Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.3. 2021
KNATTSPYRNA
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Calia Pier
Ítalskt, gegnlitað nautsleður
3ja sæta sófi (226 cm) 339.000 kr.
2,5 sæta sófi (206 cm) 319.000 kr.
2ja sæta sófi (186 cm) 299.000 kr.
Upplitið á hinu fornfræga fé-lagi Liverpool var ekkidjarft árið 1961. Þessir
fimmföldu Englandsmeistarar höfðu
þá setið fastir í 2. deild í sjö ár og
þrátt fyrir góðan vilja ekki komist
aftur upp í hóp þeirra bestu. En nýi
knattspyrnustjórinn, Skotinn Bill
Shankly, sem tók við liðinu í árslok
1959, hafði háleitari hugmyndir;
breytti skóherberginu á Anfield sem
frægt er í fundarherbergi fyrir her-
ráðið og byrjaði að horfa til fram-
tíðar. Kaupa þurfti nýja leikmenn og
framherji og miðvörður voru efstir á
óskalistanum.
Hermt er að Shankly hafi viljað fá
markakónginn mikla Brian Clough
frá Middlesbrough en til að bíta höf-
uðið af skömm Liverpool þá valdi
hann Sunderland. Hver gerir svo-
leiðis? Sunderland, hvaða land er
það, spyr nú ungviðið?
Það var þá sem Shankly rakst á
klausu í dagblaði: Motherwell hafði
sett framherja sin, Ian St John, á
söluskrá. Hann var á góðum aldri,
aðeins 23 ára, og hafði þegar skorað
80 mörk í 113 deildarleikjum fyrir
Motherwell. Rétti maðurinn. Það
var bara eitt vandamál – verðmiðinn,
37.500 sterlingspund. „Böns-o-
monní“ á þeim tíma og hærra en
Liverpool hafði nokkru sinni greitt
fyrir leikmann. Enda stóð tekexið í
stjórninni þegar Shankly knúði dyra
með beiðnina. „Hvers vegna viltu
eyða svo miklu fé í einn leikmann?“
spurðu menn gáttaðir. Ekki stóð á
svari frá stjóranum frekar en endra-
nær: „Við höfum ekki efni á að
kaupa hann ekki!“ Bingó!
Svo sannfærður var Shankly að
hann fékk Rolls Royce-bifreið eins
stjórnarmannanna lánaða áður en
hann hélt í innkaupaleiðangurinn til
Motherwell. Gekk frá kaupunum
fyrir framan nefið á Newcastle Unit-
ed. Það verður seint fyrirgefið.
Svo við setjum St John í samhengi
þá hafði hann þurft að hafa fyrir líf-
inu. Fæddist í Motherwell 7. júní 1938
og hlaut nafnið John St John. Hvers
vegna hann breytti skírnarnafninu í
Ian liggur ekki fyrir. St John var að-
eins sex ára þegar faðir hans féll frá
og ólst eftir það upp hjá einstæðri
móður ásamt systkinum sínum fimm.
Hann vann til skamms tíma í stál-
smiðju og lofaði góðu sem hnefaleik-
ari. En knattspyrna skyldi það verða,
heillin, og þar var St John sannarlega
á heimavelli. Vann einu sinni það af-
rek að skora þrennu á aðeins 150 sek-
úndum fyrir Motherwell gegn Hibs.
Shankly fékk líka miðvörðinn sinn
þetta sumar. Annar Skoti, Ron
Yeats, kom frá Dundee United fyrir
um 20.000 sterlingspund. Hann var
árinu eldri en St John og umsvifa-
laust gerður að fyrirliða. „Maðurinn
er fjall,“ sagði Shankly við blaða-
menn, „farið bara inn í búningsklefa
og gangið í kringum hann“.
St John og Yeats léku báðir í ára-
tug með Liverpool og seinna sagði
Shankly að koma þeirra hefði mark-
að þáttaskil í gengi Liverpool. Upp
lá leiðin, upp, upp, eins og sálin og
geðið á sinni tíð.
Liverpool vann 2. deildina með
yfirburðum veturinn 1961-62; hlaut
átta stigum meira en Leyton Orient
sem varð í öðru sæti, en á þeim tíma
fengust ekki nema tvö stig fyrir sig-
ur.
