Þróttur. Knattspyrnudeild - 01.09.1999, Qupperneq 4

Þróttur. Knattspyrnudeild - 01.09.1999, Qupperneq 4
Igghh IMK91ÍI Þráttair QJvUj ■ ■ ■ ■ Áqæti náqranni! Knattspymufélagið Þróttur er íþróttafé- lagið í hverfinu þínu og því er ætlað að sinna mikilvægu uppeldishlutverki á því ungviði sem foreldrar munu ala upp hér um slóðir um komandi framtíð. Þróttur hefur komið sér upp glæsilegri aðstöðu i Laugardalnum, i hjarta þess bæjarhluta sem kenndur er við sundin blá og hefur að geyma Voga- Heima- og Laugameshverfi. Hluti af þessu veigamikla hlutverki Þrótt- ar er að upplýsa íbúa þessa borgarhluta um starfsemi félagsins, gera þeim kleift að fylgjast með því sem félagsmenn hafa brallað og ekki síður hvert hugurinn stefn- ir. Þessu blaði er ætlað að uppfylla hluta af þessari skyldu um leið og Knattspymu- deild félagsins hefur af því nokkurn hag i fjáröflunarskyni. Hér er tæpt á sögu fé- lagsins á þessum stóm tímamótum sem hálfrar aldar afmæli þess er, án þess þó að blaðinu sé ætlað að gera þeim tímamótum tæmandi skil. Það er hins vegar hlutverk veglegrar afmælisbókar sem kemur út inn- an tíðar og hægt er að nálgast í félags- heimili Þróttar. I bland við umfjöllun um Haukur Magnússon formaður knattspymudeildar sögu Þróttar er því hér að finna ýmislegt forvitnilegt efni um knattspyrnusumarið sem er að líða, þá aðstöðu sem félagið býður nágrönnum sínum upp á auk hug- renninga um framtíðina, svo eitthvað sé nefnt. Það er svo um Þrótt eins og flest önnur félög að hlutverki félagins má skipta í tvennt. Annars vegar það mikilvæga upp- eldishlutverk sem hér hefur verið minnst á og hins vegar að fullnægja þeim metnaði sem alltaf mun fylgja íþróttum og byggist á því að félagið nái árangri sem félagsmenn geta verið stoltir af. I raun má bæta við þriðja liðnum, sem Þróttur ætlar að sinna af krafti i framtíðinni, að gera Þrótt að fé- lagi allrar fjölskyldunnar - félagi þar sem foreldrar geta fundið eitthvað við sitt hæfi um leið og börnin þeirra leika við hvern sinn fingur. Það skemmtilega við þessa þrískiptingu er að þessir þættir þvælast svo sannarlega ekki hver fyrir öðrum - þeir eru að okkar mati þvert á móti meginforsendan fyrir því að félagið nái að vaxa og dafna á heih brigðan hátt. Verið velkomin i Þrótt. Haukur Magnússon, formaður Knattspymdeildar Þróttar Við óskum öllum Þrótturum til hamingju með afmœlið. Ólafur Þorsteinsson og co hf Vatnagörðum 4 568 8200 Tækni ehf Vélsmiðja Súðavogi 9 553 8250 Johan Rönning hf Sundaborg 15 5200 800 Bæjarleiðir 553 3500 Nýja sendibílastöðin 568 5000 Óli P.Olsen málarameistari 896 8514 Halldór Jónsson/Lystadún Skútuvogi 11 563 6300 Raftækjaþjónustan sf Lágmúla 8 553 7500 fAtmælisblað Þróttar Utg. Knattspymudeild Þróttar/ Gunnar Jón Yngvason ábm. Haukur Magnússon Prentun Graffk hf. waBKsmaumai Rccbok Gunnar Guðmundsson hí 55 444 66 4

x

Þróttur. Knattspyrnudeild

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þróttur. Knattspyrnudeild
https://timarit.is/publication/1575

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.