Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.3. 2021
Uppskrift að helvíti
„Ég flutti síðar til Malmö í Svíþjóð, eftir að
Sindri fæðist, en vann þá í Danmörku. Ég fór
til að klippa og átti bara að vera eitt sumar en
það endaði með sjö árum. Svo fæddist Birta í
Svíþjóð og Logi stuttu eftir að við fluttum
heim til Íslands.“
Eftir heimkomuna frá Svíþjóð vann Elísabet
að bíómyndum hérlendis en íslensk kvik-
myndagerð var þá að sækja í sig veðrið þó að
stundum hafi gengið brösuglega. Og þrátt fyr-
ir að vera nú búin „að meika það“ í útlöndum,
segist hún ekki enn vera komin með digran
sjóð.
„Nei, og það eru margar ástæður fyrir því. Í
fyrsta lagi vann ég við íslenska kvikmynda-
gerð í þrjátíu ár, áður en ég fór að meika það
erlendis, þar sem við vorum bara sett á eyrina
með þessu virðisaukaskattskerfi. Í gamla daga
voru fyrirtæki að fara á hausinn hægri vinstri
og maður var að skrifa út reikninga sem mað-
ur fékk ekki greidda en þurfti að standa skil á
virðisaukaskattinum. Þetta var uppskrift að
helvíti fyrir einstæðar mæður í Vestur-
bænum,“ segir Elísabet og segir oft hafa verið
erfitt að ná endum saman.
„Var til nóg fyrir leigunni, átti ég fyrir
mjólk? Svo uxu framleiðslufyrirtækin upp úr
barnsskónum og urðu stöndugri, þrátt fyrir
áframhaldandi opinbert fjársvelti. En það var
bara þannig að launin rétt héldu manni á floti.“
Að fljúga með alla út um allt
Datt þér aldrei í hug að hætta í bransanum og
fara bara að vinna aftur sem ritari skattrann-
sóknarstjóra?
„Jú, mér datt það endalaust í hug og hugsaði
það í raun eftir hvert einasta verkefni. Ég var
rétt að koma undir mig fótunum þegar hrunið
varð. Þá sá ég ekki fram á að geta framfleytt
þessum barnahópi. Ég vissi ekkert hvað ég átti
að gera en fékk þá tilboð að fara til Singapúr
að kenna kvikmyndagerð. Ég hoppaði á það og
sá þarna leið út úr veseninu, en þetta var um
viku eftir „Guð blessi Ísland“,“ segir Elísabet
sem pakkaði saman og var komin um borð í
flugvél stuttu síðar.
„Ég man að ég sat í vélinni og hugsaði:
„hvern andskotinn er ég búin að gera?“,“ segir
hún og hlær.
Eftir sex mánuði með börnin í Singapúr
fékk Elísabet tilboð um að klippa Contraband
fyrir Baltasar.
„Við flugum þá beint frá Singapúr til New
Orleans, ég börnin og au-pair, en börnin
þvældust með mér út um allt þar til Birtan mín
fór í menntaskóla,“ segir hún og segir þau
einnig hafa dvalið í London vegnar mynd-
arinnar.
„Þetta er ástæðan fyrir að ég verð aldrei rík;
ég er alltaf að fljúga með alla út um allt!“ segir
hún og segist ánægð með að hafa geta gefið
börnunum sínum gott líf og það í ýmsum lönd-
um.
„Þau eru svo víðsýn og skemmtileg. Mér
finnst gott að hafa gefið þeim þetta veganesti.
Þau eru svo óhrædd og mér finnst það dásam-
legt.“
Þú ert klipparinn með strolluna á eftir þér?
„Já, ég kalla þetta mitt „entourage“. Holly-
wood-leikarar eru alltaf með svona föruneyti á
eftir sér,“ segir hún og hlær.
Algjör rússibanareið
Þegar Elísabet var við vinnu í L.A. kynntist
hún ungum manni sem vann sem aðstoðar-
maður á setti.
„Hann sótti kaffi fyrir tökufólkið meðal ann-
ars. Ég hafði alltaf verið voða næs við þennan
dreng því ég átti sjálf svo marga drengi á svip-
uðum aldri. Það kom svo í ljós að móðir hans
var yfirmaður hjá Universal. Hann segir
greinilega mömmu sinni frá mér og þau
ákveða að ég verði að hitta klipparann Dody
Dorn,“ segir Elísabet.
