Morgunblaðið - 26.03.2021, Page 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021
Í upphafi skyldi end-
inn skoða, sem eflaust
hefur verið gert af ís-
lenskum frumkvöðlum
sem sóttu um fjölda
eldissvæða fyrir laxeldi
í sjókvíum. Auðlindin
(íslenskir firðir) er
verðmæti og til að hún
gæti skapað fjárhags-
legan ávinning þurfti
að fá leyfi en mikil
tregða var í leyfisveit-
ingarkerfinu. Til að liðka fyrir þurfti
því að setja málið í ákveðinn farveg,
útbúa leikreglur sem síðan var geng-
ið með í gegnum stjórnsýsluna til að
tryggja laxeldisfyrirtækjum í meiri-
hlutaeigu erlendra aðila fjárhags-
legan ávinning. Ferlinu lauk síðan
með því að íslenskir lífeyrissjóðir
voru dregnir að borðinu.
Ferli málsins
Í stuttu og mjög einfaldari mynd
má lýsa ferlinu á eftirfarandi hátt:
Auðlindin tekin: Sótt um fjölda
eldissvæða til að koma sér í ákveðna
stöðu með möguleika á fjárhags-
legum ávinningi.
Sett í sölubúning: Útbúin við-
skiptaáætlun, eld-
issvæðin eru verðmæti
og erlendir aðilar með
fjármagn fengnir að
borðinu.
Sérhagsmunagæsla:
Stjórnarmenn stærstu
laxeldisfyrirtækjanna
skipuðu sig í opinberan
stefnumótunarhóp til
að tryggja sína sér-
hagsmuni.
Sérhagsmunagæsla:
Gefin út opinber
stefnumótunarskýrsla
sem gefur væntingar
um fjárhagslegan ávinning.
Stjórnsýslan: Í ráðuneytinu var
skortur á faglegri rýni og tillögur
stefnumótunarskýrslunnar skrifaðar
því sem næst óbreyttar inn í fiskeld-
isfrumvarpið.
Stjórnsýslan: Alþingi Íslands
stoppaði af ýmis áform en í gegn fóru
þó margar tillögur sem tryggðu fjár-
hagslegan ávinning.
Stjórnsýslan: Gildistöku laganna
frestað til að gefa laxeldisfyr-
irtækjum í meirihlutaeigu erlendra
tækifæri að skila gögnum til Skipu-
lagsstofnunar.
Auka ávinning: Hlutabréf sett á
erlendan hlutabréfamarkað og náðst
hefur verulegur fjárhagslegur ávinn-
ingur, mest hjá þeim sem fyrst komu
að borðinu.
Viðhalda ávinningi: Lífeyrissjóð-
irnir m.a. fengnir að borðinu þegar
fyrstu fjárfestarnir eru búnir að taka
út framtíðarhagnað af auðlindinni.
Íslenska leiðin
Grunnur að íslensku leiðinni var
lagður með skýrslu starfshóps sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðherra
um stefnumótun í fiskeldi með hag-
stæðum tillögum fyrir laxeldisfyr-
irtæki í meirihlutaeigu erlendra að-
ila. Fjársterkir hagsmunaaðilar
vösuðust þar með stefnumótun
stjórnvalda og leikreglur voru mót-
aðar til að þjóna eigin sérhags-
munum. Það sem átti að vera stefnu-
mótun stjórnvalda og greinarinnar
varð að stefnumótun þröngs hóps
fjársterkra hagsmunaaðila. Bent
hefur verið á að sú leið sem hefur
verið notuð við undirbúning og gerð
laga um fiskeldi sé kölluð að fanga
ríkisvaldið (e. state capture).
