Morgunblaðið - 27.03.2021, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 27.03.2021, Blaðsíða 17
sem prýðir annan vegg í stofunni. Eins nýtti hún þetta umrædda sparsl í öðrum lit á milli eldhússkápa í stúdíóíbúðinni sem hún útbjó. Leið eins og listamanni með sparslspaðann „Ég er að vinna hjá Flügger sem sölu- og mannauðsstjóri og þar kynntist ég þessu lit- aða sparsli frá DETALE CPH sem heitir Kabric. Þetta er mjög notendavæn vara, auðveld í vinnslu og þornar hratt. Þetta er eins og þykk málning með sandkornum í sem rúllað er á vegginn með sparslrúllu og svo er efnið dregið í allar áttir með sparsls- pöðum. Útkoman verður lifandi, mött áferð, eitthvað sem mér fannst spennandi og öðru- vísi. Mér fannst ég smá eins og listamaður þegar ég var að gera þetta og verð að segja að þetta var algjör núvitundaræfing. Ég er vön að vera í stjórnendastöðum og hef ekki verið að vinna neitt að ráði með höndunum. En þegar þú ert að mála eða sparsla þá kemst ekkert annað að í huganum en ná- kvæmlega það sem þú ert að gera þá stund- ina með höndunum, þú ert algjörlega hér og nú,“ segir Elín og bætir við að þá hafi hún líka aldrei verið í jafn góðu formi og nú eft- ir þessa törn því smíða- og málningarvinna reynir á allan líkamann. Elín mælir því al- gjörlega með því fyrir uppteknar konur í leit að líkamsrækt og slökun að taka heim- ilið í gegn. „Auðvitað þarf maður líka að hafa fífldirfsku og þora að láta vaða því maður lendir alltaf í einhverju óvæntu á leiðinni. En ekkert er óyfirstíganlegt.“ Gaf henni mikla sjálfstrú Spurð um góð ráð til annarra kvenna sem eru í svipuðum sporum þá segir Elín að það sé mikilvægt að þora að prófa, því svo lengi lærir sem lifir. Flestar getum við meira en við höldum og svona vinna er sannarlega ekki bara fyrir karlmenn. Þá er mikilvægt að hafa gott skipulag til þess að brenna ekki inni með hálfklárað verk. „Gott skipu- lag skiptir miklu máli svo rafvirkjar, pípar- ar og aðrir iðnaðarmenn komi í réttri röð og á réttum tíma. Það hjálpaði mér mikið að búta verkefnið niður, að útbúa verk- skipulag og skrifa allt niður í bók. Og það var gríðarlega fullnægjandi að strika yfir unna verkþætti.“ Elín segir að vinir og vandamenn í kring- um hana hafi á tímabili verið hræddir um að hún ynni yfir sig því hún var að sinna þessum heimilisbreytingum samhliða fullri vinnu ásamt því að sinna móðurhlutverkinu, en dætur hennar eru 10, 16 og 20 ára gaml- ar. „Ég var alveg líkamlega þreytt eftir þetta, en þetta gaf mér líka alveg ofboðs- lega mikið. Ekki bara á ég fallegra heimili fyrir vikið með aukaíbúð, heldur gaf þetta mér mikla sjálfstrú. Ég vissi til dæmis ekki áður en ég byrjaði að þessi verkamaður leyndist í mér, að ég gæti haldið þetta út í sjö mánuði og náð að púsla þessu rétt sam- an.“ Eldhúsinnréttingin hefur nú þegar fengið andlitslyftingu en Elín setti límfilmu á framhliðarnar. Um páskana stendur til að setja litasparsl á borðplötuna. Elín ákvað að sparsla einn vegginn í stofunni með litasparsli í stað þess að mála hann, sem gefur stofunni skemmtilega hráan karakter. Elín segist lengi hafa haft áhuga á arkitektúr og innanhússhönnun og fékk hún heldur betur útrás fyrir þennan áhuga sinn í þessu verkefni. LAUGARDAGUR 27. MARS 2021 MORGUNBLAÐIÐ 17

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.