Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2021, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.3. 2021
„Undan fæti fer að halla,/ flýta lítt hver við þurfum oss; / heyrist þegar
hjá oss niða / hægt og þungan Gýgjarfoss.“ Svo orti Hannes Hafstein,
fyrsti íslenski ráðherrann. Fossinn sá er aðeins örfáa metra frá hring-
veginum, en samt í felum þó hann hafi ratað í rit svo sem skáldsöguna
79 af stöðinni eftir Indriða G. Þorsteinsson. Hvar er Gýgjarfoss?
MYNDAGÁTA
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hvar er Gýgjarfoss?
Svar:Gýgjarfoss er í Skagafirði, í Vatnsskarðsá. Er á vinstri hönd þegar komið er niður
Vatnsskarð að Arnarstapa þar sem er minnisvarðinn um góðskáldið Stephan G. Steph-
ansson, sem var frá bænum Víðimýrarseli.
ÞRAUTIR OG GÁTUR