Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.3. 2021 Uppskrift að helvíti „Ég flutti síðar til Malmö í Svíþjóð, eftir að Sindri fæðist, en vann þá í Danmörku. Ég fór til að klippa og átti bara að vera eitt sumar en það endaði með sjö árum. Svo fæddist Birta í Svíþjóð og Logi stuttu eftir að við fluttum heim til Íslands.“ Eftir heimkomuna frá Svíþjóð vann Elísabet að bíómyndum hérlendis en íslensk kvik- myndagerð var þá að sækja í sig veðrið þó að stundum hafi gengið brösuglega. Og þrátt fyr- ir að vera nú búin „að meika það“ í útlöndum, segist hún ekki enn vera komin með digran sjóð. „Nei, og það eru margar ástæður fyrir því. Í fyrsta lagi vann ég við íslenska kvikmynda- gerð í þrjátíu ár, áður en ég fór að meika það erlendis, þar sem við vorum bara sett á eyrina með þessu virðisaukaskattskerfi. Í gamla daga voru fyrirtæki að fara á hausinn hægri vinstri og maður var að skrifa út reikninga sem mað- ur fékk ekki greidda en þurfti að standa skil á virðisaukaskattinum. Þetta var uppskrift að helvíti fyrir einstæðar mæður í Vestur- bænum,“ segir Elísabet og segir oft hafa verið erfitt að ná endum saman. „Var til nóg fyrir leigunni, átti ég fyrir mjólk? Svo uxu framleiðslufyrirtækin upp úr barnsskónum og urðu stöndugri, þrátt fyrir áframhaldandi opinbert fjársvelti. En það var bara þannig að launin rétt héldu manni á floti.“ Að fljúga með alla út um allt Datt þér aldrei í hug að hætta í bransanum og fara bara að vinna aftur sem ritari skattrann- sóknarstjóra? „Jú, mér datt það endalaust í hug og hugsaði það í raun eftir hvert einasta verkefni. Ég var rétt að koma undir mig fótunum þegar hrunið varð. Þá sá ég ekki fram á að geta framfleytt þessum barnahópi. Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera en fékk þá tilboð að fara til Singapúr að kenna kvikmyndagerð. Ég hoppaði á það og sá þarna leið út úr veseninu, en þetta var um viku eftir „Guð blessi Ísland“,“ segir Elísabet sem pakkaði saman og var komin um borð í flugvél stuttu síðar. „Ég man að ég sat í vélinni og hugsaði: „hvern andskotinn er ég búin að gera?“,“ segir hún og hlær. Eftir sex mánuði með börnin í Singapúr fékk Elísabet tilboð um að klippa Contraband fyrir Baltasar. „Við flugum þá beint frá Singapúr til New Orleans, ég börnin og au-pair, en börnin þvældust með mér út um allt þar til Birtan mín fór í menntaskóla,“ segir hún og segir þau einnig hafa dvalið í London vegnar mynd- arinnar. „Þetta er ástæðan fyrir að ég verð aldrei rík; ég er alltaf að fljúga með alla út um allt!“ segir hún og segist ánægð með að hafa geta gefið börnunum sínum gott líf og það í ýmsum lönd- um. „Þau eru svo víðsýn og skemmtileg. Mér finnst gott að hafa gefið þeim þetta veganesti. Þau eru svo óhrædd og mér finnst það dásam- legt.