Morgunblaðið - 26.03.2021, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.03.2021, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Rauðalækur 69, Reykjavík, fnr. 201-6420 , þingl. eig. Haraldur Valdimarsson, gerðarbeiðandi Arion banki hf., þriðjudaginn 30. mars nk. kl. 11:30. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 25 mars 2021 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Zumba Gold kl. 10.30 – Dansfimi með Auði Hörpu kl. 13.30, komdu og dansaðu þig inn í helgina með okkur, kostar ekkert. Kaffi kl. 14.30-15.20. Það er grímuskylda í Samfélagshúsinu, gestir bera ábyrgð á að koma með eigin grímu og passa uppá sóttvarnir. Nánari upplýsingar í síma 411.2702. Allir velkomnir. Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-16. Stólajóga með Hönnu kl. 10. Opin vinnustofa kl. 9-15. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.30-17.15. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa: 411 2600. Boðinn Línudans kl. 15, munið sóttvarnir. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Garðabæ Poolhópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Dansleikfimi í Sjálandsskóla kl. 16. Vatnsleikfimi, Sjál. kl. 15.30, 16.10 og 16.50. Munið sóttvarnir og grímuskyldu. Gjábakki Kl. 8.30-10.30 er handavinnustofan opin. Munið að tilkynna komu ykkar daginn áður. Kl. 8.45-10.45 postulínsmálun (fullbókað). Kl. 13-15.30 tréskurður. Enn gildir 2ja metra reglan og grímuskylda þegar gengið er um húsið og þar sem ekki er hægt að tryggja 2ja metra bil. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Útskurður og tálgun kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Handa- vinna - opin vinnustofa kl. 9-16. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Bíósýning ,,Letters to Juliet" kl. 13.15. Korpúlfar Vegna hertra sóttvarnaaðgerða eru miklar breytingar á félagsstarfinu þar sem hámark er 10 í hóp. Leshópurinn fellur niður í dag og einnig skákhópurinn. Gott að kynna sér upplýsingar um heim- sendan mat. Nánari upplýsingar sendar síðar og gott að fylgjast með nýjustu fréttum í fjölmiðlum. Góðar óskir. Seltjarnarnes Vegna breyttra aðstæðna og hertra sóttvarnarreglna fellur öll dagskrá félags og tómstundastarfsins niður fram yfir páska. Þó margir hafi fengið báðar sprauturnar þá eru samt þó nokkrir sem hafa fengið fyrri sprautuna og enn aðrir sem enn eru ósprautaðir. Þess vegna verðurm við að hlýða settum reglum og fara varlega þar til yfir lýkur. Dagskrá og tilkynningar verða settar hér inn og á facebook. með morgun- !$#"nu Vantar þig hjólbarða? FINNA.is * samkvæmt Gallup jan.-mars 2019 Sölufulltrúi Berglind Guðrún Bergmann, berglindb@mbl.is, 569 1246 Ertu að leita að %"!#F%$ FÓLKI? 75 til 90 þúsund manns, 18 ára og eldri, lesa blöð Morgunblaðsins með atvinnuauglýsingum í hverri viku* Þrjár birtingar á verði einnar Birt í atvinnublaði Morgunblaðsins í aldrei"ngu ! "mmtudögum Birt í atvinnublaði Morgunblaðsins ! laugardegi. Birt !mbl.is ✝ Davíð Að- alsteinn fædd- ist á Akureyri þann 24. september 1956. Hann lést 25. febrúar 2021. Foreldrar hans voru hjónin Sverrir Sigurður Mark- ússon dýralæknir, f. 16.8. 1923, d. 28.11. 2009, og Þór- halla Davíðsdóttir kennari, f 18.3. 1929, d. 16.6. 2018. Systkini Davíðs eru þrjú. Sigríður María, f. 28.6. 1958, Sverrir Þórarinn, f. 14.5. 1959 og Torfi Ólafur, f. 15.4. 1961. Sonur Davíðs Aðalsteins og barnsmóður hans, Guðrúnar Soffíu Karlsdóttur, f. 20.7. 