Þróttur. Knattspyrnudeild - 01.09.1999, Side 10

Þróttur. Knattspyrnudeild - 01.09.1999, Side 10
Knattspymufélagið n / < /rmrm 50 UTILIF 7\ -*/] i /< Glæsibæ -sími:581 2922 Glampandi sól i Skotlandi Þróttur var á leið til Glasgow og þota Flugleiða einn í 32 þúsund feta hæð þegar æringjanum Ottó Hreinssyni varð litið út um gluggann og sagði: “Það er glampandi sólskin í Skotlandi, strákar!” 1970: Flóðlýst athöfn Axel Axelsson sá góði knattspyrnumaður okkar var kominn í sprengí leik í Þýska- landsferð Þróttar. Hann sneri sér að dómaranum og upphófst mikið handapat sem lauk með því að Axel var vísað á skúr við hliðarlínuna. Þangað inn hvarf fram- herjinn og átti þar nokkrar góðar mínútur. I síðasta leiknum í þessari ferð varð fleirum brátt í brók í Zimmern þar sem leikið var í flóðljósnum. I leikhléi voru ljósin slökkt, en þegar seinni hálfleikur átti að hefjast reyndist erfitt að kveikja ljósin, því þau höfðu ekki kólnað nóg. Einhverjir Þróttarar notuðu tækifærið til að létta á blöðrunni í myrkrinu. Það varð hins vegar handagangur í öskjunni þegar ljósin kviknuðu skyndilega án viðvörunar. Spegill, spegill, herm pú mér... Leikur var að hefjast í meistaraflokki þegar athugull maður tók eftir því að Þróttarar voru aðeins tíu á vellinum. Það vantaði Baldur Hannesson. Einn liðsstjóranna hljóp inn í klefa til að athuga hvað tefði kauða. Hann fann hann fyrir framan spegilinn þar sem hann greiddi sér af mikilli kúnst. Eitt sinn vantaði Baldur þegar flokkur hans sigldi með Akraborg upp á Skaga. Baldur mætti, en hjá BSI. Fallegt merki Ottó! í leik milli Þróttar og ÍA hafði Matthíasi Hallgrímssyni orðið lítið ágengt gegn Ottó Hreinssyni í vörn Þróttar. Matti dó hins vegar ekki ráðalaus. Hann tók til að tala um hvað Þróttarmerkið í búningi Ottós væri fallegt. Ottó uggði ekki að sér, laut höfði til að skoða merkið, og sjá! Stungusending inn fyrir vörn Þróttar, og Matthías ekki lengi á nýta frelsið og skora auðveldlega... Gæsla sem brást Einar Sverrir Einarsson fékk einu sinni það hlutverk að taka Inga Björn Albertsson úr umferð en Ingi Björn hafði verið í miklu stuði leikina á undan og skorað drjúgum. Ottó helt að þetta yrði nú ekki mikið mál, en eitthvað mun hann hafa byrjað seint á gæslunni því eftir 20 mínútur var staðan orðin 0:4 og hafði Ingi Björn skorað öll mörkin fyrir Val. Leikræn tilprif í leðjimni Það gat oft orðið ansi forugt á malarvöh lum Reykjavíkur í gamla daga. Einu sinni sem oftar voru Þróttarar í 4. eða 5. flokki að leika gegn Fram á gamla Framvellinum við Sjómannaskólann, sem var eitt forarsvað eftir mikla rigningu. Hægri bakvörður liðsins okkar var sá geðþekki og góði félagi Þórhallur Sigurðsson leikari og leikstjóri (ekki Laddi). Þórhallur var eitilharður þótt ekki væri hann hár í loftinu, og aldrei gaf hann þumlung eftir. Eitt sinn er Framarar sendu háa sendingu fram vin- stri kantinn, kom ekki annað til greina en að skalla knöttinn sömu leið til baka þótt aðrir leikmenn veigruðu sér við að skalla rennandi blautan og leirugan knöttinn. Nú. Þegar Þórhallur skallaði endasentist hann í drulluna með mik- lum leikrænum tilþrifum. Þjálfarann tók það tímakorn að finna andlitið á honum. io

x

Þróttur. Knattspyrnudeild

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þróttur. Knattspyrnudeild
https://timarit.is/publication/1575

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.