“ Þú ert klipparinn með strolluna á eftir þér? „Já, ég kalla þetta mitt „entourage“. Holly- wood-leikarar eru alltaf með svona föruneyti á eftir sér,“ segir hún og hlær. Algjör rússibanareið Þegar Elísabet var við vinnu í L.A. kynntist hún ungum manni sem vann sem aðstoðar- maður á setti. „Hann sótti kaffi fyrir tökufólkið meðal ann- ars. Ég hafði alltaf verið voða næs við þennan dreng því ég átti sjálf svo marga drengi á svip- uðum aldri. Það kom svo í ljós að móðir hans var yfirmaður hjá Universal. Hann segir greinilega mömmu sinni frá mér og þau ákveða að ég verði að hitta klipparann Dody Dorn,“ segir Elísabet. „Við erum góðar vinkonur í dag, en þarna var sem sagt sett upp deit fyrir okkur og við hittumst yfir kvöldmat. Ég var algjörlega „starstruck“ því hún hefur klippt margar af mínum uppáhaldsmyndum. Við sátum yfir kvöldmat fram eftir kvöldi og skemmtum okk- ur vel og daginn eftir hafði hún samband við umboðsmanninn sinn og segir þeim að tékka á mér. Þannig að ég fæ allt í einu boð að mæta á risastóra umboðsmannaskrifstofu á fund með þremur umboðsmönnum,“ segir Elísabet. Stuttu síðar var hún komin þar á samning. „Svo leið heilt ár. Á þeim tíma var nafla- strengurinn enn tengdur við Baltasar og hann fór að gera HBO-þætti og ég fór með honum til Búdapest að taka upp og þaðan aftur til L.A. að klára,“ segir hún. „Svo fer Baltasar að gera Two Guns og ákveður að ég sé ekki rétti klipparinn fyrir þá mynd. Það var smá skellur fyrir mig. En þá var það að umboðsmaðurinn minn kom mér í samband við Chad Stahelski og David Leitch sem voru þá „stunt“-menn að fara að gera sína fyrstu bíómynd. Ég var ekki spennt; tveir áhættuleikarar að fara að gera bíómynd? Ég hugsaði hvort þetta væri ekki endalok veru minnar í Hollywood. En ég fer og hitti Chad og búmm hvað ég var hrifin. Seinna hitti ég svo David og var jafn hrifin af honum. Við förum svo að gera myndina John Wick en það var enginn sem hafði áhuga á þessari mynd og stúdíóið lét okkur alveg í friði. Við slógumst í gegnum þetta en við þrjú vorum í þessu og Keanu Reeves, sem var aðalleikarinn en líka framleiðandi. Það var rifist og staðið uppi á borðum og eldhugur í öllum en aldrei leiðindi. Það vildu bara allir gera bestu mynd í heimi,“ segir Elísabet og bætir við að David hafi í gamla daga leikið áhættuatriði fyrir Brad Pitt og Chad hafi verið áhættuleikari fyrir Keanu í The Matrix. „Þetta var algjör rússíbanareið, en mjög skemmtileg,“ segir Elísabet og segir myndina hafa tekið ár að vinna. „Myndin John Wick sló í gegn, öllum að óvörum. Hún er talin „kultmynd“ í dag.“ Dagurinn sem gleymist aldrei Eftir velgengni myndarinnar John Wick var leiðin greið. „Þá opnast svo sannarlega dyr,“ segir El- ísabet og útskýrir að Chad hafi farið í gerð myndarinnar John Wick 2 en David í myndina Atomic Blonde. „Ég er með þá einföldu reglu sem er bara að elta konuna. Ef ég þarf að velja á milli þá vel ég þar sem eru fleiri konur og valdi því Atomic Blonde en þar er aðalleikarinn kona, Charlize Theron. Myndin var tekin að mestu upp í Búdapest þar sem ég dvaldi með börnunum. Charlize var líka framleiðandi myndarinnar og hún er bara æðisleg. Skemmtilega kaldhæðin,“ segir hún. Eftir Atomic Blonde hélt Elísabet til Van- couver til að vinna að myndinni Deadpool 2 sem Ryan Reynolds lék í og framleiddi. „Sonur minn Máni var þá fluttur þangað. Ég á orðið mjög stóra kínverska fjölskyldu þar því hann giftist henni Joey sem er af kínverskum ættum. Þarna fékk ég meiri tíma með þeim,“ segir Elísabet. Allt gekk eins og í sögu þar til einn dag að lífið snerist á hvolf. „Slysin gera ekki boð á undan sér. Það varð svo