Morgunblaðið - 26.03.2021, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021
S
igríður Arna Sigurðardóttir, eigandi Húðarinnar
Skin Clinic, og Guðni Freyr Sigurðsson, eigandi Við-
halds og nýsmíði, kynntust á rómantískan hátt á
toppi jökuls árið 2014. Þau hafa nú trúlofað sig
og áætla að gifta sig í sumar ef kórónu-
veiran leyfir.
„Við kynntumst á toppi Snæfellsjökuls og það
var eitthvað við fyrsta skiptið sem við hittumst
sem erfitt er að gleyma. Ég var að aðstoða vin
minn Jón Inga hjá Amazing Tours að fara með
hóp af fólki á topp jökulsins. Við vorum að
draga fólk upp á topinn í litlum hópum þegar ég
sá Sigríði Örnu fyrst. Ég var þarna samt aðeins
undir fjölsku flaggi því ég er ekki mesti fjalla-
garpur sem til er,“ segir Guðni.
Guðni mesti grallari sem hún hefur kynnst
Sigríður Arna segir Guðna sá allra mesta grallara
sem hún hafi kynnst og kannski ekki sá besti til að stilla sér
upp þegar hún er að taka ljósmyndir úti í náttúrunni.
„Já, Guðni er mesti grallari sem ég veit um þegar kemur að
náttúrumyndum enda eru nær allar ljósmyndirnar sem ég tek
af honum þar sem hann er annaðhvort standandi á haus eða á
annarri hendi.“
Guðni segir það vera út af því að íslenska náttúran sé falleg
en ekki svo skemmtileg að ekki megi aðeins krydda ljósmynd-
irnar.
Samvera í útivist er lykillinn að farsælu sambandi
Sigríður Arna segir að hún elski að fara á fjöll og að hreyfa
sig dags daglega.
„Að ganga á fjöll er eitt stærsta áhugamál mitt. Ég hélt
reyndar að Guðni væri algjör fjallagarpur en ég held að ég sé
fjallagarpurinn í þessu sambandi,“ segir Sigríður Arna.
Guðni hefur gaman af snjósleðaferðum, skíðum, golfi og að
keyra mótorhjól. Á meðan Sigríður Arna hefur gaman af því að
fara með hundana sína út að ganga og þróaði í raun hæfni sína
til að fara út í náttúruna þegar hún var með börnin sín ung.
Hún gaf á sínum tíma út tvær útivistabækur fyrir fjölskyldur.
„Við erum mjög góðir vinir og af þeim sökum þá höfum við
mæst á miðri leið. Við elskum bæði golf og því er það eitthvað
sem við gerum mikið saman. Við förum á skíði, út að ganga og
svo nær hún af og til að draga mig í fjallgöngur og hellaskoðan-
ir. Svo er Sigríður Arna oft til í að sitja aftan á mótórhjólinu
mínu.
Það sem við erum bæði að upplifa í fyrsta skiptið er að vera í
sambandi þar sem okkur langar meira að vera saman og gera
eitthvað skemmtilegt í stað þess að vera ein með okkar eigin
áhugamál,“ segir Guðni.
Ánægð með að þau hafi tekið sér góðan tíma að kynnast
Sigríður Arna er þakklát fyrir að þau hafi tekið sér góðan
tíma að kynnast.
„Við keyptum okkur hús saman en erum bara nýbyrjuð að
búa. Fyrstu árin héldum við tvö heimili, þá aðallega út af börn-
unum okkar. Við eigum samtals sex börn samanlagt. Við vildum
gera þetta rétt, rólega og í takt við þarfir allra í kringum okkur.
Ég hef mikinn áhuga á ljósmyndum og elska að vera úti.
Fyrir bæði okkar er mikilvægt að vera úti því við vinnum mikið
og þurfum að slaka á inn á milli.
Það sem ég kann að meta við útiveruna er að maður heldur
sér í formi og síðan lítur maður aldrei eins vel út eins og eftir að
maður hefur verið úti að leika sér. Það er í raun og veru besta
fegrunarmeðalið sem ég veit um að vera úti að gera það sem
maður hefur gaman af,“ segir Sigríður Arna.
Guðni er sammála því og hlakkar til páskanna með henni.
Þau ætla að fara þangað sem veðrið er gott og vonar hann að
veðrið verði best á Akureyri.
„Planið er að fara á skíði og á vélsleða. Að borða góðan mat
og síðan bara að hafa gaman. Okkur finnst ótrúlega gaman
saman og fórum við sem dæmi síðasta sumar í ferðalag um
landið og spiluðum á öllum gólfvöllum sem við fundum við þjóð-
veginn.
Það var ótrúlega gaman. Af öllu því sem ég gæti verið að
gera, þá hefði ég aldrei trúað því að ég myndi elska golf svona
mikið,“ segir Guðni.
Hitta eingöngu jákvætt fólk í útivist
Bæði vilja þau hvetja fólk til að ferðast um landið og upp-
götva allar þær fallegu perlur sem landið hefur upp á að bjóða.
„Eitt er víst að maður hittir ekki leiðinlegt fólk í golfi, ekki
heldur í útivist. Það eru allir jákvæðir á fjöllum,“ segja þau.
Guðni Freyr Sigurðsson og unn-
usta hans Sigríður Arna Sigurð-
ardóttir vilja hvetja fólk til að ferðast
um landið og að stunda útivist um
páskana. Þau segja alla jákvæða á
fjöllum og hafa í raun aldrei hitt neinn
leiðinlegan á úti í náttúrunni.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Sigríður Arna og
Guðni hafa aldei
hitt leiðinlegt fólk
á fjöllum.
Skemmtilegasta fólkið er í útivist
Guðni á það til að krydda
ljósmyndir unnustu sinnar
með allskonar uppá-
tækjum út í náttúrunni.
Sigríður Arna í essinu
sínu úti í náttúrunni.
Parið hvetur alla sem
geta að fara út að leika
sér um páskana.
Guðna finnst skemmti-
legast að vera á snjó-
sleða eða á mótorhjóli.