Morgunblaðið - 26.03.2021, Qupperneq 35
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021
_ Oddur Gretarsson landsliðsmaður
í handknattleik átti stórleik í gær
þegar lið hans Balingen lagði Mel-
sungen, undir stjórn Guðmundar Þ.
Guðmundssonar landsliðsþjálfara,
að velli, 25:24, á útivelli í háspennu-
leik í Þýskalandi. Oddur skoraði níu
mörk úr tólf skotum fyrir Balingen í
leiknum, eitt þeirra úr vítakasti. Lið
hans komst með sigrinum þremur
stigum frá fallsæti deildarinnar en
Balingen er í sextánda sæti af tutt-
ugu liðum með 13 stig. Melsungen er
í ellefta sæti með 21 stig.
_ Birkir Már Sævarsson tók út leik-
bann í gærkvöld þegar Ísland mætti
Þýskalandi í undankeppni HM í knatt-
spyrnu í Duisburg. Birkir fékk rauða
spjaldið í síðasta leik Íslands, gegn
Englandi, í Þjóðadeildinni í nóv-
embermánuði.
_ Litháíski körfuboltamaðurinn
Adomas Drungilas sem leikur með
Þór í Þorlákshöfn verið úrskurðaður í
tveggja leikja keppnisbann af aga- og
úrskurðarnefnd Körfuknattleiks-
sambands Íslands fyrir að veita and-
stæðingi olnbogaskot í leik Þórs og
Stjörnunnar í síðustu viku. Litháinn
sveiflaði olnboganum í andlit Mirza
Saralilja er Þórsarar unnu 92:83-
sigur á heimavelli. Dómarar leiksins
sáu ekki atvikið og gátu því ekkert
dæmt á vellinum. Næstu tveir leikir
Þórs, sem situr í öðru sæti, eiga að
vera gegn Þór frá Akureyri og Hetti
en keppni liggur nú niðri á Íslands-
mótinu vegna fjórðu bylgju kór-
ónuveirufaraldursins.
_ Dominic Calvert-Lewin, sókn-
armaður Everton, skoraði tvö marka
Englendinga þegar þeir unnu auð-
veldan sigur á San Marínó, 5:0, á
Wembley í gærkvöld í undankeppni
HM í fótbolta. James Ward-Prowse
frá Southampton, Raheem Sterling
frá Manchester City og Ollie Watkins
frá Aston Villa skoruðu hin þrjú
mörkin.
_ Anders Dreyer skoraði sigurmark
Danmerkur þegar liðið mætti Frakk-
landi í C-riðli lokakeppni EM U21-árs
landsliða karla í knattspyrnu í Györ í
Ungverjalandi í gær en leiknum lauk
með 1:0-sigri Dana. Næsti leikur
Dana er gegn Íslandi hinn 28. mars í
Györ en Danir og Rússar eru með
þrjú stig í efstu sætum riðilsins á
meðan Frakkland og Ísland eru án
stiga.
_ Bandaríski knattspyrnumaðurinn
Dion Acoff er kominn til liðs við
Grindvíkinga og hefur samið við þá
til loka keppnistímabilsins. Acoff,
sem er 29 ára gamall kantmaður, lék
með Þrótti árin 2015 og 2016, í 1.
deild og úrvalsdeild, og varð síðan Ís-
landsmeistari með Val 2017 og 2018.
Hann lék með SJK í finnsku úrvals-
deildinni 2019 en með Þrótti á ný í 1.
deildinni 2020.
Acoff hefur leikið
81 deildaleik hér á
landi, 52 þeirra í
úrvalsdeildinni, og
hefur skorað sextán
mörk, átta í
hvorri deild.
Eitt
ogannað
HM 2022
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þjóðverjar voru aðeins sjö mínútur að
gera út um fyrsta leikinn í undan-
keppni heimsmeistaramótsins 2022.
Að þeim tíma liðnum voru þeir komnir
í 2:0 gegn Íslandi í Duisburg og með
algjör undirtök í leiknum, sem þeir
slepptu aldrei þrátt fyrir ágæta kafla
íslenska liðsins þegar leið á leikinn.
