Morgunblaðið - 26.03.2021, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021
K
olbrún Árnadóttir starfar í inn-
flutnings- og bókhaldsdeild hjá Agli
Árnasyni. Hún er mikil áhuga-
manneskja um ketó- og lágkol-
vetnafæði og heldur úti síðunni
Ketóþjálfun á samfélagsmiðlum. Þar miðlar
hún til fólks ketómatseðlum sem auðvelda fólki
að ákveða hvað verður í matinn fyrstu vikurn-
ar á mataræðinu.
„Ég hanna ketó- og lágkolvetnamatseðla
fyrir fólk. Matseðlarnir eru fyrir fjórar, átta
eða tólf vikur.
Hver matseðill inniheldur morgunmat, há-
degismat, millimál, kvöldmat og uppskriftir.
Þessi þjónusta er lausn við þeim vanda sem ég
stóð frammi fyrir á sínum tíma þegar ég var að
taka mín fyrstu skref í lágkolvetna- og ketó-
lífsstílnum.“
Páskakakan er ketókanilkaka
„Snilldin við að fjárfesta í svona tilbúnum
matseðlum er sú að oft erum við hugmynda-
snauð þegar kemur að nýjum lífsstíl og vitum
ekki alveg hvað við eigum að fá okkur. Mig
langaði að bjóða upp á lausn við því,“ segir
Kolbrún.
Sjálf hefur hún verið á mataræðinu í
fimm ár og því orðin talsvert þjálfuð
í matseldinni.
Hvað verður á matseðlinum
um páskana hjá þér?
„Í matinn hjá mér á
páskadag verður klassísk
svínapurusteik með rjóma-
ostspiparsósu, blómkáls-
mús, ofnbökuðu rósakáli
með beikoni og sveppum
og heimalöguðu ketó-
rauðkáli.“
Páskakaka
Botn:
3 egg
140 g möndlumjöl
90 g sykurlaus sykur
1 tsk kakó
1 tsk. kanill
½ tsk. lyftiduft
½ tsk. matarsódi
2 klípur maldonsalt
50 g brætt smjör
50 g rjómi
2 tsk. vanilludropar
Aðferð: Þurrefnin sett í skál og bræddu
smjöri blandað við. Í annarri skál er eggjum,
rjóma og vanillu blandað saman og svo bætt
við þurrefnasmjörblönduna.
Bakið við 180° í 30-40 mínútur.
Rjómaostskrem:
250 g rjómaostur (gott að hafa ostinn
mjúkan)
2 eggjahvítur
100 g sykurlaus flórsykur
1-2 msk. sítrónusafi
Karamella:
1 dl rjómi
1 dl sukrin gold
20 g smjör
1 klípa maldonsalt
Aðferð: Látið hráefni malla saman í potti
þar til falleg karamellubráð myndast. Gott er
að kæla aðeins áður en sett er á kökuna til
skrauts og bragðauka.
Ljúffeng ketópáskakaka
Kolbrún Ýr Árnadóttir hefur verið á ketó í fimm ár. Hún er góð í að setja saman matseðla og ætlar að njóta þess að borða
girnilegan ketóvænan mat á páskunum. Páskakakan sem hún gerir er ketókanilkaka sem allir þurfa að prófa að gera.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Kolbrún raðar saman
gulum kertum, tveim-
ur páskaungum og
páskakanínu til að
gera ennþá páska-
legra hjá sér.
Gulir túlípantar í
Omaggio-vasa
keyra upp páska-
stemninguna.
Kolbrún Árnadóttir
bakar ljúffenga
ketóköku á páskum.
Kremið á ketó-
páskakökunni er
rjómaostskrem.
Kolbrún skreytti
kökuna með
páskakanínum.