Það er búið að taka
út framtíðarhagnaðinn
Í fjölmiðlum hefur verið fjallað um
verðmæti og hækkun hlutabréfa lax-
eldisfyrirtækja. Eldissvæðin í skjól-
góðum fjörðum á Íslandi eru verð-
mætin og það hefur átt sér stað
hækkun í hafi með því að skrá bréfin
á erlendan hlutabréfamarkað. Lax-
eldisfyrirtækin eru í meirihlutaeigu
erlendra aðila og það eru fyrst og
fremst þeir sem hafa tekið út hagn-
aðinn af auðlindinni sem skattgreið-
endur hefðu með réttu átt að njóta.
Hefur enginn fjölmiðill á Íslandi
áhuga á að láta reikna út og birta
þann ávinning sem búið er að taka
út?
Hvers er að vænta?
Ísland er á jaðarsvæði fyrir sjó-
kvíaeldi á laxi með lægra sjáv-
arhitastig en í samkeppnislöndum,
sem leiðir til hægari vaxtar á fisk-
inum, meiri áhættu og hærri fram-
leiðslukostnaðar. Árangurinn og
samkeppnishæfni greinarinnar mun
ráðast mikið af því hvernig sjáv-
arhitastig þróast á næstu áratugum.
Afkoma í greininni á alþjóðavísu hef-
ur verið ævintýri líkust en þannig
verður það ekki til eilífðar. Með
lækkandi markaðsverði munu þau
lönd eða fyrirtæki sem eru með
hæstan framleiðslukostnað fyrst
lenda í rekstrarvanda. Þegar sú
staða kemur upp munu þeir hlut-
hafar sem síðastir komu að borðinu
fyrst og fremst tapa fjármunum eins
og t.d. lífeyrissjóðirnir.
Þátttaka lífeyrissjóða
Það er margt jákvætt við upp-
byggingu laxeldis, ný störf, auknar
útflutningstekjur o.s.frv. Eflaust
hafa verið haldnir flottar glærukynn-
ingar fyrir lífeyrissjóðina til að selja
þeim hugmyndina, en Gildi og Stefn-
ir eru m.a. þeir sjóðir sem hafa fjár-
fest í laxeldisfyrirtækjum. Þegar bú-
ið er að taka út framtíðarhagnaðinn
koma íslenskir lífeyrissjóðir fyrst að
borðinu. Það er full ástæða fyrir eig-
endur sjóðanna að hafa áhyggjur
hvernig staðið er að ávöxtun þeirra
lífeyris.
Engin opinber rannsókn
Uppbygging laxeldis á Íslandi hef-
ur einkennst af samtímahugsun með
fljóttekinn hagnað að leiðarljósi en
skortur hefur verið á langtíma-
hugsun með það að markmiði að
byggja upp samkeppnishæfa at-
vinnugrein í sátt við samfélag og um-
hverfi. Sumir dást eflaust að því
hvernig þröngur sérhagsmunahópur
hefur náð að fanga ríkisvaldið og náð
fjárhagslegum ávinningi. Það verður
að gefa ríkisvaldinu falleinkunn í
sinni frammistöðu. Maður skilur það
betur og betur af hverju það er ekki
vilji fyrir því að fram fari opinber
rannsókn á málinu.
Lífeyrir almennings notaður
til að fjármagna íslensku leiðina
Eftir Valdimar Inga
Gunnarsson »Uppbygging laxeldis
á Íslandi hefur ein-
kennst af samtíma-
hugsun með fljóttekinn
hagnað að leiðarljósi en
skortur hefur verið á
langtímahugsun.
Valdimar Ingi
Gunnarsson
Höfundur er sjávarútvegsfræðingur
og hefur m.a. unnið við ýmis mál
tengd fiskeldi í rúm þrjátíu ár.
valdimar@sjavarutvegur.is
Eldri borgarar hafa
margir hverjir þurft að
þola skerta samveru og
félagslega einangrun
vegna Covid-19-
faraldursins. Það hefur
meðal annars haft þau
áhrif að margir hafa
ekki haft tök á að
stunda reglubundna
hreyfingu líkt og áður.
