Þróttur. Knattspyrnudeild - 01.09.1999, Side 8
Knattspyraufélafllð CAI gfe
IMZ3H ÞipM£oflr 3U W
Ur söqu Þróttar
Dyggir stuðningsmenn Þróttar (forverar köttaranna)
1956: Má ég fara í kaffi?
Það var leikur í 4. flokki á gamla
Grímsstaðarholtsvellinum. Dómarinn
hafðí flautað til hálfleiks, þegar einn leik-
maður Þróttar, Jón Gunnarsson oftast
kallaður Bassi, kemur til hans og spyr
hvað klukkan sé.
“Hún er þrjú,” svarar dómarinn.
'Er í lagi að ég hlaupi heim í kaffi, ég er
nefnilega 10 ára í dag og á heima hérna í
næsta húsi.
“Allt í lagi,” sagði dómarinn. Og hléið
sem átti að vera .5 mínútur varð 15 í
raun....
1957: Ekki í bað með þessum drengjum!
KRnngar komu heim frá Danmörku sem
einskonar Norðurlandameistarar og var
mikið veður gert af þessu í fjölmiðlum.
Þetta var liðið sem vann Islandsbikarinn
forðum! Nú lenti þetta fræga lið á móti
ágætu Þróttarliði í íslandsmótinu. Þrót-
tarar vissu greinilega ekki um meis-
taratignina, gerðu grín að nágrönnum
sínum úr Vesturbænum og unnu þá.
Liðsstjóri KR'inga brást hinn versti við,
smalaði liði sínu í sendiferðabíl og ók
þeim vestur í KR'heimili. “Þeir fara ekki í
bað með þessum drengjum,” tautaði
liðsstjórinn dreirrauður þegar hann hvarf
af vettvangi.
1961: Qunni bróðir Hjalla
Á árunum um og eftir 1961 var oft
fámennt í 2. Flokk félagsins og í tvö ár sá
Hjálmar Baldursson, Hjalli, um að boða í
leiki og oft skrifaði hann leikskýrsluna
fyrir leiki auk þess að vera leikmaður.
Rétt fyrir einn leikinn kom dómarinn
inn í klefa til Þróttaranna með
skýrslubókina og spyr hver þessi Gunni
bróðir sé.
“Gunnar bróðir Hjálmars,” var sagt í
liðinu og var Gunni eftir þetta alltaf
kallaður Gunni bróðir af félögum sínum.
Trönur og t jaldsúlur
Meistaraflokkur var eitt sinn á ferð úti á
landi á þeim tíma þegar flest allar ferðir
voru farnar landveginn. Menn greiddu
sjálfir ferðir sínar og nánast alltaf var gist
á lengri ferðum. I þessari ferð var ákveðið
að tjalda en þegar á tjaldstæðið kom,
kom í ljós að eina tjaldsúluna vantaði hjá
einum tjaldeigandanum. Þar var stutt í
leikinn og því ekkert hægt að gera í
málinu. Eftir leikinn og dansleik sem
venjulega fylgdi var stefnan tekin út
fyrir bæinn. Þar fundu strákarnir trönur,
5 til 7 metra á lengd, tóku eina traus-
tataki og örkuðu aftur inn til bæjarins.
Þeir komust þó aldrei á tjaldstæðið því
lögreglumönnum bæjarins bárust njósnir
af ferðalagi þeirra og þótt laganna verðir
hefðu lúmskt gaman af þessu háttalagi
voru okkar menn látnir skila trönunni á
sinn stað.
1964: Vallarmetið fór með sendibílnum
Þriðji flokkur var að leika gegn Val á
Valsvelli og staðan orðin ískyggileg í
hálfleik. Þjálfari Þróttar dó ekki ráðalaus,
heldur læddist í símann og pantaði sen-
diferðabíl af stöð í nágrenninu, smalaði
saman liði sínu inn í bílinn og yfirgaf
svæðið. Ekki fer sögum af svipnum á
Valsmönnum, sem voru farnir að tala um
vallarmet á Valsvellinum...
1970: Ofmikil ábyrgð
Meistaraflokkur hélt til Þýskalands til að
endurgjalda heimsókn félagsins Speldorf
til Þróttar sama ár. Einum fararstjóranum
varð ábyrgðin svo um megn að hann sagði
af sér, þegar liðið var komið til Keflavíkur
og beið brottfarar. Eftir að hafa létt af sér
ábyrgðinni stjórnaði hann ferðinni eins
og herforingi!
1963: Stjórnaði eins og herforingi
Þegar breska knattspyrnuliðið Middlesex
Wanderers kom hingað til lands 1963 var
allt gert til að taka sem best á móti liðinu.
Mikið var lagt upp úr kurteisisheim-
sóknum af þessu taginu. Mikil og vel
mönnuð móttökunefnd tók á móti hinum
háu herrum frá Englandi. Formaður nefn-
darinnar átti eftir að öðlast mikla frægð á
landi hér, en það var félagi okkar, Hörður
Sigurgestsson, úr Litla Skerjafirði, einn af
frumherjunum. Þarna lagði hann stórt
lóð á vogarskálarnar og skilaði hlutverki
sínu með prýði. Síðar stjórnaði hann
aðalfundi Þróttar á Hótel Sögu og gerði
það eins og sannkallaður herforingi.
8