Morgunblaðið - 26.03.2021, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 26.03.2021, Qupperneq 34
34 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021 Undankeppni HM karla J-RIÐILL: Þýskaland – Ísland................................... 3:0 Liechtenstein – Armenía ......................... 0:1 Rúmenía – Norður-Makedónía ............... 3:2 Staðan: Þýskaland 1 1 0 0 3:0 3 Rúmenía 1 1 0 0 3:2 3 Armenía 1 1 0 0 1:0 3 N-Makedónía 1 0 0 1 2:3 0 Liechtenstein 1 0 0 1 0:1 0 Ísland 1 0 0 1 0:3 0 B-RIÐILL: Spánn – Grikkland ................................... 1:1 Svíþjóð – Georgía ..................................... 1:0 C-RIÐILL: Búlgaría – Sviss ........................................ 1:3 Ítalía – Norður-Írland ............................. 2:0 F-RIÐILL: Ísrael – Danmörk ..................................... 0:2 Moldóva – Færeyjar ................................ 1:1 Skotland – Austurríki .............................. 2:2 I-RIÐILL: Andorra – Albanía .................................... 0:1 England – San Marínó ............................. 5:0 Ungverjaland – Pólland........................... 3:3 EM U21 karla C-RIÐILL: Rússland – Ísland..................................... 4:1 Frakkland – Danmörk ............................. 0:1 Staðan: Rússland 1 1 0 0 4:1 3 Danmörk 1 1 0 0 1:0 3 Frakkland 1 0 0 1 0:1 0 Ísland 1 0 0 1 1:4 0 D-RIÐILL: England – Sviss ........................................ 0:1 Portúgal – Króatía ................................... 1:0 4.$--3795.$ Þýskaland Göppingen – Minden ........................... 33:29 - Gunnar Steinn Jónsson skoraði tvö mörk fyrir Göppingen. Janus Daði Smárason er frá vegna meiðsla. Melsungen – Balingen ........................ 24:25 - Arnar Freyr Arnarsson lék ekki með Melsungen vegna meiðsla. Guðmundur Þ. Guðmundsson er þjálfari liðsins. - Oddur Gretarsson skoraði níu mörk fyr- ir Balingen. Svíþjóð 8-liða úrslit, annar leikur: Guif – Sävehof............................. (frl.) 28:31 - Daníel Freyr Ágústsson varði 12 skot (29 prósent) í marki Guif. _ Staðan er 2:0 fyrir Sävehof. %$.62)0-# Evrópudeildin Valencia – Bayern München .............. 83:76 - Martin Hermannsson lék ekki með Val- encia vegna meiðsla. Staða efstu liða: Barcelona 22/8, CSKA Moskva 20/10, Ana- dolu Efes 20/11, Olimpia Mílanó 19/11, Bay- ern München 19/12, Fenerbahce 18/12, Real Madrid 18/13, Valencia 17/14, Zenit Pétursborg 16/13, Baskonia 16/14, , Zalg- iris Kaunas 15/16. NBA-deildin Indiana – Detroit .............................. 116:111 Milwaukee – Boston ......................... 121:119 Toronto – Denver ............................. 135:111 Orlando – Phoenix ............................ 112:111 Chicago – Cleveland........................... 94:103 Houston – Charlotte........................... 97:122 Minnsota – Dallas............................. 108:128 Oklahoma City – Memphis .............. 107:116 San Antonio – LA Clippers.............. 101:134 Utah – Brooklyn ................................. 118:88 Sacramento – Atlanta ...................... 110:108 4"5'*2)0-# Valsmenn hafa fengið til sín danska knattspyrnumanninn Christian Kö- hler frá Esbjerg og hann leikur með þeim á komandi keppnis- tímabili. Köhler er 24 ára miðju- maður sem aðeins spilaði fjóra leiki undir stjórn Ólafs H. Kristjáns- sonar hjá Esbjerg í dönsku B- deildinni í vetur. Hann hefur áður leikið með Trelleborg í Svíþjóð og dönsku liðunum Helsingör og Nordsjælland. Valsmenn hafa þá fengið Köhler og Almar Ormarsson til að fylla skörð miðjumannanna Lasse Petry og Einars Karls Ingv- arssonar sem fóru frá þeim eftir síðasta keppnistímabil. Dani á miðj- una hjá Val Félögin tólf sem nú skipa úrvals- deild karla í knattspyrnu hafa lýst yfir samstöðu með tillögunni um breytingu á keppnisfyrirkomulag- inu sem starfshópur KSÍ lagði fyrir ársþing sambandsins í febrúar. Til- lagan var þá