Morgunblaðið - 27.03.2021, Page 8
Í
kring um síðustu áramót festi Christine
Gísla ljósmyndari kaup á skemmtilegri
hundrað fermetra blokkaríbúð við Boða-
grandann í Reykjavík sem hún segir sum-
arbústaðinn í borginni en Christine býr
einnig á Selfossi. „Þetta er ótrúlega skemmti-
legt samfélag þarna á Boðagranda. Það virkar
svolítið eins og lítið þorp. Fólk heilsast og
þekkist og við fengum mjög góðar móttökur
frá nýjum nágrönnum þegar við fluttum inn,“
segir Christine og bætir við að útsýnið frá
íbúðinni sé yndislegt.
„Það er dásamlegt útsýni hérna og
þá er auðvitað alltaf eitthvað að
gerast. Frá stofuglugganum get
ég fylgst með leikjum og æfing-
um hjá KR og mér finnst rosa-
lega skemmtilegt að heyra lætin
og fjörið í kringum það. Svo horfi
ég á sjóinn út um eldhúsglugg-
ann. Maður sér alls konar mis-
munandi liti og ljós þegar horft er
yfir að Esjunni og yfir hafið. Ég
heillast svo af fegurðinni og náttúrunni
og þessari kyrrð sem við höfum aðgang að
hérna á Íslandi. Fólk þarf yfirleitt ekki að fara
Christine Gísla ljósmyndari,
segist hrífast af afslöppuðum
stíl og hlutlausum tónum
þegar kemur að fegrun heim-
ilisins. Hún kýs þá heldur að
skapa mynstur og fegurð
með blómum, en Christine
starfaði árum saman sem
blómaskreytir áður en hún
gaf sig að listljósmyndun.
Margrét Hugrún
margret.hugrun@gmail.com
Christine Gísla
á fallegt heimili.
Hún notar íbúð
sína við Boða-
granda sem hálf-
gerðan sumarbústað.
„Dóttir mín bjó þennan hund til þegar hún var sirka átta ára á námskeiði í
Myndlistarskóla Reykjavíkur. Hann sló í gegn og endaði á samsýningu í
Listasafni Einars Jónssonar. Þetta er einn af mínum eftirlætismunum.“
„Umdaginn náði ég í litla
grasþúfu og setti í pott“
Ljósmyndir/Christine Gísla
Ljósmynd/Bára Kristjánsdóttir
mjög langt til að vera bara eitt með sjálfu sér
og náttúrunni. Það er okkar stóri auður, finnst
mér,“ segir Christine.
Notar blóm til að breyta um stemningu
Eins og flestum finnst Christine gaman að
blanda saman persónulegum og gömlum mun-
um við nýrri hluti og húsgögn þegar kemur að
því að gera heimilið notalegt. „Mér finnst
skemmtilegt að nota blóm og teppi og þess
háttar þegar ég vil breyta um stemningu. Bæði
ný, afskorin blóm og líka pottablóm. Blóm gefa
mér svo mikið og það er svo auðvelt að nálgast
þau. Stundum klippi ég grein af tré þegar ég
fer út að ganga og um daginn náði ég í litla
grasþúfu og setti í pott. Það getur verið mjög
fallegt. Svo finnur maður oft fallega steina og
ýmislegt annað úr náttúrunni sem hægt er að
nota til að skreyta heimilið,“ segir Christine
sem einbeitir sér líka að gróðri og náttúru við
listsköpun sína, en á mörgum ljósmynda henn-
ar má sjá ýmsar gerðir af flóru landsins.
Christine er ein af þeim sem leitar ekki langt
5 SJÁ SÍÐU 10
Bastborðið er frá Heimili og hugmyndum og baststóllinn úr versl-
uninni Faco. Stóri vasinn á gólfinu og vasarnir í glugganum eru
handgerðir af systur Christine, Katrínu Gísladóttur leirlistakonu.
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021
Austurmörk 4, 810 Hveragerði | Sími 483 5800 | byr@byrfasteign.is | www.byrfasteign.is
Elín Káradóttir
Löggiltur fasteignasali
MIKIL SALA
VANTAR EIGNIR
Á SKRÁ