Morgunblaðið - 26.03.2021, Qupperneq 6
„Ég tók upp á því
að fara að stunda bæði
sjósund og fjallgöngur nokk-
uð markvisst og mæli með hvoru tveggja til
að halda í gleðina yfir dimmustu mánuðina.
Svo er líka alltaf notalegt að kúra heima með
teppi og góða bók.“
Áttu þér uppáhaldsleiðir til að gera helg-
arnar yfir vetrartímann skemmtilegar?
„Börnin mín eru alin upp við það að fá
heimatilbúna pítsu á föstudagskvöldum og
það er byrjunin á helginni hjá okkur. Síðan
S
igrún Brynja Einarsdóttir býr á
fallegum stað í Vesturbænum með
börnum sínum tveimur, sem eru
komin yfir táningsaldurinn, og
tveimur köttum.
Hún hefur síður en svo setið aðgerðarlaus
í vetur.
„Það er aldrei verkefnaskortur í Stjórn-
arráðinu og þeir málaflokkar sem ég fæst við
hafa verið í brennidepli undanfarin ár. Það
hafa verið miklar áskoranir á sviði ferðamála
eins og flestir vita, bæði í tengslum við gríð-
arlegan uppgang greinarinnar fram til ársins
2018 og svo hrun hennar í kjölfar kór-
ónuveiru-faraldursins. Málefni nýsköpunar
eru síðan þess eðlis að þau teygja anga sína
um allt samfélagið og í ráðuneytinu er meðal
annars unnið að þróun stoðkerfis
nýsköpunarmála.“
Fer stundum í framkvæmdir um páskana
Ertu mikil páskakona?
„Eins og á eflaust við um marga þá er
páskafríið eiginlega uppáhaldsfríið mitt. Það
er dásamlegt að fá fimm daga óslitið frí þar
sem litlar sem engar væntingar eru um
veisluhöld eða undirbúning og oft er dymb-
ilvikan líka tilvalin til að lengja fríið enn
meira. Mér finnst voðalega gaman að skreyta
svolítið í tilefni hátíðarinnar og gera vel við
okkur fjölskylduna í mat og drykk.“
Hvað gerir þú alltaf á páskunum?
„Ef þú spyrðir börnin mín að þessu myndu
þau segja að ég hefði einstakt lag á að skipu-
leggja framkvæmdir á heimilinu í páskafrí-
inu. Eitthvert árið málaði ég og end-
urskipulagði stofuna og núna langar mig
óskaplega mikið að ráðast í smábreytingar á
eldhúsinu. Það er hins vegar ófrávíkjanleg
regla að ég borða páskaegg á náttfötunum
fram eftir páskadegi og býð svo upp á lamba-
lundir um kvöldið.“
Uppáhaldsblóm Sigrúnar Brynju eru túl-
ípanar.
„Ég er dugleg að kaupa túlípanavendi þeg-
ar þeir fást í búðum. Gulir túlípanar eru vor-
ið í hnotskurn fyrir mér. Mér finnst líka
gaman að kaupa páskagreinar og stilla upp
úti í glugga. Ég á síðan eitthvað af páska-
skrauti, til dæmis gyllt egg frá Georg Jensen
sem mér finnst gaman að hengja yfir borð-
stofuborðið. Ég keypti mér líka ægilega fal-
legan fjaðrakrans um daginn sem ég er nú
þegar búin að hengja á stofuhurðina í staðinn
fyrir jólakransinn sem fékk að hanga óvenju
lengi uppi.“
Fylgir starfi þínu mikið af ferðalögum?
„Ég myndi segja að ég hefði ferðast
temmilega mikið á vegum vinnunnar fyrir
faraldurinn. Núna hef ég ekki komið
út fyrir landsteinana í meira en ár
eins og margir. Það er merki-
legt hvað hægt er að koma
miklu í verk á fjarfundum
þótt sum samskipti kalli
auðvitað á að fólk hittist
augliti til auglits. Ég verð
samt að viðurkenna að ég
væri alveg til í borgarferð
með haustinu.“
Fyrir utan lambalundirn-
ar á páskadag þá er ófrávíkj-
anleg hefð á heimilinu að bjóða
upp á fiskmeti líka.
„Ég er með fisk á föstudaginn
langa. Það er hefð frá ömmu minni sálugu
sem var kaþólsk og fylgdi öllum helstu boð-
um og bönnum föstunnar. Eftir að dóttir mín
gerðist grænmetisæta hef ég líka prófað mig
áfram með nýja grænmetis- og baunarétti.“
Fór að stunda sjósund í vetur
Hún segir veturinn búinn að vera anna-
saman en ljómandi góðan fyrir hana persónu-
lega.
er nauðsynlegt að koma einhverri hreyfingu
að, hvort sem það eru hlaup eftir Ægisíðunni
eða að ganga í náttúrunni. Um helgar leyfi
ég mér líka oft að dúllast í eldhúsinu og elda
rétti sem tekur aðeins lengri tíma að nostra
við.“
Mikið um súkkulaði á páskunum
Hvað getur fjölskyldan gert til að styrkja
vinaböndin á páskunum?
„Við grípum gjarnan í spil á hátíðum, sem
dæmi CATAN eða Ticket to Ride. Mér finnst
líka spurningaspil eins og Trivial Pursuit allt-
af skemmtileg. Svo er óskaplega gaman að
sitja saman og spjalla eða hlusta á tónlist og
hlæja að öllu og engu.“
Nú eru páskarnir tími upprisunnar, gerir
þú eitthvað sem minnir á það um páskana?
„Ég vildi að ég gæti sagt það, en það sem
kemst næst því er líklega það að vakna við
kirkjuklukkurnar í Landakoti á páskadags-
morgun, sem mér finnst alltaf hátíðlegt.“
Sigrún Brynja segir súkkulaðið áberandi í
minningum um páskana frá því hún var barn.
„Já, minningarnar renna allar saman í eina
súkkulaðiklessu í huganum. Mamma gæti
hins vegar örugglega sagt þér frá páskunum
þegar ég lá fárveik með mislinga alla frídag-
ana. Ég held að henni hafi ekki þótt það sér-
lega skemmtilegt, sérstaklega þar sem ég
var víst bókuð í bólusetningu rétt eftir
hátíðisdagana. Það var kannski huggun
harmi gegn að hún gat borðað páskaeggið
mitt!“
„Páskarfríið er uppáhaldsfríiðmitt“
Sigrún Brynja Einarsdóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu ferðamála og nýsköpunar í atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytinu, segir páskafríið uppáhaldsfríið hennar. því þá er hægt að njóta án mikillar fyrirhafnar.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Páskarnir eru uppáhalds-
tími Sigrúnar Brynju.
Sigrún Brynja ætlar að nota
páskana vel. Stundum hefur
hún farið í einhverjar fram-
kvæmdir á heimilinu og
kannski verður það þannig í ár.
Hér má sjá dýrmætt
páskaskraut sem
börn Sigrúnar Brynju
hafa föndrað.
Sigrún Brynja á
mikið af fallegu
páskaskrauti.
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021