„Við erum góðar vinkonur í dag, en þarna
var sem sagt sett upp deit fyrir okkur og við
hittumst yfir kvöldmat. Ég var algjörlega
„starstruck“ því hún hefur klippt margar af
mínum uppáhaldsmyndum. Við sátum yfir
kvöldmat fram eftir kvöldi og skemmtum okk-
ur vel og daginn eftir hafði hún samband við
umboðsmanninn sinn og segir þeim að tékka á
mér. Þannig að ég fæ allt í einu boð að mæta á
risastóra umboðsmannaskrifstofu á fund með
þremur umboðsmönnum,“ segir Elísabet.
Stuttu síðar var hún komin þar á samning.
„Svo leið heilt ár. Á þeim tíma var nafla-
strengurinn enn tengdur við Baltasar og hann
fór að gera HBO-þætti og ég fór með honum til
Búdapest að taka upp og þaðan aftur til L.A.
að klára,“ segir hún.
„Svo fer Baltasar að gera Two Guns og
ákveður að ég sé ekki rétti klipparinn fyrir þá
mynd. Það var smá skellur fyrir mig. En þá
var það að umboðsmaðurinn minn kom mér í
samband við Chad Stahelski og David Leitch
sem voru þá „stunt“-menn að fara að gera sína
fyrstu bíómynd. Ég var ekki spennt; tveir
áhættuleikarar að fara að gera bíómynd? Ég
hugsaði hvort þetta væri ekki endalok veru
minnar í Hollywood. En ég fer og hitti Chad og
búmm hvað ég var hrifin. Seinna hitti ég svo
David og var jafn hrifin af honum. Við förum
svo að gera myndina John Wick en það var
enginn sem hafði áhuga á þessari mynd og
stúdíóið lét okkur alveg í friði. Við slógumst í
gegnum þetta en við þrjú vorum í þessu og
Keanu Reeves, sem var aðalleikarinn en líka
framleiðandi. Það var rifist og staðið uppi á
borðum og eldhugur í öllum en aldrei leiðindi.
Það vildu bara allir gera bestu mynd í heimi,“
segir Elísabet og bætir við að David hafi í
gamla daga leikið áhættuatriði fyrir Brad Pitt
og Chad hafi verið áhættuleikari fyrir Keanu í
The Matrix.
„Þetta var algjör rússíbanareið, en mjög
skemmtileg,“ segir Elísabet og segir myndina
hafa tekið ár að vinna.
„Myndin John Wick sló í gegn, öllum að
óvörum. Hún er talin „kultmynd“ í dag.“
Dagurinn sem gleymist aldrei
Eftir velgengni myndarinnar John Wick var
leiðin greið.
„Þá opnast svo sannarlega dyr,“ segir El-
ísabet og útskýrir að Chad hafi farið í gerð
myndarinnar John Wick 2 en David í myndina
Atomic Blonde.
„Ég er með þá einföldu reglu sem er bara að
elta konuna. Ef ég þarf að velja á milli þá vel
ég þar sem eru fleiri konur og valdi því Atomic
Blonde en þar er aðalleikarinn kona, Charlize
Theron. Myndin var tekin að mestu upp í
Búdapest þar sem ég dvaldi með börnunum.
Charlize var líka framleiðandi myndarinnar og
hún er bara æðisleg. Skemmtilega kaldhæðin,“
segir hún.
Eftir Atomic Blonde hélt Elísabet til Van-
couver til að vinna að myndinni Deadpool 2
sem Ryan Reynolds lék í og framleiddi.
„Sonur minn Máni var þá fluttur þangað. Ég
á orðið mjög stóra kínverska fjölskyldu þar því
hann giftist henni Joey sem er af kínverskum
ættum. Þarna fékk ég meiri tíma með þeim,“
segir Elísabet.
Allt gekk eins og í sögu þar til einn dag að
lífið snerist á hvolf.
