Morgunblaðið - 26.03.2021, Qupperneq 40
FER
M
IN
G
A
R
TILB
O
Ð
ÍFU
LLU
M
G
A
N
G
I
R
10.000 kr.
AFSLÁTTUR AF
HEILSURÚMUM
25%
AFSLÁTTUR AF
MJÚKVÖRU
VIÐ DÝNUKAUP
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Sýning Gunnhildar Þórðardóttur, „Slæður“, verður opn-
uð í sal Íslenskrar grafíkur, hafnarmegin í Hafnarhús-
inu, í dag, föstudag, kl. 17-19 með boðsgestum og lif-
andi streymi á facebooksíðu listakonunnar. Mun
sýningin standa yfir í þrjár helgar. Á henni eru grafík-
verk og teikningar í víðum skilningi, og innsetningar
gerðar úr gömlum gardínum. Allur efniviður á sýning-
unni er notaður enda er endurvinnsla, hringrásar-
hagkerfið og sjálfbærni listamanninum hugleikin.
Gunnhildur hefur sýnt víða á undanförnum árum.
„Slæður“ Gunnhildar Þórðardóttur
sýndar í sal Íslenskrar grafíkur
FÖSTUDAGUR 26. MARS 85. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hóf undankeppni
heimsmeistaramótsins í knattspyrnu á 3:0-ósigri gegn
öflugu liði Þjóðverja í Duisburg, þar sem úrslitin voru
nánast ráðin eftir sjö mínútna leik. Þá mátti 21-árs
landsliðið líka þola þriggja marka ósigur í fyrsta leik
sínum í úrslitakeppni Evrópumótsins þegar það tapaði
4:1 fyrir Rússum í Ungverjalandi. »34-35
Byrjuðu á þriggja marka tapi
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Óvenjuleg listsýning, „Fuglar hug-
ans“, var opnuð í Kringlunni í fyrra-
dag, þar sem mismunandi listform
mynda eina heild. Gestir fá heyrnar-
tól og geta hlustað á tólf lög eftir
Bjarna Hafþór Helgason. Ingvar
Þór Gylfason málaði málverk við
hvert lag og er hægt að fylgjast með
sköpuninni frá stroku til stroku á
myndbandi eftir Kristján Krist-
jánsson, samfara því að horfa á sér-
hannaðan dans Kötu Vignis við
hvert lag. „Samspilið er óvenjulegt
og gaman er að sjá hvað það virkar
vel,“ segir Bjarni Hafþór Helgason,
upphafsmaður sýningarinnar og
borgunarmaður alls kostnaðar.
Hugmyndin að listforminu varð til
í samtali Bjarna Hafþórs og Krist-
jáns Kristjánssonar kvikmynda-
gerðarmanns og þróaðist út frá sam-
tali um að gera myndband við lag úr
safni 75 verka þess fyrrnefnda,
„Fuglum hugans“, sem hann gaf út
2018.
Samvinnuverkefni
„Mér fannst ég eiga eftir að gera
eitthvað meira með útgáfuna, því ég
hafði ekki haldið útgáfutónleika eða
staðið í sérstakri kynningu,“ segir
Bjarni Hafþór. Í kjölfar spjallsins
við Kristján hafi hann hitt Ingvar
Þór Gylfason í fyrsta sinn og hann
hafi ekki aðeins verið tilbúinn að
mála málverk í takt við lögin heldur
gefa Parkinsonsamtökunum vinn-
una og söluandvirði verkanna, sem
öll eru seld. „Vinsældir málverka
hans eru ótrúleg og allt selst áður en
hann er búinn að ljúka við verkið,“
segir Bjarni Hafþór. Kata Vignis
hafi síðan samið tólf mismunandi
dansa og dansi þá við myndböndin.
„Kringlan leggur til húsnæðið og
Nova sér um tæknilegu hliðina.“
Bjarni Hafþór er himinlifandi
með árangurinn. Hann segir að þeir
Kristján hafi valið lögin í samein-
ingu og tilfinning hafi ráðið þar
mestu en þau hafi hentað vel fyrir
Ingvar Þór til að mála eftir. „Ég
samdi til dæmis lagið „Dalurinn
minn“ við afar fallegan texta, sem
Hákon Aðalsteinsson, móðurbróðir
minn, samdi um æskuslóðirnar á
Vaðbrekku í Hrafnkelsdal fyrir
austan, og Ingvar Þór málaði stórt
andlitsverk af Gísla á Uppsölum við
verkið. Gísli bjó í Selárdal á Vest-
fjörðum og listamaðurinn segir að
hann hafi komið strax í huga sinn
þegar hann hafi hlustað á lagið og
textann. Mér finnst gaman að upp-
lifa þessa tengingu.“
Sýningin er opin á verslunartíma í
Kringlunni. Tíu manns mega vera í
einu inni í rýminu, þar er grímu-
skylda og sprittnotkun áskilin, en að
öðru leyti trufla samkomutakmark-
anir ekki sýninguna. Parkinson-
samtökin sjá um vörslu verkanna og
veita upplýsingar um sjúkdóminn og
starfsemi samtakanna. Gestir geta
styrkt þau með frjálsu framlagi í
sýningarsalnum, en Bjarni Hafþór
greindist með parkinson í apríl 2019.
„Ég hef verið að tengjast samtök-
unum og styð við þeirra baráttu,“
segir hann. Áformað er að síðasti
sýningardagur verði 11. apríl, á
afmælisdegi James Parkinsons, sem
fæddist 1755.
Óvenjuleg listsýning
- Tónlist, dans, málverk og kvikmyndagerð í einni
heild í Kringlunni til styrktar Parkinsonsamtökunum
Morgunblaðið/Eggert
Menning Bjarni Hafþór Helgason nýtur listsýningarinnar í Kringlunni.
Lykilfólk Vilborg Jónsdótttir, formaður Parkinsonsamtakanna, Bjarni
Hafþór Helgason, Ingvar Þór Gylfason, Erna Guðmundsdóttir, verkefna-
stjóri Parkinsonsamtakanna, og Kristján Kristjánsson á sýningunni.