Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Qupperneq 19
7.3. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
FERMINGARTILBOÐIN 2021 Í BETRA BAKI
QOD STÓRI BJÖRN
DÚNSÆNG 135 X 200 CM
FULLT VERÐ: 19.900 KR.
FERMINGARTILBOÐ: 15.920 KR.
QOD STÓRI BJÖRN
KODDI MEDIUM 50X70 CM
FULLT VERÐ: 7.900 KR.
FERMINGARTILBOÐ: 6.320 KR.
DIMMA
RÚMFÖT
140X200 CM
MARGIR LITIR –
TVÆR GERÐIR
FULLT VERÐ FRÁ: 14.900 KR.
FERMINGARTILBOÐ
FRÁ: 11.920 KR.
AFSLÁTTUR
20%
STÓRI BJÖRN OG DIMMA
ustu skot af öryggi og leikni, svo að undir tók í
salnum, er áhorfendur lýstu hrifni sinni.“
Gunnlaugur segir sigurinn hafa komið þægi-
lega á óvart. Menn hafi ekki átt von á því að
vinna Sviss.
Besti leikur Íslands í mótinu kom tvímæla-
laust í milliriðlinum gegn einu besta hand-
boltaliði heims, Tékkum, sem urðu í öðru sæti
á HM bæði 1958 og 1961. Honum lauk með
jafntefli 15:15 eftir að Ísland hafði verið undir
15:12. Með mikilli seiglu tókst liðinu að jafna
og var Gunnlaugur þar að verki rétt fyrir
leikslok.
„En það var er síðari hálfleikur hófst, sem
íslenzka liðið kom á óvart. Baráttuvilji þess,
ákafi og keppnisskap heitt, sameinaði þá á ör-
lagastund og smám saman gekk á forskotið
sem Tékkarnir höfðu myndað sér og er flautað
var af hafði Gunnlaugur Hjálmarsson jafnað
15:15 og Ísland hafði hlotið stig í lokakeppn-
inni móti þeim sem sízt var vænzt að fá stig
frá,“ sagði Morgunblaðið.
Íslendingar þekktu ágætlega til leikmanna
tékkneska liðsins enda höfðu þarlend lið leikið
á Íslandi. „Þetta voru hálfgerðir kunningjar
okkar og við fengum ekki fallegan svip frá
þeim eftir jafnteflið,“ segir hann.
Get enn ekki skilið …
Úrslitin vöktu víða athygli, meðal annars í
landi ríkjandi heimsmeistara, Svía. „Sænsku
blöðin skrifa mjög vel um leik Íslendinga við
Tékka og telja að jafnteflið við Tékka sé
stærsti atburður og merkasti í íþróttasögu Ís-
lands,“ sagði fréttaritari Morgunblaðsins í Sví-
þjóð. „Blöðin segja að Ásbjörn Sigurjónsson
aðalfararstjóri Íslendinga hafi verið umsetinn
eftir leikinn og hylltur mjög. Sömu sögu var
ekki að segja með tékkneska aðalfararstjór-
ann. Hann gat aðeins sagt þetta að sögn
sænsku blaðanna: „Ég get enn ekki skilið hvað
hefur komið fyrir“.“
Svíar höfðu fengið sína aðvörun og héldu
haus gegn íslenska liðinu, niðurstaðan varð
öruggur sigur þeirra, 18:10. „Við áttum aldrei
möguleika í þeim leik,“ segir Gunnlaugur.
Svíagrýlan bjó snemma um sig og markverð-
irnir reyndust leikmönnum íslenska liðsins
erfiðir í leiknum. Þú segir ekki?
Frakkar gengu næstir á hólm og urðu auð-
veld bráð, Ísland vann 20:13. Þau úrslit kunna
að líta vel út á prenti en Gunnlaugur setur mál-
ið í samhengi. „Frakkar voru ekki háttskrif-
aðir í handknattleik á þessum árum og enginn
hefði viljað koma heim með tap fyrir þeim á
bakinu. Leikurinn var tiltölulega léttur fyrir
okkur. Sama máli gegndi um Spánverja á
þessum tíma; enginn vildi tapa fyrir þeim. Í
dag eru þetta stórveldi.“ Eini sigur Frakka á
mótinu var gegn Hollendingum. Spánverjar
tóku ekki þátt.
Unnið sér álit í greininni
Þetta þýddi að Ísland lék um fimmta sætið á
HM í Vestur-Þýsklandi – gegn aldavinum sín-
um Dönum. Liðið hafði vaxið við hverja raun
og úr varð hörkuleikur sem Danir unnu á end-
anum með einu marki, 14:13. „Það tap var
mjög sárt, ekki síst sigurmarkið sem fór í
stöng og þaðan í Hjalta, sem hafði varið mjög
vel, og í markið. Lak inn,“ rifjar Gunnlaugur
upp.
Í umsögn Morgunblaðsins kom eftirfarandi
fram: „Í skeyti þýzku fréttastofunnar er það
tekið fram að sigur Dana hafi hlotnazt þeim
fyrir mikla heppni. Leikur Dana var lélegur og
án nokkurs sóknarþunga. Á köflum léku Ís-
lendingar aftur á móti mjög vel og fjöl-
breytilega. En hinn sænski dómari kom þeim
mjög úr jafnvægi með dómum sínum. Flestir
áhorfenda tók undir óánægju Íslendinga með
ópum.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vel var tekið á móti strákunum á Reykjavíkurflugvelli þegar þeir komu heim frá Vestur-Þýskalandi
1961. Aftari röð frá vinstri: Hallsteinn Hinriksson, þjálfari, Ásbjörn Sigurjónsson, formaður HSÍ, Karl
Jóhannsson, Hannes Þ. Sigurðsson, formaður landsliðsnefndar, Magnús Jónsson, fararstjóri, Hjalti Ein-
arsson, Pétur Antonsson, Örn Hallsteinsson, Hermann Samúelsson og Erlingur Lúðvíksson. Fremri
röð: Kristján Stefánsson, Sólmundur Jónsson, Ragnar Jónsson, Gunnlaugur Hjálmarsson og Birgir
Björnsson. Á myndina vantar tvo leikmenn; Karl G. Benediktsson og Einar Sigurðsson.
Ragnar Jónsson í kunnuglegri stellingu; skorar
gegn Sviss úr hraðaupphlaupi.
Einkasafn/Sigmundur Ó. Steinarsson
auðvitað ekki þennan evrópska handbolta.
Danir voru allt annað en sáttir við okkur.“
Svo að undir tók í salnum
Betur gekk í næsta leik, þegar Ísland gerði sér
lítið fyrir og vann Sviss, 14:12.
„Leikur Svisslendinga og Íslendinga í gær-
kvöldi var geysispennandi,“ stóð í Morg-
unblaðinu. „Íslenzka liðið náði sér nú vel á
strik og átti mun betri leik en þegar það mætti
Dönum í fyrrakvöld. Hjalti Einarsson mark-
vörður var hetja dagsins og varði hin ótrúleg-