Morgunblaðið - 27.03.2021, Síða 16

Morgunblaðið - 27.03.2021, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021 E lín og fyrrverandi maki hennar keyptu hús við Gljúfrasel fyrir sjö árum. Þegar þau skildu á síðasta ári tók Elín við húsinu og hóf að endurskipuleggja það, breyta og bæta „Ég vildi eiga húsið áfram en vildi jafn- framt skapa mér og dætrunum traustari fjárhag og sá fljótt að við fjórar þyrftum ekki alla þessa fermetra,“ segir Elín en húsið er á þremur hæðum, alls 240 fm að stærð. Hugmyndin var að búa til litla stúd- íóíbúð á fyrstu hæðinni en til þess að svo gæti orðið var nauðsynlegt að klípa af stof- unni og byggja þar upp nýtt herbergi fyrir elstu dótturina. Þá var þvottahúsið fært inn í fataherbergi, annar bílskúrinn varð hluti af stúdíóíbúðinni og hinn bílskúrinn fékk nýtt hlutverk sem líkamsræktarstöð og fleiri rými hússins fengu andlitslyftingu. Fann verkamanninn í sjálfri sér Framkvæmdirnar stóðu meira og minna yfir í sjö mánuði en þrátt fyrir álagið sem fylgir stöðugum framkvæmdum þá segir Elín að ferlið hafi í raun verið mjög ánægjulegt. „Já, það kom mér eiginlega á óvart hvað ég hafði gaman af þessu. Ég fann í raun verkamanninn í sjálfri mér,“ segir Elín og hlær, enda kemur í ljós að hún hefur sjálf unnið meira og minna að breytingunum. Hún segist í upphafi hafa verið með smið en þegar hann slasaðist og allt varð stopp þá varð hún að taka til sinna ráða. „Eftir að hafa fengið leiðbeiningar frá fagfólki, gekk ég bara í það að ganga frá veggjunum sjálf, ulla þá og gifsa. Ég treysti mér reyndar ekki í það að saga út fyrir klósettstútnum og fleiru, og fékk hjálp við það, en ég get sagt með stolti að ég gekk frá sex gifs- veggjum alveg sjálf,“ segir Elín ánægð með útkomuna. Elín segist lengi hafa haft áhuga á arkitektúr og innanhússhönnun og fékk hún heldur betur útrás fyrir þennan áhuga sinn í þessu verkefni. Þá fór hún sums stað- ar óhefðbundnar leiðir og valdi til dæmis matt litað sparsl á vegg í stofunni, sem gef- ur rýminu skemmtilega hráan karakter sem er í mótsögn við glasandi svart veggfóður „Ég vildi fá sem besta nýtingu út úr fasteign- inni,“ segir Elín Ólafsdóttir sem staðið hefur í ströngu undanfarna mánuði við endurskipu- lagningu á heimili sínu í Seljahverfi. Hún segir verkefnið hafa verið hina bestu núvitundar- æfingu og það hafi komið henni á óvart hversu mikill verkamaður leyndist í henni. Snæfríður Ingadóttir | snaeja@gmail.com Elín er fagurkeri og hefur gaman af því að blanda saman gömlum og nýjum hlutum, en þegar hún bjó í Svíþjóð keypti hún marga skemmtilega muni á sænskum flóamörkuðum sem prýða íbúðina. Tók til sinna ráða þegar smiðurinn slasaðist Elín mælir með því fyrir uppteknar konur í leit að líkamsrækt og slökun að taka heimilið í gegn. Hún segir að það að sparsla og mála sé góð núvitundaræf- ing. Þá hafi hún aldrei verið í betra formi en nú eftir heimilisframkvæmdir síðustu mánuðina. Skenkinn í stofunni fékk Elín á nytjamarkaði og gaf honum and- litslyftingu með svartri málningu. Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.