Morgunblaðið - 26.03.2021, Síða 26

Morgunblaðið - 26.03.2021, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021 M argir þekkja til verkefna Evu Maríu innan kvik- myndanna en hún framleiddi meðal annars myndina Joe Bell sem skartar Mark Wahlberg í aðalhlutverki. Færri vita kannski af nýjasta verkefni hennar; Diller Daniels, þar sem hún byggir brú á milli mynd- listar, kvikmynda og upplifunar á mat svo dæmi sé tekið. „Ég er alltaf að leita leiða til að kryfja eða greina það sem ég er að gera. Ég er fædd og uppalin í Reykjavík og hef verið á stöðugu ferða- lagi frá því ég flutti að heiman, tuttugu og tveggja ára að aldri, til að mennta mig í kvikmyndagerð. Ég hef búið mér fallegt heimili í sjö ólíkum borgum en hef búið hvað lengst í New York-borg. Þegar ég lít yfir lífið mitt og tengi staðina sem ég hef búið á við lífrás lífsins, þá má segja að New York sé miðpunkturinn og að Reykjavík sé hjartastöðin þar sem ég fæ jarðtenginguna mína.“ Hún fékk enn þá sterkari þörf fyrir íslensku ræturnar sínar eftir fæðingu sonarins árið 2017. „Sú ákvörðun að flytja til Sviss var tekin til að vera nær fjölskyldu mannsins míns. Þá langaði mig að gera eitthvað listrænt sem hefði tengingu við Ísland og gefa syni mínum það tækifæri að alast upp í því umhverfi líka.“ Sem kvikmyndaframleiðandi hef ég alltaf haft þennan brennandi áhuga á að segja sögur. Ég hef einnig alltaf verið með brennandi áhuga á list, hönnun og mat. Því lá það beint við þegar við fluttum hingað að sameina list og kvikmyndir og gefa því eina rödd.“ Gerðu upp fallegt hús nálægt fjölskyldunni Eva María og Moritz Diller fundu fallegt húsnæði steinsnar frá fjölskyldunni. Húsið var á því verðbili sem þau vildu hafa það og þarfnaðist viðhalds því það var komið til ára sinna. „Mig langaði að hanna hús sem gæti verið heimili okkar en einnig staður fyrir vinnuna . Ég hannaði allt að innan sjálf og vann með byggingafyrirtæki á staðnum. Verkefnið tók tólf vikur þar sem við fórum í talsverðar breytingar. Við tókum niður nokkra veggi og settum fallegt efni á gólfin. Endurgerðum eldhúsið og gerðum upp eitt baðherbergi. Síðan bjuggum við til fallegan sýningarsal á ann- arri hæð hússins þar sem hægt er að ganga út á stóra verönd sem „Lífið er stund- um svo gott en stundum svo glatað líka“ Eva María Daniels kvikmyndaframleiðandi er farin að hlakka til páskanna. Hún er búsett í Sviss, með eiginmanni sínum Moritz Diller og syni þeirra Henry Alexander, í fallegu nýendur- gerðu húsi með listagallerí á einni hæðinni. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Íslensk myndlist prýðir húsið í Sviss. Eva María í eldhúsinu heima hjá sér sem hún gerði upp á dögunum. Þar fær marmari að njóta sín og passar hann vel við viðarinnréttinguna. Ég hannaði allt að innan sjálf og vannmeð bygg- ingafyrirtæki á staðn- um. Verkefnið tók tólf vikur þar sem við fórum í talsverðar breytingar. Við tókum niður nokkra veggi og settum fallegt efni á gólfin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.