Morgunblaðið - 26.03.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.03.2021, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021 Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. DLUX 4000 NÝTT Sterkasta D-vítamín sem völ er á frá Better You 4000 AE í hverjum úða • Sykurlaus munnúði • Sama góða piparmyntubragðið • 3ja mánaða skammtur • Óhætt að nota ámeðgöngu og meðan á brjóstagjöf stendur Vítamín í munnúðaformi skila hámarksupptöku í gegnum slímhúð í munni sem gerir þau afar hentug í notkun. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Þjóðarleiðtogar Evrópusambands- ríkjanna 27 sátu í gær á fjarfundi og ræddu þar þá stöðu sem komin er upp í bólusetningarmálum sam- bandsins, en einsýnt þykir að ekki verði nægar birgðir tiltækar innan sambandsins til þess að hægt verði að fjölga bólusetningum gegn kór- ónuveirunni að ráði á næstunni. Meðal þess sem rætt var á fund- inum var ákvörðun framkvæmda- stjórnar sambandsins um að herða á útflutningshömlum á bóluefnum til ríkja utan sambandsins, en þeirri ákvörðun er einkum beint gegn Bretum og lyfjafyrirtækinu Astra- Zeneca, sem gengið hefur erfiðlega að framleiða nægilega marga skammta til þess að uppfylla samn- inga sína. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnarinnar, birti á fundinum tölur um útflutning á bólu- efnum frá ríkjum sambandsins, en 21 milljón skammtar af þeim 77 milljónum skammta sem alþjóðleg lyfjafyrirtæki hafa framleitt í verk- smiðjum sínum innan aðildarríkj- anna hafa verið seldir til Bretlands. Segir framkvæmdastjórnin það ósanngjarnt, þar sem bresk fyrir- tæki hafi ekki selt bóluefni á móti til sambandsins, en geta skal þess að lykilhráefni í bóluefni Pfizers er framleitt í Bretlandi og sent þaðan til Belgíu. Útflutningstölum von der Leyen var ætlað að svara gagnrýni á ráð- stafanir framkvæmdastjórnarinnar í fyrradag, en Bretar sökuðu Evrópu- sambandið um að sýna af sér „bólu- efnaþjóðernishyggju“ sem til lengri tíma litið yrði skaðleg fyrir öll ríki sem nú berðust gegn kórónuveir- unni. Juncker varar við banninu Bretar fengu þar óvæntan hauk í horni í Jean-Claude Juncker, fyrir- rennara von der Leyen í fram- kvæmdastjórninni, en hann þótti á sínum tíma Bretum mjög óþægur ljár í þúfu. Sagði Juncker í samtali við Hardtalk, fréttaþátt breska ríkis- útvarpsins, að hann væri ekki „aðdá- andi“ hótunarinnar um að banna út- flutning á bóluefnum, og varaði við því að „heimskulegt bóluefnastríð“ gegn Bretum myndi stórskaða orð- spor Evrópusambandsins, sem eitt sinn hefði hampað frjálsum viðskipt- um milli ríkja. Sagði Juncker ESB eiga sérstakt samband við Bretland og að hægt væri að ræða málin. „Við erum ekki í stríði og við erum ekki óvinir, við er- um bandamenn.“ AFP Leiðtogafundur Macron Frakklandsforseti ræddi m.a. bólusetningarmál á leiðtogafundi Evrópusambandsríkjanna í gegnum fjarfundarbúnað í gær. Sambandið í þröngri stöðu - Leiðtogar ESB-ríkjanna ræddu ástandið í bólusetningarmálum sambandsins á fjarfundi sínum - Juncker segir fásinnu að hefja „bóluefnastríð“ gegn Bretum Joe Biden Bandaríkjaforseti hét því í gær að Bandaríkjastjórn myndi bregðast við ef Norður-Kóreumenn héldu áfram að gera ólöglegar eld- flaugatilraunir. Biden var spurður sérstaklega um Norður-Kóreu á blaðamannafundi sínum í gær eftir að fregnir bárust í gærmorgun um að norðurkóreskur kafbátur hefði skotið á loft tveimur slíkum eldflaug- um, í trássi við bann Sameinuðu þjóðanna. Tilraunin í gærmorgun kom fast á hæla annarrar fyrr í vikunni þar sem Norður-Kóreumenn skutu skamm- drægum stýriflaugum á loft, en Bid- en hafði lýst því yfir að hann liti ekki á þá