Andrea við.
Í gær voru tvær erfidrykkjur á
dagskrá hjá Veislunni og aðrar
veislur um helgina, fermingar og
afmæli.
Spurð hvort viðskiptavinir ósk-
uðu eftir tilfærslu á dagsetningum
segir Andrea svo ekki vera. „Fólk
var mikið að reyna það fyrir ári
þegar samkomubannið var sett á
þá. Fólk var alltaf að flytja á nýja
og nýja dagsetningu en svo gáfust
menn upp á því.“
Mötuneyti á ís
En það er ekki bara gleðskapur
sem bregst vegna veirunnar. Veislan
rekur 150 manna mötuneyti fyrir N1
og sú starfsemi hefur verið í mý-
flugumynd í faraldrinum og fellur nú
niður. Eina starfsemin sem Andrea
sér fyrir sér næstu þrjár vikurnar er
þjónusta fyrir eldri borgara sem
Veislan annast. „Í raun kæmi sér
betur ef við gætum lokað því líka þar
sem það er of dýrt að halda úti svona
takmarkaðri þjónustu þegar ekkert
annað er í gangi. Einingin er of lítil.“
Fimmtán starfa hjá Veislunni í
venjulegu árferði. Hefur fyrirtækið
nýtt sér úrræði yfirvalda eins og
hlutabótaleiðina. „Ég tók alla af
hlutabótum um síðustu mánaðamót
þar sem ég trúði því að allt væri á
réttri leið.“
Andrea segir að það erfiðasta fyrir
sig og aðra sem sinna rekstri sé hve
hægt gangi að koma hlutum af stað
eftir að aðgerðum lýkur.
Hún segir aðspurð að Veislan nái
að standa þetta af sér hér eftir sem
hingað til þótt veiran hafi haft mikil
áhrif á reksturinn. „Sem betur fer
vorum við mjög stöndug þegar þetta
skall á. Nú er bara að bíða og sjá
hver þróunin verður. Við erum bjart-
sýn. Það er mikilvægt að halda
gleðinni gangandi.“
Hundruð manna
Guðríður María Jóhannesdóttir
framkvæmdastjóri Múlakaffis segir
að öllum veislum hafi verið aflýst.
„Það var búið að panta vel fyrir
helgina. Það voru veislur fyrir
hundruð manna, í löglegum eining-
um auðvitað,“ segir Guðríður.
Spurð hvort fólk hafi hugsað sér
nýjar dagsetningar fyrir veislurnar
segir Guðríður að fólk horfi núna til
haustsins.
Hvað varðar starfsemi Múla-
kaffis næstu vikurnar segir Guðríð-
ur að veitingastaðurinn í Hallar-
múla verði áfram opinn með
sóttvarnahólfum og þá sendi fyrir-
tækið út matarbakka í mötuneyti og
fleira sem til fellur. Sjötíu manns
starfa hjá Múlakaffi þegar allt er
eðlilegt. „Maður er orðinn leiðin-
lega vanur þessu. Viðbrögðin eru
komin í ákveðið ferli og lítið hægt að
gera.“
Hún segir reksturinn í fyrra hafa
verið erfiðan og fyrirtækið orðið
fyrir miklu tekjutapi. „En það komu
góðir mánuðir inn á milli. Við trúum
að við munum standa traustum fót-
um áfram. Við vorum vel sett fjár-
hagslega þegar faraldurinn fór af
stað.“
Vinsælt í fermingum
Gleðipinnar, sem reka meðal ann-
ars Hamborgarafabrikkuna, hafa
einnig orðið fyrir áhrifum af sam-
komutakmörkununum. Jóhannes
Ásbjörnsson markaðsstjóri og einn
eigenda segir að Hamborgara-
fabrikkan hafi verið öflug í þjónustu
við fermingarveislur meðal annars.