1957, er Karl Kristján, f. 11.5. 1977. Sonur Karls og Dagbjartar Ís- feld Guðmunds- dóttur, f. 7.9. 1978, er Tristan, f. 6.1. 1998. Sonur Karls og eiginkonu hans, Kolbrúnar Guð- mundsdóttur, f. 17.3. 1980, er Kol- beinn Friður, f. 20.6. 2004. Dóttir Kolbrúnar er Salka Snæbrá Hrann- arsdóttir, f. 15.1. 2003. Davíð fæddist á Akureyri en ólst upp til unglingsára á Blönduósi, bjó síðar í Borg- arnesi, Hveragerði og Reykja- vík. Hann útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík og stundaði svo nám í sagnfræði við Háskóla Íslands. Útför hefur farið fram. Elsku pabbi minn, ég hef svo margs að minnast um okkar fal- legu og ljúfu stundir. Mér er minnisstæð fína ferðin okkar sem við fórum saman í. Þar var ým- islegt skoðað og spjallað um. Eins og svo oft vill verða með þér, elsku pabbi, vill tíminn hverfa og ekkert er eins merkilegt og stundin sem við erum að upplifa saman. Við eigum svo margt sameiginlegt og áttum okkar eig- ið tungumál sem gott var að hafa. Við pabbi áttum margar góðar stundir saman og þegar hann bjó á Ási kom ég oft í heimsókn með ömmu Helgu, Baldri og Tristani og áttum við góða bíltúra saman. Það var skemmtilegt að taka rút- una til þín og eyða þar góðum hluta af deginum við spjall og kaffidrykkju. Þegar hann var á spítala í Reykjavík og við nýbúin að eignast son okkar Kolbein, var drjúgur tími notaður til þess að heimsækja hann og eftir það á Mörk, þar sem honum leið vel og er ég afar þakklátur að hafa feng- ið þennan tíma með honum. Við komum yfirleitt í hverjum mán- uði, tvisvar, jafnvel þrisvar eða fjórum sinnum. Þetta var góður tími og við höfðum t.d. gaman af því að spjalla meira um ýmislegt, t.d. fjölskylduna og það helsta sem var að gerast í það og það skiptið. Oft lásum við saman sálm eða ljóð úr seinustu messuskrá og einnig var gaman að fá að skoða heimilispóstinn eða hlustað var á tónlist og skrafað um tónlistar- menn og menningu, horft á myndir, þætti og þess háttar. Kolla hafði einnig einstakt sam- band við Davíð pabba minn og gátu þau spjallað um allt milli himins og jarðar. Pabbi hugsaði mjög fallega um okkur og bað alltaf að heilsa fólk- inu okkar og vonaði að allir hefðu það sem best. Síðustu mánuðirnir voru erfiðir fyrir hann og var hann ekki eins hress og áður. Svo snemma á þessu ári virtist hann finna á sér að hann ætti ekki langt eftir og tjáði mér það og sagði mér að ég tæki við. Amma og afi í báðum ættum voru alltaf með í spjalli okkar og er ég viss um að hann hafi saknað þeirra mikið. Ég óska núna honum pabba mínum að hvíla í friði og er ég viss um að hann sendir okkur öll- um ætíð góða strauma frá eilífum vistarverum sínum í paradís. Þar er hann sæll og sáttur og hann kvaddi okkur á afar fallegan og friðsælan hátt handan við þennan heim. Ég elska þig pabbi og mun ávallt varðveita þína fallegu og björtu minningu. Bæn frá Kolbeini Friði, yngsta barnabarninu: Ljós ljóssins, skín í hjarta mínu. Dimma dimman, tekur yfir. Vektu mig, á sólbjörtum degi þar sem öllum líður vel, hjá Guði er ég öruggur. Þinn sonur Karl (Kalli) og fjölskylda. Davíð Aðalsteinn Sverrisson Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum. " 3,0'*2 ,5 (1 .''( *!!4&)#'/(5 *2 þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber (1 +-'%*2 $/ (15(5 /(/'4,/(5 *!!4&)#'/(5 ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.