Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Síða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Síða 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.3. 2021 Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 Ég hef alltaf haft gaman af ferðalögum.Koma á nýja staði og kynnast fólki.Sjá eitthvað merkilegt og segja sjálf- um mér að ég sé að bæta við mig og þrosk- ast voðalega mikið. En ég hef í raun aldrei haft gaman af ferðalaginu sjálfu. Til þess er ég sennilega of hávaxinn. Sæti í flugvélum voru ekki gerð fyrir fólk af minni stærð. Það er ekkert til sem heitir skemmtilegur flugvöllur. Ég hef aldrei rekist á flugvöll með verðlagi sem virðist á nokkurn hátt tengjast mannlegu hagkerfi. Svo gerðist það í síðustu viku að ég hitti mann í sundi. Sá er flugfreyja og sagði mér að hann væri á leiðinni í flug til Kanarí. Fyrst til Tenerife, svo í gamla skólann á Gran Canaria. Þar væri gist í eina nótt og svo farið aftur til Tenerife og heim. Einhvern tímann hefði aldrei hvarflað að mér að fara í svona ferðalag. Aldrei. Senni- lega 14 tímar í flugvél og endalaus bið á flugvöllum, sem er ekkert ósvipað og ég sé fyrir mér helvíti. Og fá svo örugglega í bón- us að bíða tímunum saman í loftlausri flug- vél, sem er sérstök tegund af martröð. En nú fann ég að ég dauðöfundaði hann. Gott ef ég reyndi ekki bara að athuga hvort það vantaði ekki mann í áhöfn. Eftir á að hyggja var þetta ekki mín stoltasta stund. Standandi berrassaður í búningsklefanum að reyna að koma mér í eitthvert furðulegt ferðalag – bara til að komast augnablik til útlanda. Fá í smástund að anda að sér útlensku lofti, fá morgunmat á hóteli, reyna að gera sig skiljanlegan við leigubílstjóra, sötra ódýran bjór og finna sólina skína á sig. Hversu mikil örvænting er þetta orðin? Og óskiljanleg í ljósi þess að það er ekki eins og maður sé að fara að njóta ferðalags- ins eða fá þennan dýrmæta tíma til að slaka á. Það er greinilega algjör óþarfi. Við erum komin á eitthvert lokastig í ferðaþrá. Ég held að þetta sé einhvers konar frels- ismál. Eins og okkur langar alltaf mest í það sem við getum ekki fengið. Það var ekkert jafn spennandi og það sem var bann- að. Reyndar er hægt að fara til útlanda núna en það er eitthvað sem heldur í mann. Líklega heimsfaraldurinn. Og mig langar til útlanda. Það þarf ekki einu sinni að vera sól. Ég væri í alvöru til í að fara á norrænt þing í Umeå eða Luleå með tilheyrandi flugvélaskiptum og vesenisferðalagi. Ég myndi ekki setja fyrir mig að sitja heilu dagana á fund- um og þykjast reyna að skilja fólk sem talar alls konar út- lensku. Ég myndi meira að segja gera mitt besta til að reyna að nota þessa undarlegu skandinavísku sem ég nota í neyð. Bara til að komast aðeins til út- landa. Langar sögur á skánsku (sem enginn skilur í heiminum) eru bara allt í einu spennandi kostur. Bara ef þær koma í út- löndum. Staðan er meira að segja þannig að jarð- skjálftar og mögulegt yfirvofandi eldgos eru í raun ekkert stórmál. Bara ef það þarf ekki að loka flugvellinum. Þá held ég að þessi þrá verði enn dýpri og erfiðari við að eiga. Það var að renna upp fyrir mér að það er komið ár síðan ég komst síðast út fyrir ís- lenska landhelgi. Ég held í alvöru að ég ráði ekki við annað. ’Eftir á að hyggja var þettaekki mín stoltasta stund.Standandi berrassaður í bún-ingsklefanum að reyna að koma mér í eitthvert furðulegt ferðalag – bara til að komast augnablik til útlanda. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Ferðaþrá Hlaupum hraðar“ var yfir-skrift Iðnþings í vikunni.