Morgunblaðið - 27.03.2021, Síða 17
sem prýðir annan vegg í stofunni. Eins
nýtti hún þetta umrædda sparsl í öðrum lit
á milli eldhússkápa í stúdíóíbúðinni sem hún
útbjó.
Leið eins og listamanni
með sparslspaðann
„Ég er að vinna hjá Flügger sem sölu- og
mannauðsstjóri og þar kynntist ég þessu lit-
aða sparsli frá DETALE CPH sem heitir
Kabric. Þetta er mjög notendavæn vara,
auðveld í vinnslu og þornar hratt. Þetta er
eins og þykk málning með sandkornum í
sem rúllað er á vegginn með sparslrúllu og
svo er efnið dregið í allar áttir með sparsls-
pöðum. Útkoman verður lifandi, mött áferð,
eitthvað sem mér fannst spennandi og öðru-
vísi. Mér fannst ég smá eins og listamaður
þegar ég var að gera þetta og verð að segja
að þetta var algjör núvitundaræfing. Ég er
vön að vera í stjórnendastöðum og hef ekki
verið að vinna neitt að ráði með höndunum.
En þegar þú ert að mála eða sparsla þá
kemst ekkert annað að í huganum en ná-
kvæmlega það sem þú ert að gera þá stund-
ina með höndunum, þú ert algjörlega hér og
nú,“ segir Elín og bætir við að þá hafi hún
líka aldrei verið í jafn góðu formi og nú eft-
ir þessa törn því smíða- og málningarvinna
reynir á allan líkamann. Elín mælir því al-
gjörlega með því fyrir uppteknar konur í
leit að líkamsrækt og slökun að taka heim-
ilið í gegn. „Auðvitað þarf maður líka að
hafa fífldirfsku og þora að láta vaða því
maður lendir alltaf í einhverju óvæntu á
leiðinni. En ekkert er óyfirstíganlegt.“
Gaf henni mikla sjálfstrú
Spurð um góð ráð til annarra kvenna sem
eru í svipuðum sporum þá segir Elín að það
sé mikilvægt að þora að prófa, því svo lengi
lærir sem lifir. Flestar getum við meira en
við höldum og svona vinna er sannarlega
ekki bara fyrir karlmenn. Þá er mikilvægt
að hafa gott skipulag til þess að brenna
ekki inni með hálfklárað verk. „Gott skipu-
lag skiptir miklu máli svo rafvirkjar, pípar-
ar og aðrir iðnaðarmenn komi í réttri röð
og á réttum tíma. Það hjálpaði mér mikið
að búta verkefnið niður, að útbúa verk-
skipulag og skrifa allt niður í bók. Og það
var gríðarlega fullnægjandi að strika yfir
unna verkþætti.“
Elín segir að vinir og vandamenn í kring-
um hana hafi á tímabili verið hræddir um
að hún ynni yfir sig því hún var að sinna
þessum heimilisbreytingum samhliða fullri
vinnu ásamt því að sinna móðurhlutverkinu,
en dætur hennar eru 10, 16 og 20 ára gaml-
ar. „Ég var alveg líkamlega þreytt eftir
þetta, en þetta gaf mér líka alveg ofboðs-
lega mikið. Ekki bara á ég fallegra heimili
fyrir vikið með aukaíbúð, heldur gaf þetta
mér mikla sjálfstrú. Ég vissi til dæmis ekki
áður en ég byrjaði að þessi verkamaður
leyndist í mér, að ég gæti haldið þetta út í
sjö mánuði og náð að púsla þessu rétt sam-
an.“
Eldhúsinnréttingin hefur nú þegar fengið andlitslyftingu en Elín setti límfilmu á
framhliðarnar. Um páskana stendur til að setja litasparsl á borðplötuna.
Elín ákvað að sparsla einn vegginn í stofunni með litasparsli í stað þess að mála hann,
sem gefur stofunni skemmtilega hráan karakter.
Elín segist lengi hafa haft áhuga á arkitektúr og
innanhússhönnun og fékk hún heldur betur útrás
fyrir þennan áhuga sinn í þessu verkefni.
LAUGARDAGUR 27. MARS 2021 MORGUNBLAÐIÐ 17