Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Side 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.3. 2021 HANDBOLTI FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 AFGREIÐSLUTÍMI Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16 www.betrabak.is SERTA SINFONIA HEILSURÚM Í stærðunum 120 & 140 x 200 cm. MEÐ COMFORT BOTNI OG FÓTUM STÆRÐ FULLT VERÐ FERM.TILBOÐ 120x200 cm 169.040 kr. 135.232 kr. 140x200 cm 195.620 kr. 156.469 kr. CHIRO UNIVERSE HEILSURÚM Í stærðunum 120 & 140 x 200 cm. MEÐ COMFORT BOTNI OG FÓTUM STÆRÐ FULLT VERÐ FERM.TILBOÐ 120x200 cm 156.620 kr. 125.296 kr. 140x200 cm 171.620 kr. 137.296 kr. AFSLÁTTUR 20% SINFONIA OG CHIRO UNIVERSE Þ að er gott að búa í Kópavogi, sagði maðurinn. Gunnlaugur Hjálm- arsson tekur heilshugar undir það enda hefur hann verið búsettur í bænum frá árinu 1962, á fimm ólíkum stöðum. Íbúðin sem hann býr í núna, ásamt eiginkonu sinni, Guðnýju Andrésdóttur, var áður í eigu foreldra hans. „Þetta er enda- stöðin,“ segir hann sposkur á svip. Til að full- komna húsakapalinn þá býr Andrés, sonur Gunnlaugs og Guðnýjar, núna í húsinu sem þau voru í áður. Þessar upplýsingar koma fram meðan Gunnlaugur sækir handa mér ropvatn. „Ertu þá alinn hérna upp?“ spyr ég í hálfkæringi. „Alinn upp?“ spyr Gunnlaugur og undrunar gætir í röddinni. „Nei, ég var alls ekki alinn upp. Það var vissulega reynt en tókst ekki betur en raun ber vitni!“ Hann glottir. Þessu trúir maðurinn mér fyrir þegar ekki eru liðnar fimm mínútur frá því að við hitt- umst. Hér hlýtur áhugavert samtal að vera í uppsiglingu! Tilefni heimsóknar minnar er merkilegt en um þessar mundir eru sextíu ár liðin frá því að Ísland hafnaði í sjötta sæti á heimsmeist- aramótinu í handbolta í Vestur-Þýskalandi sem var besti árangur okkar til þess tíma. Hann var raunar ekki jafnaður fyrr en 25 árum síðar og ekki bættur fyrr en 37 árum síðar, þegar Ísland náði fimmta sæti á HM í Japan 1998. Gunn- laugur var máttarstólpi í liðinu 1961, ásamt mönnum á borð við Hjalta Einarsson, Ragnar Jónsson, Birgi Björnsson og Karl Jóhannsson. Hann gerði samtals 22 mörk á mótinu í fimm leikjum sem skilaði honum í þriðja til fjórða sæti yfir markahæstu menn; tveir leikmenn skoruðu 24 mörk. Að móti loknu var Gunn- laugur valinn í heimsliðið, fyrstur Íslendinga. Aðstaðan ekki upp á marga fiska Ísland tók fyrst þátt í HM í handbolta árið 1958 og var Gunnlaugur í liðinu þá, á tutt- ugasta aldursári. Viðunandi árangur náðist á mótinu, tíunda sæti af 16 liðum, og menn stað- ráðnir í að byggja á því. Aðstaðan var þó ekki upp á marga fiska og Gunnlaugur minnist æfinga í KR-heimilinu, þar sem leikið var þvert á eitt mark. Það þætti líklega ekki boðlegt í dag. Árið 1960 hljóp hins vegar á snærið hjá landsliðinu þegar því bauðst að æfa í íþróttahúsi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli sem bjó að handboltavelli í fullri stærð. Gunnlaugur segir það hafa verið fyrir milligöngu eins landsliðsmannanna, Karls Benediktssonar, sem vann hjá verktaka á Vellinum. „Það var til mikilla bóta enda húsið virkilega flott,“ segir Gunnlaugur en það gera sér líklega ekki allir grein fyrir þætti Banda- ríkjamanna, þeirrar miklu handboltaþjóðar, eða þannig, í árangrinum á HM 1961. Þess má geta að Laugardalshöllin var ekki vígð fyrr en í desember 1965. „Hún breytti öllu,“ segir Gunnlaugur, „og óhætt að tala um byggingu Laugardalshallarinnar sem mesta afrekið í sögu íslensks handknattleiks. Hún var búin að standa fokheld í nokkur ár þegar við tókum nokkrir af skarið; ég, Karl Bene- diktsson, Birgir Björnsson FH-ingur og Sig- urður Jónsson, formaður HSÍ. Hefðum við ekki gert það stæði hún líklega ennþá fok- held.“ Hann glottir. Menn lögðu mikið á sig til að sækja æfing- arnar á Vellinum. „Rútan fór frá BSÍ klukkan korter yfir sjö að kvöldi og maður mátti hafa sig allan við til að ná henni enda var ég ekki búinn að vinna fyrr en korter í sjö,“ rifjar Gunnlaugur upp en hann starfaði alla tíð sem trésmiður. „Við vorum yfirleitt ekki komnir til baka fyrr en um miðnætti og þá átti ég eftir að ganga heim í Laugarneshverfið. Síðan þurfti maður að vakna eldsnemma um morguninn í vinnu.