Það var sérstaklega viðeig- andi, nú þegar aukin verðmæta- sköpun er meira aðkallandi en á flestum tímum. Í ræðu minni á þinginu lagði ég sérstaka áherslu á mikilvægi ný- sköpunar og þá hugarfarsbyltingu sem hefði orðið gagnvart nýsköpun í íslensku samfélagi á undanförnum árum. Þau tímamót hafa orðið að ný- sköpun er ekki lengur litin hálfgerðu hornauga sem krúttlegt gæluverk- efni, eitthvað sem enginn getur þannig séð verið á móti en þykir samt ekki endilega skipta miklu máli. Þeim fækkar sem betur fer sem telja hana tískuorð, ímyndarmál eða skraut. Hún er raunverulegt og mikilvægt viðfangsefni sem við verð- um að sinna, þrátt fyrir að hún sé óá- þreifanleg og háð óvissu. Hún gerir okkur í stakk búin til að takast á við áskoranir framtíðarinnar. Nýsköpunarbylting Covid hefur opnað augu margra fyr- ir ávöxtum nýsköpunar. Fólk sá að fyrirtæki á borð við Sidekick Health gátu boðið lausnir sem nýttust í heil- brigðiskerfinu. Fólk sá að fyrir- tæki á borð við Controllant áttu í fórum sínum lausnir sem nýtt- ust við að flytja bóluefni á milli landa. Fólk sá að fyrirtæki á borð við DeCode gátu liðsinnt með sinni þekkingu og bún- aði. Á sama tíma staldrar fólk við þær fréttir að íslensk nýsköpunar- fyrirtæki sóttu sér í fyrra tæplega 30 milljarða króna í fjármögnun, og meira en helming þeirrar fjárhæðar frá útlöndum. Í nýrri könnun Íslandsstofu kem- ur fram að flest nýsköpunarfyrir- tæki sjá fram á vöxt á næstu tólf mánuðum. Nær öll fyrirtækin hyggj- ast fjölga starfsmönnum á árinu. Þrátt fyrir Covid stóðust áætlanir meirihluta fyrirtækjanna. Við- skiptavinum þeirra hefur almennt ekki fækkað þrátt fyrir Covid. Að- eins örlítill samdráttur varð í tekjum þeirra á árinu 2020 samanborið við árið á undan og starfsfólki þeirra fjölgaði um 14%. Könnunin dregur upp bjartari mynd af kraftinum í ís- lensku nýsköpunarumhverfi en flest- ir áttu von á við þessar aðstæður. Þessu til viðbótar er jákvætt að nokkrir vísisjóðir eru nú að leggja drög að næstu hrinu fjárfestinga sem skipta munu milljörðum og gefa íslenskum frumkvöðlum aukin tæki- færi. Fyrirtæki á borð við Alvotech og CarbFix eru að vinna að verkefnum sem gætu skipt Ísland verulegu máli. Orkufyrirtækin okkar sjá spennandi tækifæri á mörgum svið- um, meðal annars í vetnis- og raf- eldsneytisframleiðslu og gagnaver- um. Allt þetta sýnir að áhersla á ný- sköpun gerir okkur kleift að hlaupa hraðar. En hvaða verkefni er þá næst? Næsta bylting Fyrir um þrjátíu árum eða svo má segja að bylting hafi hafist á Íslandi sem leysti okkur úr mörgum göml- um viðjum. Hún er oftast kennd við frjálshyggju og gekk aðallega út á að draga ríkisvaldið út af mörgum svið- um þar sem það hafði verið allt- umlykjandi og auka frelsi einka- framtaksins til að eiga viðskipti og skapa verðmæti. Dómur framtíðarinnar verður vonandi sá að á síðastliðnum árum hafi orðið hér á landi nýsköp- unarbylting. Við þurfum að halda áfram að styðja við hana. Næsta bylting sem ég myndi vilja sjá eiga sér stað á Íslandi er einföld- unarbylting. Við höfum því miður komið okkur upp alltof flóknu reglu- verki, sem er dálítið sérstakt með hliðsjón af því hvað við erum lausna- miðuð og viljum geta hreyft okkur hratt. Ferli og reglur eru vissulega nauðsynleg, en á einhverjum tíma- punkti hætta þær einfaldlega að bæta um- hverfi okkar og byrja að spilla því. Ferli og regl- ur eiga að koma í veg fyrir að við hlaupum út í skurð, en þær mega ekki koma í veg fyrir að við getum hlaupið, né að við getum yfir- höfuð grafið skurði. Tækifærin til úrbóta snúast ekki um að gefa afslátt af eðlilegum kröf- um heldur meðal annars að koma í veg fyrir að verið sé að gera óþarfa kröfur, jafnvel meta sömu hlutina aftur og aftur á mörgum stöðum, og að það mat taki óhóflega langan tíma. Við höfum tekið nokkur skref í þessa átt. Fjöldi úreltra og óþarfa laga og reglugerða voru felld brott í atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytinu. Frumvarp var lagt fram um einföldun flóknustu raflínufram- kvæmda. Regluverk ferðaþjónustu og byggingariðnaðar var greint í samstarfi við OECD og tækifæri til einföldunar sett fram. Síðast í þessari viku skrifaði ég undir samstarfssamning við Íslands- stofu um „Græna dregilinn“ sem er ætlað að einfalda okkur að nýta tækifærin til grænna nýfjárfestinga um allt land. Við þurfum að hlaupa hraðar og um það þarf að nást víðtæk sam- staða. Einföldunar- byltingin Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is ’Ferli og reglur eiga aðkoma í veg fyrir aðvið hlaupum út í skurð,en þær mega ekki koma í veg fyrir að við getum hlaupið, né að við getum yfirhöfuð grafið skurði. AtvinnaMatur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.