Með hækkandi sól og fleiri bólusett-
um landsmönnum horfum við sem
betur fer fram á bjartari tíma. Því er
afar mikilvægt að virkja þennan ald-
urshóp aftur til hreyfingar, því fyrr,
því betra.
Öll erum við meðvituð um jákvæð
áhrif skipulagðrar hreyfingar. Þau
sem ná eftirlaunaaldri í dag eru mun
líklegri til að njóta fleiri ára með
góða hreyfigetu en sambærilegur
einstaklingur gerði einungis fyrir
nokkrum áratugum. Þessi staða
býður upp á nýjar áskoranir en
einnig upp á tækifæri sem við þurf-
um að nýta okkur til fulls. Allar nýj-
ar rannsóknir sýna okkur að hreyf-
ing og styrktarþjálfun ásamt hollu
mataræði getur bætt lífsgæði og
seinkað öldrun allt upp í 5 ár eða
meira.
Eldri borgarar eru breiður hópur
fólks með ólíkar þarfir og mark-
miðið er að allir geti búið sem lengst
heima við öryggi og verið sjálfstæðir
í lífi og starfi. Síðustu ár hafa orðið
nýjar áherslur sem taka mið af
áskorunum eldra fólks og auðvelda
því að halda áfram virkri þátttöku í
samfélaginu. Þar má t.d. benda á
heilsueflandi samfélög sem er heild-
ræn nálgun sem embætti landlæknis
vinnur að í samstarfi og samráði við
sveitarfélög, opinberar stofnanir,
frjáls félagasamtök o.fl. þar sem
markvisst er unnið að því að skapa
umhverfi og aðstæður sem stuðla að
heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu
og vellíðan íbúa.
Félags- og barnamálaráðherra
gerði nýverið samninga við Lands-
samband eldri borgara og Íþrótta-
og ólympíusamband Íslands um að
aðstoða áhugasöm sveitarfélög um
land allt við að innleiða með mark-
vissum hætti heilsueflingu til fram-
tíðar sem felur í sér skipulagða
þjálfun og aukið heilsulæsi aldraðra
m.t.t. hreyfingar, næringar og ann-
arra þátta sem skipta sköpum fyrir
heilsu þeirra og líðan. Lögð verði
áhersla á námskeið, fræðslu og ann-
an faglegan stuðning til þjálfara eft-
ir því sem við á, og annarra sem
koma að heilsueflingu aldraðra á
hverjum stað. Áhersla verði lögð á
samstarf hlutaðeigandi aðila á hverj-
um stað, s.s. félög eldri borgara,
íþróttafélög og líkamsrækt-
arstöðvar. Markmiðið er að auka
lífsgæði aldraðra með betri lík-
amlegri og andlegri heilsu. Með
þessu er verið að skapa enn frekari
umgjörð fyrir þennan aldurshóp og
fjölga tækifærum til hreyfingar og
koma hreyfingu betur inn í daglegt
líf þeirra.
Aðstaða til heilsueflingar
Aðstaða í sveitarfélögum til
íþróttaiðkunar hefur tekið miklum
framförum og hafa mörg sveit-
arfélög unnið að því að bæta aðstöðu
til fjölbreyttrar hreyfingar, innan
dyra sem utan. Inniaðstaða í íþrótta-
húsum, útiæfingatæki, upphitaðir
göngustígar og bekkir til að hvílast á
með reglulegu millibili á vinsælum
gönguleiðum eru nokkur dæmi sem
vert er að nefna. Félagsstarf er líka
í boði með fjölbreyttri afþreyingu og
virkni á vegum sveitarfélaga, félaga
eldri borgara, íþróttafélaga og ann-
arra félagasamtaka. Íþróttafélög um
land allt bjóða mörg hver upp á
skipulagðar æfingar fyrir þennan
aldurshóp en íþróttahreyfingin á Ís-
landi hefur allt sem þarf til að vel
takist, menntaða þjálfara, faglegt
starf og góða aðstöðu. Þörfin fyrir
inniaðstöðu fer sífellt vaxandi með
auknum fjölda þeirra sem vilja vera
á hreyfingu að vetri til og því er
mikilvægt að efla enn frekar mögu-
leika á fjölbreyttri inniaðstöðu fyrir
alla aldurshópa.
