Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Síða 13
7.3. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Knús og kossarKnús og kossar
Það var svo um ári síðar að meinið var orðið
það lítið að það var orðið skurðtækt, en El-
ísabet ákvað í samráði við Dr. Hamid að bíða
og sjá hvort lyfin myndu halda áfram að virka,
enda var aðgerðin afar stór og flókin.
„Svo fór krabbinn alveg og það var mikil
gleði. Þetta var í nóvember 2019. Ég fór þá í
fyrirbyggjandi meðferð en krassaði. Ónæmis-
kerfið hrundi og nýrnahetturnar steiktust
þannig að þær eru óstarfhæfar.“
Elísabet var lögð beint inn á gjörgæslu, enda
með óráði og fárveik. Hún segist hafa vaknað
eftir tvo daga öll marin og blá, enda hafði hún
slegist við alla þegar leggja átti hana inn.
„Ég man ekkert eftir þessu. Ég komst að
því að nýrnahettur halda manni heilum á geði
sem ég var alls ekki þarna! Hver er að tala um
nýrnahettur? Það er allur fókus á heila, lungu
og hjarta,“ segir Elísabet og segir læknana
hafa sagt aðstandendum að það væri mögu-
leiki á heilaskemmdum.
„En ég vaknaði heil. Ef ég er með heila-
skemmdir hefur enginn tekið eftir því,“ segir
Elísabet sposk.
„Það er búið að leggja ýmislegt á þennan
líkama en ég stend enn! Mér líður bara vel í
dag.“
Föst í Ástralíu
Elísabetu var boðin vinna við að klippa Mar-
vel-mynd sem hún þáði.
„Myndin heitir Shang-Chi og var tekin upp í
Ástralíu og við fórum þangað í janúar 2020.
Svo skall Covid á og allt fór í óvissu og vesen,“
segir Elísabet sem átti upphaflega að vera í
Ástralíu í um tvo mánuði. Það átti eftir að
teygjast úr því.
„Að hluta til vorum við lokuð inni en svo
vissi heldur enginn hvað væri að fara að ger-
ast. Það var ekki auðvelt að taka ákvarðanir á
þessum tíma, en þetta er auðvitað mörg
hundruð milljón dollara framleiðsla. Marvel
segir okkur svo að þeir þurfi að setja okkur í
frí en við mættum ekki fara úr landi. Á sama
tíma fékk ég verkefni hjá Netflix sem ég ákvað
að vinna við í fríinu og fékk samþykki hjá Mar-
vel fyrir því. Netflix sendi mér myndina en það
fór svo að Marvel sendi okkur svo aldrei í frí.
Þannig að á endanum var ég að klippa tvær
bíómyndir, Marvel-myndina á daginn og Net-
flix-myndina, Kate, á kvöldin. Það var rosa
gaman og brjálað að gera í Ástralíu!“ segir El-
ísabet sem naut þess að búa í Sydney.
„Það endaði með því að ég var eini gesturinn
á þessu íbúðahóteli og fékk í verðlaun pent-
house-íbúðina. Ég var þarna í miklum lúxus og
hálfskammaðist mín,“ segir Elísabet og segist
hafa verið afar þakklát að hafa yfirhöfuð haft
vinnu á þessum skrítnu tímum. Elísabet var
heldur ekki alveg ein í útlegðinni því Sindri
sonur hennar var á heimsferðarlagi og rétt
náði til Ástralíu áður en landamærin lokuðust.
Hann varð svo hrifinn af landinu að hann er
þar enn.
Frá Ástralíu hélt hún til L.A. til að klára
vinnuna við Marvel-myndina en á þessu ári
bjuggu Birta og Logi, yngstu börnin, ein á Ís-
landi.
„Það var auðvitað aldrei planið en þau stóðu
sig rosalega vel. En nú er ég komin heim og
það er allt í góðu standi. Þau eru svo sem engin
börn lengur. Við erum öll svo yndislega náin
og svo á ég líka þrettán ára barnabarn, hann
Ronald, sem er mikið með okkur.“
Er sátt í sjálfri mér
Nýjasta verkefni Elísabetar er að klippa mynd-
ina Bullet Train sem Sony framleiðir; hasar-
spennumynd með Brad Pitt og Söndru Bullock.
