Morgunblaðið - 26.03.2021, Page 20

Morgunblaðið - 26.03.2021, Page 20
Þ að þarf ekki að leita í smiðju öld- unga landsins til að muna um hvað lífið snýst, ef marka má samtal við Vigdísi Hafliðadóttur um lífið og tilveruna. Vigdís er með heimspekimenntun og þorir að segja hlutina eins og hún hugsar þá. „Ég er farin að hlakka til páskanna og held að páskarnir séu góðir fyrir alla þá sem kunna að slaka á í fríinu sínu og fá ekki sam- viskubit yfir því. Það er samt held ég ekki alltaf alveg átakalaust. Svo er auðvitað gott að geta nýtt fríið í eitthvað sem fólk hefur kannski ekki tíma til að gera dagsdaglega.“ Frásagnir og tungumálið heillandi Sjálf keppir hún við tímann í daglega líf- inu og er að gera alls konar hluti sem eiga vel við hana. „Það er mikið að gera í alls konar hlutum hjá mér í dag. Ég er að undirbúa uppi- standssýningu með VHS. Er að taka upp með hljómsveitinni FLOTT. Eins bíður dúóið mitt Vísur og skvísur eftir að geta sungið vísur annars staðar en á Zoom. Mér finnst tjáning svo mikilvæg og allt sem ég geri tengist því að miðla og skapa. FLOTT leggur mikla áherslu á textana, uppistand er auðvitað frásögn og vísna- söngur gengur út á að koma fallegum texta og ljóðum til skila.“ Hvað getur þú sagt mér um hljómsveit- ina? „Við erum fimm flottar stelpur í hljóm- sveitinni og spilum allt og semjum. Ég syng og sem textana. Við erum auðvitað nokkuð nýjar en viðtökurnar hafa farið fram úr okk- ar björtustu vonum, en bæði lögin okkar hafa lent á Vinsældalista Rásar 2, annað lag- ið var svo notað í kvikmynd og hitt í auglýs- ingu. Við erum greinilega að vekja einhverja athygli þótt við séum ekki frægar ennþá. Lagið „Segðu það bara“ lýsur samskiptum á netinu þar sem mögulegur rómantískur áhugi er fyrir hendi. Hvernig fólk á stundum erfitt með að vera heiðarlegt í slíkum sam- skiptum. Eða veit bara hreinlega ekki alveg hvernig því líður. Ég upplifi að fólk sé bara ekki mjög duglegt að segja það sem það er að hugsa, heldur reyni að komast hjá óþægi- legum aðstæðum með því að neita að horfast í augu við þær. Mér hefur samt alltaf fundist mikil óvirð- ing fólgin í því að gefa ekki skýr svör, sér- staklega ef það er kallað eftir þeim og mér finnst einfaldega illa gert að spila með til- finningar annarra. Það er enginn eyland og hegðun manns hefur áhrif á annað fólk.“ Þar sem textinn í laginu fjallar um að vera heiðarlegur er áhugavert að vita hvort hún sé búin að leysa leyndardóminn við að fanga fólk í sambönd? „Almennt finnst mér að það eigi bara að fanga þá sem koma sjálfviljugir og sprækir inn í netið. Annað er held ég bara orkusó- un.“ Finnst Instagram ógeðslegt Hvernig klæðirðu þig um páskana? „Ég vil bara vera í einhverju kósí. Pásk- arnir eru svo næs hátíð því það fylgir þeim ekkert stress eða dagskrá. Engir pakkar, mjög fá boð – ef einhver. Þá sé ég ekki ástæðu til þess að vera í neinu öðru en náttfötum eða föðurlandi.“ Stundarðu útivist? „Sem barn var ég oft á skíðum um páskana, þannig að í menntaskóla og há- skóla vildi ég nota fríið til að byrja að lesa fyrir próf. Þetta eru fyrstu páskarnir frá því að ég var smábarn sem ég er ekki í skóla þannig að hver veit nema ég skelli mér í fjallgöngu.“ Hvað gerir þú ekki sem margir á þínum aldri gera? „Ég er ekki á Instagram. Ég er örugglega að missa af einhverjum tækifærum vegna þess og hef fengið ráðleggingar um að byrja á þeim samfélagsmiðli til að vekja meiri at- hygli á mér og því sem ég er að gera. Hins vegar finnst mér Instagram bara frekar ógeðslegur miðill sem ýtir undir hé- góma, vanlíðan, minnimáttarkennd og fleiri lesti. Mig langar bara ekki að taka þátt í því, jafnvel þó það valdi því að ég fái minna að gera.“ „Páskarnir eru næs hátíð“ Vigdís Hafliðadóttir, tónlistarkona og grínisti, er í stúlknahljómsveitinni FLOTT. Hljómsveitin er áhugaverð fyrir þær sakir að textarnir eru skýrir og með skemmtilegan boðskap. Vigdís er hrifin af páskunum þar sem þeim fylgir lítið sem ekkert stress. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Vigdís Hafliðadóttir, tónlistarkona og uppistandari. 20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021 Á köldum janúardegi árið 1794 situr ungur aðalsmaður á sjúkrahúsi í útjaðri Stokk- hólms og reynir að raða saman slitróttum minningum. Hann er sakaður um skelfilegan glæp en sjálfur man hann ekkert hvað gerðist. Mickel Cardell, vaktarinn ein- henti, fær óvænta heimsókn þegar fátæk sveitakona leitar til hans með einkennilegt erindi. Hún er sannfærð um að dóttir hennar hafi verið myrt á hrottalegan hátt á brúðkaupsnóttina en kemur alls staðar að lokuðum dyrum. Cardell er hennar síðasta von um að draga sannleikann fram í dags- ljósið. Cardell fær sérkennilegan náunga til liðs við sig og þeir komast fljótt að því að ekkert er eins og það sýnist. Þeir sogast inn í myrkan heim þar sem illmenni svífast einskis til að ná fram markmiðum sínum og mannslíf eru ekki túskildings virði. 1794 er önnur bókin í þríleik sænska rithöfundarins Niklas Natt och Dag en fyrsta bók hans, 1793, sló rækilega í gegn þegar hún kom út og var útgáfurétt- urinn seldur til 35 landa. Niklas Natt och Dag hlaut heiðursverðlaun Stokk- hólms árið 2020 fyrir 1793 og 1794. Hilmar Hilmarsson þýddi en hann fékk Ís- nálina, verðlaun fyrir best þýddu glæpasöguna, fyrir þýðingu sína á 1793. Þessi bók er ávís- un á góða páska

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.