„Slysin gera ekki boð á undan sér. Það varð
svo hræðilegt slys á setti. Þetta var dagur
sem allir myndu vilja gleyma en enginn
gleymir,“ segir Elísabet og segir að ung
kona, Joi Harris, sem var áhættuleikari á
mótorhjóli, hafi keyrt í gegnum glervegg.
Hún lést á staðnum.
„Ég hef horft á tökurnar aftur og aftur og
reynt að átta mig á því sem gerðist. Það var
búið að segja „cut“ og svo sést tómur rammi
því þetta gerist fyrir utan rammann. Við skilj-
um ekki hvað gerðist; þetta var ekki einu sinni
hættulegt atriði,“ segir hún.
„Fólkið á settinu var í sjokki og ekki nóg
með að hún hafi dáið heldur dó þarna maður
daginn áður, á sama horni. Starfsfólkið hafði
verið þar að preppa settið og þá verður þarna
dauðaslys í umferðinni, þegar rúta keyrði á
mann. Þannig að margt af því fólki var í tvö-
földu sjokki; það hafði upplifað að horfa á bæði
slysin.“
Fjórða stigs krabbi
Elísabet segir að starfsfólkið hafi safnast sam-
an eftir slysið.
„Það voru allir í lamasessi. Samstarfsfólk
kom til mín og lá í sófunum hjá mér og grét.
Við ákváðum að panta mat og borða saman og
pöntuðum hamborgara. Eftir matinn fór mér
að líða svo illa og hafði orð á því að þessum
hamborgara hefði ekki líkað við mig. Um
kvöldið fer ég að hitta son minn og tengdadótt-
ur og enn leið mér svo illa. Daginn eftir áttum
við pantað borð á fínum sushi-stað en mér leið
svo hræðilega illa að ég þurfti að fara út.“
Elísabet segist hafa farið til læknis þar sem
henni var sagt að mögulegar ástæður gætu
verið hægðatregða eða brisbólgur. En vanlíð-
an og veikindin ágerðust.
„Svo bara stóð út úr mér gallið. Þá enda ég
inni á spítala og þeir fara að skoða mig betur.
Þá var ég komin með fjórða stigs krabba. Ég
var meira og minna meðvitundarlaus með
næringu í æð. Þetta gerðist svo hratt og allt
stoppast bara af því að brisið er svo mikilvægt.
Það er víst ekkert hægt að fá nýtt bris!“ segir
Elísabet og segir að þetta hafi verið meinvörp
á brisi, um það bil tveir tennisboltar, af völdum
sortuæxlis.
„Ég hafði greinst með sortuæxli rúmu hálfu
ári áður, hér heima. Það sást ekki á húð, held-
ur fannst æxli sem var í eitli og var eitillinn
tekinn. En þá var mér sagt að það hefði ekki
fundist neitt meira krabbamein.“
Sex mánuðir, hámark
Þegar þarna var komið var staðan graf-
alvarleg; Elísabet lá milli heims og helju á
sjúkrahúsi í Vancouver og útlitið ekki bjart.
„Ég var strax viss um að ég myndi deyja
þegar Máni keyrði mig fyrst á sjúkrahúsið. Ég
sat í bílnum og þuldi upp pin-númer og „pass-
word“ á reikningum fyrir Mána. Það er svo
skrítið hvernig maður bregst við,“ segir hún
og bætir við: „Þetta gæti verið gott atriði í bíó-
mynd; deyjandi móðirin í bílnum að þylja upp
„password“,“ segir hún og hlær.
En varstu ekki í sjokki?
„Nei, ég var alveg sátt. Þetta var allt í fína.
Ég hafði áhyggjur af Loga, af því hann er
yngstur. Ég var alveg undir það búin að deyja.
En það var ekkert búið að segja mér að ég
væri að deyja. Þetta var bara mín upplifun.
Svo var ég komin á spítala og fékk sterk
verkjalyf, stera og næringu í æð. Mána var þá
sagt að þeir gæfu mér sex mánuði,“ segir hún.
„Sex mánuðir, hámark. Þeir ætluðu að sjá til
þess að ég myndi ekki þjást.“
Tökulið myndarinnar var að vonum í áfalli
yfir þessum fréttum. Ekki nóg með að þau
misstu góða konu í hræðilegu slysi, heldur lá
nú Elísabet dauðvona á spítala en þar lá hún
fárveik í tvo og hálfan mánuð.