Hver er ávinningurinn?
Samkvæmt skilgreiningu Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar er
heilsa líkamleg, andleg og félagsleg
vellíðan en ekki einungis það að vera
laus við sjúkdóma og örorku.
Heilsuefling er því mikilvægur liður
í markvissu lýðheilsustarfi. Reglu-
leg hreyfing hefur fjölþætt gildi fyr-
ir heilsu og líðan á öllum æviskeið-
um. Rannsóknir staðfesta mikilvægi
hreyfingar fyrir aldraða, m.a. betri
heilaheilsu, minni likur á föllum og
almennt aukna getu til að sinna dag-
legum athöfnum. Hreyfing stuðlar
auk þess að betri andlegri og lík-
amlegri heilsu og ýtir undir fé-
lagsleg samskipti og virkni almennt.
Þörfin fyrir styrkingu vöðvamassa
vex með árunum sem mótvægi við
því tapi sem á sér stað frá miðjum
aldri, það er því til mikils að vinna.
Margir átta sig ekki á hvað vöðva-
styrkur er afgerandi þáttur í að
komast leiðar sinnar og vera virk.
Því má aldrei hætta í að styðja við
þá styrktarþjálfun sem eflir vöðva-
massann.
Mikilvægi heilsueflingar til auk-
inna lífsgæða verður seint ofmetið
en umfram allt eykur regluleg
hreyfing líkurnar á því að fólk lifi
lengur, við betri heilsu og betri lífs-
gæði en ella.
Sú heilsuefling sem nú er stefnt
að með þeim styrkjum og fræðslu
sem verður í boði er ætlað að snúa
vörn í sókn á öllum sviðum lýðheilsu.
Því er mikilvægt að allir hjálpist að
við það að virkja gönguhópa og
hreyfihópa á sem fjölbreyttastan
hátt og hvetja hvert annað í góðum
lífsstíl.
Eftir Ingibjörgu
Ólöfu Isaksen og
Þórunni Svein-
björnsdóttur
»Mikilvægi heilsuefl-
ingar til aukinna lífs-
gæða verður seint of-
metið en umfram allt
eykur regluleg hreyfing
líkurnar á því að fólk lifi
lengur, við betri heilsu
og betri lífsgæði.
Ingibjörg er bæjarfulltrúi á Akureyri
og formaður starfshóps um lífskjör og
aðbúnað aldraðra. Þórunn er formað-
ur Landssambands eldri borgara.
Ingibjörg
Ólöf Isaksen
Heilsuefling eldri
borgara – aftur af stað
Þórunn
Sveinbjörnsdóttir
Þær töluðu nánast daglega í síma
Jóna og Sigrún, dóttir hennar. Sig-
rún býr á Selfossi, vinnur skrif-
stofustörf á fasteignasölu og þar
eru líka lögfræðingar með aðsetur.
Í spjalli á kaffistofunni minntist
Sigrún á uppgötvun mömmu sinnar
á misréttinu sem hún sætti með
ellilaunin. Að ellilaunaskjólstæð-
ingar Vinnumálastofnunar, þeir
sem fá greidd eftirlaun frá fyr-
irtækjum eða stofn-
unum og þeir sem
væru í vinnu, hefðu
100 þúsund króna frí-
tekjumark atvinnu-
tekna hjá Trygg-
ingastofnun, en að
eftirlaunagreiðslur líf-
eyrissjóða mynduðu 45
þúsund króna skerð-
ingu á ellilaunum af
sömu upphæð. Bubbi,
einn lögfræðinganna,
sagði strax að þetta
gæti ekki staðist.