„Planið var svo að fara til Vancouver og
klára myndina þar en vegna Covid gekk ekki
að koma fólki þangað. Þeir báðu fólk að vinna
heiman frá og ég benti þeim kurteislega á það
að heiman frá þýddi Ísland fyrir mig. Og þeir
bara samþykktu það!“ segir Elísabet sem
bendir á að kvikmyndaverin vilji yfirleitt alls
ekki senda efni sitt á milli landa af hræðslu við
stuld. Þá kemur sér vel að vera við hlið lög-
reglunnar í Reykjavík!
„Ég sendi þeim mynd af löggustöðinni
hérna beint á móti, til að róa þau,“ segir hún og
hlær.
„Þannig að ég leigði mér þessa skrifstofu og
hef nóg að gera. Ég hef ekki verið heima hjá
mér í mörg mörg ár!“ segir hún og er yfir sig
glöð að fá að vera heima. Hún segist vonast
eftir að vinnulag sé breytt til frambúðar vegna
kórónuveirunnar því þá geti hún búið meira á
Íslandi.
„Það væri mikill munur fyrir mig að geta
kannski verið heima hálft árið og unnið úti
hinn helminginn.“
Elísabet segist ekki vita hvaða verkefni bíði
hennar eftir Bullet Train en hefur engar
áhyggjur.
„Þá fer ég bara að skúra gólf ef ég þarf. Ég
lærði snemma að bjarga mér og ég held því
áfram.“
Er klipparastarfið einmanalegt starf?
„Nei. En alveg örugglega fyrir suma. Mér
líkar ekkert sérstaklega vel við fólk, svona al-
mennt,“ segir hún og hlær.
„Ég er alveg sátt við að loka bara hurðinni
og vera ein. Það er gott að flýja hingað inn.“
Af hverju líkar þér ekki við fólk?
„Nei, nei, ég er nú bara að grínast. Það væri
ekki hægt að vinna þessa vinnu án þess að líka
við fólk. En ég er sátt í sjálfri mér og mér hef-
ur aldrei leiðst.“
Hef ekki endurskoðað líf mitt
Við endum spjallið inni á krúttlegu kaffihúsi í
nágrenninu. Elísabet býður upp á kaffibolla og
það fer vel um okkur í mjúkum bleikum sófa.
Talið berst aftur að veikindinum.
Elísabet segist vera sama manneskja og hún
var fyrir veikindin. Hún hafi ekkert breyst.
„Þess er næstum því krafist að maður
verði betri manneskja eða öðlist æðri tilgang
í lífinu eftir lífsbjörg. Ég er afar þakklát fyr-
ir að vera á lífi, en ég er ekkert betri mann-
eskja og hef engar háleitar hugmyndir um
göfugan tilgang. Ég hef ekki endurskoðað líf
mitt eða hugleitt hvar ég væri stödd. Ég er
bara sami kjáninn og alltaf. En kannski var
ég barasta ekkert slæm manneskja fyrir og
kannski er ég bara stödd á réttum stað í líf-
inu.“
Elísabet á nóg inni og líklega bíða hennar
fleiri ævintýri úti í hinum stóra heimi þótt nú
líði henni vel á litlu skrifstofunni hjá löggu-
stöðinni. Svo er aldrei að vita nema hún vendi
kvæði sínu í kross og sýni á sér aðrar hliðar.
Ætlar þú kannski að skrifa handrit?
„Hver er ekki að skrifa handrit! Ég er alltaf
með það í huganum, en svo er það vinnan og
börnin. Allt hefur sinn tíma og þegar hægist á
honum mun ég koma mér fyrir með tebolla og
skrifa.“
Morgunblaðið/Ásdís
Elísabet er hér ásamt David Leitch og Kelly McCormick, leikstjóra og framleiðanda Atomic Blonde.
Þau borguðu sjúkraflug undir Elísabetu ásamt Ryan Reynolds þegar hún lá fárveik af krabbameini.
Börnin Sindri, Birta, Logi og Máni
hafa þvælst víða með mömmu
sinni og oft hefur barnabarnið
Ronald verið með í för.