felld, fékk 54 prósenta stuðning en þurfti 67 prósent til að öðlast gildi. Þar er um að ræða að eftir 22 umferðir verði deildinni skipt í tvennt og leikin einföld um- ferð, fimm leikir á lið, í efri og neðri hlutanum. Í yfirlýsingu frá fé- lögunum segir að stefnt sé á að þetta taki gildi árið 2022. Samstaða um fyrirkomulag Morgunblaðið/Árni Sæberg 27 Leikjum í úrvalsdeild fjölgar úr 22 í 27 verði tillagan samþykkt. Keppni í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hefst 14. ágúst á næstu leiktíð, tímabilið 2021-22. Þetta staðfestu forráðamenn deild- arinnar í gær en keppni á yfir- standandi tímabili hófst um miðjan september á síðasta ári, mánuði seinna en vanalega, vegna kór- ónuveirufaraldursins. Þá verður spilað til 22. maí leiktíðina 2021-22 en í ár fer lokaumferðin fram 23. maí. Lokakeppni EM fer fram í sumar, dagana 11. júní til 11. júlí og fá leikmenn margra landsliða því ekki mjög langt sumarfrí. AFP England Nýtt tímabil ætti að hefjast á hefðbundnum tíma í ágúst. Úrvalsdeildin byrjar 14. ágúst RÚSSLAND – ÍSLAND 4:1 1:0 Fjodor Chalov 31.(v) 2:0 Najair Tiknizyan 42. 3:0 Arsen Zakharjan 45. 4:0 Denis Makarov 53. 4:1 Sveinn Aron Guðjohnsen 59. M Jón Dagur Þorsteinsson Sveinn Aron Guðjohnsen Willum Þór Willumsson Lið Íslands: (4-5-1) Patrik Sigurður Gunnarsson – Kolbeinn Þórðarson, Ari Leifsson, Róbert Orri Þorkelsson, Hörð- ur Ingi Gunnarsson – Ísak Bergmann Jó- hannesson (Mikael Anderson 65), Willum Þór Willumsson (Kolbeinn Finnsson 85), Alex Þór Hauksson, Stefán Teitur Þórð- arson, Jón Dagur Þorsteinsson (Valdi- mar Þór Ingimundarson 85). – Sveinn Aron Guðjohnsen (Brynjólfur Willums- son 76). Lið Rússlands: (4-5-1) Maksimenko – Maslov (Grulev 61), Diveev, Evgeniev, Tiknizjan – Glebov, Obljakov, Makarov (Tjukavin 72), Zakharjan (Umjarov 72), Lesovoj (Lomovitski 77) – Chalov (Golu- bev 61). Gul spjöld: Maslov 28., Obljakov 35., Golubov 71., Umjarov 90. Rauð spjöld: Engin. Dómari: Halil Umut Meler, Tyrklandi. Áhorfendur: Engir. _ Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði mark Íslands og er kominn i annað til þriðja sæti yfir markahæstu leikmenn 21-árs landsliðsins frá upphafi með sjö mörk. Hann er jafn Hannesi Þ. Sigurðs- syni en Emil Atlason á markametið, átta mörk. _ Jón Dagur Þorsteinsson lék sinn 22. landsleik í þessum aldursflokki og er orð- inn fimmti leikjahæstur. Á undan eru Alfons Sampsted (30), Hólmar Örn Eyj- ólfsson (27), Bjarni Þór Viðarsson (26) og Birkir Bjarnason (25). _ Ísland mætir Danmörku á sunnudag- inn klukkan 13 að íslenskum tíma og sama dag mætast Frakkar og Rússar. Ís- land og Frakkland mætast á miðvikudag. EM U21 ÁRS Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Ísland fer ekki vel af stað í loka- keppni EM U21-árs landsliða karla í knattspyrnu sem fram fer í Ung- verjalandi og Slóveníu og hófst í gær. Íslenska liðið tapaði illa fyrir Rússum í fyrsta leik sínum í C- riðli lokakeppninnar í Györ í Ung- verjalandi en leiknum lauk með 4:1-sigri rússneska liðsins. Fjodor Chalov kom Rússum yfir á 31. mínútu með marki úr víta- spyrnu. Vinstri bakvörðurinn Najair Tiknizjan bætti við öðru marki Rússa eftir frábæran sam- leik frá aftasta manni á 42. mín- útu. Það var svo Arsen Zakharjan sem skoraði þriðja mark Rússa á lokamínútum fyrri hálfleiks þegar hann labbaði í gegnum vörn ís- lenska liðsins og skoraði með hnit- miðuðu skoti úr teignum. Denis Makarov kom Rússum svo 4:0 yfir í upphafi síðari hálfleiks með föstu skoti úr teignum áður en Sveinn Aron Guðjohnsen lagaði stöðuna fyrir íslenska liðið með fallegum skalla af stuttu færi eftir laglegan undirbúning Willums Þórs Willumssonar. Annað markið drap leikinn Spennustigið var hátt hjá báðum liðum á fyrstu mínútum leiksins en mikið jafnræði var með liðunum eftir því sem leið á fyrri hálfleik- inn. Íslenska liðið braut klaufalega af sér innan teigs eftir hálftíma leik og Rússar