Í þessum báðum mörkum fengu
markaskorararnir Goretzka og Hav-
ertz ótrúlega mikið pláss til að at-
hafna sig rétt innan íslenska víta-
teigsins. Á svæði fyrir framan miðja
vörnina sem Aron Einar Gunnarsson
fyrirliði hefur um árabil séð um að
loka. Hann sat eftir í báðum mörk-
unum, var ekki nærri því að loka á
markaskorarana og gat aðeins horft á
eftir boltanum í netið. Hvort var það
Aron eða leikaðferðin sem brást? En
hverju sem um var að kenna var ís-
lenska liðið algjörlega í hlutverki
áhorfenda á þessum upphafsmín-
útum. Það var hreinlega „ekki mætt
til leiks“ eins og segir í máltækinu.
Þegar staðan var orðin 2:0 eftir sjö
mínútur stóð ég upp og kannaði
hvernig staðan var eftir sama tíma í
fjórtán-tvö-tapinu fræga gegn Dön-
um árið 1967. Jú, hún var 2:0 eftir sex
mínútur! Var hrikalegur skellur
virkilega í kortunum? En sem betur
fer var framhaldið ekki samkvæmt
sama handriti.
Kannski var það ekkert sérlega
heppilegt að þurfa að mæta þessu
þýska liði í næsta leik eftir að það
hafði tapað 6:0 fyrir Spánverjum.
Joachim Löw og hans menn höfðu
beðið í fjóra langa mánuði eftir því að
fá að sýna að sá skellur hafi verið ein-
stakt slys. Þýskaland hefur eins og
alltaf á að skipa einu af bestu liðum
AFP
Duisburg Alfons Sampsted lék sinn fyrsta mótsleik með landsliðinu, sem hægri bakvörður, og þurfti að glíma við kantmanninn öfluga Leroy Sané.
heims og enginn reiknar með öðru en
að liðið vinni þennan undanriðil af
miklu öryggi.
En eftir þessar vondu sjö mínútur
skoruðu Þjóðverjar aðeins eitt mark
til viðbótar á þeim 83 mínútum sem
eftir voru. Þau hefðu getað verið
fleiri, Þjóðverjar réðu lögum og lofum
á vellinum lengst af, en sem betur fer
átti íslenska liðið jákvæða kafla og
skapaði sér nokkur færi. Rúnar Már
Sigurjónsson fékk líklega það besta í
fyrri hálfleik þegar boltinn virtist á
leið í netið en fór af varnarmanni í
horn. Liðið fékk ein þrjú þokkaleg
færi í seinni hálfleiknum en vantaði
herslumuninn til að komast á blað.
Eldskírn hjá Arnari
Arnar Þór Viðarsson fékk svo
sannarlega eldskírn sem landsliðs-
þjálfari, útileik gegn Þýskalandi
þremur dögum eftir að hann hitti
leikmennina í fyrsta skipti. Eftir
þessa erfiðu byrjun á leiknum og á
hans ferli í þessu starfi má segja að
það hafi verið vel sloppið að tapa 3:0
fyrir Þýskalandi í Duisburg. Arnari
tókst að stilla liðið betur af í seinni
hálfleiknum og sú pressa sem ís-
lenska liðið náði að setja á það þýska
á köflum var að mörgu leyti áhuga-
verð og sló Þjóðverjana út af laginu
um tíma þótt sigri þeirra hefði aldrei
verið ógnað.
Tap er tap, sama gegn hverjum
það er, en þessi leikur var þó sá leikur
af þeim tíu í þessari undankeppni
HM þar sem síst af öllu mátti búast
við því að Ísland næði í stig. Gegn
Þýskalandi á útivelli.
Nú verður hinsvegar áhugavert að
sjá hvernig næsta skref verður. Við
tekur ferðalag austur til Jerevan í
Armeníu og leikur þar gegn allt öðru-
vísi andstæðingum á sunnudaginn.
Arnar og þjálfarateymi hans hafa heil-
mikið að hugsa um á þeirri löngu leið.