hræðilegt slys á setti. Þetta var dagur sem allir myndu vilja gleyma en enginn gleymir,“ segir Elísabet og segir að ung kona, Joi Harris, sem var áhættuleikari á mótorhjóli, hafi keyrt í gegnum glervegg. Hún lést á staðnum. „Ég hef horft á tökurnar aftur og aftur og reynt að átta mig á því sem gerðist. Það var búið að segja „cut“ og svo sést tómur rammi því þetta gerist fyrir utan rammann. Við skilj- um ekki hvað gerðist; þetta var ekki einu sinni hættulegt atriði,“ segir hún. „Fólkið á settinu var í sjokki og ekki nóg með að hún hafi dáið heldur dó þarna maður daginn áður, á sama horni. Starfsfólkið hafði verið þar að preppa settið og þá verður þarna dauðaslys í umferðinni, þegar rúta keyrði á mann. Þannig að margt af því fólki var í tvö- földu sjokki; það hafði upplifað að horfa á bæði slysin.“ Fjórða stigs krabbi Elísabet segir að starfsfólkið hafi safnast sam- an eftir slysið. „Það voru allir í lamasessi. Samstarfsfólk kom til mín og lá í sófunum hjá mér og grét. Við ákváðum að panta mat og borða saman og pöntuðum hamborgara. Eftir matinn fór mér að líða svo illa og hafði orð á því að þessum hamborgara hefði ekki líkað við mig. Um kvöldið fer ég að hitta son minn og tengdadótt- ur og enn leið mér svo illa. Daginn eftir áttum við pantað borð á fínum sushi-stað en mér leið svo hræðilega illa að ég þurfti að fara út.“ Elísabet segist hafa farið til læknis þar sem henni var sagt að mögulegar ástæður gætu verið hægðatregða eða brisbólgur. En vanlíð- an og veikindin ágerðust. „Svo bara stóð út úr mér gallið. Þá enda ég inni á spítala og þeir fara að skoða mig betur. Þá var ég komin með fjórða stigs krabba. Ég var meira og minna meðvitundarlaus með næringu í æð. Þetta gerðist svo hratt og allt stoppast bara af því að brisið er svo mikilvægt. Það er víst ekkert hægt að fá nýtt bris!“ segir Elísabet og segir að þetta hafi verið meinvörp á brisi, um það bil tveir tennisboltar, af völdum sortuæxlis. „Ég hafði greinst með sortuæxli rúmu hálfu ári áður, hér heima. Það sást ekki á húð, held- ur fannst æxli sem var í eitli og var eitillinn tekinn. En þá var mér sagt að það hefði ekki fundist neitt meira krabbamein.“ Sex mánuðir, hámark Þegar þarna var komið var staðan graf- alvarleg; Elísabet lá milli heims og helju á sjúkrahúsi í Vancouver og útlitið ekki bjart. „Ég var strax viss um að ég myndi deyja þegar Máni keyrði mig fyrst á sjúkrahúsið. Ég sat í bílnum og þuldi upp pin-númer og „pass- word“ á reikningum fyrir Mána. Það er svo skrítið hvernig maður bregst við,“ segir hún og bætir við: „Þetta gæti verið gott atriði í bíó- mynd; deyjandi móðirin í bílnum að þylja upp „password“,“ segir hún og hlær. En varstu ekki í sjokki? „Nei, ég var alveg sátt. Þetta var allt í fína. Ég hafði áhyggjur af Loga, af því hann er yngstur. Ég var alveg undir það búin að deyja. En það var ekkert búið að segja mér að ég væri að deyja. Þetta var bara mín upplifun. Svo var ég komin á spítala og fékk sterk verkjalyf, stera og næringu í æð. Mána var þá sagt að þeir gæfu mér sex mánuði,“ segir hún. „Sex mánuðir, hámark. Þeir ætluðu að sjá til þess að ég myndi ekki þjást.