„Samstarfsmennirnir sögðu bara; þetta
kemur ekki til greina!“ segir hún og segir
framleiðandann Kelly McCormick hafa lagst í
rannsóknarvinnu og fundið tvo lækna sem
voru sérfræðingar, annar í sortuæxlum, dokt-
or Hamid, og hinn í brisi.
„Máni greyið þurfti að taka ákvörðun um
hvorn lækninn ætti að velja. Máni sagði mér
seinna frá því að hann hefði setið frammi á
gangi á spítalanum, með þessi tvö nöfn á blaði.
Þá gengur fram hjá honum maður með nafn-
spjald sem á stendur Dr. Hamid. Þá var komið
teikn; hann valdi Hamid,“ segir hún en sá
læknir er sérfræðingur á Cedars-Sinai einka-
spítala í L.A.
Í sjúkraflugi á einkaspítala
„Þá átti eftir að koma mér þangað frá Vancou-
ver.“
Elísabet segir að þá hafi komið í ljós að
sjúkratryggingar dygðu ekki fyrir sjúkraflugi
en hún var svo veik að ekkert annað kæmi til
greina.
„Ryan, Kelly og David slógu saman og borg-
uðu undir mig sjúkraflug, en ég man auðvitað
ekkert eftir því. Ryan er dásamlegur maður og
hafði hringt í Dr. Hamid og boðið honum að
halda Deadpool-partí fyrir son hans ef hann
tæki við mér. Hamid sagði seinna að hann
hefði auðvitað alltaf tekið við mér, en þótt
gaman að athyglinni,“ segir hún og brosir.
Máni og Joey fylgdu Elísabetu og tóku sér
næstum ár í að sinna henni í veikindunum en
Dr. Hamid tókst að koma Elísabetu aftur á
fætur. Hin börnin þrjú voru heima á Íslandi og
segir Elísabet að þau hafi ekki fengið að vita
hversu alvarleg veikindin voru fyrr en löngu
síðar.
„Læknarnir notuðu aðferð sem nóbels-
verðlaun voru veitt fyrir,“ segir Elísabet en
meinið var ekki skurðtækt. Hún lá á þessum
fína einkaspítala í fjórar vikur og segir Dr. Ha-
mid hafa verið frábæran lækni sem ráðlagði
henni að vera bjartsýn því svartsýni gerði
henni ekkert gott.
„Ég hlustaði bara á hann og líkaminn tók vel
við meðferðinni.“
Eftir að Elísabet var útskrifuð af spít-
alanum var hún afar máttfarin. Hún segist
hafa safnað þreki smátt og smátt, en fyrstu
dagana gat hún aðeins gengið í örfáar mínútur
í senn.
Ég vaknaði heil
„En ég byrjaði fljótt að vinna aftur við
Deadpool. Á meðan ég var veik höfðu verið
ráðnir þrír aðrir klipparar,“ segir Elísabet og
segist minna framleiðendur reglulega á það í
gríni að það þurfi þrjá klippara fyrir sig eina.
„Krakkarnir komu út og við héldum jól sam-
an og þá sagði ég þeim þá frá öllu saman. En
það var samt ekkert fyrr en löngu seinna að ég
komst að því að ég hefði fengið dauðadóm; það
gleymdist alveg að segja mér það, enda var ég
svo út úr heiminum,“ segir Elísabet og segist
hafa verið lengi á miklum lyfjum.
Elísabet hefur í nógu að snúast. Hún er
nú að klippa stórmynd fyrir Sony sem
heitir Bullet Train en er nýkomin frá
Ástralíu og L.A. þar sem hún vann við
að klippa tvær myndir, Shang-Chi fyrir
Marvel og Kate fyrir Netflix.
’Ég er afar þakklát fyrir aðvera á lífi, en ég er ekkert betrimanneskja og hef engar háleitarhugmyndir um göfugan tilgang.
Ég hef ekki endurskoðað líf mitt
eða hugleitt hvar ég væri stödd.
Ég er bara sami kjáninn og alltaf.
VIÐTAL