Þróttur. Knattspyrnudeild - 01.09.1999, Side 16
KnattspymufélaglðCA & thh
Jœja, það er ein spurning sem ég verð
að spyrja. Hvað er „Qaffer“ ?
David skellihlær. Skrítið að þú skulir
spyrja. Eg held að þetta sé sú spurning
sem oftast er spurð eftir að ég kom hingað.
Gaffer er notað af leikmönnum í ( Evrópu
þegar þeir tala við aðalþjálfarann eða
framkvæmdastjórann. Ég vildi að leik-
mennirnir vissu að það þyrfti að vera
gagnkvæm virðing á milli okkar. Þannig
að ég bað þá um að kalla mig þessu nafni.
Ég geri mér grein fyrir því að þetta er ekki
venja hér á Islandi en þetta er nú engin
venjuleg áætlun heldur. Leikmennirnir
virðast sætta sig við þetta án vandræða.
Segðu mér, hvernig gengur að eiga
samskipti við leikmennina, þar sem þú
talar ekki íslensku ?
David brosir feimnislega. Ég er að læra.
Leikmennirnir hjálpa mér og ég er mjög
heppinn með aðstoðarmann, Axel Go-
mes. Þetta er mér mikilvægt. Íslenskan
er uppfull af hefðum og ég vil kunna á því
skil. Ég vil geta talað íslensku og á næsta
ári verða vonandi næstum því allar æfing-
ar útskýrðar á íslensku.
Þú haðst sérstaklega um Axel, er
hann þér mikilvœgur ?
Já, ég hitti Axel í sumar þegar ég var að
meta aðstæður hér. Hann er mjög vel lið-
inn bæði af leikmönnum og stjórn en fyrst
og fremst vegna þess að hann er mjög
áhugasamur og vill félaginu og leikmönn-
um þess aðeins það besta.
Hvað með fjölskyldu þína, hvernig líst
þeim á að flytja til Islands ?
David brosir breitt þegar talið berst að
fjölskyldunni. Hvar á ég að byrja ? Kon-
an mín, Marci er himinlifandi. Hún er
bandarísk og hefur í raun aldrei búið ann-
ars staðar en í Virginiu en hún er mikil
persóna. Enda verður það að vera svo hún
geti þolað mig ! Nei, í alvöru, hana hefur
langað að flytja til Evrópu síðan við gift-
um okkur þannig að hennar draumur er
orðinn að veruleika. En hún er samt svo-
lítið áhyggjufull, ekki segja henni að ég
hafi sagt þetta, hún kvíður svolítið fyrir að
hitta fólk og hvernig gangi að eignast
vini. Þannig að ef þið lesendur gætuð gert
mér þann greiða, að þegar þið hittið hana,
að kasta á hana kveðju. Ég á einn son sem
heitir Declan og er fjörugur í meira lagi og
ég er mjög ánægður með að geta leyft
honum að alast upp hér á íslandi. Að vísu
vill Marci ekki leyfa mér að þjálfa hann,
svo ef það eru einhverjir sjálfboðaliðar
þarna úti þá endilega hafið samband. Ég á
stóra fjölskyldu á Englandi. Tvo bræður
og fjórar systur og þau eru ánægð með að
ég er ekki langt frá heimalandinu. Reynd-
ar á bróðir minn sem er fiðluleikari, von á
því að koma hingað til lands og spila á
tónleikum næsta sumar.
Fiðluleikari, ertu að segja mér að lífið
snúist ekki hara um knattspyrnu í þinni
fjölskyldu ?
David hlær. Mitt stærsta leyndarmál er
reyndar það að ég er ljóðskáld og hef
meira að segja birt ljóð opinberlega. Oll
fjölskyldan er reyndar listhneigð, og þrjú
systkini mín eru mjög góðir fiðluleikarar
en ég er eini knattspyrnumaðurinn.
Hvernig líst þér á veðrið á íslandi ?
David kíkir út um gluggann og virðist ekki
taka eftir rokinu. Það er ekkert að því.
Þetta er svipað því sem ég vandist í Wales.
Jæja, hér koma svo nokkrar spurningar
fyrir stuðningsmenn Þróttar.
Láttu vaða.
Hvað ertu gamall ?
Ég er ekki lengur tuttugu og eins ! OK,
svona í alvöru þá er ég fæddur árið 1969.
Og konan þín ?
Hmmm.. látum okkur sjá. Hún drepur
mig ef þú birtir þetta ! Hún er fædd árið
1970.
Er það rétt, að þú luddir með Manches-
ter United ?
David grettir sig illilega. Já, einmitt !
Nei, það er aðeins eitt félag fyrir utan
Þrótt og það er LIVERPOOL og hana nú.
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í
Reykjavík ?
Það er bakaríið ofar í götunni hjá mér,
Kaupmannahöfn. Þar fást frábærar heiL
hveitkökur !
Síðasta spurning. Er eitthvað á döf-
inni sem þú mátt segja okkur ?
Já, við erum að skipuleggja mót fyrir U19
liðin næsta sumar og þar verða þekktir
klúbbar á meðal þátttakenda. Ég vona
bara að þau geti öll komið. Eitt af þeim er
Wrexham sem er í 2. deildinni í Englandi
og við vonum að þeir komi. Við erum
reyndar að ganga til viðræðna við þá um
samstarf. Þetta gæti haft í för með sér að
hingað kæmu ungir leikmenn og einnig
að héðan færu leikmenn til þeirra.
Stærsta fréttin er vafalaust sú að Neville
Southall, fyrrum markvörður Everton og
landsliðs Wales, hefur samþykkt að koma
hingað næsta sumar og sjá um markvarða-
skóla í vikutíma. Við skýrum frá þessu
nánar eins fljótt og auðið er.
Það lítur út fyrir að það sé nóg að gerast.
Við óskum þér góðs gengis og þökkum fyr-
ir okkur.
HÁRSNYRTISTOFA
Langholtsvegi 128 • Sími: 568 5775
HÁRGREIÐSLU OG RAKARASTOFA
16