“ Tökulið myndarinnar var að vonum í áfalli yfir þessum fréttum. Ekki nóg með að þau misstu góða konu í hræðilegu slysi, heldur lá nú Elísabet dauðvona á spítala en þar lá hún fárveik í tvo og hálfan mánuð. „Samstarfsmennirnir sögðu bara; þetta kemur ekki til greina!“ segir hún og segir framleiðandann Kelly McCormick hafa lagst í rannsóknarvinnu og fundið tvo lækna sem voru sérfræðingar, annar í sortuæxlum, dokt- or Hamid, og hinn í brisi. „Máni greyið þurfti að taka ákvörðun um hvorn lækninn ætti að velja. Máni sagði mér seinna frá því að hann hefði setið frammi á gangi á spítalanum, með þessi tvö nöfn á blaði. Þá gengur fram hjá honum maður með nafn- spjald sem á stendur Dr. Hamid. Þá var komið teikn; hann valdi Hamid,“ segir hún en sá læknir er sérfræðingur á Cedars-Sinai einka- spítala í L.A. Í sjúkraflugi á einkaspítala „Þá átti eftir að koma mér þangað frá Vancou- ver.“ Elísabet segir að þá hafi komið í ljós að sjúkratryggingar dygðu ekki fyrir sjúkraflugi en hún var svo veik að ekkert annað kæmi til greina. „Ryan, Kelly og David slógu saman og borg- uðu undir mig sjúkraflug, en ég man auðvitað ekkert eftir því. Ryan er dásamlegur maður og hafði hringt í Dr. Hamid og boðið honum að halda Deadpool-partí fyrir son hans ef hann tæki við mér. Hamid sagði seinna að hann hefði auðvitað alltaf tekið við mér, en þótt gaman að athyglinni,“ segir hún og brosir. Máni og Joey fylgdu Elísabetu og tóku sér næstum ár í að sinna henni í veikindunum en Dr. Hamid tókst að koma Elísabetu aftur á fætur. Hin börnin þrjú voru heima á Íslandi og segir Elísabet að þau hafi ekki fengið að vita hversu alvarleg veikindin voru fyrr en löngu síðar. „Læknarnir notuðu aðferð sem nóbels- verðlaun voru veitt fyrir,“ segir Elísabet en meinið var ekki skurðtækt. Hún lá á þessum fína einkaspítala í fjórar vikur og segir Dr. Ha- mid hafa verið frábæran lækni sem ráðlagði henni að vera bjartsýn því svartsýni gerði henni ekkert gott. „Ég hlustaði bara á hann og líkaminn tók vel við meðferðinni.“ Eftir að Elísabet var útskrifuð af spít- alanum var hún afar máttfarin. Hún segist hafa safnað þreki smátt og smátt, en fyrstu dagana gat hún aðeins gengið í örfáar mínútur í senn. Ég vaknaði heil „En ég byrjaði fljótt að vinna aftur við Deadpool. Á meðan ég var veik höfðu verið ráðnir þrír aðrir klipparar,“ segir Elísabet og segist minna framleiðendur reglulega á það í gríni að það þurfi þrjá klippara fyrir sig eina. „Krakkarnir komu út og við héldum jól sam- an og þá sagði ég þeim þá frá öllu saman. En það var samt ekkert fyrr en löngu seinna að ég komst að því að ég hefði fengið dauðadóm; það gleymdist alveg að segja mér það, enda var ég svo út úr heiminum,“ segir Elísabet og segist hafa verið lengi á miklum lyfjum. Elísabet hefur í nógu að snúast. Hún er nú að klippa stórmynd fyrir Sony sem heitir Bullet Train en er nýkomin frá Ástralíu og L.A. þar sem hún vann við að klippa tvær myndir, Shang-Chi fyrir Marvel og Kate fyrir Netflix. ’Ég er afar þakklát fyrir aðvera á lífi, en ég er ekkert betrimanneskja og hef engar háleitarhugmyndir um göfugan tilgang. Ég hef ekki endurskoðað líf mitt eða hugleitt hvar ég væri stödd. Ég er bara sami kjáninn og alltaf. VIÐTAL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.