St John var ekki lengi að renna
sér inn að dýpstu hjartarótum
stuðningsmanna Liverpool; setti
þrennu strax í fyrsta leik gegn Ever-
ton í Liverpoolbikarnum sem þá var
og hét. Fyrstu deildarmörkin komu í
4:1 sigri á Sunderland. Félagi hans í
framlínunni, Roger Hunt, var með
hin tvö. Alls gerði St John átján
mörk þennan fyrsta vetur og missti
aðeins af tveimur leikjum.
Rauði herinn marseraði áfram;
liðið varð í áttunda sæti fyrsta vet-
urinn í 1. deildinni og vorið 1964 stóð
það uppi sem Englandsmeistari. St
John lá ekki á liði sínu þann vetur,
gerði 21 mark sem var hans besti ár-
angur á ferlinum. Samvinna þeirra
Hunts var rómuð í framlínunni; þeir
bættu hvor annan vel upp.
Liverpool þreytti frumraun sína í
Evrópukeppni meistaraliða um
haustið – á Laugardalsvellinum
gegn KR. St John kom ekki við sögu
í þeim leik, sem lauk með 5:0-sigri
Liverpool, en í seinni leiknum á An-
field var hann á sínum stað og skor-
aði tvö mörk í 6:1-sigri.
Þegar Liverpool vann enska bik-
arinn vorið 1965 var St John hetj-
an; skoraði sigurmarkið gegn
Leeds United með skalla í fram-
lengingu. Annar meistaratitill
fylgdi 1966. Hunt skrapp svo til
Lundúna það sumar til að verða
heimsmeistari með enska landslið-
inu. St John lék að sjálfsögðu með
því skoska, samtals 21 leik og skor-
aði níu mörk.
Vinsæll sjónvarpsmaður
Er árin færðust yfir smokraði St
John sér aftar á völlinn og að því
kom að hann var ekki lengur lykil-
maður í liði Shanklys. Hermt er að
hann hafi áttað sig á því ein jólin
þegar kalkúnninn sem hann fékk frá
félaginu var í rýrari kantinum. Þeir
bústnu voru fyrir leikmenn aðalliðs-
ins. Seinasta veturinn á Anfield,
1970-71, lék St John með varaliðinu.
Liverpool átti auðvitað enn þá
betra gengi að fagna á áttunda og ní-
unda áratugnum en ekkert af því
hefði gerst hefði ekki verið fyrir
byltinguna á Bítlaárunum. Og Ian St
John stóð þar í brjósti fylkingar.
Hann lék með tveimur liðum í Suð-
ur-Afríku eftir að hann yfirgaf
Liverpool en einnig til skamms tíma
með Coventry City og Tranmere
Rovers, þar sem ferlinum lauk árið
1973. St John var þá orðinn 35 ára
sem þótti hundgamalt á þeim tíma
og til marks um það hvað kappinn
var slitgóður. Hann spreytti sig á
knattspyrnustjórn, bæði hjá sínu
gamla félagi Motherwell og
Portsmouth, en gerðist að því loknu
sparkskýrandi í fjölmiðlum. Fræg-
astur er hann fyrir sjónvarpsþáttinn
Saint and Greavsie á árunum 1985 til
1992, þar sem annar kunnur mark-
varðahrellir, Jimmy Greaves, var
honum við hlið.
Greaves var einmitt einn þeirra
fjölmörgu sem minntust St Johns
með mikilli hlýju eftir andlát hans í
vikunni eftir langvarandi veikindi.
Það gerðu einnig Liverpoolgoð-
sagnir á borð við Jamie Carragher
og Steven Gerrard og núverandi
leikmenn eins og Andy Robertson,
en St John hélt alltaf góðu sambandi
við Liverpool og var einstaklega vel
liðinn, svo sem Jürgen Klopp knatt-
spyrnustjóri kom inn á í kveðju
sinni: „Það er mikill heiður að hafa
fengið að hitta Ian St John.“
Saint mun snilli hans gleymast
Leikmenn Liverpool og Chelsea
minnast St Johns fyrir leik liðanna
á Anfield á fimmtudaginn var.
AFP
Ian St John lék með Liverpool í ára-
tug, frá 1961 til 1971.
Wikimedia
Ian St John prýddi að sjálfsögðu for-
síðu leikskrár Liverpool fyrir leikinn
gegn Chelsea í vikunni.
Ian St John, ein mesta
goðsögnin í sparksögu
Liverpool, féll frá í vik-
unni, 82 ára að aldri.
Hans er minnst fyrir
snilligáfu á velli, ósér-
hlífni og mikla hlýju. St
John skoraði í tvígang
gegn KR haustið 1964.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is