Morgunblaðið - 26.03.2021, Blaðsíða 25
S
umarhúsið og garðurinn hefur staðið
að fjölbreyttum námskeiðum frá
2009 og eftir að við fluttum með
starfsemina á Selfoss 2011 héldum
við áfram að þróa námskeiðin og
buðum þar upp á námskeiðin áfram, erum með
markaði og viðburði í garði sem ég hef hannað
og unnið með frábæru fagfólki. Við erum með
tvö gróðurhús og fjölskrúðugan sýningar- og
kennslugarð. Við höfum fundið fyrir eftirspurn
fyrir móttöku lítilla hópa til að fræðast um gróð-
urinn, til að skoða ljósmyndir Páls Jökuls,
mannsins míns, og starfsemi okkar. Nú er vilji
til að færa námskeiðin og móttökuna upp á ann-
að stig og bjóða upp á fagurgræna upplifun. Við
bjóðum upp á kryddsmakk, kennum hópum að
taka græðlinga og sá fyrir plöntum í gróðurhús-
inu. Fræðum með verklegum hætti í garðinum
um moltugerð og umhverfismál, ræktun þar
sem fagmenn koma ásamt mér að leiðbeina
gestum og Páll Jökull ljósmyndari sýnir myndir
sínar og tekur myndir af gestum,“ segir Auður.
Garður hjónanna er hálfgerð Örkin hans
Nóa-garður.
„Ég hef ræktað grænmeti bæði í beðum í
garðinum og hrauknum þar sem vaxa í bland
blómplöntur og grænmeti. Ég er ein þeirra sem
borða sumarblómin mín og túlípanana.
Hádegisblóm, fjólur og stjúpur eru frábærar
matjurtir og það eru fáir sem vita að blómin á
begóníum eru æt, þau eru með daufu hunda-
súrubragði. Við Páll Jökull erum nær sjálfbær
með grænmeti og stefnum að því að auka tölu-
vert berjarunnaræktina og erum þegar komin
með fjölda ávaxtatrjáa í garðinn.“
Hvernig verða páskarnir hjá þér?
„Ég fer á Vestfirðina um páskana, í ferming-
arveislu á Patró á skírdag og sjálfa páskana ætl-
um við Páll Jökull að ferðast um fyrir vestan og
hver veit nema ég staldri við í fallegum garði
eða hjá sumarhúsaeigendum og taki viðtöl í
tímaritið Sumarhúsið og garðinn milli þess sem
við njótum Vestfjarða og eigum rómó stund á
frábærum veitingastöðum kjálkans.“
Hvað finnst þér best við páskana?
„Þegar ég var barn var tilhlökkun að fá
páskaegg og það voru mikil veisluhöld á páska-
dag og annan í páskum. Í dag fagna ég komu
vorsins sem bankar upp á um leið og páskarnir.“
Borðar sumarblóm-
in úr garðinum
Auður Ottesen ritstjóri Sumarhússins og garðsins heldur heillandi
námskeið í garðinum heima hjá sér. Hún verður þó ekki með nám-
skeið um páskana heldur ætlar í ferðalag til að hlaða batteríin.
MartaMaría | mm@mbl.is
Auður Ottesen
veit allt um rækt-
un og kryddjurtir.
FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021 MORGUNBLAÐIÐ 25
POTTAGALDRAR
– eldhús allra landa
Lamb Islandia
er ein vinsælasta kryddblanda Pottagaldra.
Hún er sérstaklega blönduð þannig að bragðgæði
íslenska lambakjötsins njóti sín sem allra best.
Gott er að kryddleggja í nokkra daga fyrir eldun.
Einnig má nota blönduna á meðlætið t.a.m. bakaða
kartöflu, sósur og sýrðan rjóma.
Lambakrydd úr 1001 nótt
er skemmtileg kryddblanda ættuð frá Mið-Austurlöndum
þar sem laufkrydd, kóríander og cumin mætast.
Kryddblandan er góð fyrir lambakjöt, matreitt á pönnu,
í potti eða í ofni. Þá hentar hún vel í ýmsa grænmetis- og
baunarétti og kemur einnig vel út í kjúklingarétti.
Þessar blöndur eru án salts og pipars.
www.pottagaldrar.is • Sími 564 4449