Þetta væri hreint og
klárt brot á jafnræð-
isreglu stjórn-
sýslulaga.
Skömmu seinna kom Bubbi með
miða til Sigrúnar og benti henni á
að láta mömmu sína fletta upp í
lögunum um almannatryggingar og
stjórnsýslulögum. Á miðann var
skrifað „47. gr. Almannatrygg-
ingalög og 11. gr. Stjórnsýslulög“.
Hann hafði flett þessu upp og í
hans huga er þetta borðleggjandi.
„Eftirlauna- og lífeyrisþegar, það
er enginn lagalegur munur á milli
þeirra“. Svo bætti hann við. „At-
vinnuleysisbætur eru auðvitað
launatekjur, en gagnstæð skýring
atvinnutekna. Orðið segi það
sjálft“.
Jóna bað Sigrúnu, þegar hún
hafði sagt henni frá viðbrögðum
Bubba, að senda sér þessar tölur
eða leiðbeiningar í SMS. Hún
þyrfti að hafa þetta skrifað fyrir
framan sig áður en hún gúglaði.
SMS-ið kom. Hún fór og gúglaði,
almannatryggingalög. Hún skrun-
aði músinni niður að 47. gr. stjórn-
sýslulaga. Þar stóð svart á hvítu:
„Þegar teknar eru ákvarðanir
um réttindi og skyldur samkvæmt
lögum þessum gilda stjórnsýslulög
nema umsækjanda eða greiðslu-
þega sé veittur betri réttur sam-
kvæmt þessum lögum eða öðrum
lögum sem við eiga. Gæta skal
samræmis við ákvörðun sambæri-
legra mála“.
Jaaá … ætli sé einhvers staðar í
þessum lögum eða öðrum minnst
sérstaklega á að réttur þeirra sem
fá eftirlaun eða atvinnuleysisbætur
sé meiri en annarra gamlingja. Ég
þarf að skoða það betur hugsaði
Jóna, en ef enginn
meiri réttur er skráð-
ur í lög þá gilda
stjórnsýslulög. Þetta
er athyglisvert. Best
að athuga hvort eitt-
hvað sé minnst sér-
staklega á eftirlaun
eða atvinnuleys-
isbætur. Hvað ætli sé
með þessa jafnræð-
isreglu?
Jóna gúglaði stjórn-
sýslulög. Hún skrun-
aði niður eins og áður,
að 11. gr. stjórn-
sýslulaga þar sem seg-
ir um jafnræðisreglu:
„Jafnræðisreglan.
Við úrlausn mála skulu stjórn-
völd gæta samræmis og jafnræðis í
lagalegu tilliti.
Óheimilt er að mismuna aðilum
við úrlausn mála á grundvelli sjón-
armiða, byggðum á kynferði
þeirra, kynþætti, litarhætti, þjóð-
erni, trúarbrögðum, stjórnmála-
skoðunum, þjóðfélagsstöðu, ætterni
eða öðrum sambærilegum ástæð-
um“.
Hún staldraði við orðið þjóð-
félagsstöðu. Það að vera elli-
launaþegi er þjóðfélagsstaða. Ef ég
skil þetta rétt þá skal stjórnvald
gæta samræmis og jafnræðis, og
má ekki mismuna aðilum við úr-
lausn mála á grundvelli sjón-
armiða. Jónu datt í hug orðið „geð-
þótti“ í stað „sjónarmiðs“, en það
er líklega of sterkt til að prenta í
lög. Sjónarmið er í raun besta orð-
ið. Hún var augljóslega eitt af
fórnarlömbum ósamræmis og
ójafnræðis í lagalegu tilliti. Ég þarf
að muna eftir að biðja Sigrúnu að
þakka Bubba fyrir ábendinguna og
leita eftir skýringu á þessu ójafn-
ræði hjá Tryggingastofnun.
Tómas Láruson.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Tryggingastofnun
og jafnræðisreglan
Tómas Láruson