tilraun sem ögrun við Bandarík- in. Öðru máli gegnir nú, þar sem ör- yggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur sérstaklega samþykkt bann á til- raunir Norður-Kóreu með eldflaug- ar, sem að jafnaði eru langdrægari en stýriflaugar og geta að auki borið stærri sprengjuodda. „Við erum að ráðfæra okkur við vini okkar og bandamenn um stöð- una,“ sagði Biden í gær og bætti við að frekari ögrunum yrði svarað með viðeigandi hætti. Biden sagði jafnframt að hann væri reiðubúinn að taka þátt í ein- hvers konar viðræðum við stjórnvöld í Norður-Kóreu, en að þær yrðu allt- af háðar því skilyrði að lokaniður- staða þeirra feli í sér algjöra kjarn- orkuafvopnun Norður-Kóreu. Þá sagði Biden að ástandið á Kóreu- skaganum væri nú helsta ógnin í al- þjóðamálum sem hann fylgdist með. Alvanalegt er að Norður-Kóreu- menn beiti eldflaugatilraunum í ögr- unarskyni til þess að senda skilaboð til umheimsins. Þetta var hins vegar fyrsta tilraunaskotið í rúmt ár. Skutu tveimur eldflaugum á loft - Biden fylgist grannt með N-Kóreu AFP Eldflaugaskot Fregnir af tilrauna- skotinu vöktu athygli í S-Kóreu. Eigendur flutningaskipsins MV Ever Given sögðu í gær að þeir hefðu lent í „miklum erfiðleikum“ við að losa skipið úr Súez- skurðinum þar sem það strandaði á þriðjudaginn. Hafa egypsk stjórn- völd neyðst til þess að loka tíma- bundið fyrir umferð um skurðinn meðan skipið er losað, og er óttast að sú lokun gæti staðið í margar vikur. Strandið hefur þegar haft áhrif á heimsmarkaðsverð á olíu, en það hækkaði um 6% í fyrradag, þar sem fyrirséð er að tafir verði á flutningi hennar til Vesturlanda. Þá er óttast að vöruverð geti hækkað, þar sem flutningaskip þurfi nú að sigla suð- ur fyrir Góðrarvonarhöfða, en Súez-skurðurinn styttir siglinga- leiðina milli Asíu og Evrópu um ca 8.900 kílómetra. EGYPTALAND AFP Súez Dráttarbátar hafa reynt að toga skipið aftur á flot en án árangurs. Gengur illa að losa flutningaskipið Joe Biden Banda- ríkjaforseti lýsti því yfir á fyrsta blaðamanna- fundi sínum að hann vildi láta bólusetja 200 milljón Banda- ríkjamenn gegn kórónuveirunni áður en fyrstu 100 dögum hans í embætti lýkur hinn 30. apríl næstkomandi. Upphaflegt markmið Biden- stjórnarinnar var að bólusetja 100 milljónir Bandaríkjamanna fyrir lok þess tímabils, en það markmið náðist fyrir viku. Um 2,5 milljónir Bandaríkjamanna fá bóluefnið á degi hverjum. BANDARÍKIN Stefnir að 200 millj- ónum bólusetninga Joe Biden Aðstandendur Ólympíuleikanna í Tókýó, sem eiga að fara fram í sum- ar, fögnuðu í gær því að boðhlaupið með ólympíueldinn væri loksins haf- ið. Sagði Seiko Hashimoto, fram- kvæmdastjóri leikanna, að ólympíu- eldurinn væri „ljóstíra við endalok svartnættisins“. Hlaupið átti að fara fram í fyrra í aðdraganda ólympíu- leikanna það sumar, en fresta þurfti leikunum um eitt ár vegna heims- faraldursins. Azusa Iwashimizu, leikmaður jap- anska kvennalandsliðsins í knatt- spyrnu sem vann heimsmeistara- mótið árið 2011, hóf boðhlaupið, en það mun standa yfir í næstu 120 daga og fara með ólympíueldinn þvers og kruss um Japan. Alls munu um 10.000 hlauparar skiptast á að hlaupa með eldinn, en loka- hnykkur hlaupsins verður á sjálfri setningarhátíð leikanna hinn 23. júlí næstkomandi. Engir áhorfendur voru leyfðir í gær vegna sóttvarnaráðstafana, en gert er ráð fyrir að almenningi verði leyft að fylgjast með hlaupinu næstu daga, innan skynsamlegra marka. Vonarneisti Ólympíuleikanna kveiktur - Boðhlaupið með ólympíueldinn hafið og lýkur á setningarhátíð leikanna AFP Ólympíuleikar Azusa Iwashimizu tekur hér við kyndlinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.