„Maður finnur strax fyrir því þegar
svona fréttir berast. Þá hættir fólk
við, frestar og bíður. Maður sér
þetta líka í hópabókunum í Keilu-
höllinni í Egilshöll. Þau viðskipti
hverfa,“ segir Jóhannes. „Við hjá
Gleðipinnum erum annars heilt yfir
þeirrar skoðunar að rétt sé að grípa
svona sterkt inn í strax eins og
stjórnvöld hafa nú gert. Þá styttist
vonandi tíminn sem það tekur að ná
aftur eðlilegu ástandi.“
Þurrkaði út viðskiptin
Rúnar Gíslason, eigandi og fram-
kvæmdastjóri veisluþjónustunnar
Kokkanna, segir að lokunin nú hafi
mikil áhrif á reksturinn. „Þetta er
bara svakalegt og þurrkar út við-
skiptin. Hlutirnir litu ótrúlega vel
út næstu tvær vikurnar í fyrsta
skipti í langan tíma. En sem betur
fer erum við ekki með öll eggin í
sömu körfu. Við erum líka með veit-
ingastaðinn Spíruna og mötuneyt-
isþjónustu.“
Rúnar metur tjónið á vel yfir tíu
milljónir króna. „En það er ekkert
annað hægt að gera en að horfa á
björtu hliðarnar og nýta tímann vel
á meðan í annað.“
Fimmtíu manns voru á launaskrá
Kokkanna fyrir um ári. „Við höfum
nýtt okkur hlutabótaleiðina og höf-
um ekki sagt upp neinu af fastráðnu
fólki. Það er gríðarlega mikilvægt
að hafa náð að halda þekkingunni
inni í fyrirtækinu.“
Öllum veislum hefur verið aflýst
Matur Fermingarveislur, afmæli, árshátíðir og erfidrykkjur voru fram undan hjá veislufyrirtækjum landsins.
- Tjónið hjá Kokkunum vel yfir tíu milljónir - Næstu tvær vikur litu vel út - Halda gleðinni gangandi
- Margir frestað veisluhöldum fram á haust - Erfitt ef hægt gengur að koma hlutum í gang á ný
Glugga- og hurðaframleiðandinn
Skanva ehf. varð hinn 1. febrúar sl.
fyrsta virka fyrirtækið á Íslandi til
að skila ársreikningi fyrir síðasta
rekstrarár, 2020.
Hanna Guðmundsdóttir Overby,
markaðsstjóri Skanva á Íslandi og í
Noregi, segir í samtali við Morgun-
blaðið að það sé alltaf gaman að vera
fyrst. Hún segir að ástæðan fyrir svo
snemmbúnum skilum sé að fyrir-
tækið sé hluti af austurríska glugga-
og hurðafyrirtækinu IFN Holding,
einu stærsta fyrirtæki á sínu sviði í
Evrópu. „Þar eru ákveðnir verkferl-
ar sem við þurfum að fylgja,“ segir
Hanna.
Eins og fram kemur á vef skatts-
ins er skilafrestur á ársreikningi eigi
síðar en einum mánuði eftir sam-
þykkt hans en þó eigi síðar en átta
mánuðum eftir lok reikningsárs.
Brautryðjendur á netinu
Skanva rekur verslun á Fiskislóð í
Reykjavík, ásamt því að reka net-
verslun. „Við erum brautryðjendur í
sölu glugga og hurða á netinu á Ís-
landi. Nóg er að slá inn stærðir í
reiknivél til að fá verðið uppgefið. Á
þessum tíma árs er svo 8-10 vikna
bið eftir vörunni, sem er sérsmíðuð
fyrir hvern og einn úti í Danmörku,“
segir Hanna en um danska hönnun
er að ræða.
Þrjú ár eru síðan bæði verslunin
og netverslunin voru opnaðar hér á
landi.
„Skanva- samstæðan stendur fyr-
ir 3,5% af veltu IFN Holding,“ segir
Hanna, en IFN velti jafnvirði rúmra
92 ma. íslenskra króna árið 2019.
Gluggar Skanva hefur verið vel tek-
ið allt frá opnun fyrir þremur árum.
Gaman að vera
fyrst til að skila
- Ársreikningi
Skanva fyrir 2020
skilað 1. febrúar