Morgunblaðið - 27.03.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.03.2021, Blaðsíða 18
Þ essi breyting hefur verið í um- ræðunni í svolítinn tíma svo margir sumarhúsaeigendur hafa haldið að sér höndum og verið að bíða eftir því hvort þetta gengi í gegn eða ekki. Og nú þegar þessi lagabreyt- ing er orðin að veruleika er vissulega mun söluvænna fyrir ákveðinn hóp að selja sumarhúsið sitt en áður,“ segir Heimir Haf- steinn Eðvarðsson, fasteignasali hjá fast- eignasölunni Fasteignalandi. Í stuttu máli felst breyting í því að sumarhúsaeigandi sem ákveður að selja sumarhúsið sitt, ef hann hefur átt það í sjö ár eða lengur og hefur ekki haft tekjur af því á þeim tíma, þarf ekki að greiða fjármagnstekjuskatt af hagn- aðinum sem kann að hafa myndast. Gildir þetta frá 1. janúar 2020 og á því við um allar sumarhúsasölur á síðasta ári. Mun hafa áhrif „Þetta getur til dæmis haft gríðarlega mikið að segja fyrir fólk á lífeyri því sölu- hagnaðurinn er ekki lengur flokkaður sem tekjur. Það kemur í veg fyrir að lífeyr- isgreiðslur frá Tryggingastofnun skerðist, eins og raunin hefur verið hingað til,“ segir Heimir. Hann á von á því að þessi breyting ýti við mörgum í þessum hópi og flýti fyrir ákvarðanatöku varðandi sölu. „Við hér hjá Fasteignalandi höfum verið að fá töluverðar fyrirspurnir um þessa lagabreytingu svo það eru margir sem eru að hugsa málið og velta fyrir sér hvort nú sé ekki rétti tíminn til þess að setja sumarhúsið á sölu.“ Heimir segir að honum finnist ekki ólíklegt að það verði töluverð hreyfing á sumarhúsamark- aðinum með hækkandi sól. Áframhaldandi góð sumarhúsasala „Margir eldri sumarhúsaeigendur hafa haldið sig innandyra vegna heimsfaraldurs- ins en ég á von á því að með vorinu þá fari hluti þeirra að huga að sölu, enda breytir þessi lagabreyting mjög miklu fyrir mjög stóran hóp.“ Hann segir að á síðasta ári hafi reyndar verið mjög góð sala á sumarhúsum á Íslandi þegar ferðalög erlendis minnkuðu og landinn fór að hugsa meira um upplifanir innanlands. „Það hafði verið smá lægð í sölu sumar- húsa þar á undan en jókst svo aftur með til- komu Covid og ég á von á því að þessi ásókn Íslendinga í sumarhús haldist óbreytt í ár.“ Meiri hvati til að selja sumarhúsið Í lok síðasta árs var lögum um tekjuskatt af söluhagnaði frí- stundahúsa breytt. Breytingin hefur töluverð áhrif á þá sem hafa átt sumarhús í sjö ár eða lengur því söluhagnaðurinn er ekki lengur flokkaður sem tekjur og skerðir því ekki lífeyrisgreiðslur. Snæfríður Ingadóttir | snaeja@gmail.com Heimir Hafsteinn hjá Fasteignalandi segir að ný lagabreyting er tengist söluhagnaði frístunda- húsa hafi mikið að segja fyrir stóran hóp sumarhúsaeiganda. Morgunblaðið/Ásdís Morgunblaðið/Ómar Áttu sumarhús? Ný laga- breyting getur gert það söluvænna að selja núna. 18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.