Morgunblaðið - 26.03.2021, Síða 33

Morgunblaðið - 26.03.2021, Síða 33
DÆGRADVÖL 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið. „ÉG FÉKK ÞÁ TIL AÐ DRAGA MANNDRÁPS- ÁKÆRUNA TIL BAKA, EN ÞÚ ERT EKKI SLOPPINN ENN. HEIL LAXAGANGA HEFUR HAFIÐ HÓPLÖGSÓKN.“ „ÞÆR KOSTA TVÖÞÚSUND… EN EKKI HAFA ÁHYGGJUR, ÉG SKAL GEYMA ÞÆR Í ÖRYGGISSKÁP OG GANGA MEÐ EFTIRLÍKINGU.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að láta ekki aðskilnað verða endanlegan. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann KETTIR LENDA ALLTAF Á LÖPPUNUMOG HUNDAR… JÆJA, ÞEIR LENDA OFTAST Á HAUSNUM HEYRÐU, HEPPNI EDDI! VERTU VAKANDI! MEINARÐU AÐ ÞETTA SÉ EKKI MARTRÖÐ? gæfu aðnjótandi að sameina áhuga- mál og störf og verið umkringdur frá- bæru samstarfsfólki. Vonandi og áreiðanlega verður jafn gaman hér eftir sem hingað til. Leiklistin hefur verið allt um kring og mun líklega verða það áfram, enda líkamlegt og andlegt ástand í góðu lagi og mað- urinn er gegnsýrður af reynslu, þekkingu og kunnáttu sem á ein- hvern hátt leitar útrásar. Nýr starfs- vettvangur er í augsýn og ýmislegt í bígerð, stórt og smátt sem hugsan- lega mun líta dagsins ljós fyrr en varir.“ Fjölskylda Eiginkona Hafliða er Margrét Jóhanna Pálmadóttir, söngkona, skólastjóri og kórstjóri, f. 28.4. 1956 á Húsavík. Foreldrar hennar voru Ólöf Emma Kristjánsdóttir, f. 13.5. 1928, d. 11.10. 2014, húsmóðir, og Pálmi Héðinsson, f. 18.7. 1930, d. 4.5. 2014, skipstjóri. Margrét ólst upp hjá Sig- ríði Soffíu Pálsdóttur, f. 8.12. 1923, d. 17.9. 1985, húsmóður, og Maríusi Héðinssyni, f. 21.10. 1923, d. 22.5. 2004, skipstjóra. Börn Hafliða og Margrétar eru Sigríður Soffía, f. 21.10. 1989, tónlist- arkona og kórstjóri, Matthildur Guð- rún f. 28.12. 1994, söngkona og arki- tekt, Kristján Helgi, f. 29.8. 1997, íþróttaþjálfari. Stjúpsynir Hafliða eru Maríus Hermann, f. 15.11. 1973, söngvari og leikari, og Hjalti Þór, f. 30.3. 1978, viðskiptafræðingur og hótelstjóri. Margrét og Hafliði eiga samanlagt sex barnabörn. Systkini Hafliða eru Kristín, f. 5.6. 1953, myndlistarkona og mynd- menntakennari í Reykjavík, og Snæ- björn, f. 15.11. 1960, rithöfundur og fv. bókaútgefandi, búsettur í Dan- mörku. Foreldrar Hafliða voru Guðrún Sigríður Hafliðadóttir, f. 30.4. 1921 í Hergilsey, d. 7.9. 2005, sjúkraliði og húsmóðir, og séra Arngrímur Jóns- son, dr. theol., f. 3.3. 1923 á Akureyri, d. 25.2. 2014. Hafliði Arngrímsson Margrét Guðmundsdóttir húsmóðir í Arnarnesi Páll Jónsson bóndi í Arnarnesi í Arnarneshreppi, Eyjaf. Jón Pálsson trésmíðameistari á Akureyri Kristín Eiriksína Ólafsdóttir húsmóðir á Akureyri Arngrímur Jónsson prestur í Odda og Háteigssókn í Reykjavík Ólafur Þorkell Eiríksson bóndi í Nefsstaðakoti Björg Halldórsdóttir húsmóðir í Nefsstaðakoti í Fljótum Snæbjörn Kristjánsson bóndi og hreppstjóri í Hergilsey Guðrún Hafliðadóttir húsmóðir í Hergilsey Hafliði Þórður Snæbjörnsson sjómaður og bóndi í Hergilsey Matthildur Jónsdóttir húsmóðir í Hergilsey Sigríður Benediktsdóttir húsmóðir á Kleifum Jón Einarsson bóndi á Kleifum í Steingrímsfirði Úr frændgarði Hafliða Arngrímssonar Guðrún Sigríður Hafliðadóttir húsmóðir og sjúkraliði í Odda á Rangárvöllum og Reykjavík Helgi R. Einarsson sendi mérpóst og sagði: „Mér datt þetta svona í hug, – Sjálfsskoðun“: Ýmislegt ekki skil í okkar streði, þó held ég sé, hér um bil, heill á geði. Já, hér um bil held ég að heilbrigður sé, þó kannski má kalla það hvorki né. Þór Gils Helgason yrkir um eld- gosið: Nú er mikill darraðardans drunur loftið fylla þar sem andar andskotans yfir eldum trylla. Ragnar Ingi Aðalsteinsson segir á vefnum að það hafi rifjast upp fyrir sér að einu sinni orti hann ljóð, einhvers konar afbrigði af fornyrðislagi. Það heitir: „Eldgos“: Hún þjáist í hljóði – uns eina nótt hún æpir af kvölum skelfur um stund þagnar og fellir fáein tár kúgast með andköfum kastar svo upp – rauðu rjúkandi blóði. Sigurlín Hermannsdóttir orti á Boðnarmiði: Í eldgosinu óbreyttur er kraftur út á hraun menn göslast til að sjá. Að liðnu vori vetur kemur aftur og veiran komin enn á ný á stjá. Guðmundur Arnfinnsson yrkir um „gosfíkla“: Vítiselda vilja sjá, vitglórunni tapa, fáklæddir þeir fara’ á stjá og fram af klettum hrapa. Hólmfríður Bjartmarsdóttir skrifaði 19. mars: „Nú er komin suðvestan asahláka og gefur hér vatn upp á glugga. En verra var samt í hittihittifyrra. Þá heyrðist ekki mannsins mál í húsinu. Þá var ort“: Um glasið held ég giska fast á gluggann eitthvað rýkur. Það er nú orðið þéttingshvasst þegar hraunið fýkur. Ókunnur höfundur: Er hún Fífa undir mér eins og drífi tundur; hennar stífu hófarner holtin rífa sundur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hugdetta og hraunið fýkur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.