“ – Það hefur ekki verið tími fyrir margt ann- að á þessum árum? „Ekki aldeilis. Ég er stundum spurður hvers vegna ég eignaðist bara tvö börn. Svarið er augljóst: Ég hafði ekki tíma til þess!“ Hann hlær. Menn lögðu hart að sér Einnig var mikið um þrekæfingar hjá Bene- dikt Jakobssyni í íþróttahúsi háskólans enda þótt tæki og tól væru af skornum skammti á þeim tíma. „Við vorum í mjög góðu formi og menn lögðu hart að sér,“ segir Gunnlaugur. „Sérstaklega með tilliti til þess að allir vorum við í vinnu og margir að stofna heimili. Hand- boltinn var meira hobbí en alvara.“ Lítið var um landsleiki á þessum árum; Gunnlaugur var fastamaður í liðinu um tíu ára skeið og lék hvern einasta landsleik. Þeir urðu þó ekki nema 46 talsins. Menn eru ekki lengi að ná þeim fjölda í dag. Stundum komu fé- lagslið hingað til keppni og einhver íslensk lið fóru utan í æfingaferðir, eins og ÍR, lið Gunn- laugs, gerði árið 1957. Ekki vó það þó þungt þegar á hólminn var komið í Vestur-Þýskalandi í mars 1961. „Við vorum eins og sveitamenn; renndum svo að segja blint í sjóinn. En eftirvæntingin var mik- il,“ segir Gunnlaugur. Sveit manna fylgir íslenska landsliðinu á stórmót í dag en 1961 voru það aðeins leik- mennirnir þrettán, Hallsteinn Hinriksson landsliðsþjálfari og Ásbjörn Sigurjónsson, for- maður HSÍ, sem fóru utan. „Sjúkrakassinn var eins og við þekkjum úr bílum,“ segir Gunn- laugur. – Gerðuð þið ykkur einhverjar vonir um ár- angur? „Nei, alls ekki. Þetta voru meira og minna hermenn í hinum liðunum, mjög vel á sig komnir. Atvinnumenn þess tíma.“ Eðalmaður og mannþekkjari Gunnlaugur ber Hallsteini landsliðsþjálfara vel söguna. „Hann er náttúrlega faðir hand- boltans á Íslandi. Mikill eðalmaður og mann- þekkjari. Hallsteinn var alltaf jákvæður og hvetjandi; hallaði aldrei orði á nokkurn leik- mann.“ Sonur Hallsteins, Örn, var í landsliðinu 1961 og síðar átti annar sonur hans, Geir, eftir að gera garðinn frægan með liðinu. Eins og flestir vita er hann faðir Loga sem var í silfurliði Íslands á Ólympíuleikunum í Peking 2008. Sálfræðistríðið hófst strax við komuna til Vestur-Þýskalands. „Við vorum samferða Dönum, sem við áttum að mæta í fyrsta leik, í rútunni á hótelið sem liðin voru saman á. Dan- irnir gerðu stanslaust grín að okkur á leiðinni en ég svaraði því til að við myndum sjá þá aft- ur – ef þeir kæmust áfram.“ Ísland steinlá í fyrsta leik gegn Dönum, 24:13. „Við skíttöpuðum, áttum aldrei mögu- leika,“ rifjar Gunnlaugur upp. Danir kveinkuðu sér undan grófum leik Ís- lendinga. Berlingske Tidende sagði leikinn hafa minnt mest á slagsmál. Ennfremur sagði (í endursögn Morgunblaðsins): „Við urðum fyrir vonbrigðum með íslenzka liðið, sér- staklega með tilliti til framkomu þess á leik- velli, þeir urðu fljótt reiðir og um leið óvinsælir meðal áhorfenda, sérstaklega var þetta áber- andi hjá einum sóknarleikmanni Íslendinga – og ef hann hefði slegið jafn oft og hann steytti hnefana, hefðu Danirnir sjálfsagt allir legið í valnum að leikslokum.“ Gunnlaugur staðfestir að leikurinn hafi ver- ið harður. „Já, já, við tókum vel á þeim. Við vorum með allt annan stíl en Danir; spiluðum „Mesti sigur sem íslenzkt flokkalið hefur hlotið“ Það vakti óskipta athygli í handboltaheiminum þegar litla Ísland gerði sér lítið fyrir og hafnaði í sjötta sæti á HM í Vestur-Þýskalandi 1961. Árangur sem strákarnir okkar bættu ekki fyrr en 37 árum síðar. Gunnlaugur Hjálmarsson var máttarstólpi í þessu liði; varð þriðji markahæstur á mótinu og var valinn í heimsliðið, fyrstur Íslendinga. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Við vorum yfirleitt ekkikomnir til baka fyrr en ummiðnætti og þá átti ég eftir aðganga heim í Laugarneshverfið. Síðan þurfti maður að vakna eld- snemma um morguninn í vinnu. Gunnlaugur Hjálmarsson er orðinn 82 ára en hreyfir sig ennþá mörgum sinnum á dag og kann hvergi betur við sig en undir berum himni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.