komust þannig á bragð- ið með marki úr vítaspyrnu. Þrátt fyrir að íslenska liðið hefði lent 1:0 undir hafði maður það samt á tilfinningunni að liðið væri ennþá inni í leiknum. Það breyttist fljótt ellefu mínútum síðar þegar ákveðið var að fara í hápressu, þremur mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks, með þeim afleiðingum að Rússar tættu vörn Íslands í sig en pressan var slök, of langt á milli manna, og Rússar refsuðu grimmi- lega. Eftir þriðja mark Rússa undir lok síðari hálfleiks var leikurinn svo gott sem búinn og vonleysið sást í augum íslensku leikmann- anna. Þrátt fyrir 4:1-tap voru jákvæðir punktar í íslenska liðinu og spil- kaflarnir í fyrri hálfleik voru margir hverjir mjög lofandi. Jón Dagur Þorsteinsson átti mjög góða spretti og með aðeins meiri klókindum á síðasta þriðj- ungi vallarins hefði íslenska liðið hæglega getað valdið meiri usla. Það vantaði hins vegar meira bit í sóknarleikinn fram á við og marktækifærin létu einfaldlega á sér standa. Þrátt fyrir stórt tap í fyrsta leik er nóg eftir af riðlakeppninni og liðið á mikilvægan leik fyrir hönd- um gegn Danmörku í Györ á sunnudaginn. Það er ljóst að ís- lenska liðið þarf að spila mun bet- ur og verjast betur ef það ætlar sér að fá eitthvað úr þeim leik en Danir unnu Frakka í gærkvöld. Vonandi er skrekkurinn farinn úr mönnum eftir fyrsta leik riðla- keppninnar og liðið getur stimplað sig rækilega inn gegn Dönum enda var varnarleikurinn eitt af aðals- merkjum liðsins í undankeppninni. Ísland mætir svo Frakklandi í lokaleik sínum hinn 31. mars í Györ og þrátt fyrir tap gegn Rúss- um eru möguleikar Íslands á að fara áfram úr riðlinum ennþá fyrir hendi en útsláttarkeppnin fer fram dagana 31. maí til 3. júní í Ung- verjalandi og Slóveníu. Slokknaði á mönnum í fimm- tán mínútur Ljósmynd/Szilvia Micheller Markaskorari Framherjinn Sveinn Aron Guðjohnsen stóð í ströngu í Györ í gær en hér er hann í baráttunni við Danil Glebov, miðjumann Rússlands. - Stórt tap gegn Rússum í fyrsta leik - Of margir slæmir leikkaflar hjá liðinu Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Íslenska kvennalandsliðið í hand- knattleik þarf að skáka annaðhvort Svíum eða Serbum til að komast í lokakeppni Evrópumótsins sem hald- ið verður í Slóveníu, Norður- Makedóníu og Svartfjallalandi í nóv- ember 2022. Dregið var í undanriðlana í gær og þar er Ísland í riðli með Svíþjóð, Serbíu og Tyrklandi en tvö efstu liðin komast á EM. Undankeppnin verður leikin næsta vetur, frá hausti til vors. Bæði Svíar og Serbar stóðu sig vel á síðasta heimsmeistaramóti, í Japan í árslok 2019, en þar enduðu serb- nesku konurnar í sjötta sæti og þær sænsku í því sjöunda. Á Evrópumótinu í Danmörku í des- ember 2020 gekk ekki eins vel. Svíar enduðu í ellefta sæti og unnu aðeins einn leik af sex, lögðu Tékka í fyrsta leik 27:23, gerðu síðan jafntefli við Spánverja 23:23 og fóru í milliriðil en töpuðu fyrir Rússum, Dönum, Svart- fellingum og Frökkum með tveggja til sex marka mun. Serbar byrjuðu með látum, unnu heimsmeistara Hollendinga 29:25 í fyrsta leik en töpuðu síðan fyrir Ung- verjum og Króötum og misstu afar naumlega af því að komast í milliriðil. Serbar enduðu í 13. sæti af 16 liðum. Tyrkir eru fyrirfram með veikasta liðið í riðlinum. Ísland og Tyrkland áttu að mætast í undankeppni EM 2020 en hún var blásin af áður en kom að leikjum þjóðanna síðasta vor. Þá höfðu bæði lið tapað fyrir Frakklandi og Króatíu. Ísland tapaði 8:29 fyrir Króatíu úti og 17:23 fyrir Frakklandi heima. Tyrkland tapaði 21:30 fyrir Króatíu heima en 17:38 fyrir Frakk- landi úti. Tyrkir eru komnir í umspilið fyrir HM 2021, eins og íslenska liðið, en sluppu þangað án keppni þegar Finn- ar drógu sig út úr þriggja liða und- anriðli. Þar eiga Tyrkir að mæta öfl- ugu liði Rússa í aprílmánuði. Þurfa að sigrast á Svíum eða Serbum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.