Sjö mínútna martröð
- Þjóðverjar gerðu út um leikinn gegn Íslandi með tveimur mörkum á upphafs-
mínútunum í Duisburg og sigruðu 3:0 - Ágætir kaflar í seinni hálfleiknum
Ianis Hagi reyndist hetja Rúmeníu
þegar liðið tók á móti Norður-
Makedóníu í J-riðli undankeppni
HM 2022 í knattspyrnu, riðli Ís-
lands, í Búkarest í gær. Hagi skor-
aði sigurmark Rúmena á 86. mín-
útu en leiknum lauk með 3:2-sigri
Rúmena sem komust í 2:0 í leiknum
áður en Norður-Makedónar skor-
uðu tvívegis, á 82. mínútu og 83.
mínútu.
Þá vann Armenía 1:0-sigur gegn
Liechtenstein í Vaduz þar sem
sjálfsmark Noah Frommelt réð úr-
slitum.
Þrjú mörk á
lokamínútunum
AFP
Búkarest Valentin Mihaila fagnar
marki ásamt liðsfélögum sínum.
Keflvíkingar hafa fengið fyrrver-
andi leikmann sinn, Ísak Óla Ólafs-
son, lánaðan frá danska knatt-
spyrnufélaginu SönderjyskE. Ísak,
sem nú er með 21-árs landsliðinu í
lokakeppni EM í Ungverjalandi,
hafði þegar leikið 60 deildaleiki
fyrir Keflavík, 22 þeirra í úrvals-
deildinni, þegar hann fór til danska
félagsins haustið 2019 og hafði það
ár verið fyrirliði Keflvíkinga í B-
deildinni, þá nítján ára gamall. Ísak
hefur aðeins komið við sögu í
tveimur leikjum SönderjyskE í úr-
valsdeildinni í vetur.
Endurheimta
fyrirliðann
Morgunblaðið/Eggert
Heimkoma Ísak Óli Ólafsson snýr
aftur heim til Keflavíkur.
ÞÝSKALAND – ÍSLAND 3:0
1:0 Leon Goretzka 2.
2:0 Kai Havertz 7.
3:0 Ilkay Gündogan 56.
M
Sverrir Ingi Ingason
Jón Daði Böðvarsson
Albert Guðmundsson
Lið Íslands: (4-5-1) Hannes Þór Hall-
dórsson – Alfons Sampsted, Sverrir Ingi
Ingason, Kári Árnason, Hörður Björg-
vin Magnússon – Arnór Ingvi Trausta-
son (Arnór Sigurðsson 71), Guðlaugur
Victor Pálsson (Ari Freyr Skúlason 88),
Rúnar Már Sigurjónsson (Albert Guð-
mundsson 40), Aron Einar Gunnarsson,
Birkir Bjarnason – Jón Daði Böðvars-
son (Kolbeinn Sigþórsson 88).
Lið Þýskalands: (4-3-3) Manuel Neuer –
Lukas Klostermann, Antonio Rüdiger,
Matthias Ginter, Emre Can – Ilkay
Gündogan, Joshua Kimmich, Leon Go-
retzka (Florian Neuhaus 71) – Leroy
Sané (Timo Werner 78), Serge Gnabry
(Amin Younes 86), Kai Havertz (Jamal
Musiala 78).
Gul spjöld: Havertz 48., Kári 56., Albert
65.
Dómari: Srdjan Jovanovic, Serbíu.
Áhorfendur: Engir.
_ Hannes Þór Halldórsson er orðinn
leikjahæsti markvörðurinn í sögu ís-
lenska karlalandsliðsins. Hann lék sinn
75. leik í gærkvöld og fór þar með fram
úr Birki Kristinssyni sem varði mark
landsliðsins í 74 leikjum.
_ Alfons Sampsted lék sinn fyrsta
mótsleik með A-landsliðinu en hann
hafði áður spilað tvo vináttuleiki í árs-
byrjun 2020.
_ Ragnar Sigurðsson kom ekkert við
sögu í leiknum og þar með er ljóst að
hann nær ekki að spila 100. landsleikinn
í þessari landsleikjatörn.